Morgunblaðið - 22.08.1974, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. ÁGUST 1974
ÍMTWTTIR M0RM6W
Víkingur
meistari
í 2. flokki
VlKINGUR tryggði sér Islands-
meistaratitilinn I 2. flokki með
sigri yfir Val á þriðjudagskvöldið
á Melavellinum. Vfkingar byrj-
uðu leikinn vel og snemma I fyrri
hálfleik skoraði Haraldur Har-
aldsson með föstu skoti eftir
skemmtilega sóknarlotu. Þannig
var staðan f hálfleik, en f sfðari
hálfleik bætti fyrirliðinn, Gunn-
laugur Kristinsson, öðru marki
við. Seint f leiknum skoraði svo
Grfmur Sæmundsen fyrir Val,
þannig að Ieiknum lauk með
öruggum sigri Vfkings 2—1 og
var liðið vel að þeim sigri komið
þvf það var sterkari aðilinn.
Það voru 16 félög, sem sendu
flokka til keppni í landsmóti 2.
flokks, og var þeim skipt í þrjá
riðla. Valur vann A-riðilinn, Vík-
ingur B-riðilinn og Haukar frá
Hafnarfirði unnu C-riðilinn. Þessi
þrjú félög léku síðan til úrslita og
vann Víkingur Hauka með 1—0
og Valur vann Hauka með 3—0.
Og eins og áður segir sigruðu Vík-
ingar svo Val með 2—1 og tryggðu
sér þar meistaratitilinn. Að leik
loknum afhenti Ellert Schram
formaður KSl fyrirliða Víkings
bikar þann, sem keppt var um,
svo og hverjum leikmanni verð-
launapening.
— Þessir strákar eiga eftir að
færa okkur fleiri sigra, sagði einn
af forráðamönnum Vikings, sem
var að vonum ánægður, því það
eru ár og dagar síðan Víkingar
hafa borið sigur úr býtum í lands-
móti 2. flokks. — Það kemur sfðar
í ljós hvort hann reynist sann-
spár, en ef litið er á liðið, er ekki
ólíklegt, að svo verði, að þessir
piltar eigi eftir að færa félagi
sínu fleiri sigra. Þeir unnu
Reykjavíkurmótið með „fullu
húsi“ og gerðu aðeins eitt jafn-
tefli í Islandsmótinu. I liðinu eru
nokkrir leikmenn, sem hafa getið
sér gott orð í unglingalandsliðinu
óg einn hefur leikið með A-lands-
liðinu, Oskar Tómasson, og lék
hann m.a. deginum áður gegn
Finnum. Þannig, að ef rétt er á
málum haldið og piltarnir halda
saman og æfa vel er óhætt að spá
þeim frama á ókomnum árum.
I liði Vals eru einnig nokkrir
leikmenn, sem hafa getið sér orð
og má þar nefna þá Atla Eðvalds-
son, Grím Sæmui.dsen og Guð-
mund Þorbjörnssoi., sem allir
hafa leikið með 1. deildar liði
félags síns, að ógleymdum ungl-
ingalandsliðs markverðinum,
Ölafi Magnússyni. Þá má geta
þess, að Kristinn Björnsson, sem
er fastur maður í 1. deildar liðinu
og hefur auk þess leikið með A-
landsliðinu, var ekki með að
þessu sinni vegna meiðsla.
Þannig að Valur ætti ekki að
þurfa að kvíða framtíðinni, þrátt
fyrir tapið að þessu sinni.
íslandsmeistarar Vfkings f 2. flokki. ásamt þjáfara sfnum, Pétri Bjarnasyní.
Nýttum vel
æfingarnar
— ÞAÐ TÖKST, sagði fyrirliði
Vfkings, Gunnlaugur Krist-
finnsson, og var að vonum
ánægður með sigurinn. Við höf-
um ekki æft vel f sumar, en
æfingarnar hafa verið vel nýtt-
ar. Og við höfum ekki tapað
leik það sem af er f sumar. Við
unnum Reykjavíkurmótið með
„fullu húsi stiga“, en við
gerðum eitt jafntefli f Islands-
mótinu, en það var gegn
Breiðabliki. Þá vorum við 2—0
undir þegar 10 mín. voru eftir
af leiknum, en þá skoruðum við
mark og svo annað rétt fyrir
leikslok. Eg held, að það hafi
verið slakasti leikurinn okkar f
sumar, sagði Gunnlaugur, en
bætti við, að þeir ætluðu að
gera enn bctur og vinna að
lokum haustmótið.
Auk mfn eru fjórir leikmenn
f liðinu, sem hafa leikið með 1.
deildar liði Vfkings f sumar, en
það eru þeir Gunnar Örn, Öskar
Tómasson, Róbert og Ragnar
Gfslason.
Að lokum óskuðum við Gunn-
laugi og félögum hans til ham-
ingju með sigurinn og ekki má
gleyma þjálfaranum, Pétri
Bjarnasyni, fyrir hans þátt f
þessum sigri.
Gunnlaugur Kristfinnsson,
fyrirliði Vfkings.
Körfuknattleikur
ISLANDSMÖTIÐ f körfuknatt-
leik 1975 hefst f október. Þátt-
tökutilkynningar skulu hafa
borizt til mótanefndar KKl, póst-
hólf 864, fyrir 10. september
ásamt fullri greiðslu þátttöku-
gjalds.
(Frá mótanefnd KKl).
IKI
Aðalfundur Iþróttakennara-
félags Islands 1974 verður hald-
inn miðvikudaginn 4. september
n.k. f Glæsibæ og hefst kl. 20.30.
Dagskrá fundarins verður sam-
kvæmt lögum félagsins.
Úrslitaleikur 2. deildar
Þróttur og FH leika 1 kvöld
I kvöld fer fram á Þróttarvellin-
um við Sæviðarsund mikilvægur
leikur f 2. deildar keppni íslands-
mótsins í knattspyrnu. Þar mæt-
ast þá Þróttur og FH-liðin tvö,
sem skera sig nokkuð úr i barátt-
unni um fyrstu deildar sætið, og
úrslitin í leiknum í kvöld geta
verið afgerandi um hvort liðanna
hreppir hið eftirsóknarverða
hnoss.
Staða liðanna er þannig þegar
tveimur umferðum er ólokið:
FH
Þróttur
12 9 3 0
12 7 5 0
34:4
22:9
21
19
Svo sem af framansögðu má sjá
hefur hvorugt liðið tapað leik í 2.
deildar keppninni í sumar. Þrótt-
ur tapaði reyndar útileik sfnum
við Breiðablik í Kópavogi, en
vann þann leik á kæru — einn
leikmanna Breiðabliks reyndist
ólöglegur með liðinu.
1 fyrri leik Þróttar og FH, sem
fram fór í Hafnarfirði, varð jafn-
tefli 0:0, og að margra dómi eru
liðin nokkuð áþekk að getu. Ut-
koma FH-liðsins hefur þó verið
betri í sumar, og markatala liðs-
ins sérstaklega glæsileg.
Sigri FH 1 leiknum í kvöld hef-
ur liðið tryggt sér sigur í 2. deild-
ar keppninni, en verði hins vegar
jafntefli á Þróttur enn möguleika
og sigri Þróttur standa liðin jöfn
að stigum og er þá allt útlit fyrir
aukaleik, þar sem sennilegt verð-
ur að teljast, að FH vinni Isafjörð
I síðasta leik sfnum og Þróttur
vinni Selfoss.
Leikurinn á Þróttarvellinum
hefst kl. 19.00, og ef að lfkum
lætur verður þar margt áhorf-
enda til þess að hvetja sína menn
í þessum mikilvæga leik.
Með í öllum
Evrópumótum
næsta sumar
ISLENZKA frjáliþróttasam-
bandið hefur ákveðið að senda
þátttakendur á Evrópumeist-
aramótin í frjálsum íþróttum,
sem fram fara næsta sumar.
Munu karlarnir keppa í Lissa-
bon 14. og 15. júní og stúlkurn-
ar sömu daga í borginni Osijek
í Júgóslavfu. Island mun einn-
ig eiga keppendur f Evrópu-
meistaramótinu í fjölþrautum
og verða í þeim riðli, sem
keppir í Barcelona á Spáni
helgina 19. og 20. júní næsta
sumar. Verður bæði um stúlk-
ur í fimmtarþraut og pilta í
tugþraut að ræða í þátttöku
íslands.
Haukarnir sigruðu UBK
EINN leikur fór fram f 2. deildar
keppni íslandsmótsins 1 knatt-
spyrnu f fyrrakvöld. Haukar og
Breiðablik léku þá á Kaplakrika-
vellinum f Hafnarfirði og fóru
leikar svo, að Haukarnir sigruðu f
leiknum með tveimur mörkum
gegn einu og hafa þeir þar með
náð þriðja sætinu 1 deildinni, —
eru næstir á eftir Þrótti og FH.
Leikurinn í fyrrakvöld var á
köflum þokkalega leikinn, sér-
staklega af Haukunum, sem eru
greinilega að ná upp góðu liði, —
liði, sem líklegt er að blanda sér
enn meira í baráttuna í deildinni
næsta sumar en það gerði f sumar.
Haukarnir sóttu meira í
leiknum, og skoruðu þegar á 10.
mínútu. Það mark gerði Stein-
grímur Hálfdanarson með skoti af
nokkru færi. Hafði markvörður
Breiðabliks hendur á knettinum
en missti hann síðan í markið.
Skömmu fyrir lok fyrri hálf-
leiksins jafnaði svo Breiðablik.
Markið gerði Hinrik Þórhallsson
með skoti af stuttu færi, en
varnarmenn Haukanna voru illa á
verði er þetta mark kom.
Sigurmark leiksins skoraði svo
hinn marksækni Loftur Eyjólfs-
son um miðjan seinni hálfleik, er
hann fékk góða sendingu frá
Steingrfmi Hálfdanarsyni. Var
þetta ellefta markið, sem Loftur
skorar í 2. deildar keppninni í
sumar.
íþróttakennaraþing
Aður auglýst íþróttakennaraþing 1974 verður haldið dagana 3.—6.
september n.k. í Æfingaskóla Kennaraháskóla íslands og hefst kl.
15.30 þriðjudaginn 3. september.
A þinginu verða flutt erindi um skólaíþróttir, m.a. um álags- og
afkastagetu barna og unglinga, samkennslu pilta og stúlkna, leiðir til
að örva íþróttaiðkun skólanemenda, hreyfieiginleika Ifkamans og
þroskun þeirra, heildar- og hlutakennslu í fþróttum, aðstöðu til líkams-
uppeldis f skólum, uppeldislegar og kennslufræðilegar ályktanir af
aldurseiginleikum f skólafþróttum, heilsuvernd í skólum, próf, mæl-
ingar og fl.
Aðalfyrirlesari á þinginu verður próf. dr. Heinz Báskau, forstöðu-
maður íþróttavísindadeildar háskólans í Rostock. Nýskipaður skóla-
yfirlæknir, örn Bjarnason, mun flytja erindi á þinginu.
Drengja- og unglinga-
keppni á Hvaleyri
Um næstu helgi átti að fara
fram Dunlop-unglingakeppnin,
sem árlega er háð á Hvaleyrar-
velli f ágústmánuði. Þetta er opin
keppni, en nú vill svo til, að um
næstu helgi fer einnig fram BEA-
keppnin f Leiru og má búast við
að margir unglinganna vilji taka
þátt f henni. Vegna þess hefur
verið ákveðið, að drengja- og
unglingakeppnin fari ekki fram
um helgina, heldur fimmtudag-
inn og föstudaginn 29. og 30
ágúst. Hefst keppnin kl. 5.30 báða
dagana.