Morgunblaðið - 14.09.1939, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.09.1939, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 Fimtudagur 14. sept. 1939. 38.000 kílómetrar $ % ■ ..v-y . „V .... •* $jfr -FMk. . "v *:.• í síldarleit Orn Johnson skýrir frá fluginu I sumar 0RN JOHNSON flugmaður kom hingað til bæjarins í fyrradag að norðan, eftir síldar- leitina, er byrjaði þann 20. júní og hjelt áfram til 10. september. Tíðindamaður blaðsins átti tal við Orn í gær pg fjékk hjá honum írásögn um þetta starf hans. En Örn er í eðli sínu fámáll eins og Lindbergh og fanst alt eðlilegt og sjálfsagt, en ekkert að heita má í frásögur færandi. Flugmaðurinn. Þegar við ræddum um það, hve ianga leið hann hefði flogið í síld- arleitinni í sumar, sagðist hann hafa flogið í 225 klukkustundir með sjó-vjelinni. Meðal flug á klukkustund eru 150 kílómetr- ar, svo flugleiðin verðnr ná- lægt 34000 kílómetrar. Auk þess flaug hann 35 klukkustundir síð- ast á landflugunni litlu. Svo alls verður flug hans í síldarleitinni um 38000 kílómerar. .. * Um tilhögun flugsins sagði Orn meðal annars: Eins og kunnugt er, var það 3 manna nefnd sem stjórnaði ferð- urn mínum. I nefndimii voru þeir Riehard Thors, Sveinn Benedikts- son og Sigurður Kristjánsson. Sveinn Benediktsson hafði stjórn þessa að mestu leyti á hendi. Mjer líkaði prýðilega við stjórn hans og alla ráðsmensku. Flugvjelarskýli er ekkert á Siglufirði, og varð jeg því að haf’a aðalbækistöð mína allan tímann á Akureyri. Þar er skýli fyrir flug- vjelina inn hjá Höepfnersbryggju. Á kvöldin talaði jeg vnð Svein1 á Siglufirði, og hafði hann þá lagt áætluh fyrir flugið næsta dag eft- ir þeim fregnum-sem hann hafði af veiðiflotanum og’ áliti manna á því, hvar helst ætti að leita þann dag. Stundum töluðum við svo aftur ^ saman um nóttina, ef Sveinn hafði: fengið frekari upplýsingar frá því um kvöldið. Méðan nótt var sem björtust lögðum við af stað frá Akureyri kl. 4 á nóttunni. En auk þess flug- um við oft seinna part dags. Með mjer var altaf Brand- ur Tómassón. Hann er vjelamað- ur' Flugfjelagsins. Og hvað fluguð þið að jafuaði lengi 1 hver sinn? Það var mjög mismunandi. Stundum ekki nerna 2—3 klukku- I stundi.r En lengst vorum við 9 klukkustundir í leiðangri í einu. En þá fórum við líka vestur á ísafjörð og koiinun þar tvisvar.1 Þá flugum við alla leið suður að Látrabjargi, og þar 90 mílur vest-1 ur í haf. Hvalveiðamenn þóttust hafa sjeð síldartorfur þar A-estur frá. En yið sá.um ekkert þegar ’ við vorum þar á ferðinni. Yitan-1 lega er það ekki einhlítt að fljúga svona einu sinni yfir svæði til síldarleitar. Síld gat hafa verið þarna þó hún væri eliki uppi ein- mitt þá stundina, sem við vorum þar. Hve langt komust þið yfir á t. d. 2—3 klst. flugi? Á þeim tíma gátum við t. d; farið austur að Flatey, svipast um yfir Skjálfanda, farið um Mánar- eyjar, Axarfjörð, framhjá Rauðu- niipum, Rifstanga og snúið við um Grímsey til Akureyrar aftur. Oft komum við við á Siglufirði í heimleið til skrafs og ráðagerða við Svein og þá fjelaga. Hve hátt fluguð þjer í síldar- leitinni ? Það er mjög misjafnt hve hátt flogið. er, eftir því hærra, sem skygni er bétra. Hæst 600 metra. Hærra tel jeg ekki ráðlegt að fljúga. Því þá fer maður tið sjá ógreiniléga til torfanna, hversu gott sem skygni er. En þegar hægt er að fljrrga í mikilli hæð, þegar skygni er gott • og ládauður ’sjór, sjest yfir stórY svæði á fluginu svo örugt er. T.1 d. þarf maður ekki að fljúga nenv.i j inn á miðjan Skjálianda til þess að sjá hvort síld veður iwikurs staðar þar á flóanum. Notið þið kíki til þess að greina torfurnar? Yið höfðurn kíki með okkur, en notuðum hann sjaldan. Þurfti ekki með. Jafnskjótt og við sánm torf- ur, þar sem ve-iðiskip voru ekki, sendum yið duimálsskeyti til Siglu fjarðar, og þaðán var fregnunum svo dreift tii skipanna. , | Sáuð j)ið ekki stnndum til skip- anna, er þau fundu torfurnáf ,eftó ir tilvísun ykkar ? Þó við værum ekki lengi í hve.pri ferð brugðu skipin stundum syp, fijótt við, að við sáum þau vera farin að kasta á torfurnar, er við flugum heimleiðis.. Hvernig litu síldveiðimenn , á jjessar leiðbeiningar ? Mjer fanst þeir fyl’st fráman aí hafa fréinur litla tiltrú til síidar- leitar með flugvjel. Jeg gerði Ííbk' þá vitleysu fyrst í stað, að jeg jjekti ekki upsatoffur frá síldár- torfum. Þá var fárið að tala um „upsakrossgátur flugvjélárinnar“. En jjetta lagaðist er frám í sótti. Jeg hafði varla sjeð síld er jeg byrjaði þetta flug, hvað þá síld artorfu. Og upsatorfur geta, líkst síldartorfum svo mikið, að sjó- menn hafa kastað á upsatorfur í þeirri trú að það væri síld. Hvernig er þá með vissu hægt að þekkja upsatorfurnar frá síld FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. „Goðafoss" er tilbúinn tll Amerfkuferðar Þegar farmur fæst í skipið vestur Margir spyrja um það þessa daga, hvað Ameríkuferð- um líði, einkum eftir að það kom á dáginn, hve erfiðlega það gengur að fá vörur í Detti- f©ss í Englandi. rBlaðið hefir aflað sjer upp- lysinga um þetta. Eins og áður hefir verið skýrt frá, er Goða- foss hjer við land, og tilbúinn til að fara vestur, ef svo ber uncfir. Var það komið vel á veg að viðunanlegur farmur feng- ist í skipið, mestmegnis síld. En svo kom tilskipun stjórnarinnar um útflutningsneíndina og að hún á að gefa leyfi til útflutn- ings hverju nafni sem nefnist. Þá þarf að taka upp að nýju samninga um væntanlegan út- flutning vestur. En sennilega kemst það mál fljótlega í lag. Nokkrir kaupsýslumenn hjer í jbæiram hafa Háft orð á því við ,,Eimskip“, að þeir myndu vilja taka sjer far vestur með fyrstmferð, er þangað fellur. Ferð hjeðan til Ne\v-York .og hjngað aftur, tekur aldrei minna en einar fimm vikur. Má. búast við 12 daga siglingu hvora leið, en viðstaða í New- York gæti aldrei orðið stýttri pn eina 10 daga. Dettifoss verður líka tilbúinn að fara vestur, ef ástæða ér til; þegar hann kemur frá Eng- landi. Yfirleitt er það mikill munur nú eða í síðustu styrjöld, hve meiri er hjer skipakostur, þegar ekki var nema Gullfoss til Ame- ríkuferða. En nú eru hjer Goðafoss, Dettifoss og Brúar- foss o. fl. En öll þessi þrjú skip Hvort um sig hafa meira lest- arrúm en Gullfoss. Af síldveiðum að norðan komu í gær línuveiðararnir Sigríður og Gullfoss. Verður alt skóla- hald stytt um mánuð? Kensiumálastjórnin hefir þetta til athugunar Kenslumálaráðherra hefir falið fræðslumála- stjóra að ræða við forstöðumenn hinna ýmsu skóla möguleikana á því, að stytta skólahald- ið, til þess að spara kol. Fræðslumálastjóri hefir rætt þetta mál við forstöðumenn. Mentaskólanna, Háskólans og gagnfræðaskólanna og hefir þess- ari málaleitan hvarvetna verið tekið vel. Eru því líkur til þess, að skólahaldið verði stytt um sem svarar mánaðartíma. Esja fer frá Ála- borg á sunnudag Skrifstofustjóri Skipaútgerðar ríkisins skýrði Morgunblað- inu svo frá í gær, að Esja ætti að fara frá Álaborg á sunnudaginn kemur, áleiðis til íslands. Skipaútgerðín veitir skipimi móttöku á föstudag. Þann dag verður og farin stutt reynsluferð. Með Esju koma 150 farþegai’. Langt er síðan að alt farmrými var fullskipað. En það gengur erf- iðlega að fá vörurnar afgreiddar. Aðallega voru það kornvörur og efni til smjörlikisverksmiðjanna, sem Esja átti að flytja. Stendur á afgreiðslu verksmiðjahna á þess um vörum. Þær hafa mikið að gera um þessar n'imdir. Ef ekki stendur á vörunum, mun Esja koma hingað með fullfermi Erfitt að fá farar- leyfi frá Englandi • , —... W- 16. þessa mánaðar, eða * eftir daginn á morgunn ganga í gildi lög í Englandi, þar sem svo er ákveðið að eng- inn útlendingur fær að fara þar úr landi, nema hann hafi til þess sjerstakt lejcfi frá stjórnar- völdunum. Hver einasti maður, sem æskir eftir að yfirgefa England yerður að sækja persónulega lim þetta brottfararleyfi. — En skrifstofur, þar sem slík farar- leyfi eru gefin, eru aðeins í tveim borgum landsins, í Lon- don og Liverpool. ÞÝSK FLUGVJEL YFIR DANSIÍRI LANDHELGI. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. anska stjórnin hefir látið af- henda þýsku stjórninni mót mæli út af því, að þýsk hernaðar- flugvjel flaug yfir danska land- helgi sunpan við dönsku eyjarnar. Varðbátur, sem þar var nær- staddur, skaut viðvörunarskotum, og sneri flugvjeþn þá brátt út frá landi. En verði úr framkvæmdum og skólahaldið stytt, verður sennilega ekki sama fyrirkomu- lagið haft allsstaðar. í gagnfræðaskólunum vérður sennilega haft það fyrirkomu- lag, að byrja kenslu á tilsettum tíma, en láta svo kenslp falla niður um miðjan vetur, t. d. janúarmánuð. Myndi og á þann hátt sparast meira af kolum. Telja skólastjórar gagnfræða- skólanna að kenslan nofist þann- ig betur, þvf að kennapar getí náð til nemenda, þótt skólahald falli niður einn mánuð um miðj- an vetur. En þetta hagar alt öðru vísi til með Mentaskólana, einkum þó að því er snertir Mentaskól- ann á Akureyri. Þar er sem kunnugt er heimavist og hana verður að hita upp strax og nemendur eru komnir 1 skólann. En það er ókleift að senda nem- endur heim um miðjan vetur. Er því sennilegt, að sú tilhög- un yrði höfð með Mentaskólana, að láta kenslu þar byrja mán- uði síðar en venjulega. Að því er Háskólann shértir hefir hann nokkra sjerstÖðu. Þar fellur jafnan kensla niður í janúarmánuði, vegna iprófa. Þó mun það verða atþpgað hvort ekki mætti stytta eitthvað kenslu þar einnig. Verði það úr, sem allar ííkur benda til, að skólahald verði stytt, verður það að sjálfsögðu látið ná til allra skóla, sjer- •skóla, svo sem Verslunar- skólans, Iðnskólans, Stýrimanna skólans, Vjelstjóraskólans o. fl. Vafalaust myndi stytting skóla- haldsins einnig verða látin ná til barnaskólanna. Ákvörðunin um það, hvort skólahaldið verði stytt, verður tekin nú alveg á næstunni. í báðum bíóunum hafa undan- farin kvöld verið sýndar óvenju góðar kvikm.yndir, enda hafa þær átt miklum vinsældmn. að fagna og verið vel sóttar. „Ástmey ræn- ingjans“ — með Jeanetté Mc Donald og Nelson Eddy í Gainla Bíó gengur enn við góða aðsókn. og hin sögulega stórmynd, Viet- oría mikla Englandsdrotning, var enn sýnd í Nýja Bíó í gær, þó bú- ið væri að auglýsa hana í „síðasta sinn“ kvöldið áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.