Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Blaðsíða 9

Uppeldi og menntun - 01.01.2009, Blaðsíða 9
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 18(1)/2009 9 Bragi guðmundsson Landið er eitt – samfélagið er breitt/breytt Um samvitund Íslendinga og undirstöður hennar Í þessari grein er fjallað um nokkur grunnhugtök til greiningar og skilnings á þeirri fjölbreytni sem íslenskt samfélag býr yfir nú á dögum. Nýtt búsetulandslag og ört vaxandi menningarleg fjölbreytni kallar á grunnrannsóknir á sjálfsvitund einstaklinga sem samvitund ólíkra þjóðfélags- hópa. Skyggnst er á bak við þá samvitund landsmanna sem kalla má þjóðarvitund og kynnt eru hugtökin söguvitund, grenndarvitund og umhverfisvitund sem eru – að mati höfundar – gagnleg tæki til þess að leita uppi samkenni er gjarnan dyljast þegar einblínt er á heildina. Umræðan er að stofni til söguleg og byggir meðal annars á fjölbreyttum þjóðernis- og vitundarrannsóknum.1 inn gang ur Það er kunnara en frá þurfi að segja að íslenskt markaðs- og tæknisamfélag nú á dögum er allt annað og um flest flóknara en fyrirrennari þess, gamla bændasamfélagið. Í því eigum við samt gildar rætur, upp úr því hafa vaxið styrkustu stoðir menning- ar okkar, til þess sækjum við það sem gerir okkur að sérstakri þjóð. Á síðustu öld kollvarpaðist þetta samfélag. Ekki í einu vetfangi en þó miklu hraðar en tíðast er á breytingatímum. Þar skiptir mestu að þjóðin flutti úr sveit í þéttbýli við ströndina og hún flutti samtímis af landsbyggðinni í þéttbýlið við sunnanverðan Faxaflóa. Íslenska höfuðborgarsamfélagið varð til og eftir standa víðlendar en dreifbýlar byggðir, sem margar hverjar geta ekki einu sinni varið grunnskóla sína, hvað þá aðrar samfélags- stoðir. Það hriktir í tilveru byggðarlaga sem áður voru traustir hornsteinar þess þjóð- félags sem var. Lengst af hélst samt hið etníska heildstæði, Íslendingar voru samleit þjóð af sæmilega þekktum uppruna og með sterk ættavensl. Fólk af erlendum upp- runa var tiltölulega fátt og um flest líkt frumbyggjunum í útliti og háttum. Þessi mynd hefur gjörbreyst. Í landinu býr fjöldi fólks af fjölbreytilegum uppruna sem talar ólík tungumál, iðkar ólík trúarbrögð og ræktar ólíkan menningararf. Á Uppeldi og menntun 18. árgangur 1. hefti, 2009 1 Finnur Friðriksson, lektor við Háskólann á Akureyri, las greinina með gagnrýnu hugarfari og snar- aði nokkrum beinum tilvitnunum á íslensku. Honum og ónefndum rýnum Uppeldis og menntunar eru þakkaðar góðar ábendingar. – Vert er að taka fram að efnislega var gengið frá textanum vorið 2008 og óvíða er vitnað til yngri heimilda en frá 2007.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.