Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 22
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Lalli lánlausi © LE LOMOMBARD ÞEIR SEGJA AÐ MAÐUR VERÐI VITRARI MEÐ ALDRINUM ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA MJÖG VITUR MJÖG MJÖG MJÖG MJÖG MJÖG MJÖG VITUR ÆTLI EINHVER EIGI EFTIR AÐ SAKNA HANS RITARANN LANGAR STUNDUM AÐ HÆTTA... HANN LANGAR AÐ STORMA ÚT ÉG HELD AÐ HANN GERI ÞAÐ ALDREI... VEGNA ÞESS AÐ ÉG STEND Á FÆTINUM Á HONUM! ERTU MEÐ SPURNINGU KALVIN? JÁ. HVAÐA TRYGGINGU HEF ÉG FYRIR ÞVÍ AÐ ÞETTA NÁM EIGI EFTIR AÐ UNDIRBÚA MIG NÓGU VEL FYRIR SAMFÉLAG 21. ALDARINNAR? FÆ ÉG ÞÁ ÞEKKINGU SEM ÉG ÞARF FYRIR ÞANN ÖRT VAXANDI EFNAHAG SEM 21. ÖLDIN HEFUR Í FÖR MEÐ SÉR? ÉG VIL FÁ VEL LAUNAÐ STARF ÞEGAR ÉG KLÁRA SKÓLANN! ÉG VIL TÆKIFÆRI! ÞÁ LEGG ÉG TIL AÐ ÞÚ FARIR AÐ LEGGJA MEIRA Á ÞIG, ÞVÍ ÞAÐ SEM ÞÚ FÆRÐ ÚT ÚR NÁMINU VELTUR Á ÞVÍ HVERSU MIKIÐ ÞÚ LEGGUR Í ÞAÐ Ó! GLEYMDU ÞESSU BARA FYRIR LANGA LÖNGU VORU TIL STRUMPAR... FORSAGAN GAULVERJAR MIÐALDIR FLOTINN ÓSIGRANDI NAPO NAPO NAPO NAPO NAPOLÉON NAPO NAPONAPOLÉON FRANSKA BYLTINGIN BEINT Í MARK EVRÓPUSAMBANDIÐ JÁ EN ÞIÐ ERUÐ VITNI AÐ ÞVÍ AÐ ÉG LAGÐI MIG FRAM VIÐ ÞAÐ AÐ LÆRA SÖGU Dagbók Í dag er mánudagur 20. september, 264. dagur ársins 2004 Víkverji er forfallinnsjónvarps- áhugamaður. Það er alveg sama hvað er í kassanum, alltaf getur Víkverji gleymt sér í stofusófanum. Í kvöld byrjar víst Skjár einn að sýna níundu syrp- una af bandaríska raunveruleikasjón- varpsþættinum Survivor og sjálfsagt á Víkverji eftir að eyða ófáum stundum næstu vikur og mánuði í áhorf á þann þátt, eins ágætur og hann nú er. Víkverja þykir því sér- staklega ánægjulegt að vita af því að Íslandsvinur sé meðal keppendanna að þessu sinni, nefnilega hún Ami Cusack, en frá því hefur verið greint í Morgunblaðinu að Cusack hafi ferðast um hér á landi fyrir ekki svo löngu. Það blasir auðvitað við að Cusack verði sá keppandi sem Ís- lendingar halda með að þessu sinni. x x x Víkverja þykir eins og öðrummerkilegt hversu erlendar stór- sveitir hafa verið duglegar við að heimsækja landann á þessu ári og spila á tónleikum. Sérstaka athygli vekur sú staðreynd að oftar en ekki er um að ræða hljómsveitir eða söngvara/söngkonur sem einkum höfða til eldra fólks, þ.e. þeirra sem a.m.k. eru komnir yfir þrítugt. Innflutningur á er- lendum poppurum hef- ur í gegnum tíðina jafnan beinst helst að ungu fólki, þ.e. á aldr- inum 15–25 ára, en nú hefur greinilega orðið einhver breyting á. Nú síðast var sagt frá því að von væri á Beach Boys. Marianne Faith- full er væntanleg, svo og Van Morri- son, og þegar hafa heiðrað Ísland með nærveru sinni söngvarar eins og Kris Kristofferson og Lou Reed og hljómsveitin Deep Purple. Þetta hlýtur að benda til að fólk á „efri árum“ taki bara býsna vel við sér ef eitthvað er í boði sem höfðar til þess, að ef framboðið sé gott þá muni jafnvel þeir, sem ekki hafa far- ið á rokktónleika í mörg ár, fjárfesta í miða. Víkverja finnst jákvætt að hljómleikahaldarar skuli svara kall- inu með því að tryggja framboð á fjölbreyttri og áhugaverðri flóru er- lendra listamanna. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is              Afmæli | Þjóðleikhúsinu var fært að gjöf málverk af Sveini Einarssyni, fyrr- verandi þjóðleikhússtjóra, á laugardag í tilefni af 70 ára afmæli Sveins. Gef- endur eru Félag leikstjóra á Íslandi, Leikskáldafélag Íslands og vinir og ætt- ingjar Sveins, en hann hefur gegnt formennsku í báðum þessum félögum. Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri tók við gjöfinni en hana afhentu Árni Ib- sen og Viðar Eggertsson fyrir hönd félaganna tveggja. Morgunblaðið/Þorkell Málverk af Sveini Einarssyni MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En sá sem uppfræðist í orðinu, veiti þeim, sem upp- fræðir, hlutdeild með sér í öllum gæðum. (Gl. 6, 6.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.