Morgunblaðið - 29.11.1973, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.11.1973, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NOVEMBER 1973 19 Breiðabólstaðarkirkja á Skógarströnd vígð Þetta er nýjasta kirkja landsins. Hún var vígð 16. september sl. Gamla kirkjan á Breiðabólsstað, nær hundrað ára gömul, brann haustið 1971. Eftir tvö ár var þessi fallega kirkja risin á grunni hinnar gömlu. Það var mikið af- rek, svo fámenn sem sóknin er. Burtfluttir Skógstrendingar lögðu ómetanlegt lið. Þeir hafa staðið fast saman um þetta mál við hlið heimamanna. Skógstrendingar, búsettir í Reykjavík og nágrenni, koma saman til viðræðu- og skemmti- fundar á laugardaginn, 1. des., kl. 8,30 um kvöldið, í salarkynnum Grænmetisverzlunar land- búnaðarins, Síðumúla 34. Þar verður m.a. drukkið kaffi, spilað og sýndar myndir. Þær ágæfu konur, sem hafa stutt kirkjubygg- inguna af mikilli dáð, leggja til veitingarnar. Allir Skógstrendingar eru vel- komnir og komi þeir sem flestir. S.E. Leikfanga- markaður í Hafnarfirði NÝSTOFNAÐUR Lionsklúbbur i Hafnarfirði, Lionsklúbburinn Ás- björn, fer af stað n.k. laugardag og sunnudag, 1. og 2. des., með fjársöfnun i nýstárlegu formi. Leikfangamarkaður verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði, þar sem allar gerðir leikfanga verða seldar á vægu verði, og rennur allur ágóði til líknarmála. Markaðurinn hefst kl. 10 f.h. á laugardag og verður opinn til kl. 10 um kvöldið. Einnig verður opið á sunnudag á sama tima. Rlthöfundafélag íslands heldur framhaldsaðalfund á morgun föstudaginn 30. þm í Norræna húsinu kl. 8,30. Ariðandi mál á dagskrá. Stjórnin. fltðrgpttMð&fö óskar eftir starfsfólki í eftirtalin störf: BLAÐBURÐARFÓLK ÓSKAST Upplýsingar í síma 35408 AUSTURBÆR Barónstíg. Laufásvegur 58 — 79 — Laufásvegur 2 — 57 Bergstaðastræti, Bergþórugötu, Ingólfsstræti, Þingholtsstræti, Freyjugata 28 — 49, miðbær, Úthlið, Háahlið, Hraunteig. VESTURBÆR Vesturgata 2 — 24 ÚTHVERFI Sólheimar I Nökkvavogur, Blesugróf. GARÐAHREPPUR Börn vantartil að bera út Morgunblaðið á Flatirnar Uppl. hjá umboðsmanni i síma 52252 GARÐUR Umboðsmaður óskast í Garði. — Uppl. hjá umboðsmanni, simi 7164, og í sima 10100. KÓPAVOGUR Blaðburðarfólk óskast i Bræðratungu. Upplýsingar hjá umboðsmanni i sima 40748. Verðlaunahafarnir að lokinni verðlaunaafhendingu. Talið frá hægri: Gerður Guðmundsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Linda Wendel, Þórunn Hauksdóttir og Þorbjörg Jósef sdóttir. Ljósm. Mbl.: Sv.Þ. Rækjupönnukökumar voru „ljómandi” Nýlega voru tilkynnt úrslit og afhent verðlaun í Ljómasmárétta- keppninni, en sem kunnugt er var það Smjörlfki h.f., sem stóð fyrir keppninni. Verðlaunin voru af- hent f hófi að Þingholti og stjórn- aði Davíð Sch. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Smjörlfkis hófinu og afhenti verðlaunin, en þau námu samtals 80 þús. krónum. Fyrstu verðlaun, 40 þús. kr. hlaut Gerður Guðmundsdóttir, Sævarlandi 8, Reykjavík (Köttur- inn Klói), fyrir rækjupönnu- kökur. Dómnefnd sagði um þenn- an rétt, að hann væri: frumlegur, einfaldur í matargerð og ljúffeng- ur. Önnur verðlaun, 20 þús. kr. fékk Sigurlaug Jónsdóttir, Stekkjarholti 4, Akranesi (S.J.) fyrir humarrétt. Þriðju verðlaun, 10 þús. kr. hlaul Linda Wendel, Blöndubakka 15, Rejkjavlk (ILWA) fyrir tartalettur með ostamauki. Fjórðu verðlaun, 5 þús. kr. komu í hlut Þórunnar Hauksdóttur, Laufvangi 10, Hafnarfirði fyrir krabbaskál. Fimmtu verðlaun, einnig 5 þús. kr. fékk Þorbjörg Jósefsdóttir, Hverfisgötu 31, Hafnarfirði, fyrir rétt sinn fylltir piparávextir með kræklingi og sveppum. Allir voru verðlaunahafarnir mættir til hófsins ásamt eigin- mönnum eða gestum. Sömuleiðis var meirihluti dómnefndar mætt- ur, en hana skipuðu: Haukur Hjaltason, veitingamaður, Agla Marta Marteinsdóttir, Dröfn Farestveit, Elsa Stefánsdóttir. Jón Á^eirsson, fréttamaður og Skúli Þorvaldsson, veitinga- maður. Það hefur verið mikið starf. sem hvíldi á nefndinni, því hún þurfti að athuga 260 uppskriftir. og 30 rétti þurfti að reyna sér- staklega og suma oftar en einu sinni. Sögðu forráðamenn Smjörlíkis. að uppskriftir hefðu borizt alls staðar að af landinu, og sendu karlmenn ekki síður en kvenfólk uppskriftir, en enginn þeirra komst í úrslit. — Ræða Kristjáns Ragnarssonar Framhald af bls. 17 Mannaflaskortur Þess hefur mjög gætt að undan- förnu, að erfitt hefur reynst að fá fólk til þess að starfa við sjávar- útveginn. Ástæðan til þessa er hin mikla spenna, sem er á vinnu- markaðinum. Ekki er svo að sjá, að þeir, sem landinu stjórna, hafi miklar áhyggjur af þessari þróun mála, því hið opinbera virðist hvergi draga úr umsvifum sínum eða sýna vilja til þess að hér þurfi að verða breyting á. Er hætta á, að ef svo fer fram sem horfir muni fljötlega, þegar kemur fram á næstu vetrarvertíð, koma til stórfelldra erfiðleika við mönn- um bátaflotans og fiskverkunar- stöðva. Könnun fer nú fram á þvf, hver vinnuaflsþörf sjávarútvegsins er til lands og sjávar, í Ijösi þeirra breyttu aðstæðna sem, m.a. hafa skapast meðtilkomu hinna mörgu nýju skuttogara. Er þess að vænta, að menn geri sér ljósari grein fyrir þeim vanda, sem hér um ræðir, þegar niðurstiiður þessarar athugunar liggja f yrir. Óvissan Margvíslegir erfiðleikar steðja nú að útgerðinni og tel eg óvissuna svo mikla, að óvfst sé hvort útgerð geti hafist með eðli- legum hætti um áramót. Fiskifræðingar spá minnkandi þorskafla um 10% á næsta ári, og vegna minnkandi hrygingarstofns megi búast við því að minnkun þorskaflans verði hlutfallslega meiri á vetrarvertíðinni. Sjómenn hafa sagt upp öllum kjarasamningum, og þótt mánuður sé liðinn frá uppsögn, hafa engar óskir komið fram um breytingar á samningum. Verkafólk og aðrir launþegar hafa lagt fram þær hæstu kaup- kröfur, sem nokkru sinni hafa verið lagðarfram. Verðbólgan æðir áfram stjörn- laust og kaupgreiðsluvfsitala hefur hækkað um 33 stig á einu ári. Stórfelldar hækkanir á mikilvægustu rekstrarvörum út- gerðarinnar eru í þann veginn að skella yfir. Fyrirsjáanleg verð- hækkun á olfu mun valda útgerð bátaflotans auknum útgjöldum um 500 milljónir króna á árs- grundvelli og togurum um 200 milljönum. Veruleg verðhækkun veiðarfæra og erfiðleikar i út- vegun þeirra mun enn auka á rekstrarerfiðleika útgerðarinnar. Talið er, að sú verðhækkun geti numið 300 milljönum króna á ári. Þegar 1 jóst varð um þessar nýju stórfelldu hækkanir á olfu og á vörum, sem unnar eru úr olíu, eins og á efni til veiðarfæra- gerðar, varð ljóst, að allar forsendur til að veita kjarabætur voru brostnar. Ekki er hægt að sjá að við þær aðstæður, sem nú hafa skapast, verði hægt að viðhalda núverandi Iffskjörum. Allar til- raunir til að þvinga fram kjara- bætur munu því aðeins magna verðbólguna enn meir en orðiðer og rýra þannig lífskjiirin. Af framansögðu er I.jiisl, að við munum hafa við margvísleg og vandasöm málefni að fjalla á þessum aðalfundi L.I.U. og ég óttast, að við munum ekki geta lokið fundinum nú, og munum þurfa að koma saman að nýju, þegar Ijösara verður um þann grundviill, sem útgerðinni verður ætlað að starfa á. Atburðirnir og aðstaðan í Eyjum. Ö'llum eru í fersku minni hinir ógnþrungnu atbruðir. er jarðeld- ar brutust út á Heimaey 23. janú- ar s.l. Hafa þeir atburðir valdið félögum okkar frá Vestmannaeyj- um miklum erfiðleikum og rösk- un á högum, eins og öllum íbúum eyjanna. Þetta voru líka þungar búsifjar fyrir þjöðina alla. Þrátt fyrir þessar erfiðu aðstæður tókst útvegsmönnum og sjómönnum þeirra aðkoma iilluin bátum til veiða á vetrarvertið með þeim árangri, að ná sama afla og árið áður. Aðstæður i höfnum á Suðurlandi voru þó mjög erfiðar og ólfkar því sem þeir höfðu átt að venjast, sem m.a. kom fram í þvf. aðaldrei var hægt aðyfirgefa bát i hiifn alla vertiðina. Þær takmiirkuðu b.vrðar. sem þjöðin lagði á sig vegna eldgossins, voru ekki greiðsla til V estmannaeyinga. heldur gieiðsla til þess að þjóðin fái aftur notið afrakstursins af þvi þýðingartnikla starfi. sem unnið er f V estmannaeyjum. Það eru einhcgar óskir. sem fylgja ykkur útvegsmiinnum frá Vestinannaeyjuin. þegar þið befjið á mestu vertíð stiirf f ykkar beimabyggð. en áformað er að all- ur bátafloti Vestmannaeyinga verði gerður þaðan út f vetur. Eg hef þessi ávarpsorð mín þá ekki fleiri og þakka meðstjörnar- iniinnum mfnum í stjórn L.l.U. fyrir áiuegjulegt samstarf á liðnu starfsári. Eg fieri slarfsfólki L.l.U. bezlu þakkir fyrir vel unnin stiirf og iillum þeiin. sem skipa trúnaðarstiiður á vegum saiutakanna. Að svo tnæltii segi ég34. aðalfund L.l.ll. setlan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.