Dagblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 19.06.1979, Blaðsíða 1
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLT111.—AÐALSÍMI27022. Bráöabirgdalögídag? ÞINCr FLOKKUR KRATA GAF GRÆNT UÓS —Vilmundur laut í lægra haldi —Alþýðuflokks- og Alþýðubandalags- menn lögðust gegn atríði í uppkasti laganna ._.__ — Sjábaksíðu L Lausn farmannaverkfalls í sjónmáli en: ÓVÍSTAÐ SKIPIN SIGU ----7T——-- ' 'W Frændur Rebekku vildu athuga hvað um væri að vera og komu þvf til þess að fylgjast með. Þeir áttu Ifka að fá að fara á sjó- inn með afa, en fyrír aftan Rebekku eru þeir Krístinn Fríðþjófur Asgeirsson og Gunnar Jakobsson. DB-mynd J H — Skipafélögin vilja 40% hækkun farmskrár ( •»+*■■■ ) Á sjó með afa Óvíst er með öllu hvort þau skip sem bundin eru við bryggju vegna far- mannaverkfallsins láti úr höfn þegar verkfallið hefur verið leyst með bráða- birgðalögum. Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eim- skips, sagði i samtali við DB i morgun að félagið hefði beðið um 40% hækkun á farmgjöldum í febrúar sl. en ekkert svar fengið frá verðlagsyfirvöldum. Siðasta hækkun á farmskrá, 20%, hefði verið í marz 1978. Þetta væri óviðunandi og varla rekstrargrund-. völlur fyrir útgerð skipa við þessar kringumstæður. Hörður kvað því til umræðu og at- hugunar í Eimskipafélaginu að láta skipin ekki sigla fyrr en þessi hækkun hefði fengizt. Ákvörðun yrði ef til vill tekin í dag þegar fyrirhuguð bráða- birgðalög rikisstjórnarinnar lægju frammi. -GM. „Komum við í Dagblaðinu? Hvernig getum við það?” Það var kotroskin stelpa, sem gaf sig á tal við blaðamann DB á Bíldudal og vildi vita nánari deili á ferðum komumanns og segja frá sin- um högum. Stelpukornið var Rebekka Valsdóttir, Fimm ára. Hún á heima í Reykjavík en dvelur sumarlangt hjá afa og ömmu á Bíldudal. ,,Ég fer á sjó í kvöld með afa mínum á hvíta bátnum,” sagði Rebekka og benti á hvíta bátsskel i fjörukambinum. „Afi tekur fjóra krakka með sér: mig, Gunnar, Kristin og Jón Pál. Hann fer ekki með Atla, af því að það eru ekki til fleiri björgunarvesti. Ég er ekki synd, bara Jón Páll og afi. Við erum að fara að veiða og svo erum við líka bara að fara til að skemmta okkur. Afi minn heitir Kristinn Friðþjófur Ásgeirsson og hann vinnur í smiðj- unni.” - JH Farmenn hlrta bráöabirgðalögunum „Það mundi bara skemmta skrattanum við Garðastræti ef við hlíttum ekki bráða- birgðalögum,” sagði Páll Hermannsson, blaðafulltrúi farmanna i morgun og kvað viðhorf breytt frá þvl farmenn gáfu sfðast I skyn að þeir mundu ekki hlita bráðabirgða- lögum. Utlit var fyrír að fundur farmanna, sem hófst I Sigtúni kl. 10 I morgun, mundi sam-| þykkja mótmæli gegn lögunum, en farmenn að öðru lcyti ekki neita að hlita þeim. -GM.I Hveráaöfriöa Bemhöftstorfuna —borgineöa ríkið? — sjábls.8 Lýðræðisþróun eða röskuná stjómskipulagi? — Skiptar skoðanir um sjónvarpsræðu Sigurðar Líndal—sjá bls. 5 Pétur Pétursson svarar Siguröi sjá kjallaragrein á bls. 11

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.