Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984
33
Gary Kasparov, stigahæsti skákmað- Jóhann Hjartarson bætti við sig 105
ur heims. stigum.
Helgi Ólafsson bætti við sig 75 stig-
um.
20-21. Asgeir Ásbjörnsson 2295 (2295)
20-21. Bragi Kristjiassoa 2295 2295)
Aðrir íslendingar á listanum eru:
Benóný Benediktsson og Halldór G.
Einarsson 2285, Björgvin Víglunds-
son 2280, Róbert Harðarson og
Ágúst S. Karisson 2275, Magnús
Sólmundarson 2270, Júlíus Frið-
jónsson 2265, Guðmundur Hall-
dórsson og Leifur Jósteinsson 2260,
Björn Jóhannesson og Björgvin
Jónsson 2255, Ásgeir Þór Árnason,
Þröstur Bergmann og Þórir ólafs-
son 2250, Stefán Briem, Kristján
Guðmundsson og Hilmar Karlsson
2245, Jónas P. Eriingsson og Bene-
dikt Jónasson 2240, Bragi Hali-
dórsson 2235, Jóhann örn Sigur-
jónsson 2220, Sveinn Kristinsson
2215, Haraldur Haraldsson 2205,
Arnór Björnsson og Gylfi Þór-
hallsson 2200.
Af nýjum íslendingum á iistan-
um hefur Akureyringurinn Pálmi
R. Pétursson náð langbestri byrjun
með 2370 stig. Þrír aðrir ungir
menn eru einnig langt yfir 2200
stiga lágmarkinu, þeir Lárus Jó-
hannesson, Reykjavík, Halldór G.
Einarsson, Bolungarvík, og Björg-
vin Jónsson, Keflavík.
Pálmi R. Pétursson frá Akureyri:
Nýr á listanum með 2.370 stig og 10.
stigahæsti íslendingurinn.
Kornungar stúlkur
efstar á kvennalistanum
Skákstigalisti kvenna endur-
speglar ekki stöðuna í núverandi
heimsmeistarakeppni þeirra, en í
haust munu sovézku stúlkurnar
Maja Chiburdanidze, heimsmeist-
ari, og Irina Levitina heyja einvígi
um heimsmeistaratitil kvenna.
Efstar skv. skákstigalistanum eru
hins vegar tvær ungar stúlkur sem
lítið tefla í kvennamótum en vilja
fremur kljást við jafnaldra sína í
flokkum pilta. Þetta eru þær Pia
Cramling, Svíþjóð, 21 árs, og
Zsusza Polgar, Ungverjalandi, sem
er nýorðin 15 ára, fædd 19. apríl
1969. Polgar er reyndar stigahæst
allra þeirra sem ekki hafa náð 16
ára aldri. Þær Polgar og Cramling
hafa 2405 stig, en Chiburdanidze er
þriðja með 2375 stig og Nona Gapr-
indashvili fjórða með 2335 stig.
Guðlaug Þorsteinsdóttir hefur
2015 stig, Áslaug Kristinsdóttir
1925 stig og Sigurlaug Friðþjófs-
dóttir 1805 stig. Lágmarkið á
kvennalistanum er 1800 stig.
EIMSKIP
(PRESS
IAMER1KU
Við færum stöðugt út net expressþjónustunnar nýju
og kynnum nú „EIMSKIP-EXPRESS" í Ameríku.
Við höfumvörumóttöku á tæplega 200 stöðum í 37
fylkjum í Bandaríkjunum og önnumst flutning á
vörum þínum frá þessum stöðum beint í skip og
heim á skjótan og hagkvæman hátt.
Starfsmenn Ameríkudeildar veita allar upplýsing-
ar um verð og annað viðkomandi landflutningaþjón-
ustunni vestanhafs.
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100