Vísir - 19.07.1943, Blaðsíða 1

Vísir - 19.07.1943, Blaðsíða 1
Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson Hersteinn Pálsson ■ Skrifstofur: Félagsprentsmiðjan (3. hæð) Ritstjórar Blaðamenn Slml: Auglýsingar 1660 Gjaldkeri 5 llnur Afgreiðsla 33. ár. Reykjavík, mánudaginn 19. júlí, 1943. 161. tbl. Ógurlegar loft- árásir á Napoli Mörg hundruð flugvéla ráðast á borgina. Napoli hefir orðið fyrir mestu loftárásum, sem nokkuru sinni hafa verið gerðar frá bækistöðvum í Norður-Afríku. Flugvélar voru bæði sendar frá Tunis og Libyu og skiptust þær á að demba niður sprengju- förmum sínum. Var mörgum hundruð smálesta varpað niður á fáeinum klukkustundum. Það er til marks um þunga árásar- innar, að tvíhreyfla-flugvclar voru í fyrsta sinn sendar til Napoli, en svo langt liafa þær aldrei farið fyrr. Sprengjunum var einkum varpað á vopnaverksmiðjur borgarinnar og járnbrautarstöð- ian. Urðu 2 ógurlegar spreng- ingar, meðan árásin stóð yfir. I Hitler hefir sæmt Rudolf, son Ribbentrops, riddarakrossi Járnkrossins. Hann er i SS-líf- verði Hitlers. Síðaita dagárásin á Kiel. „Næstum hver sprengja hæfði markið“, var sagt í tilkynningunni um seinustu loftárás Banda- ríkjamanna á Kiel. Hún var gerð í björtu og myndin er tekin, þegar árásin stendur sem hæst. Má greinilega sjá nokkurar Liberator-vélar á sveimi yfir borginni, þar sem miklir eldar eru þegar farnir að brenna. / i JW FYRSTA LOFTARASIN A ROM Bnizt við að Catania falli þá ©§’ |»egrar. Orustuskip skýtur í fyrsta sinn á borgina. Fyrsta loftárásin, sem gerð hefir verið á Róma- borg í þessu stríði, var gerð 1 morgun um klukkan níu. Fjöldi f jórhreyfla og tvíhreyfla flugvéla réðst á borgina og var árásin mjög hörð, að því er segir í aukatilkynningu frá herstjórn banda- manna. Aðalmarkið var járnbrautarstöð borgarinnar, sem er afarmikilvæg eins og nú standa sakir, en auk þess var ráðizt á borg eina 25 km. fyrir vestan Róm. Það er tekið fram, að flugmönnunum var skipað að f orðast sérstaklega byggingar og mannvirki, sem tengd eru trú og menningu og því var árásin gerð í björtu. Á laugardag tóku Bandarík jamenn tvær borg- ir, Agrigento og Porto Empedocle, og er það einna mesti sigur, sem menn Pattons hafa unnið þá fáu daga, sem eru liðnir, síðan innrásin hófst. Jafnframt hafa Banda- ríkjdmenn tekið meira en 20.000 fanga. Bretar og Kanadamenn, sem sækja á austar á eynni, halda líka áfram að þokast norður með ströndinni. Þeir hafa náð tveim mikilsverðum stöðum á þeirri leið sinni, en við hvorn þeirra sem var, var liægt að stöðva sókn þeirra, ef Italir eða Þjóðverjar hefði getað eða hugsað um að verjast þar. Annar þessara staða var eiði milli vatns og sjávar. Til þess að þurfa ekki að leggja. stóra lykkju á leið sína norður á bóg- inn, urðu Bretar að ná þessu eiði. Var það ráð tekið að láta fallhlifahermenn svífa til jarð- ar skammt frá þVí og með að- stoð þeirra tókst að koma í veg fyrir það, að möndulhersveitir gæti komið sér upp slöðvum þar. Barizt um brú. Fyrir norðan eiðið var brú á Plimassuri-á, sem bandamönn- um var mMl nauðsyn að ná, lil þess að geta hindrað það, að möndulherinn sprengdi hana í loft upp, því að það ldaut að kpsta mikla töf og gefa ítölum og Þjóðverjum kærkomið tæki- færi til að bæta varnir sínar um- hverfis Catania. Fallhlífahermenn voru aftur látnir vinna þetta. Tvö hundruð þeirra voru látnir svífa til jarð- ar við brúna og héldu þeir henni í 24 klst. þrátt fyrir mikla stór- skotahríð og fjölda áblaupa möndulhersveita. En þrem klst. áður en brezkar hersveitir komust að brúnni, höfðu fall- hlífaliermennirnir orðið að láta undan síga, vegna skotfæraleys- is. En þeir höfðu tekið sprengj- urnar undan brúnni, svo að það tókst ekki að sprengja hana í loft upp. Sóknin til Cataniu. Bretar eru nú komnir svo nærri þessari mestu borg aust- urshandar Sikileyjar að stór- skotalið þeirra er farið að senda henni kveðju, enda eru bardag- ar um borgina sjálfa raunveru- lega hafnir. Telja Bretar það liafa verið mikinn sigur fyrir sig, að þeir skyldu komast yfir Plimassuri-ána. 1 fyrrakveld skaut brezkt or- ustuskip í fyrsta sinn á Cataniu. Sigldi það inn í flóann fram- undan borginni um það bil er skyggja tók og lióf skothríð á hana á 7 mílna færi. Síðan færði það sig nær landi og skkut á fimm mjlna færi. Markið voru hermannaskálar og mátti greinilega sjá það af skipinu að þeir hrundu hver af öðrum. Strandvirki svöruðu skot- \ liríðinni, en tundurspillar, sem voru með orustuskipinu, þögg- uðu niður i þeim að mestu leyti. Þegar skothríðin hafði staðið i hálfa klukkustund fór orustu- skipið leiðar sinnar. Sóknin til Enna. Jafnframt því sem Banda- ríkjamenn sgekja vestur með suðurströnd Sikileyjar fara aðrar sveitir þeirra beint inn í land og stefna til tveggja borga, sem eru um það bil á miðri eynni. Sú veslari og mikilvæg- ari er Enna, sem hefir orðið fyrir mörgum loftárásum. Uni þessa borg liggja nefnilega allir helztu vegir eyjarinnar, aðrir en þeir, sem eru með ströndum fram. Það þýðir þess- vegna, að ef bandamenn ná þessari borg, þá eru allir vegir greiðir fyrir þá, hvert sem þeir lcjósa að stefna. SV-Kyrrahafið: r ir tniiður tir ð llótta. Bandaríkjamenn eru farnir að nota nýjar flugvélar til her- og vöruflutninga út um heim. Ileita þær Skymaster og geta flutt 15 smálestir af varningi eða 50 menn með öllum her- klæðum. Lokaárásin á Munda hafin. Japanskar tundurspilladeildir gerðu í gær tvær tilraunir til að komast til Nýju-Ge^rgiu eða Vila á Kolombangaraeyju. Amerísk lierskip urðu þeirra vör i bæði skiptin og lögðu til bardaga. I fyrri viðureigninni voru þrír japanskir tundurspill- ar hæfðir fallbyssuskotum, en í síðari bardaganum gat ameri.sk- ur tundurspillir komið tundur- skeyti á einn japönsku tundur- spillanna. Er talið líklegt, að hann hafi farizt. Þessi herskip eru talin hafa verið með herlið og nauðsynjar til hinna aðþrengdu liersveita á Nýju-Georgíu eða Kolom- ! hangara-ey. Ilafa Japanir reynt I áður (við Guadalcanal) að nota ; tundurspilla til herflutninga, þegar venjuleg flutningaskip hafa ekki þótt nægilega snör í snúningum. I morgun bárust fregnir um að hersveitir Bandarikjamanna á Nýju-Georgiu væru byrjaðar lokasóknina gegn Mundaflug- vellinum. A laugardag sökktu amerísk- ar flugvélar sjö japönskum flutningaskipum, sem lágu við akkeri undan Buin á Bougain- ville-ey og skutu niður 49 jap- anskar flugvélar. Sex amerísk- ar flugvélar voru skotnar niður. driðarlegrar vígrgrirð- iagrar á Jótlandi. Fólk flutt frá Hirtslials. Sjáland líka vfggirt. Fregnir berast um það frá Svíþjóð um þessar mundir, að Þjóðverjar vinni af gríðarlegu kappi að víggirð- ingum hingað og þangað um Danmörku. Láta þeir sér ekki nægja að víggirða Jótlánd, heldur hafa þeir einnig komið sér upp virkjum á Sjálandi. Það gefur að skilja, að víg- girðingarnar eru öflugastar á vesturströnd Jótlands, þar sem mest er hættan á innrás frá Bretlandi. Ilefir landinu smám saman verið breytt í heilar her- búðir, símar fréttaritari United Press í Stokkhólmi, sem hefir að undanförnu gert sér far um að afla sem mestra upplýsinga um þetta, þegar innrásarum- ræður standa allsstaðar sem hæst. Hafa Þjóðverjar meira að segja flutt alla borgara á brott úr fiskimannabænum Hirtshals. Þungamiðja varnakerfisins á Jótlandi er í psbjerg, þar sem er raunverulega eina góða liöfn- in á ölluni skaganum. Eyjan Fanö, sem er undan Esbjerg er líka rammlega viggirt og segja þeir, sem þaðan hafa fregnir, að hún sé raunverulega öll sam- fellt virki. Danir furða sig mikið á víg- girðingunum á Sjálandi. Geta menn ekki gert sér fyllilega grein fyrir þvi, bvort þær sé gegn innrás af hálfu Svia eða livort Þjóðverjar óttist, að inn- rás verði gerð frá Eystrasalti. Bílslys á Utn miðnætti í nótt sem leið átti sér stað allmikið bifreiðaslvs á Suðurlandsbraut, rétt innan við bæinn. íslenzk fólksbifreið og amer- ísk herbifreið rákust saman og eyðilagðist islenzka bifreiðin mjög mikið við þennan árekst- ur. I bílnum munu liafa verið tvær stúlkur og tveir karlmenn. Slasaðist fólk þetta töluvert. Stúlka, sem stýrði bifreiðinni, fótbrotnaði og skaddaðist á höfði,' og annar karlmaðurinn fótbrotnaði einnig, en hin tvö meiddust eitthvað minna. Vísi liefií' ekki tekizt að afla sér frekari upplýsinga um l>etta slvs að svo komnu máli. Rússar sækja enn fram Rússar héldu áfram sókn sinni til Orel í gær og tókst her- sveitum þeirra að reka Þjóð- verja 4—6 km til baka þá um daginn. Enn sem fyrr leggja Rússar mesta áherzlu á að sækja fram fyrir norðan Orel, þar sem þeir geta komizt á járnbrautina til Bryansk. Eiga þeir eftir þangað um 15 km. Þjóðverjar liafa víggirt land- ið á þessum slóðum mjög vel, livert þorp og bóndabær er orð- inn vígi að Vélbyssulireiður, enda hafa þeir liaft tvö ár til að vinna að þessum, víggirðing- um 1 gær segjast Rússar hafa eyðilagt 68 skriðdreka og bryn- varða bíla fyrir Þjóðverjum og skotið niður 137 flugvélar. vegna yrði hvert mannsbarn að leggja fram krafta sína. Það, sem vakið liefir mesta athygli í ræðu hans, var það, að han.n hvatti Itali til að taka sér Breta til fyrirmyndar, þegar verst gekk fyrir þeim 1940 og öll von virtist úti um að þeir gæti lialdið velli. Síðustu fréttir Fasistar eiga sök á stríðinu Scorza, ritari fasistaflokksins, hefir ávarpað ítölsku þjóðina og hvatt hana til að berjast til þrautar. Hann sagði, að fasistar tæki á sig alla sök á stríðinu, því að það hefði verið óhjákvæmilegt, og sagði, að það væri skylda hvers fasistaforingja, að falla við skyldustörf sín. Hann dró ekki dul á það, að horfur væri alvarlegar fyrir ítali og þess- Eisenhower: Bandaríkja- menn hafa tekið Caltanissetta, hina mikijvægu samgöngumið- stöð á Sikiley miðri, skammt fyrir austan Enna. Er það mik- ill sigur, svo að varla er hægt að gera of mikið úr honum. Þetta var tilkynnt í aukatil- kynningu kl. 1, en áður var sagt, að Bandaríkjamenn væri 15 km. frá borginni. Kanadiskar hersveitir á aust- ; urhluta eyjarinnar hafa tekið eitt af virkjunum í varnakerf- inu umhverfis Catania. Blaða- menn síma, að hersveitir þessar íeitist við að komast á snið við borgina, til þess að geta um- kringt hana á alla vegu. Óstaðfestar fregnir herma, að skriðdrekar bandamanna hafi getað brotizt inn í úthverfi Ca- taniu og standi yfir harðir götu- bardagar þar. Orustuflugvélar bandamanna, sem voru í gær á eftirlitsflugi yfir Tyrennahafi, miíli Sardiniu og Ítalíu, hittu þar 15 þríhreyfla Junkers-52 flutningavélar og skutu þær allar niður. Árásir hafa verið gerðar á tvær borgir fyrir sunnan og norðan Napoli og var þar unnið mikið tjón. Per Albin Hansson, forsætis- ráðherra Svía, flutti í gær ræðu og vék að norrænni samvinnu a stríðinu loknu. Kvað hann ekl tíma né tækifæri til að leggj fram grundvöll að viðræður en sænska stjórnin áliti þa skyldu sína að hafa nánar gæ ur á þeim vandamálum, sem ó- hjákvæmilega hlytu að verða á vegi Norðurlanda í stríðslok, og myndi stjórnin fagna opinber- um viðræðum um þessi efni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.