Morgunblaðið - 15.10.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.10.1918, Blaðsíða 1
S*riðjudag 15. okt. 1918 HORGDNBLAÐID 5. argangr 338. tOlnMaO Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjón: Vilhjáimur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusimi nr. 500 Friðarhorlur. Kötlugosið. Svar Þjöðverja komið» Keisaraveldi Austurrikis i hnignun. (Fri fréttaritara Morgunb!.). Kaupmannahöfn 13. okt. Þjóðverjar hafa svarað Wilson og fallast að öllu leyti á skilmála þá, er hann bar fram í þingræðu sinni 8. janúar og í síðari ræðum. Vilja Þjóðverjar aðeins ræða ítarlegar ýmislegt sem við kemur friðar- .y&aI samningunum í framkvæmdiuni. Vonast þeir til þess '■■Síáta að bandamannaþjóðirnar allar gangi að skilyrðum Wilsons. Miðríkin ern fu' til þess að yfirgefa hertekin lend og fara iram á það að forseti Bandaríkjanna kjósi þegar alþjóðanefnd til þess að gera nanðsyn- legan nndirbúning að friðarráðstefnnnni. Hin núverandi stjórn fýzkalands ber ábyrgð á friðarumleitnminnm í samráði við meiri hlnta þings- ins. Kanzlarinn hefir talað i nafni stjðrnarínnar og þýzku þjóðarinnar. Undir svarið hefir dr. Solf utanríkisráðherra ritað. Austurrikisraenn ntiuga upp á því að Miðríkin dragi her sinn til landamæranna en að bandamenn haldi kyrru iyrir í hinuin núverandi vígstöðvum sin- uií . En á meðan á samnirsgum stendnr verði Hol- lendingum og öðrum hlutleysirigjum falið að láta her gæta svæðis þess er þannig verður autt milli herjanna. Reuter segir að Þjóðverjar hafl yfirgeflð Flandern- strönd. »Times« segir f á því að irJðsamleg stjórnarbylt- ing hafi farið fram í Austurríki og keisarinn sé að missa vald sitt í hendur flokkastjórnanna. I fyrrakvöld og fyrrinótt sáust eng- ar eldingar héðan úr Reykjavik, vegna dimmviðris af öskufalli. En þegar á leið nóttina tók vindáttin að breyt- ast og gekk meira til norðurs er á leið daginn. Tók öskumökkurinn þá að fjarlægjast og var bjart veður hér i allan gærdag. En frá Vest- mannaeyjum er simað að þar hafi byrjað öskufall i gær. Austan úr Vík. Vér áttum í gær síðdegis símtal við Gisla Sveinsson sýslumann í Vík. í fyrradag sendi hann menn upp á fjall þar í nánd, til þess að reyna að komast að raun um, hvernig og hvar nm Mýrdalssand flóðið hafi fallið. Mennirnir komu aftur i fyrra- kvöld, en höfðu lítið getað séð út yfir Sandinn. Vatnið var þó held- ur að fjara að vestanverðu á sandinum, en isjakar miklir og urðaröldur viðs- vegar um hann, alt frá jökli fram að sjó. Flóðið hefir að líkindum verið mest austast á sandinum, og kvað sýslumaður menn í Vik vera mjög hrædda um, að tjón og slys kunni að hafa komið fyrir í Álfta- veri, og vafalanst skemdir á jörð í Skaftártungu aí öskufalli eftir fyrsta daginn. Dimt var til fjalla, og ekk- ert sást frá Vlk fyrir svartri móðu yfir jöklinum. Dynkir og læti mikil heyrast við og við, og má því telja víst að gosið haldi áfram enn. Glær- ingar hafa menn séð yfir móðunni við og við, en þó eigi eins miklar og fyrsta daginn. Sýslumaður kvaðst hafa fengið skeyti úr Hornafirðinum, og þar væri sagt frá því, að öskufall væri byrjað þar. Mun það sennilega vera eftirstöðvar frá fyrsta degi gossins. Fólk er nú alveg rólegt orðið í Vik, og biða menn með óþreyju eftir fregnum úr Skaftártungu og Álftaveri. En stjórnarráðið hefir Iátið senda hraðboða austan úr Horna- firði í Skaffár;tfbeum til þess að fá fregnir þaðan. Öðruvisi er ekki unt að komast í samband við þær sveitir. Úr Borgarfirðl. Morgunblaðið átti tal við Þóið PJIsson héraðslæknir í Borgarnesi i gær. Hann var á ferð frá Svarfhóli til Borgarness á laugardaginn og eftir því, sem hann lýsti eldunum, hafa þeir sézt enn greinilegar úr Borgar- firðinum heldur en hér. Mun vind- staðan hafa valdið, því að hún rak öskumökkinn i áttina hingað, en í Borgarfirði mun hann ekki hafa skygt eins á og hafði það verið furðulega tilkomumikil sjón að sjá gosið þaðan. Engin aska hefir fallið í Borgar- firði enn, því að vindnrinn hefir bægt henni frá. »8kaftfellingur< teptur Þegar gosið hófst, var vélskipið »Skaftfellingurc staddur austnr í Vík. Flutti hann þangað tunnur og átti að taka kjöt. Þar var og annar vél- bátur frá Vestmannaeyjum, sem átti að sækja nýtt kjöt. Báðir bátarnir höfðu sig á brott, þegar gosið hófst og héldn til Vestmannaeyja. Er nú »Skaftfellingur teptur þar vegna dimmviðris og eins hins, að alt er orðið fult af rekís milli lands og Eyja. Engir ferðamenn á Mýr- dalssandi. Um þetta leyti árs er venjulega mikið um ferðamenn á Mýrdalssandi vegna þess, að fjárrekstrar til Vikur standa þá sem hæst. En að þessu sinni stóð svo á, að tunnulaust var í Vík og hafði svo verið lagt fyrir bændur að þeir skyldu eigi koma með fjárrekstra fyr en tunnur væru komnar. »Skaftfel!ingur« var ný- komín með tunnur til Víkur þeg- ar gosið hófst, en boð munu ekki hafa verið kominn um það austnr i sveitirnar, að fjárreskstrar mættu byrja aftur. Af Snæfellsnesi sást Kötlugosið mjög greinilega. Ólafur Eyjólfsson stórkaupmaður, sem hingað kom að vestan í fyrri- nótt, kvað dynki mikla hafa heyrs allan daginn og um nóttina varð fólki eigi svefnsamt fyrir dynkjum. Eldurinn sézt á Norðurlanði. Oskufall í Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjar. Akureyri í gær. Á laugardagskvöld sáust eldbloss- arnir í Kötlu héðan og í nótt tók að falla hér aska. Pollinn lagði í nótt og nú er ísiun grár af ösku, og þvottur, sem nefir verið úti í gær, hefir orðið svartnr af gjallkend- um sandi. Frá Reykjahlið i Mývatnssveit sást eldurinn mjög vel; eins frá Breiðu- mýri, Húsavik og sveitunum þar fyrir austan, Kelduhverfi og Qxar- firði. I dag hefir verið mikið ösku- fall i Mývatnssveit og Bárðardal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.