Morgunblaðið - 17.09.1971, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1971
23
Minning:
Jón A. Stefánsson
óðalsbóndi, Möðrudal
F. 22. febr. 1880
D. 15. ág. 1971
HANN andaðist í sjúkrahúsi
Seyðisfjarðaí á 92. aldursári og
haiði þá kennt sér meins um
skeið, en var annars heilsuhraust
ur alla ævi. Hann var jarðsettur
í heimagrafreit að Möðrudal, við
hlið konu sinnar, 21. ág. áL, að
viðstöddu miklu fjölmenni
hvaðanæva að.
Faðir Jóna Aðalsteins, en svo
hét hann fullu nafni, var Stefán
bóndi í Möðrudal, Einarsson,
bónda að Brú á Jökuldal. Móðir
Jóna var síðari kona Stefáns,
Arnfríður Sigurðardóttir, hrepp-
stjóra að Ljósavatni. Var Möðru-
dalsheimili þeirra Stefáns og
Amfríðar eitt mesta umsvifa-
og efnaheimili á Austu-rlandi og
þó víðar væri leitað. Stefán dó
1916 og Arnfríður 1917. Tveim-
ur árum síðar keypti Jón Möðru-
dal af samörfum og bjó þar síð-
an. Hafði hann áður búið að
Víðidal á Efra-Fjalli, Möðrudal,
Rangárlóni á Jökuldalsheiði og
Arnórsstöðum á Jökuldal.
Kona Jóns vaj- Þórunn Vil-
hjálmsdóttir, alþingismanns á
Hrappstöðum í Vopnafirði, f.
1874. Hún var afkomandi Bjarg-
ar frá Reynistað, Halldórsdóttur,
systur þeirra Reynistaðabræðra.
Þórunn var mikilhæf og ágæt
kona, gestrisin með afbrigðum og
sannur vinur vina sinna. Var
sambúð þeirra hjóna til fyrir-
myndar, enda hlutur húsfreyj-
unnar að stjórn hins stóra heim-
ilis rómaður að verðleikum. Hún
l'ézt 1944.
Jón Aðalsteinn fæddist að
Ljósavatni, en fluttist i bernsku
með foreldrum sínum að Möðru-
dal. Hafði faðir hans flutzt bú-
ferlum frá Möðrudal að Ljósa-
vatni (1877) og sett þar saman
bú. En Stefán undi þar ekki hag
sínum, taldi létt undir bú og
landkosti rýra. Var þó Ljósavatn
talið vildisjörð „niðri í sveitum",
ein3 og stundum er að orði kom-
izt í Möðrudal. Það er og eftir-
tektarvert, að á harðindaárunum
1880—90, þegar erfitt árferði
svarf hvað sárast að landi og
þjóð, þá voru uppgangsár í
Möðrudal; bú Stefáns óx þá og
dafnaði jafnt og þétt, og dró að
sjálfsögðu ekki úr þeirri þróun,
þegar seyrði úr klakaböndum.
Harðindaárin virtust með öllu
ganga þar hjá garði. Veitir þetta
nokkra vitneskju um landgæði
í Möðrudal, þessari hæstu byggð
landsins. (Að vísu voru nokkrar
jarðir hærra yfir sjó í byggð á
Jökuldalsheiði tii skamms tíma,
en þær eru nú allar komnar í
eyði).
Þrátt fyrir landgæði er við
margþætta örðugleika að stríða
í Möðrudal, langir aðdrættir og
ferðalög (15 km til næsta bæj-
ar og aðrir 20 km til þar næsta
bæjar), óblíð veðrátta, erfið
fjárgæzla og heyskapur torsótt-
U'i’, svo fátt eitt sé nefnt. Kart-
öflur og ber vaxa þar ekki, enda
stórhríðar og næturfrost engar
undantekningar, á hvaða árs-
tíma flem er. En veðurblíða er
líka með eindæmum í Möðrudal,
og mér er nær að halda, að ekki
geti meiri náttúrufegurð á okk-
ar fagra landi en þar. Fjalla-
hringur er fádæma víður og ber
þar hæst fjalladrottninguna,
Herðubreið, Dyngjufjöll og
Kverkfjöll í norðurjaðri Vatna-
jökuls. En um þetta er erfitt og
líklega ókleift að dæma og dóm-
endur e.t.v. hlutdrægir, ósjálfrátt
þó.
Jón í Möðrudal sannaði það
ótvírætt, að hann hafði í fullu
tré við erfiðleika þá, sem að
steðjuðu 1 langri og þrotlausri
lifsbaráttu, enda var kjarkur
hana og þrek hartnær ósveigjan-
legt. Ekki varð á traustri og ör-
uggari förunaut kosið hvort sem
um var að ræða svaðilíarir á
fjalla- eða jökulferðum, dýrðleg
ar sumarferðir um Möðrudals-
öræfi eða í hina fágætu öræfa-
vin Fagradal, hvanngrænan, un-
aðsfagran og einstæðan, á hinni
miklu eyðimerkurhásléttu milli
Jökulsár á Fjöllum og Kreppu
annars vegar og Jökulsá á Brú
hins vegar. Heyrði ég margar
sögur um mannkosti Jóns á slík-
um ferðum. Átti ég einnig þvi
láni að fagna að taka þátrt í
nökkrum þess háttar leiðömgrum
með Jóni, er ég dvaldist i Möðru
dal um skeið, nokkrum sinnum,
á yngri árurn og síðar. Tókst þá
með okkur vinátta, sem hélzt æ
síðan.
Þegar vanda bar að höndum,
hafði Jón jafnan ráð undir
hverju rifi í smáu sem stóru.
Hann var hjálpsamur öllum þeim
sem á einhvern hátt áttu um
sárt að binda og barngóður, svo
að af bar; hreinn og beinn í skipt
um við aðra menn og undir-
hyggjulaus með öilu. Hann var
alla ævi reglumaður hinn mesti
og hafði óbeit á hvers konar
óhófi.
Jón var hagleiksmaður við
hvers konar smið, og lék allt
slíkt í höndum hans. Eru t.d. ótal
in þau reiðtygi, sem hann smíð-
aði af mikilli snilld og eru víða
í notkun, mjög rómuð fyrir
gæði.
Jón smíðaði sjálfur, á sinn
kostnað, Möðrudalskifkju þá,
sem nú stendur, og málaði sjálf-
ur altaristöfluna. Hann var
ágætlega listhagur að eðlisfari,
listmálari og söngvinur mikill;
lék mikið á orgel, bæði í kirkju
og heimahúsum, og samdi lög,
einkum sálmalög, sem voru hon-
um hugstæðust. Hann hefði vafa
laust komizt langt á braut list-
arinnar, ef hann hefði notið hæfi
legrar tilsagnaj á yngri árum, en
þess var því miður ekki kostur.
Börn þeirra hjóna voru:
1. Drengur, f. 1904, lézt skömmu
eftir fæðingu.
2. Þórlaug Valgerður, f. 1905,
lézt 3. ára.
3. Jóhanna Arnfríður, f. 1907,
gift Jóni Jóhannessyni, fyrrum
bónda að Arnarstöðum í Núpa-
sveit, Fagradal á Hólsfjöllum og
Möðrudal; þau eru nú búsett í
Reykjavík.
4. Stefán Vilhjálmur, f. 1908,
nú búsettur í Reykjavík.
5. Vilhjálmur Gunnlaugur, f.
1910, áður bóndi í Möðrudal, nú
b. að Eyvindará í Eiðaþinghá.
6. Þórhallur Guðlaugur Val-
geir, f. 1913, bóndi í Möðrudal.
7. Þórlaug Aðalbjörg, f. 1914,
lézt 19 ára.
Auk þess ólu þau hjón upp
Kristínu Oddsen, frændkonu
Þórunnar. Hún er gift Ólafi
Stefánssyni frá Arnarstöðum í
Núpasveit; þau eru búsett á Ak-
ureyri.
Nú er lokið löngu og ströngu,
en farsælu dagsverki þessa mæta
og góða drengs, Jóns i Möðru-
dal. Hann er kominn í flinn Fagra-
dal, og þar er honum áreiðanlega
vel tekið. Vandamenn hana og
vinir vænta þar fagnaðarfunda á
efsta degi.
Kjartan Ragnars.
Hjartans þakkir færi ég öll-
um þeim mörgu vinum mín-
um og ættingjum, sem sýndu
mér vinsemd og hlýhug á
áttatíu ára afmæli minu 28.
ágúst sl. með gjöfum, skeyt-
um og ekki sízt með hlýju
handtaki. Sérstaklega þakka
ég tengdadóttur minni og
syni.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Sigurbjörnsdóttir,
Laugavegi 126.
Meinatœknar
Sjúkrahúsið óskar að ráða 1—2 meinatækna, sem allra fyrst. Umsóknir sendist skrifstofu sjúkrahússins fyrir 1. okt. n.k.
SJÚKRAHÚS AKRANESS.
Bæiarstfórar
Höfum til sölu Voivo sorphreinsunarbíl árg. 1956.
Allar nánari upplýsingar hjá
BiLASÖLUNNI, Höfðatúni 10
Símar 15175 og 15236.
■aSSSBBMBHHMHHMaa
Bílar
Höfum nokkra vörubíla nýinnflutta af Mercedes Benz 1113 —
1313 og 1413 árg. 1965—'68 Man 65—250 H.P. Ennfremur
eldri árgerðir af Trader, Ford, Volvo, Commer og Bedford
vörubílum.
Opið til kl. 10 öll kvöld.
BÍLASALAN, Höfðatúni 10
Símar 15175 og 15236,
Skrifstofustarf
Fyrirtæki í Hafnarfirði óskar eftir að ráða mann
til skrifstofustarfa.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist Mbl.,
merkt: „REGLUSAMUR — 5925” fyrir hádegi á mánudag.
Fró Tækniskóla íslands
Skólinn verður settur mánudaginn 20. september kl. 2,00 e.h.-
Athöfnin fer fram í hátíðasal Sjómannaskólans.
Kennsla hefst næsta dag í öllum deildum öðrum en meina-
tæknadeild, en þar hefst kennsla 1. október.
SKÓLASTJÓRI.
Aukavinna
Almenna bókafélagið vantar nú þegar umboðsmann í nokkur
hverfi i Reykjavík.
Upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins, Austurstræti 18
5, hæð.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ.
Fró barnaskólum Reykjavíkur
Skólaganga sex ára barna (f. 1965) hefst í barnaskólum borg-
arinnar um 20. september.
Næstu daga munu skólarnir boða til sín (símleiðis eða bréf-
lega) þau börn, sem innrituð hafa verið.
Kennsla 6 ára barna í Breiðholtsskóla og Fossvogsskóla mun
hefjast snemma í næsta mánuði.
FRÆÐSLUSTJÓRINN I REYKJAVÍK.
Haustmól Taflfélags
Reykjavíkur - Lokaskróning
í mótið fer fram milli kl. 16—18 á morgun laugardag
Keppt verður í 4 styrkleíkaflokkum, meistaraflokki, 1. flokki,
2. flokki og unglingaflokki.
Meistaraflokkur og 1. flokkur tefla á mánudögum, miðviku-
dögum og föstudögum, en 2. flokkur og unglingaflokkur á
þriðjudögum og sunnudögum.
Öllum frjáls þátttaka. Simi 83540,
SKÁKHEIMILIÐ.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í smíði, uppsetningu og frágang tveggja 3600
rúmm. stálgeyma fyrir asfalt á lóð borgarinnar við Ártúns-
höfða hér í borg.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn 3 000.— króna
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. október n.k,
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Konan mín t ÁSDlS REYKDAL, Þórsbergi, Garðahreppi.
verður jarðsungin 18. september kl. frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, laugardaginn 11. — Blóm vinsamlegast afbeðin.
Hermann Sigurðsson.