Vísir - 03.10.1918, Blaðsíða 1
Ritotjéri eg eigaaái
JAKSSB MÖL&IR
Sfeái 117
Afgreiðsla I
AÐUSTRÆTI 14
SIMI 400
8. árg.
FlmmtadagÍBii 3 október 1918
269. tbl.
...... NÝJA BIO ......
Sæ-úlfurmn
Sbáldsaga frá Kyrrahafinu í 7 þáttum, 120 atriðum
eftir JaclsL Lonaon.
Aðalhlutverkið leikur hinn alþekti ágæti leikari
Hobart Bosworth.
Þetta er fyrsta sagan sem sett var á kvikmynd eftir
þennan alþekta sagnahöfund, og hefir mynd þessi hlotið al-
ment lof, hvar sem hún hefir verið sýnd.
Myndin stendur yfir 2 tíma. Tölusett sæti kosta 1.00,
almenn 080, barnasæti 020.
aammmmmmmmm G AML A BI0 ...........
Engillinn hans.
Afarskemtilegur og fallegur sjónleikur í 4 þáttum, leikinn af
Bcssie Lowe og-Donglas Fairbank.
Douglas Fairbank er stór og sterkur og augasteinn og eftir-
læti kvenfóiksins um allan heim. Það var Douglas Fairbank
sem nýlega bar Ohaplin á herðum sér um Vali Street eins og
hann væri fis,
Það er mynd, sem allir, bæði eldri og yngri, hafa ánægiu
af að sjá, og er talin ein með þeim bestu sem sýnd hefir ver-
ið í Khöfn.
Sökum þess hve myndin er löng verða aðeins 3 sýningar á
sunnudag, kl. 6, 71 /g og 9. Tölusett sæti kosta 90, 75 og 25 a.
Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar
tekur að sér smíði á ailskonar tréskipum, svo sem
skoimorrum, kútterum, mótorskipum og allskonar bátum
og ennfremur allskonar viðgerðir á skipum.
TeiknÍDgar til sýnis og gerðar af því sem smíða á. Fyrsta flokks vinna undir stjórn mannB
sem hefir unnið á nokkrum af stærstu tréskipasmíðastöðvum Danmerkur.
öll vinna eins fljótt og vel af hendi leyst og unt er.
Virðingarfylst.
tTúlins V. J*Tyk>org.
Stórskipasmiður.
VersSunin Goðafoss
hefir fengið stórt úrval af IJLá,rg,r-ei?íiitn og Hárkömb-
iim. Hvergi ócl^rara en i
versluninni /,,Goðafoss“. Kristín Meinholt.
— Talsími 436. —
Símskeyti
fri fréttaritara Visis.
Kh. 2. okt.
Frá Búlgaríu.
Frá Wien er símað, að her-
sveitir miðveldanna hafi hrifsað
völdin í Sofia, myndað þar nýtt
bráðabirgðaráðaneyti og bomið
á hervaldastjóm,
Reuters frétfastofa skýrir frá
þvi, að her bandamanna sé að
leggja Búlgaríu undir sig og
Búlgarar séu ekki óf.úsir til að
ráðast á Tyrki.
Cambrai brcnnur. St. (pientin
tekin.
Cambrai er að brenna. Þjóð-
verjar hafa gert áköf gagnáhlaup,
en bandamenn sækja fram. Frakk-
ar hafa tekið St. Quentin.
Frá Berlía
er simað að meirihlutaflokk-
arnir i þýzka þinginu vilji fá
Payer varakanslara fyrir ríbis-
kanslara.
Alt prússneska ráðuneytið og
öll ríkisstjórnin þýska hafa sagt
af sér.
Járnbrautarsiys.
Málmeyjarhraðlestin rann út
af teinunum hjá Norrköping í
gær. 300 farþegar urðu undir
vögnunum.
„Nordisk íoret iug“
heitir félag íslendinga, Svía,
Dana og Norðmanna, sem hér
var stofnað í gær.
Loftökeyii.
Frakkar tilkynna 3. okt. (mið-
nætti): að Þjóðverjar hafi nú ver-
ið hraktir úr St. Quentin og
franski herinn náð borginni al-
Vfsip er eista og besta
dagbiaö landsins.
gerlega á sitt vald. — í þýskri
tilkynningu er þetta viðurkent.
Ennfremur hafa Frabkar náð
Fauborg d' Isle á sitt vald, þrátt
fyrir ákafa vörn Þjóðverja.
Fyrir norðan Vesle hafa Frakk-
ar enn sótt fram og tekið Roucy,
Gugnicourt, Bouffigneureux, Vill-
ers-framiueux og Couroy og flutt
stöðvar sinar til Diseres, suður
frá Cornicy og Loivre. í Cham-
pagne trygðu Frakkar stöðvar
sínar í gær fyrir suðaustan Or-
feuil og náðu fótfestu í hæðun-
um fyrir sunnan Monthois.
Síðan 15. júlí hafa hersveitir
bandamanna í Frakklandi tekið
248 494 þýska hermenn og 5518
liðsforingja höndum, og að her-
faDgi 3668 fallbyssur og 23000
hríðskotabyssur.
Siðustu vikuna hefir Banda-
ríkjaherinn tekið meira en 120
fallbj'ssur, 750 skotgrafafallbyss-
ur, 300 vélbyssur og mikið af
öðrum hergögnum og skotfærum.
K’ólera í Berlín.
í loftskeytinu frá París er það
haft eftir fregnum frá Berne,
að Wolífs-fréttastofa í Berlín til-
kynni að sjö mauns hafi sýkst
af koleru i Berlín og fimm þeirrra
séu þegar dánir. T svissnesku
blöðunum er samtímis sagt frá
komu kólerunnar og fráfor Hert-
língs kanslara.