Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1991, Blaðsíða 32
TVÖFALDUR1. vinningur Ritstjóm - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1991. LOKI Hvenær misstu Eyjamenn kjarkinn? Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Veðriðámorgun: Hvessir og hlýnar Hvöss suðaustanátt og rigning verður um suðvestanvert landið. Norðaustantil þykknar upp með hægri, vaxandi suðaustanátt. Veður fer hlýnandi. Besta sjósókn ársins: Rúmlega 500 um i gær Dagurinn í gær var sá langbesti hvaö varðar sjósókn á þessu ári. Til- kynningaskyldu Slysavarnafélags íslands bárust hátt í 1.500 tilkynning- ar frá sjómönnum í gær. Á hádegi í gær voru 520 skip og bátar á ferðinni viö strendur landsins og á miðunum. Tíðarfar hefur verið með verra móti að unanfórnu. Veðurspá lofar hins vegar góðu fyrir daginn í dag en þó er búist við hvassri suðaustan- átt á suðvesturmiðum og Faxaflóa- miðumundirmiðnætti. -ÓTT ÞjófaríEyjum: Lögðu á f lótta út í hraun Tveir menn á fertugsaldri gerðu tilraun til aö brjótast inn í söluskál- 1 ■ ann í Goðahrauni í vestanverðum Vestmannaeyjabæ um klukkan ijög- ur í nótt. Þeir höfðu með sér fleyg og hamar á innbrotsstað og hófu að spenna upp glugga og hurðarbúnað. -•Þegar mennirnir voru við það að komast inn fór öryggiskerfi verslun- arinnar í gang. Við það kom styggð að mönnunum og lögðu þeir á flótta. Það sást til mannanna þegar þeir hlupu í burtu en lögreglan fann þá skommu síðar. Mennirnir voru greinilega drukknir. Nokkur ihnbrot voru framin í Eyj- um um helgina og er talið hugsanlegt að þessir menn hafi átt þar hlut að máli. Mennirnir verða yfirheyrðir þegar þeir verða í ástandi til þess í dag. -ÓTT / íkveikja á Egilsstöðum Ein fimm súlnanna í íslandsmerki Sigurjóns Ólafssonar við Hagatorg brotnaði í fárviðrinu í siðustu viku og hinar skemmdust nokkuð. Nýlega fóru fram viðgerðir á súlunum en Ijóst er að það þarf að taka þær allar niður og gera upp. Þá eru uppi hugmyndir um að færa íslandsmerkið vegna breytts skipulags á svæðinu og þá helst nær Þjóö- arbókhlöðunni. Kostnaður vegna viðgerða á listaverkinu verður á aðra milljón króna. DV-mynd BG Töluverður eldur varð eftir að kveikt var í um tuttugu dekkjum við leiktæki hjá grunnskólanum að Eg- ilsstöðum um klukkan hálfellefu í gærkvöldi. Starfsmenn voru inni í skólanum þegar eldurinn kviknaöi. Nokkrir krakkar sáust við leiktæk- in og gaus mikill reykur upp frá dekkjunum; Slökkvilið var kallað á vettvang og tókst fljótlega að ráða niðurlögum eldsins. Skemmdir urðu einnig á leiktækjum úr timbri. Lög- reglan rannsakar hveijir hér voru að verki en krakkarnir, sem voru á staðnum, voru með eldfæri á sér. Að sögn lögreglunnar virðist eitthvert —4 „kveikjaraæði" hafa gripið um sig á Egilsstöðum þessa dagana. -ÓTT Unnlð að nýjum búvörusamningi: Helmingur launa beint úr ríkissjóði - frjáls sala á fullvirðisrétti meðal hugmynda sem sjö manna nefndin ræðir um Verði hugmyndír þær sem sjö manna nefndin ræðir þessa dagana að raunveruleika er stutt í að bændur fari á framfæri ríkisins og - fái sem samsvarar helmingi launa sinna beint úr rikíssjóði í formi styrkja. Á móti felur hugmyndin í sér að niðurgreiðslum og útflutn- ingsbótum verði hætt er núgild- andi búvörusamningur rennur úr gildi haustiö 1992. Framkvæmdastjórn VSÍ hefur verið boðuð til fundar á morgun til að fjalla um þá vinnu sem fram hefur farið í sjö manna nefndinni. Að sögn Einars Odds Kristjánsson- ar, formanns VSI, hafa vinnuveit- endur enn enga ákvörðun tekið um hvort þeir leggi blessun sína yfir nýjan búvörusamning við bændur. Fyrst verði að taka afstööu til þeirra sjónarmiða og upplýsinga sem upp hafa komið í sjö manna nefndinni. En skýtur það ekki skökku við aö Vinnuveitendasambandið, sem ítrekað hefur gagnrýnt stjórnvöld fyrir að skera ekki niður ríkisút- gjöldin, sé aö leggja blessun sina yfir nýjan búvörusamning sem óhjákvæmilega mun leiða til auk- inna útgjalda? „Það tel ég ekki vera. Við ákváð- um það fyrir ári síðan að leggja okkur fram ásamt ASÍ við að reyna að leggja okkar af mörkum til að leysa þann vanda sem steðjar að landbúnaðinum. Til lengri tíma hlýtur það að skila sér í aukinni hagkvæmni og þar meö lægri ríkis- útgjöldum." Góð samstaða er um ýmsár fleiri hugmyndir í sjö manna nefndinni. Meðal annars að bændum verði heimilað að selja fuilviröisrétt í sauðfjárræktinni sín á milh frá og með næsta vori og að ríkissjóöur kaupi framleiðslurétt af bændum sem samsvari 3800 tonnum af kindakjöti á næstu 18 mánuðum. Enn er þó ágreiningur um ýmis atriði varðandi gerð nýs búvöru- samnings, til dæmis hvernig tryggja megi að framieiðsla hvers árs verði ekki umfram þörf á inn- anlandsmarkaði. Nefndinni var komið á fót í kjöl- far þjóðarsáttarsamninganna síð- astUðið vor og í henni eiga sæti fulltrúar frá heildarsamtökum launþega og atvinnurekenda ásamt fulltrúum bændasamtakanna og landbúnaðarráðuneytísins. -kaa Frjalst, ohaö dagblað Alþingi um Litháen: Viðurkenning á sjálfstæði ífullu gildi „Alþingi ályktar að staðfesta að viðurkenning ríkisstjórnarinnar frá 1922 á sjálfstæði lýðveldisins Lithá- ens er í fullu gildi. Alþingi styður ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 23. janúar 1991 að verða við ósk lýðræð- islega kjörinna stjórnvalda í Litháen um viðræður um stjórnmálasam- band. Alþingi felur ríkisstjórninni að leiða málið til lykta með því að taka upp stjórnmálasamband við Lit- háen svo fljótt sem verða má.“ Þetta er þingsályktunartillaga sú sem utanríkismálanefnd Alþingis lagði fram í gærkvöld og Alþingi samþykkti á fundi í sameinuðu þingi. Tillagan var samþykkt í heild sinni með 41 atkvæði gegn einu, atkvæði Ólafs Þ. Þórðarsonar. Þessi samþykkt Alþings hefur vak- ið athygli erlendis. Reuter fréttastof- an sem og norrænar fréttastofur skýra frá henni í morgun. Þar er haft eftir forseta litháiska þingsins að samþykktin hafi mikiö að segja. Napðsynlegt væri að einhver þjóð bryti ísinn. -hlh ^SM/V > ( 7*177 \ SMIÐJUKAFFI r SeHDUM fRÍTT HBM 0PNUM KL.18VIRKADAGA OG KL. 12 UM HELGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.