Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 25
ERLENT
Reuter
FRÁ dauðastund sólarinnar NGC7027 eins og hún birtist myndavélum
Hubble-sjónaukans. Helíum og vetni brýst út úr kjarna hennar og
þeytist út í geiminn og mynda himintungl.
Hubble myndar
dauðastund sólar
London. Daily Telegraph.
HUBBLE-stjörnusjónaukinn, sem
er á braut um jörðu, hefur náð
stórbrotnum og tilkomumiklum
ljósmyndum af því sem sljörnu-
fræðingar segja samsvara enda-
lokum sólarinnar.
Myndirnar sýna dauðastund
stjörnunnar NGC7027, sem er
keimlík sólu og er 3.000 ljósár
frá sólinni í stjörnumerkinu svan-
inum.
Hafa stjörnufræðingar reiknað
út að sömu örlög bíði sólarinnar;
að hún muni breytast í stjörnu-
þoku eftir 4,5 milljarða ára.
Orkuforði í kjarna stjörnunnar
rennur þá til þurrðar og vetni og
helíum í miðju stjörnunnar þenst
út í geiminn og mynda himin-
tungl.
Að sögn stjörnufræðinga náð-
ust myndirnar af NGC7027 með
nýjum tækjabúnaði, innrauðri
myndavél og litrófssjá, sem kom-
ið var fyrir í Hubble-sjónaukan-
um í fyrra.
Strauss-Kahn reitir Breta til reiði
Boðar minni áhrif
Breta í Evrópu
DOMINIQUE
Strauss-Kahn
snupraði Breta
um helgina er
hann sagði að af-
staða þeirra til
sameiginlegrar
myntar hefði
dregið úr áhrifum þeirra innan
Evrópu og myndi staðsetja þá í
„annarri deild“, að því er segir í
The Times. Vakti þessi yfirlýsing
hans litla kátínu í Bretlandi en
hann lét hana falla í sjónvarpsvið-
tali sem tekið var meðan á fundi
evrópskra fjármálaráðherra stóð í
York.
Talsmaður Gordons Brown, hins
breska starfsbróður Strauss-Kahn,
sagði hann „furðu lostinn" á um-
mælunum, þar sem Brown hefði
setið fjölda ágætra funda með hon-
um um helgina. Þá þykir Bretum
Strauss-Kahn
hafa varpað
skugga á heim-
sókn Tony
Blairs, forsætis-
ráðhen-a Bret-
lands, til Frakk-
lands í dag en
hann mun m.a. ávarpa franska
þingið.
í viðtalinu sagði Strauss-Kahn
að eina leiðin til að vera í farar-
broddi í Evrópu, væri að taka þátt í
myntsamstarfmu. „Það er ekki
mögulegt fyrir Bretland [að taka
þátt í því] af sögulegum ástæðum
sem allir geta skilið og einnig af
efnahagslegum ástæðum vegna
þess að við erum ekki á sama stigi í
efnahagsmálum. En áður en Bret-
land tekur þátt í þessu ferli, munu
áhrif þess að sjálfsögðu vera minni
en þau gætu verið.“
Ný dönsk stjórn
en fáar breytingar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞAÐ var öruggur og glaður for-
sætisráðherra, sem kynnti nýja
stjórn sína, eftir að hafa kynnt
hana fyrir Margréti Þórhildi Dana-
drottningu í gærmorgun. Poul
Nyrup Rasmussen forsætisráð-
herra og leiðtogi Jafnaðarmanna-
flokksins hefur yngt stjórnina upp
og fjölgað konum, en annars voru
engar stói’vægilegar breytingar
gerðar. Nú ríkir einungis óvissa
um hvernig fari um kjör þingfor-
seta, þar sem frambjóðandi stjórn-
arflokkanna er jafn frambjóðanda
stjómarandstöðunnar, því Jóannes
Eidesgaard jafnaðarmaður og
þingmaður Færeyinga hyggst ekki
taka þátt í kosningunni. Nýi stjóm-
arsáttmálinn lofar Færeyingum
endurskoðun heimastjórnarlag-
anna.
Fjórir nýir ráðherrar taka nú
sæti í stjórninni, en það em þau
Elisabeth Gemer Nielsen menn-
ingarráðhema, 38 ára, og Elisabeth
Vestager kennslu- og kirkjumála-
ráðhema, 30 ára, sem báðar eru úr
Róttæka vinstriflokknum. Ur Jafn-
aðarmannaflokknum eru þau ný
Ove Hygum atvinnuráðherra, 41
árs, og Sonja Mikkelsen, 42 ára,
umferðarráðherra. Það er einkum
skipan Hygums, sem vekur at-
hygli, þar sem hann er forsvars-
maður opinberra starfsmanna.
Skipan hans þykir benda til að
Nyrup hyggist hafa verkalýðs-
hreyfinguna með í ráðum í nýskip-
an á vinnumarkaðnum.
Ole Stavad verður aftur skatta-
ráðherra, en hann neyddist til að
segja af sér því embætti vegna
óeðlilegra afskipta ráðuneytisins af
yfirtöku sparisjóðs. Pia Gjellerup
verður vinnumálaráðherra, en hún
var dómsmálaráðherra þar til hún
þurfti fyrir nokkram áram að segja
af sér vegna bókhaldsóreiðu hjá
ungum jafnaðannönnum, sem hún
var áður í forsvari fyrir. Nokkrar
tilfærslur verða innan stjómarinn-
ar, en aðrir ráðherrar halda emb-
ættum sínum. Marianne Jelved er
áfram efnahagsráðherra, Mogens
Lykketoft fjármálaráðherra,
Svend Auken umhverfisráðherra
og Niels Helveg Petersen utanrík-
isráðherra.
I nýjum stjórnarsáttmála er lögð
áhersla á endurbætur í skólakerf-
inu, sem ganga í þá átt er hægri-
flokkarnir hafa krafist, með meiri
kröfur til kennara og nemenda.
Auk þess verður hugað að skatta-
breytingum svo það borgi sig fyrir
hina lægst launuðu að vinna, en
rannsóknir sýna að um 40 prósent í
þeim hópi hafa lítinn eða neikvæð-
an ávinning af að vinna fremur en
að vera ábótum. Einnig er Færey-
ingum lofuð endurskoðun heima-
stjórnarlaganna og aukin sjálf-
stjóm, en óljóst er í hverju hún
felst nákvæmlega.
Situr Breckmann hjá?
Eins og er stendur allt í járnum
um nýjan þingforseta. Stjórnin
heldur fram Birte Weiss fyrram
heilbrigðisráðherra, en hægri-
flokkarnir Ivar Hansen frá Ven-
stre. Jöfn atkvæði era að baki báð-
um framboðunum, þar sem Eides-
gaard vill ekki blanda sér í dönsk
stjórnmál með því að kjósa. Ef Oli
Breckmann, fulltrái Fólkaflokksins
á hægrivængnum, gerir það sama
er málið leyst, en annai-s stefnir í
að sætið verði útkljáð með hlut-
kesti.
Falleg og gagnleg fermingargjöf
Fæst hjá öllum bóksölum
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiorð
Islensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjafaöskju
á aðeins kr. 3.990
Gagnleg og glæsileg fermingargjöf,
sem nýtist vel í nútíð og framtíð
Orðabókaútgáfan
SKRIFBORÐSSETT M/HILLU
kr. 49.600,-
KHKK KLAKK SVF.FNSOFI
|kr. 48.500,-]
IJREIDD V CM. M/UNDIRST.
ífrákr. 40.800,-1
* rr.ianr.'gtrrjWT
BKEIDD 134 CM. IVUUNDIRST,
Úrvalið
er hjá okkur