Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 30
30
Stofnuðu
sjóð til bygg-
ingar lang-
legudeildar
FERMINGARSYSTKINI úr Kefla-
vík, sem fermdust árið 1944, komu
saman á veitingastaðnum Glóðinni í
Keflavík fyrir skömmu og héldu upp
á fermingarafmæli sitt.
Af því tilefni stofnuðu þau sjóð
sem renna skal til byggingar lang-
legudeildar við Sjúkrahúsið í
Keflavík. Er það von fermingar-
systkinanna að sjóðurinn eflist og
félög, hópar og einstaklingar leggi
þessu verkefni lið, en sjóðurinn er í
vörslu sparisjóðsdeildar Sparisjóðs
Keflavíkur.
Fermingarsystkini úr Keflavík sem stóðu að stofnun sjóðsins.
STIÖRNU
reikningar
Æskuspamaður / Lífeyrissparnaður
Nú er sama á hverju gengur í verðbólgustríðinu. Með fullri
verðtryggingu og 5% vöxtum að auki, veita hinir nýju stjörnureikn-
ingar Alþýðubankans algjört öryggi og góða ávöxtun.
Við förum af stað með tvo sparireikningaflokka undir samheit-
inu Stjörnureikningar, annan fyrir æskuna og hinn fyrir lífeyris-
þega eða þá sem nálgast eftirlaunaaldurinn.
ÆSKUSPARNAÐUR
Hann er ætlaður foreldrum, öfum og ömmum, eða öllum þeim
sem vilja gefa barni yngra en 16 ára sparifé. Þegar barnið verður
16 ára er upphæðin, með verðtryggingu og vöxtum laus til
útborgunar og gott vegarnesti út í lífið.
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Hann er fyrir 65 ára eða eldri - tryggur bakhjarl þegar aldurinn
fer að segja til sín og tekjurnar dragast saman.
* Verðtryggð innistæða
og 5% vextir að auki!
m,
Við gcrum vel við okkar fólk
Alþýðubankinn hf.
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Hér er steik sem bragð er aó. Jafn
bragógóð er hún steikt í ofni sem við
glóó vióarkola. Steik sem þessi er
einkar handhæg þegar góða gesti
ber aó garði. Þetta er:
Lambalæri
(vængjað)
fyrir 8—10
2 kg lambalæri
1 laukur meðalstór niðurrifinn
1 hvítlauksrif pressað eða fínsax-
að
1 tsk. salt
V4 tsk. pipar malaður
tsk. tímian
'h bolli matarolía
'h bolli sítrónusafi.
1. Beinið út kjötið. Leggið hníf-
inn lárétt og skerið i gegnum
þykkasta vöðvann að beini. Skerið
bein burtu, leggið kjötið flatt og
fjarlægið alla aukafitu.
2. Leggið kjötið á leirfat eða
glerdisk. Blandið saman lauk,
hvítlauk, salti, pipar, tímian, mat-
arolíu og sítrónusafa. Hellið síðan
yfir kjötið og marinerið minnst
eina klukkustund.
3. Kjötið er síðan vængjað.
Teknir eru 2 grillteinar þeim er
rennt í gegn um þykkasta hluta
þess á ská, þannig að þeir liggi í
kross og festi kjötið. Þannig verð-
ur það meðfærilegra.
4. Undir grilli í ofni er kjötið
síðan steikt í 5 min. á hvorri hlið.
Hitinn er síðan lækkaður í 180
gráður og kjötið látið steikjast í 50
mín., penslað öðru hvoru.
Lambakjöt meðhöndlað á þenn-
an hátt er engu öðru líkt. Það er
jafnvel ljúffengara þegar það er
steikt við viðarkol. Ef aðeins er til
lítil viðarkolsrist á heimilinu, þá
má steikja kjötið á henni þar til
komin er á það góð skorpa, ljúkið
síðan steikingunni I ofni.
Grillteinar eru fjarlægðir og
kjötið skorið þvert á kjötþræðina í
þunnar sneiðar.
Með kjöti þessu er ágætt að bera
fram kartöflur, t.d. soðnar kart-
öflur létt steiktar í smjörva, —
með eða án lauks. Ágætar upp-
skriftir hafa birtst í blöðum að
undanförnu af tómatréttum sem
meðlæti með kjöti. Tómatar eiga
vel við kjötið.
Athugið að þetta bragðmikla
kjöt er ekki síður gott kalt og þá
með heitum stöppuðum kartöflum
og t.d. bökuðum tómötum.
Hráefnió: Það hefur verið mjög
misráðið af forráðamönnum sölu-
samtaka búfjárafurða, að setja á
innlendan markað nær eingöngu
kjöt af minnstu lömbum — og það
mánuðum saman. Þetta er ein
ástæðan fyrir því, að neytendur
hafa snúið sér að öðrum kjötaf-
urðum. Kaup á annars góðu
lambakjöti, hafa verið óhagstæð.
„Beinahlutfall" er of hátt. Von-
andi stendur þetta til bóta í fram-
tíðinni.
Verð á hráefni
Lambalæri 2 kg kr. 418.00
Laukur kr. 2.00
Sítróna 1 stk. kr. 6.00
Samtals kr. 426.000
Ágæt regla féll niður í þætti síð-
ustu viku. Þar átti að vera, smyrj-
ið grillrist með matarolíu svo að
kjötið festist ekki við ristina í
steikingu.