Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 1
• r 5. ARG. — FOSTUDAGUR 5. OKTOBER 1979 — 218. TBL. RÍTSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIDSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. Reykjavíkurborg og ný Landsvirkjun: „Sjöfn er samþykk samn- ingum um Landsvirkjun” —engerdi athugasemdirum viss atriði, segir Björgvin Guðmundsson „Alþýðuflokkurinn styður breyt- inguna á Landsvirkjun. Það er i sam- ræmi við stefnu tlokksins í raforku- málum og hefur komið fram á flokksþingum að hafa meginraforku- vinnslu í landinu á einni hendi,” sagði Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, í við- taliviðDB. „Sjöfn Sigurbjörnsdóttir hefur gert athugasemdir við viss atriði væntanlegs samnings við Reykja- víkurborg, en hún er ekki andvíg honum í heild,” sagði Björgvin. Hann kvað samninginn sem borgar- stjórn hefur til meðferðar um útvikk- un Landsvirkjunar hafa verið sam- þykktan í borgarmálaráði flokksins. í samningaviðræðum um hinn nýja samning lögðu fulltrúar Reykja- vikurborgar höfuðáherzlu á tvennt, sagði Björgvin. I fyrsta lagi að um- ræddar breytingar á Landsvirkjun leiddu ekki til hækkunar á rafmagns- verði Reykvíkinga. í öðru lagi að kostnaði af Kröflu verði ekki velt yfir á Landsvirkjun. Björgvin kvað hvort tveggja hafa náðst fram. „Til að tryggja að ekki yrði raf- orkuverðshækkun vegna yfirtöku byggðalínu fengu fulltrúar Reykja- víkur þvi framgengt að ríkið yfirtæki það mikið af skuldum línanna að það nægði til þess að.raforkuverðið héld- ist óbreytt,” sagði Björgvin. Hann sagði að varðandi Kröflu væri ákveðið að hún yrði ekki tekin inn i hina breyttu Landsvirkjun fyrr en hún, þ.e. Krafla, væri orðin hag- kvæmt og traust fyrirtæki fjárhags- lega. Til þess að setja enn frekari var- nagla I því efni fékk Alþýðuflokkur- inn því framgengt, að sögn Björg- vins, að hún yrði þó ekki yfirtekin nema samþykki borgarstjórnar Reykjavíkur kæmi til. Til þess að fyrirbyggja enn frekar raforkuverðshækkun greiðir rikið 6,2 milljarða vegna skulda byggðalin- anna. - BS Nýr meiríhluti skólanefndar styður Hjálmar: „Stríðandi öfí köstuðu mér ámillisín" — Hjalmar staðráðinn i að hætta „Ég held fast við þá ákvörðun mína að hætta skólastjórn í Grindavík,” sagði Hjálmar Árnason við DB i morgun. „Starfsfriður er ekki fyrir hendi í skólanum. Því er þetta cina bu-nin. Mér tókst með hjálp góðra manna að Ijúka undirbúningi til að skól'astarfið gæti hafizt. Skólastarfið ætti að geta gengið snurðulítið fyrir sig þrátt fyrir allt. Ég hef verið bolti sem kastað hefur verið á milli stríðandi afla i Grindavík. Fyrr eða siðar hlýtur óreyndur maður að gefast upp í þeirri stöðu. Nú ætla ég að hvíla mig og lita í kringum mig eftir annarri vínnu. Ég óska svo skólanum alls hins bezta og vona að Grindvíkingar taki betur á móti næsta manni sem velst þar i starf.” Skólanefnd Grindavikur hélt fund í gærkvöldi. Niðurstaða hans var sú að mciríhlut- ínn, 2 fulltrúar Aiþýðubandalags og fulltrúi Alþýðuflokks, samþykkti að mælast eindregið til þess við Hjálmar, að hann sneri aftur til starfa. Málinu yrði vísað til fræðslustjóra ef Hjálmar hafnaði erindinu. Fulltrúar Sjálf- stæðis- og Framsóknarflokks vildu vísa málinu strax til fræðslustjóra. í morgun lá fyrir formleg afsögn Hjálmars hjá Helga Jónassyni fræðslu- stjóra, að sögn Helga. Ráðherra hafði þá enn ekki fengið formlega staðfesl- ingu áákvörðun Hjálmars. -ARH Gervigras á aðaileikvanginn í Laugardal? Nei, nei, nei og aftur nei — sjáíþróttiríopnu Landsynningur, útsynningur og landsynningur aftur með viðeigandi rigningum og hvössum rokum hefur verið á dagskrá veðráttunnar sið- ustu daga og hefur fólk gripið til ýmissa úrræða tH að skýla sór fyrir veðrinu, eins og þessi mynd úr Austurstræti i gær ber með sór. I dag verður hins vegar hlé, a.m.k. um allt vestanvert landið, á meðan land- synningurinn dregur andann fyrir næsta blástur. DB-mynd H.V. Lögbrotálögbrot ofan eru daglega framin í Fríhöfninniá Keflavíkurflugvelli ogverðfager óeðlilega hátt - sjá kjallaragrein Gísla Jónssonar prófessors á bls. 10>11 FOLK — nýr þáttur í DB ídag: Þrírstjómendur þáttarinsívikih lokinsegjaupp Guöbergursemur fyrirbömin Rættviösigur- vegaraHæfileika- keppmnnar AnnaBjömsog Graffítif Laugarásbíói upp úráramótum — sjábls.23

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.