Tíminn - 29.05.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 29.05.1964, Blaðsíða 16
Föstudagur 29. maí 1964 118. tbl. 48. árg. Vandalar í Grænuborg ALLT INNANHÚSS BROTIÐ OG BRAMLAÐ KJ-Reykjavík, 28. maí Það var ljótt um að litast í bama heimilinu Grænuborg í morgun, er starfsstúlkurnar komu til vinnu sinnar. Einhver óboðinn gestur hafði komið þar um nóttina, rótað þar öllu til, og brotið og bramlað. Brotizt hafði verið inn í húsið bakatil, en síðan farið um allt heimilið, bókstaflega öllu snúið við og það brotið, sem hægt var að brjóta. Ljósakrónumar í loftinu voru allar mélaðar, fimm rúður brotnar, tveir gítarar og tromma mölvuð, útvarpstæki í eldhúsi maskað. Rótað til í skrifborði for stöðukonunnar, og farið í peninga kassa sem þar var, en gripið í tómt. Aðkoman var sem sagt öm- urleg í alla staði, og undarlegar virðast þær hneigðir, sem sá eða þeir er gerðu þetta, eru haldnir. í grænuborg era að staðaldri um 60 börn á daginn, en enginn í hús inu á nóttunni. Verið gæti, að unglingar hafi verið hcr að verki, en þó er það ekki fullkannað, og vinnur rannsóknarlögreglan að uppljóstrun málsins. FÉKK ÞANN STÆRSTA KJ-Reykjavík, 28. maí Á dögunum barst Tímamim úrklippa úr blaði frá Banda- ríkjunum, þar sem sagt er frá því, að Steingrímur Hermanns. son hefði sett í stærsta sverð- fiskinn, sem veiddur hefur ver- ið við Miami-eyjair á þessari ,,vertíð“. í blaðaúrklippunni segir, að sverðfiskurinn hafi verið 524 punda þungur, og auk þess hafi Steingrímur dregið úr sjónum 11 punda beinfisk, sem þykir góður fiskur þar vestra. Blað- ið spurði Steingrím í dag um þessa miklu veiði, sem þeim „fyrir vestan" þótti stórkostleg. — Hvað kom til að þú fórst á veiðar þama, Steingrímur? — Ja, eins og lesendum er ef til vill' kunnugt, þá fórum vig þrír vestur til Bandaríkj- anna, til að sitja ráðstefnu um Surtsey og rannsóknir á eynni. Á ráðstefnu þessari var pró- fessor Bauer, sem kom hingað vegna Surts, og bauð hann okkur Guðmundi Sigvaldasyni suður á eyna Mimini, en hún er ein af Bahamaeyjunum. Þama skoðuðum við m.a. Learner marine laboratory, og fórum út að veiða í boði Bau- er. í fyrra skiptið út á grynn- ingar, sem eru á milli Bahama- eyjanna, og þar fékk ég m.a. þennan ellefu punda beinfisk, sem sagt er frá í blaðinu. Hann er afar harður viðureignar, en ekki mjög stór, þetta 3—14 pund. í hitt skiptið fór svo pró- Framhald é IS s!8u Steingrímur me8 stöngina og aflann. FELLIBYLUR GERDIÞUS- UNDIR HEIMILISLA USAR Sr. ÓSKAR FINNBOGASON Sr. STEFÁN LÁRUSSON Kosið um Odda FB-Reykjavík, 27. maí Á sunnudaginn verður kosinn prestur í Odda á Rangárvöllum. Þrir prestar sóttu um embættið, séra Gísli Bi-ynjólfsson, séra Stef- án Lárusson og séra Óskar Finn- bogason, en nú hefur séra Gísli dregið sig til baka. Kosið verður í Oddakirkju, Keldnakirkju og Stórólfshvolskirkj u. Kjörfundur hefst klukkan 13 á sunnudaginn. Á kjörskrá eru í Oddasókn 239 manns, í Keldna- sókn 59 og 143 í Stórólfssókn. NTB-Hong Kong, 28. maí Fellibilurinn Viola fór með rúm lega 112 km hraða á klukkustund yfir brezku nýlenduborgina Hong Kong á meginlandi Kína og gerði þúsundir heimilislausa, en milli 40—50 meiddust. Hin heimsfræga, Judy Garland, sem stödd var í Hong Kong, fékk hjartaslag vegna fellibylsins og liggur nú alvar- lega veik á sjúkrahúsi, þar sem ; henni er gefið súrefni. I Fellibylurinn var svo öflugur, að mörg skip, sem lágu við hafnar bakkana, losnuðu og köstuðust á land, og allt atvinnulíf borgarinn ar stöðvaðist. fbúar Hong Kong eru þó langt frá því, að vera örvinglaðir, því að hin gífurlega rigning, sem fylgdi fellibylnum, kom sér vel í þeim mikla vatns- skorti, sem ríkir þar. í dag komu um 10 milljón lítrar af vatni í vatnsgeyma borgarinnar. Borgar- stjórnin ákvað þegar í stað að létta dálítið vatnsskömmtunina, og fá íbúarnir nú vatn í fjórar klst. annan hvern dag, en áður aðeins fjórða hvem dag. Aðfallið var í kvöld 1,5 m hærra en venjulega, og olli flóð sums staðar töluverðum skemmdum. í New York var tilkynnt í kvöld, að söngkonan Judy Garland hefði verið lögð inn á sjúkrahús í Hong Kong af því að hún hafi fengið hjartaslag af völdum fellibylsins. Er henni stöðugt gefið súrefni og er ástandið talið alvarlegt. Judy Garland hefur lengi verið mjög hrædd við óveður. -. .jr '' |, "ifl—n Tfi'" SÚREFNISTÆKIN í SJÚKRABÍLUNUM HAFA REYNZT VEL /- JHh < Sjk'j&.i ’ .'■■ ■ * VS/3 t... | j j 1 / Slökkviliðsmennirnir á mynd þetta nolað við hjartasjúklinga inni hér að ofan heita Kristján og ashmasjúklinga, en auk þess Þorvarðsson, til vinstri og Arn- mjög handhægt þegar slys þór Sigurðsson, til hægri. Á bæri aö höndum og fólk ætti milli þeirra er kassi með súr- erfitt um andardrátt. Þá þurfa efnistækjum, en slikir kassar ungbörn oft að fá súrefni úr hafa verið í nokkur ár í öllu-m Lækjunum, og var eitt slíkt sjúkrabílum Rauða krossins í dæmi hér fyrir nokkru, að ný- Reykjavík. Þetta er ekki mik- fætt bam átti erfitt um andar- ið tæki til að sjá, en því nauð drátt, en þá var súrefni úr synlegra er það, er á því þarf tækjum þessum látið leika um að halda. Þeir Knstján og Arn- andlitið og hresstist það von ór sögðu okkur að mest væri bráðar. (Tímamynd—KJ). I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.