Morgunblaðið - 29.06.1977, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
140. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 29. JtJNl 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Andstæðingar
Ecevit gengu
út af þingfundi
Ankara, 28. júnf. Reuter.
HÆGRIsinnaðir andstæðingar
Bulents Ecevits, hins nýja forsæt-
isráðherra Tyrklands, gengu út af
þingfundi meðan ráðherrann
flutti stefnuræðu minnihluta-
stjðrnarinnar f dag. Ecevit var harð-
>rður f garð fyrri stjðrnar, og kvað
hana meðal annars bera ábyrgð á
Lögreglumenn f Soweto, vopnaðir vélbyssum, rifflum og táragassprengjum.
23 ungir blökkumenn
handteknir í Pretóríu
Jóhannesarborg, 28. júnf.
Reuter.
23 UNGIR blökkumenn voru
handteknir f Pretórfu f morgun
er þar var að hefjast mótmæla-
fundur vegna stefnu S-
Afríkustjórnar f fræðslumálum.
Mósambique
vill hemað-
araðstoð SÞ
Sameinuðu þjóðunum,
28. júní. Reuter.
Á FUNDI öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna f dag, fór stjórn Mósam-
bique fram á hernaðaraðstoð til
að brjóta á bak aftur sffelldar
hernaðaraðgerðir af hálfu Rhod-
Framhald ábls. 18
Flestir voru mennirnir frá
Atteridgeville, sem er f útjaðri
Pretórfu, en þar kom til átaka
sfðar um daginn. Beitti lögreglan
táragasi þegar unglingar hófu
grjótkast á skólahús og báru eld
að flutningabfl.
Sir de Villiers Graaf, formaður
Sameiningarflokksins, sem er í
stjórnarandstöðu, lagði til á
flokksþingi f dag, að Samein-
ingarflokkurinn yrði leystur upp
um leið og hann sagði af sér sem
leiðtogi stórnarandstöðunnar.
Hann kvaðst þeirrar skoðunar að
nýr stjórnarandstöðuflokkur
þarfnaðist nýs leiðtoga, en tjáði
sig fúsan að gegna þeirri stöðu til
bráðabirgða. Á morgun fer fram
formleg stofnun nýs flokks með
aðild fylgismanna Sameiningar-
flokksins og Lýðræðisflokksins.
Sameiningarflokkurinn á nú 30
fulltrúa á þingi, en Lýðræðis-
Handtekin fyrir njósn-
ir í þágu A-Þýzkalands
Karlsruhe, 28. júni. Reuter.
HJÓN, sem bæði eru
starfsmenn í stöðvum
vestur-þýzka flughersins í
námunda við Köln, hafa
verið handtekin fyrir
njósnir í þágu Austur-
Þýzkalands. Einnig hefur
austur-þýzk kona verið
handtekin fyrir að flytja
óleyfilegar upplýsingar
milli Vestur- og Austur-
þýzkalands, og hefur hún
starfað fyrir a-þýzka
öryggismálaráðuneytið.
Njósnararnir voru handteknir
s.l. laugardag.
í maímánuði var allmikið um
handtökur í Vestur-Þýzkalandi
fyrir meintar njósnir. Meðal
þeirra, sem þá voru handtekin,
var starfsstúlka í skrifstofu
Sehmidts kanslara og formaður
félags v-þýzkra rannsóknarlög-
reglumanna.
31 hefur verið handtekinn i
Vestur-Þýzkalandi fyrir njósnir i
þágu kommúnistaríkjanna það
sem af er þessu ári, en allt árið
1976 voru handteknir 48 njósn-
arar.
flokkurinn engan. Þriðji stjórnar-
andstöðuflokkurinn, Framfara-
sinnaði umbótaflokkurinn, er
með 12 þingmenn, en áhrif þess-
ara flokka á stjórn landsins eru
nánast engin, þar sem Þjóðar-
flokkur Vorsters hefur yfir að
ráða 123 þingsætum.
Framhald á bls. 18
OECD spá-
ir minni
verðbólgu
Parfs, 28. júnf. Reuter.
SAMKVÆMT nýrri efnahags-
spá, sem Efnahags- og fram-
farastofnunin í París birti f
dag, mun draga úr verðbólgu-
vexti f sjö helztu iðnrfkjum,
sem aðild eiga að stofnuninni,
fyrstu sex mánuði næsta árs.
Þannig eru horfur á að verð-
bólga í Bretlandi verði 8.5%,
en á fyrra misseri 1977 hefur
hún verið 17%.
Á ítalíu er gert ráð fyrir
15% verðbólgu í stað 23% á
sama tima i ár, i Japan eykst
verðbólga úr 7.6% i 9.6%
miðað við sama tima, I Kanada
eykst hún úr 6.9 i 8.2%, en í
Bandaríkjunum, V-Þýzkalandi
og Frakklandi verður hún
svipuð og nú.
„fullkominni óreiðu f landinu,
deilum og pólitfskum morðum“.
Hann fjallaði að mestu um innan-
rfkismál og efnahagsmál, en lýsti
fylgi sfnu við slökun á alþjóða-
vettvangi og hét stuðningi við
Tyrki á Kýpur um leið og hann
áréttaði að lausn Kýpur-málsins
væri fógin f þvf að eyjan yrði
sjálfstætt og hlutlaust rfki, sem
skiptist milli þjóðarbrota Tyrkja
og Grikkja.
Um varnarmál sagði Ecevit, að
Tyrkir þyrftu að annast þau sjálf-
ir að verulegu leyti og sagði, að
öryggi landsins mætti ekki ráðast
af afskiptum eða afskiptaleysi
annarra. Hann lýsti yfir samstöðu
við þróunarlöndin og sagði að
stjórn sin mundi leita samvinnu
við þau, svo og nágrannalöndin.
Framhald á bls. 18
Ecevit.
Spánn:
Forseta útlagastjórnar Katalóníu
boðið til viðræðna við stjórnina
Mardid, 28. júní. Reuter.
FORSETI útlagasjórnar Katalón-
fu, Josep Tarradellas, sem nú er
78 ára að aldri og verið hefur f
útlegð f Frakkiandi frá árinu
1939, er kominn til Spánar. Við
heimkomuna átti hann viðræður
við Adolfo Suarez forsætisráð-
herra, sem hafði forgöngu um að
hann kæmi til landsins, og er
búizt við því að hann ræði við
Juan Carlos konung fljótlega.
Með þvi að fá Tarradellas til að
koma til Madrid er álitið að Suar-
ez hafi sýnt verulega stjórn-
kænsku, en eftir sigurinn í Kata-
lóniu í þingkosningunum hefur
Juan Carlos konungur -
hittir Tarradellas að máli.
eitt helzta baráttumál Sósialista-
flokksins verið að fá Tarradellas
til Spánar og að hafnar verði við-
ræður um að koma aftur á sjálf-
stjórn i Katalóniu.
Við komuna til Spánar sagði
Josep Tarradellas, að hann væri í
heimsókn að þessu sinni, en
mundi setjast að á Spáni að þvi
tilskildu að Katalónia fengi sjálf-
stjórn á ný og hann yrði viður-
kenndur sem forseti hennar.
Blöð í Katalóniu fagna mjög
heimkomu Tarradellas og viðræð-
um hans við Suarez.
Katalónia fékk sjálfstjórn árið
1932 en var svipt henni i borgara-
styrjöldinni.
Dularfullt mannshvarf í Belgrad
Belgrad, 28. júnf. Reuter.
BARÁTTUMAÐUR fyrir
mannréttindum f Ukrafnu
hvarf með annarlegum hætti af
gistihúsi f Belgrad f dag,
skömmu áður en fréttamanna-
fundur sem hann hafði boðað
til, átti að hefjast. Þegar frétta-
menn komu til fundarins og
spurðu eftir Feydynsky f gesta-
móttökunni, var þeim sagt að
hann hefði skömmu áður greitt
reikning sinn og yfirgefið gisti-
húsið. Skömmu sfðar sáu tveir
vestrænir fréttamenn hvar
manni var troðið inn f bláa
Fiat-bifreið fyrir utan gistihús-
ið. Veitti hann mótþróa en var
yfirbugaður og ók bifreiðin sfð-
an á braut f miklum flýti.
Feydynsky er aðili að samtök-
um, sem nefna sig Upplýsinga-
miðstöð Ukraínu, og hafa sam-
tökin afhent skjal, undirritað
af 5 þúsund bandarfskum borg-
urum, þar sem þess er krafizt
að mannréttindi verði virt í
Úkraínu og því haldið fram að
Sovétstjórnin standi þar að
trúarofsóknum og þjóðarmorði,
auk þess sem tjáningar- og
fundafrelsi sé óþekkt þar um
slóðir.
Frá því að Belgrad-
ráðstefnan hófst fyrir hálfum
mánuði hefur 18 vestrænum
baráttumönnum fyrir mann-
réttindum verið visað úr landi i
Júgóslaviu fyrir meint afskipti
af stjórnmálum og röskun á
ráðstefnuhaldinu. Er i flestum
tilfellum um að ræða stuðnings-
konur við málstað gyðinga
austantjalds.
Bandariskur fréttamaður
taldi sig i kvöld hafa heimildir
fyrir þvi að Feydynsky hefði
lent í klóm öryggislögreglunnar
í Belgrad, og benti ýmislegt til
þess að hann hefði verið fluttur
um borð i flugvél. Hafa
júgóslavnesk yfirvöld hvorki
viljaó staðfesta þessa kenningu
né visa henni á bug, þannig að
hvarf Feydynskys er enn óráð-
in gáta.