Morgunblaðið - 28.05.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.05.1968, Blaðsíða 1
28 SEÐUR Frá óeirðum í París sl. föstudag. Lögreglumaðurinn fremst á myndinni er að berja einn þátttakandann í óeirðunum með gúmkylfu. HUNGURSNEYD í BIAFRA IMigervuher enn sakaður um þlóðarmorð — Friðarviðræður Astandið versnar enn í Frakklandi — Ekkert lát á verkföllum — Segir de Caulle af sér tyrir áramót? • Verkföllin í Frakklandi halda áfram án afláts og virðast litlar horfur á, að úr þeim muni draga, þrátt fyrir það að samkomulag náðist í dag milli ríkisstjórnarinnar, atvinnu- rekenda og verkalýðsleiðtoga um verulegar kjarabætur, því að víðast hvar hafa verkamenn vísað þessu samkomulagi á bug. • Stúdentaóeirðir héldu áfram í kvöld í París, en á sunnu- dag ríkti meiri friður í borginni en oftast undanfarið og var fólk þá tekið að vona, að ókyrrðin í borginni væri að miklu leyti úr sögunni. • Blöð í Frakklandi telja nú sum, að ef ekki verði bundinn endi bráðlega á þá þjóðfélagskreppu, sem nú ríkir í landinu, kunni að skapast þar byltingarástand. • I AP-frétt frá Parísarfréttaritara brezka blaðsins The Evening Standard, segir, að de Gaulle, forseti, hafi þegar tekið ákvörðun um að segja af sér fyrir næstu áramót. Friðsamara á sunnudag. Innanlandsdeilurnar í Frakk- landi fluttust í gær utan af göt- unum inn að samningaiborðun- um og kyrrð og regla ríkti aft- ur í París, en fulltrúar stjórn- >áí1valdanna, verkalýðshreyfing- anna og vinnuveitenda leituðust við að komast að samningum, sem myndu binda enda á verk- föllin, sem nú niá til um níu millj. manna. Þúsundir Parísarbúa fengu sér sunnudagsgöngutúr yfir vinstri bakka Signu til þess að sjá, er verið var að vinna að því að hreinsa þar til eftir verstu götubardagana, sem orð- ið hafa í París frá stríðslokum og áttu sér stað í síðustu viku. Umferð á götum Parísar var að meira eða minna leyti í lama- sessi sökum bezínskorts og lyfjabúðir í borginni stríða nú við vaxandi Skort á lyfjum og öðrum vörum, sem þær hafa á boðstólum. í Bordeaux urðu hinis vegar blóðugar óeirðir á laugardags- kvöld, en þar meiddust 74 lög- reglumenn og fjöldi annars fólks. Að þessu undanskildu hef ur verið kyrrt í Frakklandi um helgina. Þannig var það einnig í Latínuhverfinu í París, en þar lýstu leiðtogar stúdenta því yf- ir, að þeir væru fylgjandi þvi, að röð og regla kæmist á. Að- stoðuðu stúdentar lögregluna m. a. við að stjórma umferð og að ryðja götur að trjám, sem höggv in höfðu verið niður. Verkföllin halda áfram Verkföllin héldu hins vegar áfram í dag, mánudag, án af- láts og jafn lamandi og fyrr, þrátt fyrir samkomulag, sem náð ist snemma í dag milli ríkis- stjórnarinnar, atvinnurekenda iðnaðarmanna og verkamanna, og fól í sér almenna 10% kauphækkun, 13% hækkun til hinna lægstlaunuðu og margar aðrar tilslakanir. Flutti Pompi- dou forsætisráðiheiTa til- kynningu um þetta samkomulag kl. 7.45 í morgun en þá höfðu samningaviðræður staðið yfir í 14 klukkustundir. Samkv. því samkomulagi, sem gert var, á 10% launahækkunin að verða í tveimur áföngum á einu ári, en þar að auki skal vinnutíminn styttur. Verkamenn voru hins vegar ekki ánægðir með þetta samkomúLag og fljót- lega tóku tilkynningarnar að berast hver af annarri, að verk- fallinu yrði haldið áfram, unz fallizt hefði verið á hinar upp- (haflegu kröfur verkamanna, sem voru miklu hærri. Þannig samþykktu starfsmenn Kenault- verksmiðjanna að halda áfram verkfallinu, en þeir eru yfk 50.000. Starfsmenn tveggja stór- verksmiðja í Lyon fóru eins að og sömuieiðis starfsmenn flug- vélaverksmiðjunnar Sud Aviati- on, þar sem Caravelleþoturnar eru smíðaðar. Síðar samþykktu einnig starfsmenn Citroen-verk smiðjanna í París og starfsmenn við kjarnorkurannsóknarstöðv- Framhald á bls. 27 i Newsweek: Humphrey líklegastur i— til framboðs New York, 27. maí — AP — VIKURITB) Newsweek, sem út kom á sunnudag, segir að , Hubert H. Humphrey vara- forseti hafi nú þegar tryggt sér mest fylgi allra frambjóð enda demókrata til forseta- kjörs, og vanti hann aðeins 32% atkvæði til að verða út- nefndur forsetaefni flokks síns við fyrstu atkvæða- greiðslu á flokksþinginu í ágúst. Segir vikuritið að fylgi i Roberts Kennedy hafi minnk að nókkuð eftir að Humphrey gaf kost á sér til framboðs, þrátt fyrir sigra Kennedys í forkosningunum að undan- förnu. Newsweek segir að Hump- hrey hafi örugglega tryggt sér 290 atkvæði á flokksþing ’ inu, auk þess sem talið er að haonn hljóti 989% þeirra at- kvæða, sem óbundin eru. Alls þacrf 1.312 atkvæði til að hljóta útnefningu flokksins, svo Humphrey vantar aðeins 32 %. Samkvæmt könnun Framh. á bls. 2 Vilja hlutlaust belti í Vietnam Lítíll árangur í París hafa engan árangur borið París, 27. maí. (AP-NTB). FULLTRÚAR Bandaríkjanna og Norður-Vietnam héldu fimmta fund sinn um tilraunir til að koma á friði í Vietnam í París í dag. Fundirnir hafa enn engan árangur borið, og í dag skoraði Averell Harriman, aðalfulltrúi Bandarikjanna, á fultrúa Norður- Vietnam að fallast á að Alþjóða eftirlitsnefndinni verði falið að koma upp hlutlausu svæði milli Norður- og Suður-Vietnam. Xuan Thuy, aðalfulltrúi Norður-Viet- nam, svaraði því til að þessi til- laga Bandaríkjanna væri blekk- ing ein, og tilgangur hennar væri sá einn að kasta rýrð á kröfu Norður-Vietnam um að Banda- ríkin hætti loftárásum sínum á landið. Fundurinn í dag var sá lengsti til þessa, og stóð í rúmar fjórar klukkustundir. Eyddu fulltrúarn ir miklum tíma í umræður um það hvort Norður-Vietnam hefði herli'ð í Suður-Vietnam, og sagði Harriman að á undanförnum fjórum árum hefði stjórnin í Hanoi sent alls 209 þúsund her- menn til Suður-Vietnam, þótt flestir þeirra væru nú fallnir, særðir, látnir á sóttarsæng, eða horfnir af öðrum sökum. Bar Harriman þessar upplýs- ingar fyrir fundinn í þeim til- gangi að fá Xuan Thuy til að viðurkenna dvöl hermanna Norð- ur-Vietnam sunnan landamær- anna, en þessu hefur Thuy neitað til þessa. Ekki fékkst hann held- ur til að viðurkenna það í dag, en sagði þó að eftir áð Banda- ríkjamenn hafi ráðizt á Vietnam hafi hver og einn íbúi Vietnam átt rétt á því að grípa til vopna og berjast „í öllum landshlutum ástkærrar fósturjarðar okkar.“ Framhald á bls. 27 Portland, Oregon, 27. maí — AP—NTB — FORKOSNINGARNAR fara fram innan stjórnmálaflokkanna í Oregonríki í Bandaríkjunum á morgun um það hverjir skuli verða fulltrúar á flokksþingun- um í ágúst, og hvern frambjóð- enda til forsetkjörs fulltrúam- ir skuli styðja. í framboði fyrir demókrata eru forsetaefnin Rob ert Kennedy, Eugene McCarthy og Lyndon Johnson forseti, sem lýsti því yfir of seint að hann gæfi kost á sér til endurkjörs. Fyrir repúblikana eru í fram- boði Richard Nixon fyrrum vara forseti og Ronald Reagan ríkis- stjóri í Kaliforníu. Auk fram- Kampala, 27. maí (AP-NTB). • Erfiðlega hefur gengið að finna samkomulagsgrundvöll á fundum fultrúa Nigeríu og Biaf- ra, sem haldnir hafa verið í Kampala, höfuðborg Uganda. Reyna fulltrúarnir að finna leið til að koma á friði í borgarastyrj- öldinni í Nigeríu, en í gærkvöldi munaði minnstu að upp úr syði og fulltrúar Biafra héldu heim. Fundum verður þó haldið áfram á morgun. • Brezkur háskólakennari, ný- kominn frá Nigeríu, segir, að stjórnin þar sé enn að fremja þjóðarmorð á íbúum Biafra. Hún ráði ekkert við grimmdaræði bjóðenda er búizt við að Hu- bert Humphrey varaforseti fái nokkuð af atkvæðum demókrata, og Nelson Rockefeller ríkisstjóri í New York talsvert af atkvæði um repúblikana. Til þess að greiða þeim tveimur atkvæð- þurfa kjósendur að rita, nöfn þeirra á kjörseðiana. Kunnugir telja að nauðsyn- legt sé fyrir Robert Kennedy að fá hreinan meirihluta atkvæða demókrata í kosnimgunum, því að öðrum kosti veiki hann mjög aðstöðu sína á flokksþinginu í ágúst. Skoðanakannanir sýna hins vegar a’ð fylgi flokks- manna er mjög skipt, og yfir- Framhald á bls. 27 hermanna sinna og egypzkra flugmanna, sem stjórna lofárás- um á óbreytta borgara í Biafra. * Alþjóða Rauði krossinn í Genf skýrir frá því í dag, að þegar hafi fjöldi manns látið lífið vegna hungursneyðar, sem herji á flótta menn í Biafra. Er talið að um 600 þúsund flóttamenn hafi yfir- gefið heimili sín og flúið undan sókn stjórnarhers Nigeríu. Búa þeir við gífurlegan matvæla- skort. Fulltrúar Biafra á fundunum í Kampala gerðu þá kröfu strax í uphafi viðræðnanna í Framhald á bls. 27 j Kafbátur J týndur j Washington, 27. maí <AP). j TILKYNNT var í Washington * að óttast væri um afdrif kjarn í orkukafbátsins ,,Scorpion“, í sem koma átti til heimahafn- j ar sinnar, Norfolk í Virginia- 1 ríki, klukkan eitt síðdegis í \ dag, en var ókominn í kvöld. t Verið er að leita kafbátsins á / stóru svæði út frá Atlantshafs * strönd Bandaríkjanna. I| Síðast heyrðist tii kafbáts- t ins 21. maí, fyrir tæpri viku, j en eðlilegt er að kafbátar á J neðansjávarsiglingu láti ekki I til sína heyra um lengri tíma. 1 91 manns áhöfn er um borð j í kafbátnum, og var báturinn 2 að koma úr æfingarferð frá \ Miðjarðarhafi. Forkosningarnar í OREGON í dag — Kennedy og Nixon spáð sigri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.