Morgunblaðið - 18.03.1932, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
9
^Mh™m&<Xsew
m
EM
m
Notið ein-
göngu þessar
eldspýtur.
Fást í flestum
verslunum
bæjarins.
Spaðkjöt
fyrirliggjandi bæði í heilum og hálfum tunnum.
Verðið stór lækkað.
Eggert Kristlánsson & Ct.
Símar 1317 og 1400.
Lögtak.
Eftir kröfu bæjargjaldkera Reykjavíkur og að und-
angengnum úrskurði, yerða öll ógreidd fasteigna- og lóða-
leigugjöld, ásamt dráttarvöxtum, sem fjellu í gjalddaga
2. janúar, s.L, tekin lögtaki að átta dögum liðnum frá
birtingu auglýsingar þessarar.
Lögmaðurinn í Reykjavík, 17. mars 1932.
Bjðru Þúrðarson.
ísland fyrir íslendinga.
Eins og eðlilegt er, hefir krepp-
an, sem nú heldur þjóð vorri í
heljar greipum, vaidið miklu at-
vinnuleysi, bæði hjer í bæ og ann-
ars staðar á landinu. Svo að segja
daglega missa inenn atvinnu sína,
eða atvinnuvon. — Þegar svo er
komið, að hundruð starfhæfra
manna eru orðnir atvinnulausir, er
eðlilegt að menn fari að svipast
um og íhuga, livort hjer sje alt
• með feidu og hvort ekki megi
ráða á vandræðunum einliverja bót.
Verður mönnum þá meðal annars
star.sýnt á það, að hjer er fjöldi
erlendra manna í góðu yfirlæti við
ýmiss konar atvinnu, og alt af
eru hingað að flytjast erlendir
menn, sem atvinnu fá við alls kon-
ar störf. Aðrar þjóðir hafa þegar
rrist strangar skorður við slíku, og
virðist ekki nema sjálfsagt, að
vjer reynum eitthvað í þá átt líka.
Fyrir forgöngu tveggja manna,
Gísla Sigurbjörnssonar, form. Versl
uiiarmánnaf jel. „Merkúr“ og Frið-
-eirs Sigurðssonar, form. Mat-
•”eina- og veitingaþjónafjel. Is-
lands. hjeldu formenn og fulltruar
nokkurra stjettarfjelaga hjer í
bænum, fund með sjer síðastliðinn
sunnudag, þar sein þetta mál var
rætt aJl-ítarlega. Komu menn sjer
saman um, að æskilegt væri að
stofna til sem víðtækastra og ái-
mennastra samtaka um, að vinna
að því, að hjerlendir menn fengi
að njóta allrar Jieirrar vinnu, sem
lijer væri að fá og þeir væri færir
t.il að leysa af hendi, og að-leita
fulltingis Alþingis,’ þess sem nu
situr, um að það .legði svo fyrir,
að takmörkuð yrði atvinna og
dvalárleyfi erlendra manna hjer,
að ídík leyfi yrði ekki endurnýjuð,
sem útrunnin verða á næstunni, nje
ný leyfi veitt. Voru kosnir á
i'iindiimm þrír menn tii að hafa
framkvæmdir í þessu máli að und-
irbúa fýrir. anúán fund, sem halda
skyldi sem fljótast, ávarp til Al-
þingis, um þetta mál.
í þessa framkvæmdanefnd voru
kosnir þeir Gísli Sigurbjömsson,
Friðgeir Sigurðsson og Theódór
Arnason og boðuðu þeir til annars
fúndar, sem haldinn var í gær-
kvöldi, formenn eða stjórnarfull-
trúar rúmlega þrjátíu stjettarfje-
laga hjer í bæntini. Var fundur
þessi mjög vel sóttur og undir-
tektir undir hugmynd forgöngu-
mannanna hinar bestu og allar á
einn veg. Lagði framkvæmdanefnd
in fram uppkast að ávarpi t.il Al-
þingis, sem rætt var rækilega og
samþykt með nokkurri breytingu
og síðan undirskrifað af öllum
fundarmönnum.
Fer ávarp þetta lijer á eftir:
„Þar sem atyinnuhorfur eru
mjög ískyggilegar, bæði hjer í bæ
og annars staðar á landinu, leyfuin
vjer oss, undirritaðir fulltrúar neð-
anskráðra fjelaga í Reykjavík, að
skora á hið háa Alþingi, að það
taki nú þegar til rækilegrar íhug-
unar, hverjar leiðir sjeu til þess
að takmarka endurnýjum dvalar-
og atvinnuleyfa útlendinga, sem
atvinnu stunda lijer á landi, en
sem hjerlendir menn eru færir til.
ITm leið leyfum vjer oss að
benda á, að mjög hefir verið á-
bótavant eftirliti vegabrjefa er-
lendra manna, er hingað koma, og
má telja það eitt af mörgu, sem
hefir orðið til þess, að svo mikið af
útlendingum hefir hingað flutst.
Einnig hefir þess ekki verið nægi-
lega gætt, hvort þeir útlendingar,
sem hjer stunda atvinnu, hafi skjöl
SÍn í lagi, sjerstaklega að því er
snert.ir atvinnu- og dvalarleyfi.
Á seinni árum virðast, ríkisstjórn
irnar hafa verið allörlátár úm at-
vinnuleyfi til útlendinga, sem vjer
teljum, að nú ætti að girða fyrir
með ,öllu, eins og atvinnumöguleik-
úm' landsmanna er nú liáttað.
Þegar um er að ræða, að veita
atvinnuleyfi erlendum mönnum, á-
lítum vjer æskilegt, að ávalt væri
leitað álits þess fjelags, sem hlut
á að máli, ufti það, hvort ekki sje
völ á innlendum mönnum til starfs-
ins. —
Vjer treystum því, að hið háa
Alþingi taki þetta mál til í'hugun-
ai og skjótrar úrlausnar“.
F. h. Verslunarm.fjel. „Merkúr4 ‘,
Gísli Sigurbjörnsson.
F. h. Matsveina- og veitingaþjóna-
fjelags Islands,
Friðgeir Sigurðsson.
F h. Fjelags ísl. hljóðfæraleikara,
Theódór Árnason.
F. h. Stýrimannafjelagsins,
Jón Axel Pjeturssón.
F. h. Trjesmiðafjelagsins,
Björn Rögnvaldsson.
F. h. TTrsmiðafjelags Reykjavíkur,
Jóh. Norðfjörð.
F. h. Kennarafjelagsíns„
Einar Magnússon.
F. h. Sítnamannafjelagsins,
Andrjes G. Þormar.
F. h. Sölumanna í Reykjavík,
Valgarður Stefánsson.
F. h. Bakarasveinafjelagsins,
Theódór Magnússon.
F. h. Fjelags járniðnaðarmanna,
Loftur Þorsteinsson.
F. h. Rafvirkjafjel. Reykjavíkur,
Sig. Jónsson.
F. h. Fjelags pípulagningamanna,
Sigurgeir Jóhannsson.
F. h. Fjel. ísl. hjúkrunarkvenna,
Sigríður Eiríksdóttir.
F. h. Sjómannafjel. Reykjavíkur,
Sigurjón Ólafsson.
F. h. Málarasveinafjelagsins,
Jón Ágústsson.
F. h. Hins ísl. prentarafjelags,
Björn Jónsson.
F. h. Klæðskerafjelagsins,
Ilelgi Þorkelsson.
F. h. Hárgreiðslukvennafjelagsins,
Kristólína Kragh.
F. h. Rakarasveinafjelagsins.
Þorbergur Ólafsson.
Bydess kaifi
1. h. Veggfóðrarafjel. Reykjavíkur,
Vietor Helgason.
F. h. Bifreiðastjórafjel. „Hreyfill“,
Bjarni Bjarnason.
F. h. Verslunarmannafjel. Rvíkur,
B. Þorsteinsson.
F. h. Ljósmyndarafjelags íslands,
Sig. Guðmundsson.
Það skaí tekið fram samkvæmt
einróma ósk fundarmanna, að ekki
er til þess ætlast, að seilst verði til
þeirra erlendu manna, sem hjer
liafa ílengst og búið um sig, nema
óþarfamenn sjeu, — heldur er átt
við tolk, sem nýlega er flutt hing-
\lS, að eklci verði endurnýjuð dval-
arleyfi þess, og að ekki sjeu veitt
atvinnu og dvalarleyfi nýju er-
lendu fólki.
Verður nánar vikið að þessum
samtökum í blöðunum næstu daga.
Er þess vænst, að þeir, sem hlut
eiga að máli, skilji það, að hjer
Hggja ekki á balt við aðrar hvatir
en þær, sem til grundvallar liggja
sams konar lireyfingu í Öðrum lönd
um, — að liver þjóð reynir, á
þessum krepputímum og atvinnu-
leysis, að notast sem mest við það,
sém heima ,er hægt að fá. Þetta
þfekkja t. d. flestir útlendingarnir,
Sem hjer eru, miklu betur en við,
og er þess- vegna sennilegt að þeir
skilji vel málstað vorn.
Peykjavík, 16. márs. 1932, .
Theódór Árnason,
ritari framkv.nefndar.
Fjárhagur Breta.
London, 1. mars. FB.
Allan febrúarmánuð fóru horf-
urnar um bættan hag þjóðarinnar
batnandi. í fyrsta lagi er það nú
talið víst, að fjárlagafrumvarp þáð,
sem lagt var fyrir þingið þ. 16.
apríl, verður tekj uhall alaust. — í
iiðru lagi er fastlega búist við, að
vegna hinnar nýju stefnu stjórnar-
innar í tollamálum verði viðskifta-
jöfnuðurinn bráðlega mun hag-
stæðari en hann hefir verið. í
þriðja lagi hafa vaxtakjör batnað
og hefir það dregið iir viðskifta-
erfiðleikum yfirleitt. í fjórða 'lagi-
Jiefir mikið gull verið flutt frá
Tndlandi t.il Bretlands. Mr. Runci-
man, verslunarmálaráðlierra, telur,
að Tndland geti látið af hendi við
Breta gull svo nemi einni miljón
sterlingspunda á viku. Alls er verið
að flytja frá Tndlandi tll Bretla.nds
fimm hundruð miljónir sterlings-
punda í gulli. Einnig heima fyrir
í Bretlandi var gullforði, sem til
skamms tíma var ónotaður, en á
undanförnum vikum hefir ríkið
fengið a,f þeim gullforða 10—20
miljónir sterlingspunda. — Þetta
eru aðalorsakir þess, að horfurnar
fara mjög batnandi, og að við-
skiftatraustið vex hröðum fetum.
(Úr blaðatilk. Bretastjórnar).
LXI.
Flagið.
Bóndinn hefir hallað sjer aftur
á bak á hjónarúmið og nýtur
miðdegishvíldarinnar í makindum.
Konan kemur inn í baðstofuna og
fer geyst mjög og rasandi. TJm
leið og.hún æðir inn baðstofugólf-
ið, ■ segir hún: „Þú liggur þarna.
í letinni, Jóhannes! En flagið
liggur afvelta í trippinu og rjettir
'sitt loftið út í 'hvern fót.“
fæst i næstn búð.
G.s. Island
fer frá Kaupmannahöfn 27.
þ. m. um Leith til Reykja-
víkur. Þaðan til Norðurlands
og til baka aftur.
M.s. Di*cnning
Alexandt*ine
fer frá Kaupmannahöfn 15.
apríl um Leith til Reykjavík-
ur. Frá Reykjavík 23. apríl
til ísafjarðar, Siglufjarðar,
Akureyrar. Þaðan sömu leið
til baka.
:Fer frá Reykjavík 30. ap-
ríl beint til Kaupmanna-
hafnar.
Hraðferðir.
Gs. ísland fer frá Kaup-
mannahöfn 30. aprll og byrj-
ar þar með hraðferðir hálfs-
mánaðarlep-a þaðan.
Verður farið annan hvern
laugardag frá Kaupmanna-
höfn. Apnan hvern föstudag
frá Reykjavík til Vestur- og
Norðurlandsins op- annan
hvern laugardag frá Reykja-
vík til Kaupmannahafnar.
Fyrsta hraðferðin frá
Leith verður Gs. Botnia 28.
maí. — Síðan annan hvern
laugardag frá Leith til Rvík-
ur og annan hvern laugardag
frá Reykjavík til Leith.
c. Zimsen.
Revkia
May Blossom
ágætu Virginla-
cigarettur.
20 stk. pakkinn
kostar kr. 1.20.
HVKOIHÍð:
Nýjir ávextir
og
nýlt grænmeli.