Morgunblaðið - 08.07.1951, Blaðsíða 1
38. árgangur.
12 síður og Lesbók
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
152. tbl. — Sunnudagur 8. júlí 1951
Vonandi þurfa þeir ekki a3 fella fleiri Kínverja
Nú eru i-uuui a, aó það takist að koma á vopnaiiljei í Kóreu og síðar e.t.v. friði. — Stríðið í
Kóreu hefur staðið í 54 vikur um þessa helgi. Þar hafa ennþá endurtekið sig gömul dæmi mannkyns-
sögunnar allt frá dögum Alexanders um að fámenn ur, vel búinn her getur haft í hendi sjer öll ráð
f jölmenns en illa búins hers. Og vafasamt er hvor am hefur þótt það leiðara i Ivóreustyrjöldinni her-
mönnum S. t>. að þurfa ad murka niður kínverska hermenn i þúsundatali eða foringjum kommúnista
að missa lið sitt. Hjer sjást hermenn S. Þ. í varðst iðu við rafmagnsstíflu eina í Kóreu.
Persar snúa sjer að lik- Dæmdir fyrir njósnir
indum til Öryggisráðsins
Öfgamenn viija affurkalla viðurkenningu á Haag-
dómsfélnum — Brelar skipa 2 í effirlitsnefndina
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB.
•TEHERAN, . júlí: — Kunnugir telja litlar líkur til, að Persar leggi
'olíudeiluna fyrir Öryggisráðið. Aftur á móti er ekki óhugsandi, að
Öryggisráðið fái kæru frá Persastjórn varðandi breska beitiskipið
Mauritius, sem liggur í grennd við Abadan og vegna herbúnaðar
.Breta í nágrannaríkinu írak. Telja Persar að í þessum aðgerðum
Breta felist bein ógnun.
BELGEAD, 7. júlí — Sex júgó-
slavneskir borgarar voru í dag
dæmdir í fangelsisrefsingu frá 2.
til 7 ár fyrir samsæri gegn ríkinu.
Menn þessir, sem bjuggu í mjög
þýðingarmikilli samgöngumiðstöð
milli ungversku ladnamæranna og
Belgrad, höfuðborgar Júgóslavíu
höfðu gert ýmsar ráðstafanir til
þess að auðvelda innrásarhersveit-
um ef til þess kæmi, -förina að
höfuðborginni. —Eeuter,
AFTURKALLA VIÐUR- ♦“
KENNINGU
. Eftir góðum heimildum er nú
lagt fast að forsætisráðherranum,
að hann afturkalli viðurkenningu
:Persíu á alþjóðadómstólnum. Eru
-það einkum öfgafyllstu þjóðernis-
sinnar, sem standa þar að. Hins
vegar mun sá orðrómur, að Pers-
ar ætli að ganga úr samtökum S.
Þ., ekki eig-a við rök að styðjast.
SKIPAÐ í EFTIRLITSNEFND
Breski sendiheri'ann í Persíu
gekk á fund utanríkisráðherrans
.1 morgun og flutti honum orðsend-
•ingu stjórnar sinnar. Þar kváðu
vera gefin upp nöfn Bretanna
•tveggja, sem skipaðir hafa veríð
í eftirlitsnefnd þá, er Haag-dóm-
urinn gerði ráð fyrir. .Tafnframt
er skorað á Persa að skipa 2 menn
í nefndina.
s
VlNAEBORG, 7. júlí — Nýlega
var tveimur starfsmönnum banda-
ríska sendiráðsins í Búdapest vís-
að bi'ott frá Ungverjalandi. Þeir
eru nýkomnir til Vínarborgar og
hafa það helst að segja, að í
Ungverjalandi ríki nú skelfileg
ógnaröld. Á hverri viku er 1500
fjölskyldum í Búdapest skipað að
hverfa úr borginni og þeim komið
fyrir í nauðungafangabúðum og
hefur svo gengið í 7 vikur.
■—Eeuter.
Nota vopnahlje í
áróðunskyni
PEKING, 7. júlí — Útvarpsstöðv-
ar kommúnista í Kína og N-Kóreu
segja í sífellu frá því, að væntan-
legar vopnahljesviðræður sjeu
kommúnistum einum að þakka.
Láta S. Þ. til leiðast þar sem
„bandarísku hersveitimar hafa
goldið mikið afhroð í baráttu við
heri N-Kóreumanna og Kínverska
sjálfboðaliða, svo að þær eru nú
komnar í þrot“.
19,000 flug-
vjelar Rússa
WASHINGTON, 7. júlí — í fyrra
smiðuðu Rússar yfir 19 þúsundir
flugvjela. Það ár voru smíðaðar
3 þúáundír í Bandaríkj unum.
Mcnzies leggur fram
landvarnaráætlun
CAMBEERA, 7. júlí — Robert
Menzies forsætisráðherra Ástralíu
lagði í gær fram í ástralska þing-
inu frumvarp um áætlun til her-
varna Ástralíu. Forsætisráðherr-
ann sagði, að Ástralía yrði að vera
við því búin að mæta árásum and-
stæðinga, sem einskis svífast. For-
sætisráðherrann gerir ráð fyrir að
hervarnaáætlun þessi verði til
fulls komin í giidi 1954. —Eeuter.
Svíar svara ekki
fyrsl um sinn
STOKKHÓLMI, 7. júlí —
Sænska utanríkisráðuneytið
tilkynnir, að ríkisstjórnin
hafi orðið ásátt um að svara
ekki að sinni málaleitan S. Þ.
um að scnda herlið til Kóreu.
Það er nú hálfur mánuður,
síðan S. Þ. sneru sjer til 39
ríkja og fóru þess á leit, að
þau sendu her til Kórcu. Þar
á meðal voru Norðurlöndin.
Þau hafa ekki svarað tilmæl-
um þessum, en kjósa {->5 bíða
átekta, ef friður skyldi tak-
ast nú. —Reuter-NTB.
öfséknir í iögregluríkjunum:
Ungverjar og Rúmenar flutiir
í fangabúéir hópum saman
Sjúkiinguni og gamal-
menitum hvergi þyrmt
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM, 7. júlí: — Samtök GySinga hafa leitað
til Fjelags- og efnahagsráðs S. Þ. og beðið það að tska til rann-
sóknar, hversu „mannrjettindin eru fótum troðin" í Ungverjalandi
og Rúmeníu með því að taka fjölda manns höndum og flytja í fanga-
búðir. Rússneski fulltrúinn í ráðinu reyndi að koma í veg fyrir, að
málið væri borið þar upp.
MargiraiKhrígirnýrri
hlaupvídd
LONDON, 6. júlí — Breski herinn
ákvað' fyrir nokkru að taka í
notkun nýja tegund riffla með
hlaupvíddinni 0,280 tomma, en
eldri herrifflar voru með hlaup-
víddinni 0,303. Þetta hefur vakið
óánægjuöldu meðal annarra
þjóða í Atlantshafsbandalaginu,
því að breyting sem þessi hefur
í för með sjer geysimikið ósam-
ræmi, þar sem breskir hermenn
gætu þá ekki notað skot frá öðr-
um bandalagsþjóðum og öfugt.
Kemur þetta og þvert ofan í und-
anfarriar tilraunir til að sam-
ræma vopnabúnað allra Atlants-
hafsþjó^'"’-^ — T?oi,tPr
Vildu sieppa
Sfepinac
BELGRAD, 7. júlí —- Haft er eft-
ir góðum heimiidum, að ríkisstjórn
Júgó-Slafíú hafi boðist til að láta
Stepinac. erkibiskup, lausan með
því skilyrði að hann hverfi úr
landi. Boðinu kvað hafa verið hafn
að í Páfagarði.
♦tugþúsundir fluttar
I F ANGABÚÐIU
Kunnugt er, að f jöldahandtökur
hófust í Ungverjalandi á miðju
ári 1950. Ýmsum getum hefir ver-
ið að því leitt, hve margir hafi
verið fluttir i fangabúðir, og það
er víst, að þeir skipta tugum þús-
unda.
GYÐINGAR HAFA ORÐIÐ
VERST ÚTI
Allar stjettir þjóðfjelagsins hafa
orðið fyrir barðinu á kommúnista-
stjórninni Gyðingar eru þó einna
f jölmennastir. Þeir höfðu reynsi-
una úr seinasta stríði, þegar Þjóð-
verjar og ungverskir sveinar
þeirra fluttu þá unnvörpum í tor-
tímingarbúðirnar.
SÝNA ENGA MISKUN
I þessu sambandi eru kommún-
istar sakaðir um að haga sjer sví-
virðilega við friðsamt fólk, ef til
vill af trúarástæðum einum/ öldn-
um og sjúkum er engin miskunn
sýnd. Ekki heldur vanfærum kon-
um, nje hjúkrunarfólki. Öllum er
ekið með flutningavögnum í fanga
búðir í Ungverjalandi eða utan.
þess.
ÞURKAÐIS ÚT
Meðal þessa ógæfusama fólks er
rúmenska klerkastjettin. Er sömu
söguna að segja frá Rúmeníu og
Ungverjalandi. Hundruð Gyðinga
hafa verið fluttir þar í útlegð. I
sumum borgum hafa þeir verið
þurrkaðir út að kalia.
Venizelosar
Sofókles Venizelos.
AÞENA, 7. júlí — Hin nýja stjórn
Venizelosar foringja frjálslynda
flokksins í Grikklandi fjekk sam-
þykkta traustyfirlýsingu í gær í
gríska þinginu. Með stjórninni
greiddu atkvæði 125 en á móti 74.
Venizelos lýsti yfir, að þessi nýja
stjórn hans yrði aðeins til bráða-
birgða, þar til efnt yrði til nýrra
kosninga í landinu. —Reuter.
100 kommúnisiar
Selldir í Indé-Kína
HANOI, 7. júlí — Herstjórn
Frakka í Indó-Kína, tilkynnti í
dag, að hrundið hofði verið árás
koramúnista-skæruliða í Norður
Viet-Nam. 300 kommúnistar voru
fclldir og um 50 teknir höndum.
-—Rcuter.
Skip sekkui' í Ermasundi
HAAG, 7. júlí — I morgun sökk
skipið Jargoon frá Glasgow í
Ermarsundi cftir árekstur við
1300 smál. spænskt sldp. Mann-
björg varð. Jargoon er nál. 700
smál. —Reuter-NTB.
Steyptist í
Ermarsund
LUNDÚNUM, 7. júlí — Farþega-
flugvjel á leið frá Basel í Sviss
til Bretlands er nú talin af. Telja
menn sig hafa sjeð þess merki,
að hún hafi steypst í Ermarsund.
Þrír farþegar voru með.
—Reuter. .