BFÖ-blaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 17

BFÖ-blaðið - 01.07.1990, Blaðsíða 17
Eru 0 prómill mörkin raunhæfur kostur? Bindisfélag ökumanna er aðili að norrænu samstarfi Bindindisfélaga sem nefnist NUAT (Nordisk Union for Alkoholfri Trafik). Helstu baráttumál þessara samtaka eru þau sömu og BFÖ, að stuðla að bindindi og bættri umferð- armenningu. Dagana 27.-28. apríl síðastliðinn stóðu samtökin fyrir norrænni ráðstefnu í Gauta- borg. Yfirskrift hennar var: Umferðaröryggi tíunda áratugarins - Norðurlöndin 0 prómill svæði? Ráðstefnu þessa sóttu nokkrir íslend- ingar, þrír frá BFO, einn frá Ábyrgð hf., einn frá Umferðarráði og einn frá Alþingi. Undanfarin ár hafa áfengismörk í blóði ökumanna verið 0,5 prómill á Norðurlöndum að undanskyldri Danmörku, sem hefur 0,8 prómill. Rannsóknir hafa sýnt að strax við 0,1 prómill minnkar hæfni ökumanna til að stjórna ökutæki sínu og hæfnin minnkar jafnt og þétt með auknu vínmagni. Við 0,5 prómill er því hæfnin verulega skert. Því teljum við að þau mörk sem sett voru fyrir mörgum árum séu allt of há. Viðfangsefni ráðstefnunnar var einmitt þetta. Svíar hafa riðið á vaðið og nú 1. júlí munu þeir lækka mörkin í blóði úr 0,5 niður í 0,2 prómill og 0,10 ml í öndunarsýni. Norð- menn og Finnar hafa tekið upp umræður um að lækka mörkin hjá sér. Þeir hafa ekki enn komist að niðurstöðu um hve mikið og hvern- ig standa eigi að því. Á ráðstefnunni var vitnað í fjölmargar rannsóknir sem allar bentu til sömu niður- stöðu, þ.e. að aksturshæfni minnki í réttu hlutfalli við magn áfengis í blóði. Að vísu minnkar aksturshæfnin mismikið og fer það m.a. eftir aldri ökumanns, kyni, líkamsþyngd og fyrri drykkjuvenjum. Því er mjög erfitt fyr- ir mann sem neytt hefur áfengra drykkja að meta hvort hann sé undir mörkunum og hvort aksturshæfni hans sé skert eða ekki. Ef hann á að meta aksturshæfni sína eftir að hafa neytt áfengra drykkja, hefur áfengið slævandi áhrif á dómgreindina og hann telur sig jafnvel fullfæran um að aka. Meðal annars vegna ofangreindra atriða er enn mikilvægara að skilja alveg á milli aksturs og áfengis. Segja að annað hvort fái menn sér í glas og sleppi akstri eða aki og sleppi glasinu. En hver á að sjá til þess að skilja á milli? Á ráðstefnunni kom vilji manna skýrt í ljós að umferðarlögin eigi að tilgreina það. Þar eigi að koma fram að menn eigi ekki að aka undir áhrifum áfengis. Bindindisfélag ökumanna hefur í vetur ver- ið að undirbúa baráttuherferð gegn ölvunar- akstri og að hér á landi verði mörkin færð nið- ur í 0 prómill. Því þótti þeim félögum sem ráð- stefnuna sóttu þær niðurstöður sem þar eru birtar, fróðlegar og styðja þau sjónarmið félagsins að akstur og áfengi eigi aldrei að fara saman. En er raunhæft að færa mörkin niður í 0 prómill? Hvað með pilsnerinn, eða konfekt með líkjörfyllingu? Mælist ekki áfengi í blóði við neyslu þeirra? Hvað með það magn sem líkaminn sjálfur framleiðir af vín- anda? Allir þessir þættir hafa verið vandlega rannsakaðir og konur og karlar með mismun- andi líkamsþyngd verið prófuð. Ef einnar flösku af pilsner er neytt með mat, mælist ekkert magn í blóði, sama gildir með konfekt með líkjörfyllingu. Það er ekki fyrr en við áfengan bjór sem eitthvað vínandamagn mæl- ist og þá mismikið eftir kyni og þyngd viðkom- andi. Það magn vínanda sem líkaminn fram- leiðir sjálfur er svo hverfandi lítið að ekki mælist með venjulegri mælingu. Niðurstaða ráðstefnunnar var sú að til að auka öryggi vegfarenda í umferðinni beri að færa prómillmörkin niður í 0 en jafnframt verði að miða við ákveðin skekkjumörk, vegna lyfjaneyslu og annars sem mælst geti í blóði ökumanna. Skekkjumörkin ættu að vera 0,10-0,15 prómill. Baráttan hér á landi er rétt að byrja og von- um við að stjórnvöld geri sér grein fyrir því hversu mikilvægt er að lækka mörkin, því kostnaður þjóðfélagsins vegna slysa og eigna- tjóns af völdum drukkinna ökumanna er geig- vænlegur. Og þá er eftir að taka með í reikn- inginn þá sem sjá á eftir sínum nánustu sem orðið hafa fórnarlömb Bakkusar. Við þurfum á allri athygli okkar að halda undir stýri, ekki aðeins hluta hennar. Þess vegna verðum við að aka allsgáð. E.G. 17

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.