Eining - 01.11.1942, Blaðsíða 1

Eining - 01.11.1942, Blaðsíða 1
EINING „Synduga hönd — þú varst sigrandi sterk, en sóaðir kröftum á smáu tökin; — að skiljast við æfinnar æðsta verk í annars hönd, það er dauðasökin“. E. B. Reyikjavík, nóvember 1942. 1. blað. KUMBRAVOGUR Eign þessa, sem. er austan við Stokkseyri, hefur Umdæmisstúk- zn, nr. 1., keypt og ’átið búa sem bezt og mkið einnig við bygg- 'ngar. Kostað til þess ugum þúsunda. Hús- ð er ætlað börnum til sumardvalar, en í ráði 3)• að nota það í vetur sem hæli fyrir áfeng- issýkta menn. ÁHXI ÓLA hlaðatnaHur: Hvað er Góðtemplarareglan? Hverníg lízt |sér á þetta? Hér er ekki nýtt blað að hefja göngu sína, eins og stundum er sagt, að minnsta kosti ekki strax. Þetta er aðeins einstök rödd — fyrirspurn til velviljaðra og góðra manna í ýmsum félagasamtökum þjóðarinn- ar. Hér er stefnt að sérstöku marki — meiri samvinnu nokkurra félaga- kerfa urn þau úrlausnarefni, sem eru sameiginleg áhugamál. Hér er því spurt, hvernig mönnum lítizt á slíka tilraun. Sundrung og sundurlyndi ber vott um vanþroska. Sanuið og samstarf er menningar- og þroskaeinkenni. Samtaka geía menn lyft þeirri byrði, sem einn og einn veldur ekki. lírlausnarefni manna og þjóðfélaga eru mörg, erfið og stór. Samtaka- mátturinn má sín þar mest. f landi voru eru mörg félög og fé- lagakerfi, er öll vilja efla velferð og menningu þjóðarinnar. Þau fást öll að einhverju leyti við ýms vanda- mál, sem eru vandleyst eða óleysan- leg nema með sterkum og góðum samtökum. Má þar nefna bindindi og önnur menningarmál. Við erum nokkrir, er viljum efla sem bezt sam- starf þessara félagakerfa. Er slíkt ekki gerlegt? Eigum við ekki nægi- legan menr'ngar- og félagsþroska til þess? Síðastliðið sumar stóðu nokk- ur félagakerfi að bindindismanna- degi hér í Reykjavík. Áður höfðu þau og fleiri kexfi staðið að bindind- ismálaviku í Reykjavík, sem tókst úgætlega. Á þessurn sameiginlega fundi í sumar var samþykkt að fé- lagakerfi þessi útnefndu menn í sérstaka nefnd, sem héldi eflingu samstarfsins áfram. Nefndina skipa nú menn frá þessurn félagakerfum: Stórstúku íslands, Sambandi bind- indisfélaga í skólurn, íþróttasam- bandi íslands og Ungmennafélögum íslands. Það er þessi nefnd, sem gef- Ur út þetta eina blað og á það að vex’a, eins og þegar er sagt, eins konar fyrirspurn. Nefndin mun svo vinna að því, að þessi félagakerfi velji nokkra fulltrúa á fund eða þing í vor, sem haldið verði hér í Reykja- vík. Fæst þá betri í'aun á því, hvort í i'ekari samvinna er möguleg. Æskilegt væri að þessi félaga- Framh. á 3. síðu. Þorra manna hér á landi mun vera með öllu ókunnugt um, hver er skipu- lagsgrundvöllur Góðtemplarareglunn- ar. Þess vegna er hún misskilin og starf- semi hennar vanmetin. Þegar talað er um Regluna út í frá og starfsemi hennar, mun að öllurn jafn- aði eingöngu átt við starfsemi undir- stúkna, lægstu deildanna í Reglunni, sem aðeins hafa með höndum braut- ryðjendastarfið. En Reglan er annað og meira en undirstúkur. Hún hefir sín- ar æðri deildir, héraðsdeildir (þing- stúkur), f j órðungsdeildir (umdæmis- stúkur), og allshei’jai'deild (stórstúku), sem vinna hver á sínu sviði og að séi'- stökum áhugamálum. Starfsvið undirstúkna er það, að fá sem allra flesta til þess að gerast bind- indismenn og vinna að útbreiðslu bind- indis á skipulagsbundinn hátt. Og þeg- ar menn hafa sýnt það með starfi sínu í undirstúkunum að þeir eru öruggir bindindismenn, þá er þeim trúað fyrir meiru, trúað fyrir því að vinna að öðr- um áhugamálum Reglunnar, en það eru öll mannúðar og menningarmál, hvei'ju nafni sem nefnast. Reglan lítur sem sé svo á, að höfuðskilyrðið til þess að geta verið góður þegn og þarfur maður í þjóðfélaginu ,sé það, að vei'a bindindis- maður. Þess vegna er bindindi fyrsta skilyrðið til þess að geta oi'ðið Góð- templar. En það er ekki markmið Regl- unnar. Það er aðeins fyi'sti áfanginn á leiðinni að markmiðinu. En mai’kmið- ið er að efla menningu, samheldni, að skapa heilbrigðan hugsunai'hátt í vanda- málum, en orku og áhuga í þarfir hug- sjónamála. Ekkert framfaramál þjóðarinnar tel- ur Reglan sér óviðkomandi. Hún telur sér skylt að leggja þeim ölluixx lið eftir sinni beztu getu. En þótt lítið liggi eftir hana af sýnilegum framkvæmdum, þá stafar það ekki af skoi'ti á vilja, heldur stafar það af fjárhagslegum vanmætti. Upp af stai’fi Reglunnar hefir þó sprott- ið ýmislegt, er til framfai'a og menning- ar horfir. Það er t. d. félög eins og Glímufél. Ármann, Leikfélag Rvíkui', Sjúki-asamlagið og Dýraverndunarfél. Elliheimilið í Reykjavík er ávöxtur af stai'fi Templara. Og mai’gt fleii'a mætti telja. Nú hefir Reglan ýmislegt með höndum: Sumarheimili bai'na norðan lands og sunnan lands, sjómannaheimili í ' Siglufirði, di’ykkjumannahæli hér syðra og skógi'ækt að Jaðri við Eilliða- vatn. Svo fjölþætt og margbrotin starf- semi sýnir það, að Reglan kemur víða við. Þess vegna er það mjög eðlilegt, að hún vilji taka höndum saman við önnur menningai'félög hér á landi, þar sem hún á sameiginleg áhugamál með þeim öllum. Fyrir slíkri samvinnu hefir rofað fyr en nú. Ég vona, að árangur hennar verði skjótt sá, að allir aðilar telji sér það fyrir beztu að samvinnan staudi sem lengst. Þá mun áhuginn aukast, þá mun kjarkur þi'óast og trú á sigur góðra málefna.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.