Morgunblaðið - 10.05.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1984
Frá vortónleikum Tónskóla Fljótsdalshéraðs í Egilsstaðakirkju. Ljósm.: Mbl./Ólafur
Egilsstaðir:
Vorannir hjá tónskólanemum
Asmundur Stefánsson, forseti ASI:
„Reiði í garð aðgerða
ríkisstjórnarinnar“
„ÓÁNÆGJA með það ástand sem við
búum við í dag, kom mjög skýrt fram
á þessum fundi,“ sagði Ásmundur
Stefánsson forseti ASI í samtali við
blm. Mbl. í gær um fund þann sem
forystumenn ASÍ, miðstjórn og full-
trúar lands- og svæðissambanda
héldu á mánudag, þar sem staðan í
kjaramálum var rædd og til hvaða að-
gerða verkalýðshreyfingin eigi að
grípa á næstunni.
Asmundur sagði að mikil reiði
hefði komið fram á fundinum yfir
þeim aðgerðum sem ríkisstjórnin
hefði tekið ákvarðanir um þessa
síðustu daga, og þá ekki síður yfir
því aðgerðaleysi sem ríkt hefði af
hálfu ríkisstjórnarinnar hvað varð-
ar almenna efnahagsstjórn.
„Hvað varðar 1. september,"
sagði Asmundur, „þá var það sam-
dóma álit manna að ef til uppsagna
kæmi, þá yrði óhjákvæmilega að
fara saman að leggja kröfugerð
fram og ákveða til hvaða aðgerða
yrði gripið til þess að ná kröfunum
fram, samhliða því að samningum
yrði sagt upp.“ Ásmundur sagði að
fæstir hefðu verið reiðubúnir til
þess að taka endanlega afstöðu til
þess að svo komnu máli, hvort segja
bæri upp samningunum. Menn
hefðu talið rétt að um það færi
frekari umræða fram innan sam-
bandanna og úti í félögunum, áður
en endanlegar ákvarðanir yrðu
teknar.
Úlfur Markússon, formaður BÍL:
Frá ferð tónskólanema til Borgarfjarðar eystri.
Virðist ekki kunn
ugt um lög okkar
KgilKstöóum, 7. maí.
NÝLIÐIN helgi var annasöm hjá
nemendum og kennurum Tón-
skóla Fljótsdalshéraðs. Á föstu-
dagskvöld voru árlegir vortónleik-
ar skólans haldnir í Egilsstaða-
kirkju og í gær brugðu nemendur
sér ásamt kennurum til Borgar-
fjarðar eystri til tónleikahalds.
Á vortónleikunum komu nær
50 nemendur fram auk gesta frá
Tónlistarskóla Seyðisfjarðar —
en góð samvinna hefur tekist
með þessum tveimur skólum.
Frá Tónlistarskóla Seyðisfjarðar
kom m.a. fram blásaratríó og
nemendur léku á flautu, gítar og
píanó.
Níu efnilegir píanóleikarar í
Tónskóla Fljótsdalshéraðs komu
fram á vortónleikunum auk gít-
ar- og flautuleikara. Þá vakti
fiðlusveít skólans verðskuldaða
athygli að ógleymdum blokk-
flautukór og skólahljómsveit-
inni. Húsfyllir var á tónleikun-
um og flytjendum vel fagnað.
í gær héldu nemendur Tón-
skóla Fljótsdalshéraðs svo til
Borgarfjarðar eystri og léku þar
fyrir fullu húsi.
Tónskóla Fljótsdalshéraðs
verður slitið um miðjan mánuð.
Nemendur skólans hafa verið
um 100 í vetur. Skólastjóri
Tónskóla Fljótsdalshéraðs er
Magnús Magnússon. — Ólafur.
„SAMKVÆMT lögum Bandalags ís-
lenskra leigubílstjóra getur engin ein
stöð boðið lægri taxta en kveðið er á
um. Hvort framtíðin leiðir það í Ijós,
að bandalagið semur um magnafslátt
sé um sannanlega vinnuaukningu að
ræða, skal ég ekki segja," sagði l'lfur
Markússon, formaður BÍL, í samtali
við Morgunblaðið.
Um ummæli verðlagsstjóra, þar
sem hann segir í einu dagblaðanna
að ekkert mæli gegn samkeppni
leigubifreiðastöðva undir hámarks-
verði, sagði Clfur, að verðlagsstjóra
virtist alls ekki kunnugt um lög BÍL
þótt hann ætti að fara nærri um
innihald þeirra. 1 framhalði af þvi
sagði Ulfur: „Það kemur ekki til
greina, að félögin afsali sér þeim
rétti að fara með kaup og kjör. Ger-
ist það er þetta komið út í frum-
skógarhernað."
Efnt verður til fundar í BÍL á
föstudag og sagðist Úlfur vonast til
þess að hægt yrði að ná fram sam-
komulagi án þess að gripa tjl
harðra aðgerða. „Fyrst er að ræða
málefnalega við menn og ég trúi því
og treysti, að menn sjái að sér og
virði lög félagsins. Ef opinbert
fyrirtæki ætlar að fara að brjóta á
okkur er það orðið alvarlegt mál,“
sagði Úlfur Markússon.
josmyndafyrirsæta
ársins ’84 og
insælasta
stúlkan
sem þátttakendur
vcija úr sínum hópi vcrður krýnd annað kvöld í
BECAIDWAy.
DAGSKRA:
Veislan hefst meö freyðandi fordrykk kl. 19.00. Stúlkurn-
ar koma fram í síðum kjólum og baðfötum frá Triumph.
Flutt verk Gunnars Þórðarsonar, Tilbrigði við fegurð meö
dansívafi íslenska dansflokksins.
Módel '79 sýna tískufatnað frá Karnabæ.
Dansflokkur JSB sýnir frumsamið verk við lög úr Staying
Alive.
Tónar um fegurðina: Þuríöur Sigurðardóttir
og Björgvin Halldórsson syngja.
Krýndar verða Ijósmyndafyrirsæta ársins
og vinsælasta stúlkan.
Allar fá stúlkurnar körfu meö freyöandi Very Cold Duck
og Ijósmyndafyrirsæta ársins og vinsælasta stúlkan blóm
frá Stefánsblóm.
Tryggiö ykkur miða sem fyrst í Broadway í síma 77500