Morgunblaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 01.12.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1983 37 Gunrmr Gunnars- son — Minning Mér var tilkynnt um lát Gunn- ars Gunnarssonar að kvöldi mið- vikudagsins 23. nóv. sl. Mér kom lát hans ekki á óvart því flestir vissu að ekki var í mannlegu valdi að breyta þar nokkru um. Þó er það þannig að jafnvel þótt svo sé, hrekkur maður við. Á hugann leita minningar sem geymdar eru, og þá gjarnan fyrst hinar björtu úr leik og störfum. Eftir situr svo minningin um góðan dreng, félaga og vin. Sú minning er mér mikil eign en þó dýrmætust þeim sem næst honum stóðu. Gunnar Gunnarsson var fæddur á Akranesi þ. 11. ágúst 1935 og var því aðeins 48 ára er hann lést. Foreldrar hans voru hjónin Lauf- ey Gunnlaugsdóttir og Gunnar Sigurðsson sjómaður á Akranesi, lengi búsett í Hraungerði (Mel- teigi 8) og síðar að Sóleyjargötu 14. Gunnar ólst upp í hópi 6 syst- kina og eru nú fjögur þeirra látin, langt fyrir aldur fram. Þau hétu: Sigurður f. 1918 d. 1982, Vilhelm- ína f. 1922 d. 1962, Ingunn f. 1926 d. 1976 og svo Gunnar sem var yngstur systkina sinna og við kveðjum í dag. Eftir lifa: Helga elst þeirra systkina f. 1916, hús- móðir á Akranesi, og Gunnlaugur f. 1920, vörubifreiðarstjóri, einnig búsettur á Akranesi. Við Gunnar ólumst upp í sama húsinu þar til fjölskyldan flutti í nýja húsið að Sóleyjargötu 14 og vorum auk þess systkinabörn svo eðlilegt má teljast að margar af bernskuminningum mínum séu tengdar honum á einn eða annan hátt. Ég er nokkru eldri en Gunn- ar var og bitnaöi það oft á honum. Gunnar var tæplega meðalmað- ur á hæð, grannur og kvikur í hreyfingum og með afbrigðum duglegur til allra verka. Þar fór saman handlagni, þekking á starfi sínu og umfram allt ánægja af að vinna. Hann lagði snemma stund á verslunarstörf og var lipur og vel látinn afgreiðslumaður, léttur í lund og þægilegur við sína við- skiptavini. Hann rak um skeið fiskbúð og fiskverkun á Akranesi ásamt bróður sínum Sigurði. Þar naut sín vel þekking þeirra bræðra á öllu því sem fiskur hét, enda framleiðsla frá þeim ávallt í hæsta gæðaflokki. Við Gunnar fengum snemma áhuga á Bridge og minnist ég nú margra ánægjustunda er við sát- um og spiluðum félagarnir í heimahúsum eða hjá Bridgefélagi Akraness. Hann naut þeirra stunda og hafði gaman af að taka áhættu og skemmti sér konung- lega þegar dæmið gekk upp. Gunn- ar hafði áhuga á ýmsu fleiru, þó held ég að ekkert hafi heillað hann meira en laxveiði, sem hann stundaði þegar færi gafst. Nú síð- ast á sl. sumri komst hann fár- sjúkur í uppáhaldsána sína, en hafði ekki krafta til að stunda veiðiskapinn eins og hann hefði óskað. Gunnar giftist eftirlifandi eig- inkonu sinni Svövu Björnsdóttur þ. 28. febrúar 1959. Börn þeirra eru: Sigríður Birna f. 1957, Gunn- laug f. 1959, Þóra f. 1961 og loks 21 ári síðar fæddist þeim hjónum sonurinn Gunnar Logi f. 1982. Þau hjónin fluttu til Reykjavíkur 1969 og urðu tengsl okkar minni eftir það. Ég hitti hann þó oft og var þá spjallað um gömlu góðu dagana, skipst á fréttum af skyldmennum og um það hvað var að gerast hjá okkur þá stundina. Ég man það glöggt er ég hitti hann eitt sinn, það var síðari hluta árs 1981, og við röbbuðum saman nokkra stund. Ég mun ávallt minnast þess þegar hann sagði mér að hann ætti barn í von- um. Ánægja og stolt skein úr aug- um hans og hróðugur var hann er hann sagði mér síðar að hann hefði eignast son. Sonurinn var augasteinn foreldra sinna, sem vonlegt er, en Gunnar lét velferð barna sinna sig miklu skipta, sagði mér ávallt fréttir af þeim og gladdist mikið þegar vel gekk. Svava var trygg eiginmanni sín- um og kom það best fram í veik- indum hans þar sem hún stóð eins og klettur við hlið hans uns yfir lauk. Dætur hans báru mikla um- hyggju fyrir föður sínum, voru hugulsamar og hlýjar í viðmóti við hann og stóðu ásamt móður sinni traustar við hlið hans í erfiðum veikindum. Eins og gengur, þótt fólk sé gift, þurfa skoðanir þess ekki alltaf að renna í sama farveg. Þess vegna ætla ég að hjónaband þeirra hafi verið byggt á traustum grunni því ýmislegt bjátaði á í lífi þeirra, en þeir eru fáir sem komast með öllu áfallalaust í gegnum lífið. Það verður mörgum manninum hált á braut lífsins og erfitt að gæta hófs. Svo var um Gunnar. Og þótt við vitum að ekki fáist sú að lífs- fylling sem leitað er eftir og næsta víst að okkur skrikar fótur á hin- um þrönga vegi hófseminnar, þá lærist þetta stundum seint og hjá sumum of seint. Veikindi Gunnars stóðu í rúmt ár en ótrúlegt hugrekki og kjarkur hafa e.t.v. seinkað endalokunum. Menn bera ekki utan á sér þrek og þor en ég vissi að Gunnar hafði fengið í vöggugjöf bæði þá eigin- leika og marga góða eiginleika aðra sem gerðu hann að vænsta manni, traustum sínum félögum, dagfarsprúðum manni sem allra vanda vildi leysa. Það er sárt að sjá á bak ástvini aðeins 48 ára gmölum, en eftir stendur minningin um góðan dreng, minning sem bjart er yfir. Ég votta eiginkonu hans, börn- um og barnabörnum innilega sam- úð mína, svo og öllum ættingjum hans og vinum. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Baldur Olafsson, Akranesi. Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför konu minnar, móöur og systur, UNNAR HLÍFAR JÓNSDÓTTUR HILDIBERG, Sólbergi vió Nesveg. Kristjón Jónsson, Jón Hildiberg, Kristjón G. Hildiberg Jónsson. SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjó-, vatns- og holræsa-dælur. Útvegum einnig dælu- sett meö raf-, Bensín- og Diesel vélum. StiMijflaiyigw Vesturgötu 16, sími 13280 Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! ,SCHEPPACH“ Nýjung trésmíða- vélaeigendur Eigum nokkur stykki af bandsögum fyrir „Scheppach" HM 1 & HM 2 á kynningarverði kr. 10.600.-. SÉRSEAKT VEREmiBODÁ BOKUNAR VÖRUM Geriö verösamanburö og spariö Sykur pr. kg. 14.50.- Hveiti, Pillsbury 5 Ibs. 48.50.- Hveiti, Falke 2 kg. 24.70.- Smjörlíki, Ljöma 500 gr. 24.70.- Púðursykur, Ijós V* kg. 13.45.- Flórsykur 7» kg. 12.10.- Síróp, Golden 500 gr. 54.90.- Verslið tímanlega fyrir jól

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.