Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 13
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 13 OSRAM flúrperur á alla vinnustaði Jóhann Ólafsson & Co Sundaborg, Johan Rönning Sundaborg/Akureyri, Rekstrarvörur, Osram Perubúðir: Árvirkinn Selfossi, Faxi Vestmannaeyjum, R.Ó. Rafbúð Reykjanesbæ, Glitnir Borgarnesi, Rafbúðin Hafnarfirði, G.H. Ljós Garðabæ, Þristur Ísafirði, Ljósgjafinn Akureyri, S.G. Egilsstöðum, Lónið Höfn, Straumur Ísafirði, Víkurraf Húsavík, Vírnet Borgarnesi. Rafverkstæði Árna Elíssonar Reyðarfirði. Til bókaútgefenda: BÓKATÍÐINDI 2004 Skilafrestur vegna kynningar og auglýsinga í Bókatíðindum 2004 er til 12. október nk. Ritinu verður sem fyrr dreift á öll heimili á Íslandi Allar upplýsingar á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda, Barónsstíg 5, sími 511 8020. Netfang: baekur@mmedia.is ————————————— ◆◆◆ ————————————— Frestur til að leggja fram bækur vegna Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2004 er til 18. október nk. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Réttur til bóta fyrir líkamstjón Lögfræðilegt mat ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð örorkumats vegna líkamstjóns. Ef þig vantar upplýsingar um bætur fyrir líkamstjón s.s. vegna umferðarslyss eða vinnuslyss getur þú haft samband í síma 511-3600. Sjá einnig heimasíðuna www.logmat.is m.a. upplýsingarit tjónaþola vegna líkamstjóns. Lögfræðilegt mat ehf. Björn Daníelsson, lögfr. Athuga nýtt heimilisfang: Skúlagata 17, 101 Reykjavík. Hanna Pétursdóttir fata-hönnuður er búsett íRotterdam í Hollandi enhún gerði sér lítið fyrir og skrapp heim til Íslands til að vera með á handverkssýningunni vestnorrænu sem haldin var í Laug- ardalshöllinni nýlega. Hanna hefur búið í Hollandi í ellefu ár en upp- haflega fór hún þangað til að læra hönnun. „Ég sótti myndlist- arnámskeið og annað slíkt hér heima en ákvað svo að skella mér út í alvöru nám. Ég gekk á milli skóla með teikningarnar mínar og fékk inni í góðum skóla þar sem ég var í fjögur ár í almennu námi í tísku- og textílhönnun en fimmta árið var meistaranám og þá fór ég til Finn- lands til að læra textíl og til Parísar í tískuhönnun.“ Ullin þæfð í bómullargrisju Hanna hefur meira og minna unnið við hönnun sína frá því hún lauk náminu. „Ég vinn mikið með ull enda var útskriftarverkefnið mitt flík úr ull sem ég lét þæfa í bómullargrisju. Þetta hefur þróast hjá mér frá því að vera frekar gróf föt í að vera klæðilegri flíkur. Við þæfinguna í grisjunni verður ullin þétt og þannig næst sá styrkleiki sem ég vil hafa í fötunum. Í sum- arlínunni sný ég þessu við og hef grisjuna á yfirborðinu en ullina und- ir.“ Ullina kaupir Hanna frá Seyð- isfirði þar sem hún er þæfð fyrir hana af Þórdísi Bergsdóttur. „Ég er að þreifa fyrir mér í þessu öllu saman og eina vandamálið við þæfðu ullina er að framleiðslan er hæg og ég fæ því of lítið efni í einu.“ Fólk svolítið hrætt við þæfða ull Fötin hennar Hönnu eru til sölu í verslunum í Rotterdam og Amst- erdam og hún hefur líka selt sum- arlínu til Japans og vetrarlínu til London. Hanna hefur sýnt flíkurnar sínar á hönnunarsýningum í París og hún fór í fyrsta sinn með sumarlínu frá sér á sýningu til Kaupmannahafnar þetta árið og hún hlakkar til að fara þangað með vetrarlínuna. Hönnu dreymir um að geta lifað af hönnun sinni og geta selt föt úr íslenskri ull á eðlilegu verði. „Í því sem ég er að gera vil ég blása nýju lífi í íslensku ullina því það er löngu orðið tíma- bært.“ Hún segir flíkurnar seljast vel en þó sé fólk stundum svolítið hrætt við efnið því það þekki ekki svona þæfða ull. Hanna er ekkert á leiðinni að setjast aftur að á Íslandi en hún er gift hollenskum manni og eiga þau saman tveggja ára dóttur. „Við er- um reyndar að hugsa um að prófa fljótlega að flytja hingað heim í eitt eða tvö ár.“  HÖNNUN | Hanna Pétursdóttir fatahönnuður Blæs nýju lífi í íslensku ullina Morgunblaðið/Golli Hanna Pétursdóttir fatahönnuður. khk@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fötin hennar Hönnu eru til sölu í verslunum í Rotterdam og Amsterdam og hún hefur líka selt sumarlínu til Japans og vetrarlínu til London.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.