Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 20
MINNINGAR 20 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is ✝ Haukur Jónssonfæddist á Akur- eyri 3. september 1931. Hann lést á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi mánudaginn 13. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ingibjörg Benedikts- dóttir saumakona og húsmóðir á Akureyri, f. í Breiðuvík á Tjör- nesi 3. desember 1900, d. í Reykjavík 29. ágúst 1988, og Jón Hallur Einarsson, húsameistari á Akureyri, f. að Arnarstöðum í Sléttuhlíð í Skaga- firði 1. október 1895, d. á Akureyri 1. október 1963. Systur Hauks eru: Erla, f. á Ak- ureyri, 22. október 1929, gift Stef- áni Aðalsteinssyni og eru börn hennar a) Bjarni Guðmundsson, kvæntur Manassa Qarni og á hann fjögur börn, Erlu Kristínu, Guð- mund, Berglindi og Gabríelu Siv, b) Hallur Guðmundsson, kvæntur Jónu Helgadóttur og eiga þau þrjú börn, Hall Inga, Tinnu Björgu og Magnús Þór og Snorri Guðmunds- son, kvæntur Bryndísi Kristins- dóttur og eiga þau þrjú börn, Snæ- dísi, Sturlu Snæ og Vordísi Sól. Yngri systir Hauks var Þorbjörg, f. á Akureyri 9. ágúst 1934, d. í Reykjavík 13. ágúst 2000, var gift Þórarni Gíslasyni og átti hún eina dóttur, Ingu Lísu Middleton, sem bú- sett er í London og er gift Michael Rose og eiga þau eina dóttur, Sunnevu Margot. Haukur ólst upp á Akureyri og á Siglu- firði hjá foreldrum sínum við gott atlæti og gekk þar í skóla. En um fermingarald- ur þurfti hann að dvelja á sjúkrahúsi í Reykjavík og eftir að hann hafði náð heilsu fór hann á Reykja- skóla í Hrútafirði og var þar í tvo vetur, frá 1948–1950. Síðan fór hann í Samvinnuskólann í Reykja- vík og var þar einnig í tvo vetur. Síðan hóf hann nám og störf á Endurskoðunarskrifstofu Eyjólfs Kr. Sigurjónssonar og líkaði þar mjög vel þau sex eða sjö ár sem hann vann þar. Á þessum árum fór hann að læra einsöng, fyrst í Reykjavík og dvaldi svo í London við söngnám frá 1960–1962. Hann hafði fallegan og bjartan tenór. Hann hóf störf hjá Tryggingamið- stöðinni og vann þar óslitið við farmtryggingar frá 1963 eða í 35 ár og þar til hann fór á eftirlaun frá árinu 1998. Þar leið honum vel og var vel látinn. Útför Hauks fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Nú er hann Haukur, móðurbróðir minn og guðfaðir, látinn eftir tiltölu- lega stutta baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Fram streyma minningar um góðan frænda og öðlingsmann sem mátti ekki vamm sitt vita. Hann var vel les- inn, mikill grúskari, listrænn, með sterkt innsæi og sérstaklega skemmti- legur sögumaður. Haukur var sérlega bóngóður og ávallt reiðubúinn að rétta vinum og fjölskyldumeðlimum hjálp- arhönd þegar á þurfti að halda. Haukur var ógiftur og barnlaus, en hann var alltaf barngóður og átti auð- velt með að laða börnin í fjölskyldunni að sér. Það eru ekki nema nokkar vik- ur síðan hann og dóttir mín 4 ára hlógu dátt og skríktu við eldhúsborðið í Há- túni, en Haukur hafði húmor sem höfðaði til allra. Ég man eftir stórum snjókarli sem hann bjó til með mér þegar ég var um 4 ára gömul. Þetta var flottasti snjókarl sem ég hef nokkru sinni séð fyrr eða síðar, risa- stór með gulrótarnef, hnappa niður eftir öllu, köflóttan trefil, loðhatt og haldandi á kústi. Á ljósmyndinni sem var tekin erum við bæði ljómandi af ánægju og stolti. Það var alltaf ævintýri að koma í heimsókn til Hauks því hann átti svo margt sniðugt að sýna manni, hvort sem það var ný skóburstunarvél, sér- stakt tæki sem sauð egg, gömul myndavél sem hann hafði grafið upp á fornsölu, skringileg gríma frá Græn- landi, eldgömul tímarit, og allskonar aðra skrítna og skemmtilega hluti. Það var eins og að koma inn í helli Aladdíns að koma heim til hans. Haukur var alltaf sérstaklega vel til fara í gljáburstuðum skóm, hafði gam- an af því að kaupa sér föt og mætti glerfínn eins og greifi í fjölskylduboð- in. Í vor sagði hann mér að hann hefði séð jakka í búð sem hann var að spá í að kaupa. Eftir nokkrar ferðir í búðina skellti hann sér á þennan líka glæsi- lega svarta tvíhneppta jakka með gylltum hnöppum. Ég sá hann því miður aldrei í jakkanum, en get vel ímyndað mér að hann hafi tekið sig vel út í honum. Haukur var líka mjög listrænn. Hann fór í söngnám til London snemma á sjöunda áratugnum, en þó svo að hann legði ekki sönginn fyrir sig hafði hann afskaplega fallega söng- rödd sem vakti greinilega athygli ann- arra kirkjugesta í jólamessunni sem við fórum stundum saman í ásamt öðr- um fjölskyldumeðlimum. Hann var góður ljósmyndari og tók þúsundir landslagsmynda. Hann hafði gaman af að „stúdera mótíf“ og átti það til að fara aftur og aftur á sama stað og taka myndir af sama sjónar- horni við mismunandi birtuskilyrði. Á þessum myndum lýstu kannski sól- stafir upp einmana kofa klæddan ryðguðu bárujárni með melgresi í for- grunni. Þetta eru sterkar myndir og kannski dálítið lýsandi fyrir hans per- sónuleika, en honum fannst gott að vera einn með sjálfum sér, þó svo að hann væri oft hrókur alls fagnaðar á mannamótum. Haukur las mikið og skrifaði. Hann hafði gaman af ferðalögum, bæði inn- anlands og erlendis og sagði sérstak- lega skemmtilegar ferðasögur, rakti samtöl sem hann átti við sjómenn, bændur og aðra sem urðu á vegi hans á þessum ferðum. Við áttum sameiginlegan áhuga á þjóðsögum, álfasögum og draumum og spjölluðum stundum um þessa hluti. Mér er það minnisstætt þegar ég var táningur og móðir mín þurfti að skreppa utan að Haukur var fenginn til að líta eftir mér. Við morgunverð- arborðið einn daginn varð mér að orði að mig hefði dreymt skrítinn draum og þegar ég lýsti honum fyrir Hauki þá rak hann í rogastans því hann hafði dreymt næstum sama drauminn með nákvæmlega sömu persónunni. Haukur sagði mér fyrir u.þ.b. mán- uði að hann væri farið að dreyma svo undurfallega drauma, allt var svo bjart og honum leið svo vel. Ég held að hann hafi fengið að gægjast inn í himnaríki í þessum draumum. Þegar dóttir mín heyrði að Haukur frændi væri dáinn fór hún að gráta og sagðist strax sakna hans. Hún spurði með grátstafinn í kverkunum hvert hann væri farinn. Ég sagði henni að sálin hans væri komin til englanna á himnum. Hún spurði þá hvort Guð myndi ekki örugglega hugsa vel um hann. Ég svaraði henni af hjartans sannfæringu að það myndi hann alveg ábyggilega gera. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Guð blessi minningu þína, elsku Haukur. Inga Lísa Middleton. Haukur Jónsson, mágur minn, var vinur vina sinna. Með þeim átti hann áhugamál og með þeim fór hann í ótal bílferðir og gönguferðir til að dást að listaverkum náttúrunnar. Þá fann hann sér góðan stein til að sitja á, og gat dáðst að umhverfinu tímunum saman. Hann naut litanna í lofti, landi og láði og sá þar oft meira en margur annar. Hann var fagurkeri þegar hann var kominn á vit náttúrunnar. Hann hafði mikinn áhuga á ljósmyndun og fór víða með myndavélina til að taka myndir af sérstæðum mótífum við breytilega birtu. Haukur fæddist á Akureyri og ólst þar upp fyrstu árin, en fluttist síðan um tíma með foreldrum sínum til Siglufjarðar. Þar komst hann í kynni við brekkur og snjó að vetrinum. Pabbi hans, Jón Einarsson, smíðaði þar forláta-sleða handa Hauki, sem varð honum eftirminnilegur og ekki síður þrískorin stökkskíði sem hann fékk líka. Haukur útskrifaðist frá Samvinnu- skólanum í Reykjavík og síðan hóf hann störf hjá endurskoðunarskrif- stofu Eyjólfs K. Sigurjónssonar og var þar í nærri áratug. En Haukur hafði fleiri áhugamál. Hann var söngvinn og hafði góða rödd og hélt til söngnáms í London. En eftir tvö ár í söngnámi skall á gengisfelling og hann varð að hætta náminu og fór heim. Framtíðarstarf sitt hóf Haukur síð- an í tryggingastarfsemi hjá Trygg- ingamiðstöðinni og starfaði þar um 35 ára skeið við mjög góðan orðstír. Haukur var einstakur fjölskyldu- unnandi. Hann útvegaði sér og móður sinni, Ingibjörgu Benediktsdóttur, húsnæði þegar hún flutti til Reykja- víkur þar sem þau bjuggu saman í nokkur ár. En eftir það bjó hann einn í fallegri íbúð sem hann átti við Rauða- læk. Hann var einnig boðinn og búinn að létta vandamálum af systrum sínum þegar þörf gerðist. Sérstaklega minn- ist Erla kona mín þess með innileika hve mikill styrkur var fyrir hana að geta leitað til Hauks þegar hún var skilin og var að koma sér upp nýrri til- veru á eigin vegum. Þar var Haukur alltaf tilbúinn að rétta henni og sonum hennar hjálparhönd við að gera hús- næði í smíðum betra og vistlegra, þar sem þau gerðu hverja atlöguna af ann- arri að vandamálunum, og höfðu góð- an sigur að lokum. Haukur hafði gaman af að eiga fal- leg föt og gekk svo vel til fara að eftir var tekið. Hann átti fáa en góða nána vini og var glaðlegur og vingjarnlegur í framkomu við alla kunningja. Stefán Aðalsteinsson. Frá okkar fyrstu kynnum lagði Haukur sig fram um að bjóða mig vel- kominn í fjölskylduna og hans hlýja og elskulega viðhorf snart mig djúpt. Með sinni mildu rödd og kitlandi hlátri geislaði hann af manngæsku og gáfum. Það var greinilegt að hann var fljótur að sjá hvern mann ég hafði að geyma og skildi að hrifning mín á Ís- landi náði kannski ekki alltaf til veð- urfarsins. Af mikilli hugulsemi gaf hann mér kuldagalla í jólagjöf, sem hefur gert vetrarferðir til Íslands sýnu ánægjulegri allar götur síðan. Ég mun alltaf minnast hans með mikilli vænt- umþykju og ég sendi fjölskyldu hans og vinum mínar kærleiksríkustu sam- úðarkveðjur á þessari sorgarstund. Michael Rose. Ég hitti Hauk fyrst við brúðkaup Ingu Lísu og Michaels fyrir fjórum ár- um. Við náðum vel saman frá fyrstu stundu og ég skynjaði strax hversu einstök manneskja hann var. Hann hélt á Sunnevu litlu, sem var fjögurra mánaða gömul, alla athöfnina og var hún róleg og ánægð í örmum hans. Því miður fékk ég einungis tækifæri til að hitta hann þrisvar sinnum en hann kom mér ávallt fyrir sjónir sem sannkallaður heiðursmaður. Ég sakna þess að hafa ekki getað kynnst honum betur og sendi aðstand- endum hans og vinum hlýjar hugsanir og hugheilar samúðarkveðjur. Lilian Rose. HAUKUR JÓNSSON  Fleiri minningargreinar um Hauk Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Bjarni Guðmunds- son, Gunnar Felixson og Bjarni G. Bjarnason. ✝ Margrét Guð-munda Guð- mundsdóttir fæddist í Súðavík í Álftafirði í N-Ísafjarðarsýslu 5. febrúar 1907. Hún lést á líknardeild Landspítala Háskóla- sjúkrahús á Landa- kotsspítala í Reykja- vík 11. september síðastliðinn. Foreldr- ar Margrétar voru hjónin Guðmundur Gísli Guðmundsson, formaður og útvegs- bóndi í Súðavík, f. í Tröð í Álftafirði 22. mars 1873, d. 2. febrúar 1947 og Margrét Jó- hanna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. í Efstadal í N-Ís. 12. október 1876, d. 5. júní 1916. Börn þeirra eru Guðbjartur Ólafur, f. 1905, Margrét Guðmunda, f. 1907, Ágústa Guðbjörg, f. 1908, Hjalti Sigurður, f. 1911, Valborg Sigur- lína, f. 1914, öll látin og Guðrún, f. 1916. Margrét giftist 4.1. 1936, Jóni Kristjánssyni, sjómanni frá Bol- ungarvík, f. 10.12. 1900, d. 24.12. 1983. Foreldrar Jóns voru hjónin Kristján Jónsson, skrifstofu- og verslunarmaður í Bolungarvík, f. í Þjóðólfstungu í Hólssókn, N-Ís. 17.7. 1867, d. 20.3. 1937 og Frið- rika Kristensa Lúðvíksdóttir hús- freyja, f. 19.8. 1869, d. 27.2. 1902. Börn Margrétar og Jóns eru: Kristján Friðrik ,skrifstofumaður og hljóðfæraleikari í Reykjavík, f. 17.12. 1935, d. 15.12. 1983, ekkja hans er Sigríður Sigurðardóttir, dætur þeirra eru Sigrún Una og Margrét; Erla búsett í Osló, f. 1937 ekkja Einars Stensby, synir þeirra eru Jón og Fridtjof; Hilmar, fyrrum sparisjóðsstjóri, f. 1941, kvæntur Helgu Guðjónsdótt- ur, dóttir þeirra er María, búsett í Lond- on; Margrét banka- maður, f. 1942, gift Sigurjóni Einarssyni húsasmið, börn þeirra eru Einar, Jóna Björk og Linda; Guðmundur, bakari í Malmö, f. 1946, var kvæntur Huldu Theódórsdóttur, þau skildu, börn þeirra eru Krist- ján, og Margrét sem er búsett í Osló, barn með Ásdísi Þórarins- dóttur er Þórarinn og barn með Hrefnu S. Pétursdóttur er Erla. Eftir lát móður sinnar hélt Mar- grét heimili í Súðavík, með föður sínum og systur sinni Ágústu, síð- ar lá leiðin til Ísafjarðar þar sem hún var um tíma, en eftir það flutti hún til Reykjavíkur þar sem hún stofnaði heimili með Jóni manni sínum og bjó þar síðan alla tíð. Margrét fór ung að árum til vinnu í síld og var afkastamikil á því sviði eins og við alla vinnu og brá því fyrir sig af og til í gegnum árin, þegar færi gafst. Ennfremur starfaði hún við aðra fiskvinnu um tíma. Margrét var í fjölda ára virkur félagi í Kvennadeild Slysa- varnafélagsins í Reykjavík og Kvennakór Slysavarnafélagsins. Útför Margrétar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Móttökunum þegar ég heimsótti verðandi tengdamóður mína í fyrsta sinn gleymi ég aldrei. Hún tók með báðum höndum um hönd mína og bauð mig hjartanlega velkomna. Handtakið var hlýtt og úr dökk- brúnum augunum lýsti sömu hlýju. Þarna var lagður grunnur að sér- stöku sambandi sem myndaðist milli okkar og entist alla tíð. Mér var snemma ljóst eftir að ég kom í fjölskylduna hver það var sem hélt um stjórntaumana. Tengdamamma var vön að stjórna sínu fólki því eiginmaðurinn var meira og minna á sjónum meðan börnin voru lítil. Tengdapabbi réð trúlega því sem hann vildi ráða en lét eiginkonuna um uppeldi barna og húshald. Henni var einkar lagið að stjórna og við göntuðumst stund- um með að það væri synd að slíkir stjórnunareiginleikar skyldu ekki nýtast einhverju góðu fyrirtæki. Það kom sér þó vel á stóru heim- ili. Oft var þröngt í búi og húsa- kynni lítil en hún sagði mér að hún hefði alltaf átt til næsta dags. Hún var mikil félagsvera og elskaði að dansa sérstaklega gömlu dansana undir dynjandi harmoníkumúsík. Þegar barnabörnin heyra harmon- íkumúsík í útvarpinu er sagt „nú hækkar amma“. Margrét var jafnaðarmanneskja og fylgdist vel með stjórnmálaum- ræðunni fram til síðasta dags. Hún var umburðarlynd gagnvart nútíma þjóðfélagi en fannst alltof margt fara í súginn og illa farið með fé. Öfund var þó ekki til hjá henni og hún samgladdist þeim sem vel gekk. Árið 1973 fórum við hjónin ásamt foreldrum okkar beggja til Kanaríeyja. Þar var farin fyrsta sól- arlandaferð foreldra okkar. Þessi ferð var okkur öllum ógleymanleg. Margrét og Jón fóru margar ferðir til sólarlanda eftir þetta og nutu þess vel. Í desember 1983 veiktist Krist- ján, elsti sonurinn, og andaðist eftir stutta sjúkrahúslegu tæplega 49 ára. Tengdapabbi var við kistulagn- ingu hans á Þorláksmessu. Á að- fangadagsmorgun varð hann bráð- kvaddur á heimili sínu. Feðgarnir voru jarðaðir saman á milli jóla og nýárs og eru okkur öllum ógleym- anleg þau sorgarjól. Margrét bjó áfram ein í íbúð sinni til æviloka. Margrét var mikill sólardýrkandi og þegar hún þurfti að fara í upp- skurð í janúar þá var takmarkið að komast til Kanarí í mars. Sú ferð var aldrei farin. Hún náði sér þokkalega og komst heim í Akra- landið og naut þess að fá fjölskyld- una í heimsókn. Barnabörnin komu oft til hennar og veitti það henni ómælda ánægju. Margrét hélt and- legri heilsu sinni og hafði ótrúlegt minni. Hún dvaldi á Landakoti af og til í sumar og naut þar frábærrar umönnunar. Langri og góðri ævi sannrar hversdagshetju er lokið. Margrét var löngu búin að segja okkur að hún væri tilbúin og kviði ekki dauð- anum. Ég sé hana fyrir mér orðna unga á ný þar sem hún er búin að taka fram dansskóna og svífur um með tengdapabba á hvítu skýi undir dynjandi harmoníkumúsík. Helga. MARGRÉT GUÐMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Mar- gréti Guðmundu Guðmunds- dóttur bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: María og Holly Eva, Margrét Lea Kjartansdóttir og Kjartan Ern- ir Kjartansson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.