Tíminn - 04.06.1957, Blaðsíða 1

Tíminn - 04.06.1957, Blaðsíða 1
Fylgist með tímanum og IesiS TÍMANN. Áskriftarsímar: 2323 og 81300. Tíminn flytur mest og fjöibreyttast almennt lesefni. 41. árgangur. Efni: Erlent yfirlit, bls. 4. Flugferðir verði auðveldaðar, bls. 5. 122. blafc. Jóhannes Elíasson Finnbogi R. Valdimarsson Tveir nýir bankastjórar Utvegsbanka íslands Eru þa'S Jóhannes Elíasson' hæstaréttarlög- maÖur, og Finnbogi R. Valdimarsson, aíþing- ismatSur. Fyrsti fundur bankaráÖsins í gær Hin nýja bankalöggjöf, sem Alþingi samþykkti fyrir skemmstu, var birt í stjórnartíðindunum í gær. í gær var Stefán Jóhann Stefánsson settur formaður hins nýkjörna bankaráðs Útvegsbanka íslands, sem nú verður rikisbanki og tekur við af Útvegsbankanum h.f. Stefán Jóhann Stefánsson hefir verið formaður bankaráðs Útvegs bankáns h.f. í rúmlega 20 ár. Boð- aði hann til fyrsta fundar hins nýkjörna bankaráðs í gærkveldi kl. 9 og var tekið fyrir að ráða bankastjóra að bankanum, þar sem ákveðið var í hinum nýju lög- um um Útvegsbanka íslands, að umboð fultrúaráðs bankans og Kosið í bankaráð Iðnaðarbankans S. 1. iaugardag var haldinn aðal- fundur Iðnaðarbankans h.f. og var þar kosið nýtt bankaráð. Það bar til tíðinda, að Páll S. Pálsson, er verið hefir formaður bankaráðs- ins, var felldur frá kosningu, en í hans stað kosinn í bankaráðið Sveinn Guðmundsson forstjóri í Héðni. Einnig var Magnús Ást- marsson, prentari, kosinn í stað Einars Gíslasonar málarameistara. Endurkjörnir voru f ráðið Helgi Bergs, verkfræðingur, Kristján Jóhann Kristjánsson, forstjóri og Guðmundur H. Guðmundsson, bæj arfulltrúi. Á sunnudaginn var formaður bankaráðsins kjörinn, og er það Kristján Jóh. Kristjánsson. bankastjóra félli niður, er lögin öðluðust gildi. Fyrir fundinum lá orðsending frá Valtý Blöndai, fyrrverandi bankastjóra Útvegsbankans h. f., um að hann óskaði ekki eftir að vera ráðinn bankastjóri við hinn nýja banka, enda tæki hann nú við öðru starfi, sem ekki væri samrýmanlegt bankastjórastöðu þar. Ákveðið er, að hann verði formaður hins nýja bankaráðs Landsbanka íslands, sem heldur fyrsta fund sinn í dag. Bankastjórar Útvegsbanka Is- lands voru ráðnir Jóhannes Elías- son, hæstaréttarlögmaður, Finn- bogi R. Valdimarsson, alþingis- maður og Jóhann Hafstein, fyrr- verandi bankastjóri Útvegsbank- ans h.f. Eru bankastjórarnir ráðn ir frá og með deginum í gær að telja.__^ Valtýr Blöndal, sem lætur af bankastjórastarfi, hefir verið bankastjóri Útvegsbankans h.f. rúmlega tuttugu ár og notið óskor aðs trausts og almennra vinsælda. Áður var hann starfsmaður Lands banka íslands. í bankaráði Útvegsbanka íslands eru auk formanns Gísli Guðniuntís son, alþingismaður, Guðm. í. Guð- mundsson utanríkisráðherra, Lúð- vík ’ Jósefsson, _ sjávarútvegsráð- herra og Björn Ólafsson alþm. Vélbátur sökk á ísafjarðardjúpi — feðgar björguðust naumlega Jörgen Jörgensen, menntamálaráffherra Ðana segír: Danir eru reiðubúnir til að taka handritamálið upp á nýjan leik Ný raimsóknarstofnun tekur tíl starfa í þessum mámiði og þar verður handritasafni(S IjósmyndaíS Eins og kunnugt er dvaldi fréttamaður danska blaðsins Kristeligt dagblad hér á landi fyrir skömmu, og eftir heim- komuna tii Danmerkur birti hann í blaði sínu viðtal við séra Sveinbjövn llögnason um handritamálið og umræður um það á alþingi. Kosið í bankaráð Búnaðarbankans S. 1. föstudag kusu báðar land búnaðarnefndir Alþingis í banka ráð Búnaðarbankans. Sigurjón Guðniundsson, framkv.síj. var endurkjörinn og Jón Pálmason alþingismaður í stað Þorsteins Þorsteinssonar, fyrrv. alþingis- manns. Form. ráðsins er skip- ílður af ráðherra. Fulítrúaráðsfundur í kvöld FuIItrúaráðsfundur verður hald inn í Edduhúsinu í kvöld kl. 8,30. Fulltrúar og varamenn í fulltrúa ráði eru hvattir til að mæta stund víslega. Samið við verzlun- ariuenn m helgina S.I. sunnudag tókust samningar milli Verzlunarmannafél. Reykja víkur og séreignafélaga kaup- manna í bænum, og kom því ekki til þess verkfalls,sem boðað hafði verið með mánudegi. Sáttasemj- ari Iiafði deiluna til meðferðar, Og stóð síðasti sáttafundurinn nær sólarhring. Eftir það voru haldnir fundir í viðkomandi fé- lögum og samningar samþykktir Verzlunarmenn fengu allt að 5% kauphækkun, en nokkuð misjafnt eftir greinum, sumir nokkru minna. Á tún þessi var borið í apríl og hafa þau síðan sprottið jafnt og þétt og virðast vorkuldarnir ekki hafa kippt úr sprettunni. Þetta er slétta, sem sáð var í vorið 1955, ræktuð upp á sandi. Allgóð spretta er orðin á túnum sums staðar í Mýrdal, en sláttur mun þó ekki hefjast þar trax. Þó munu sumir bændur, sem ekki beittu túnin um sauðburðinn, byrja að siá um miðjan júní. Hér hefir verið mjög kalt síð- Á laugardaginn ræðir Kristeligt dagblad enn um málið, og hefir blaðið þá átt tal við Jörgen Jörg- ensen menntamálaráðherra Dana um deiluna og hugsanlega lausn hennar. Blaðið hefir það eftir ráðherr- anum að handritamálið hafi kom izt á nýtt stig er alþingi tók það til umræðu á nýjan leik, og leggi íslendingar fram tilmæli þess efnis geti Danir enn tek- ið málið til yfirvegunar. Ég hef mikinn áhuga á því að unnt verði að leysa handritamálið, seg ir ráðherrann að lokum. Síðan rekur Kristeligt dagblad sögu handritamálsins allt frá því að íslendingar gerðu fyrst kröfu til að fá handritin afhent. 4. apríl 1946 vísaði menntamálaráðuneytið danska kröfum íslendinga á bug, en málið hafði þá verið tekið upp í sambandi við dansk-íslenzku við- ræðurnar út af sambandsslitunum. SUF veitir styrk til alþjóðaskákmóts stúdenta Stjórn Sambands ungra Fram- sóknarmanna samþykkti á fundi sínum í gær að veita 1000 kr. til styrktar alþjóðaskákmóti stúdenta sem haldið verður hér á landi í júlímánuði næstkomandi. ustu dagana, og í nótt var frost. Nú er aftur farið að hlýna í veðri. Ó.J. Sundurlcitar skoðanir nefndar. 1951 fjallaði dönsk nefnd um málið og komst að þeirri niður- stöðu að íslendingar ættu enga lagakröfu lil muna á dönskum söfnum, handrita á konunglega bókasafninu eða hluta af safni Árna Magnússonar. En skoðanir nefndarinnar voru engu að siður næsta sundurleitar. í henni áttu sæti prófessor Erwin Munch-Pet- ersen, sem var formaður nefndar- innar, Hans Hedtoft (seinna Al- sing Andersen) sem fulltrúi scs- íaldemókrata, Otto Himmelstrup fyrir vinstri menn, Halfdan Hend- riksen fyrir íhaldsflokkinn, Thor- kild Holst fyrir kommúnista, Erik Arup fyrir radikali, Paul Holt fyr- ir Dansk samling, Viggo Starcke fyrir Retsforbundet og auk þess Svend Dahl ríkisbókavörður, Axel Linvald ríkisskjalavörður, prófess or Carsten Höeg og prófessor Johs. Bröndum-Nielsen. Svend Dahl, Paul Holt, Axel Lindvald og Munch-Petersen töldu að Danir ættu siðferðilegan rétt til handritanna sem bjargað heíði verið frá eyðileggingu af dönskum og norskum vísindamönnum og á- litu að afhending þeirra væri mjög vafasöm eða jafnvel hættu- leg. En þeir lögðu þó til að ís- lendingum yrði afhentur einhver hluti handritanna að gjöf gegn því að þessi ráðstöfun yrði samþykkt sem endanleg lausn málsins og löndin tvö fengju að ljósmynda handrit hvors annars. Haifdan Hendriksen féllst á þetta með því skilyrði að Hafnar- háskóli samþykkti þessa ráðstöf- un íyrirsitt leyti. ________ Alsing Andersen og Erik Arup töldu að ekki mætti láta þjóðar- metnað eða fræðileg sjónarmið ráða lausn málsins að öllu leyti. íslendingum skyldi afhenda þau handrit sem væru fyrst og fremst íslenzks eðiis þar á meðal merk- ustu handritin, þ. e. a. s. hinar fornu skinnbækur. Þó skyldi ekki afhenda þau handrit sem ekki eru skrifuð á íslandi. (Framhald á 3. síðu). Þrír smástrákar rændu 700 krón- um úr verzlun í gærdag Um miðian dag í gær frömdu þrír ungir drengir bíræf- inn þjófnað í verzluninni Kjóllinn við Þingholtsstræti. Stálu þeir kventösku með 6—7 hundruð krónum 1 peningum, en afgreiðslustúika í verzluninni átti töskuna. 2-3 hektarar af túnimeð gáðu grasi voru slegnir í Vík í Mýrdal í gær Frá fréttaritara Tímans í Vík í Mýrdal. í dag voru slegnir hér 2—3 hektarar af túni með ágætu grasi, og næstu daga mun verða slegið eitthvað meira hér í Vík. Tún þetta eiga Sæmundur Bjarnason verkamaður og svnir hans og Páll Tómasson. Frá fréttaritara Timans á ísafirði. Aðfaranótt. föstudagsins sökk vélbáturinn Vísir í sund- inu milli Æðeyjar og Ögurhólma. Báturinn var 7 lestir að stærð, súðbyrðingur. Tveir menn voru á bátnum sem var á leið til ísafjarðar. Slysið varð með þeim hætti að sveifarás vélarinnar brotnaði framan við vél, og sveifaráshjólið féD niður í bátinn og braut á hann gat. Formaður og eigandi bátsins, Þórður Sigurðsson bóndi í Vatns- firði, var á bátnum og með hon- um Garðar sonur hans. Bátinn fyllti þegar af sjó og sökk hann á 12 mínútum. Það varð þeim feðg- um til lífs að þeir höfðu í eftir- dragi lítið fjögra manna far sem þeir höfðu verið beðnir fyrir til ísafjarðar til viðgerðar. Komust þeix í bátinn og á honum til lands í Ögur kL 4 um nóttina. FUF ráðgerir hvíta- sunnuferð til Eyja Komið hefur til tals, að fara ferð til Vestmannaeyja um hvíta- sunnuna. Farið yrði með flugvél báðar leiðir, en fæði og gisting yrði við vægu verði. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu Framsóknar- félaganna í Reykjavík, sími 5564 í dag og á morgun. Er drengiroir komu inn í verzl- unina var annríki þar mikið, og mátti afgreiðslufólk ekki vera að því að sinna drengjunum um hríð. En loks er yrt var á þá hlupu þeir á burt úr verzluninni og sást einn þeirra koma þar út úr bakher- bergi. Er afgreiðslustúlkurnar huÆuðu að, kom upp úr dúrnum ao taska einnar þeirra, er hún hafði geymt í bakherberginu, var horfin. í töskunni voru um 700 kr. í peningum og auk þess happ drættismiðar, lyklar og fleira smá legt. Strákarnir þrír voru 8—10 ára að aldri. Afgreiðslustúlkan taldi sig geta þekkt strákana aftur ef hún sæi þá og eins fleira fólk, sem statt var í verzluninni. Er þess því að vænta að mál þetta komizt fljót- lega upp. En það eru tilmæli lög- reglunnar að fólk sem kann að hafa séð þrjá drengi á flækingi með svarta kventösku, um kl. 4 í gær, skýri henni frá því og eins aðrir þeir sem orðið hafa drengjanna varir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.