Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 02.10.1985, Blaðsíða 56
SUÐFEST lÁNSIRAUST Vió framköllum stórar og vandaóar lítmyndir á mettfma FRAMKÖLLUN STUNDINNI AUSTURSTRÆT! 22 - S 621350 MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1985 VERÐILAUSASOLU 35 KR. Sigló hf. og Niðursuðuverksmiðjan á ísafirði; Samið um sex þúsund tonn af „Rússarækju“ GENGIÐ hefur verid frá samningum vid Rússa um pillun á 6.000 lestum af rækju í rækjuverksmiðju Sigló í Siglufírði og Niðursuðuverksmiðj- unni á ísafírði. Þetta magn verður unnið á næstu 12 mánuðum en verk- smiðjurnar hafa það sem af er árinu, pillað 3.000 lestir af „Rússarækj- unni“. Jón Guðlaugur Magnússon er stjórnarformaður beggja verk- smiðjanna og hefur séð um gerð samninga við Rússa og sölu rækj- unnar til Bandaríkjanna aö lokinni vinnslu hér með milligöngu fyrir- tækisins Marbakka, sem hann veitir einnig forstöðu. Jón Guð- laugur sagði í samtali við Morgun- blaðið, að verksmiðjurnar hefðu pillað rækju fyrir Rússa síðastliðin tvö ár með góðum árangri. Þessar verksmiðjur væru auk þess með mestu framleiðsluna af íslenzku rækjunni eða um fjórðung alls. „Rússarækjan" kæmi sér vel við að jafna vinnsluna, þegar lítið aflaðist, en hún væri reyndar unnin alveg af einni vakt í báðum verksmiðjunum. MorgunblaðiA/RAX Altaristafla eftir Kjarval á Kjarvalsstöðum JÓHANNES Kjarval málaði þessa altaristöflu fyrir kirkjuna í Ríp í Hegranesi árið 1923. Ólafur Gunnars- son læknir hafði milligöngu um að fá Kjarval til að mála altaristöfluna, en þannig fór að hún var aldrei hengd upp, því sóknarnefndin hafnaði henni. Altaris- taflan lenti því uppi á kirkjulofti og var þar í mörg ár, en var síðan komið til viðgerðar í Danmörku. Ólafur Sigurðsson á Hellulandi í Skagafírði keypti myndina og kom með hana til íslands. Halldór Lax- ness sá myndina á Hellulandi og falaðist eftir henni. Þegar Ólafur dó seldi ekkja hans Halldóri altaristöfl- una og hefur hún verið í eigu hans síðan. Á myndinni eru starfsmenn Kjarvalsstaða, Þóra Kristjánsdóttir listráðunautur og Stefán Halldórsson, með altaristöfíuna. Sjá bls. 7. Garöabær: Morgunblaðið/Einar Falur. Stórskoðun á Vesturfara VESTIJRFARI, ein þriggja DC-véla Flugleiða, er nú í mikilli skoðun á Kefíavíkurflugvelli. 60—70 flugvirkjar vinna við skoðunina sem tekur um 3 vikur. Farið er gaumgæfílega yfír alla flugvélina og hún tekin í sundur að nokkru leyti til að athuga leiðslur og takka o.s.frv. Þetta er svokölluð C-skoðun, sem er stærsta skoðunin sem framkvæmd er hér heima. Voru þessar skoðanir áður gerðar í Luxemborg, en skoðun Vesturfara er önnur skoðun af þessari stærð sem framkvæmd er hér heima. Myndin var tekin af flugvirkjum að störfum á Kefíavíkurflugvelli í gær. Iðgjöld trygginga lækka um helming ÞESSI samningur hefur í fór með sér stórfellda lækkun á iðgjöldum fyrir bæjarbúa. í fyrra greiddu bæjarbúar í Garðabæ Brunabótafélagi íslands um 2 milljónir króna í iðgjöld og það lætur nærri að upphæðin á næsta tryggingarári verði helmingi lægri. Þetta sannar gildi þess að bjóða þessar húsatryggingar út,“ sagði Sig- urður Sigurjónsson forseti bæjar- stjórnar Garðabæjar um nýgerðan samning Garðabæjar og Brunabótar um iðgjöld til næstu 5 ára. Bæjarstjórn Garðabæjar hugðist segja samningi sínum við Bruna- bótarfélagið upp sl. vetur og bjóða Upptæka kjötið til varnarliðsins: Hvorki herinn né umboðsfyrirtækid telur sig eiga að borga kjötið — sem tollgæslan ætlar að brenna vegna gruns um smithættu HVORKI bandaríska varnarliðið í Keflavík né íslenska innflutnings- fyrirtækið, sem flutti inn kjötið er tollgæslan í Reykjavík gerði upptækt í síðasta mánuði, telur að sig varði um afdrif þess eða reikningsins fyrir því. Um var að ræða 240 kfló af hráu kjötmeti, sem fíutt var frá Dan- mörku fyrir varnarliðið er ætlaði að nota það til neyslu á þýskættaðri októberhátíð, sem haldin er í liðsforingjaklúbbnum á Vellinum á hverju hausti. Veislan var haldin í fyrri viku en þar var á boðstólum annar matur, sem til var fyrir f forðabúrum hersins, að því er Dottie Schraidt, liðsforingi á upplýsingaskrifstofu liðsins, sagði í samtali við blm. Morgun- blaðsins. Um var að ræða reykt svínakjöt, reykt flesk, þýskar og pólskar pylsur og fleira þess háttar, sem tilheyrir októberhátíðum. Kristinn Ólafsson tollgæslu- Schmidt liðsforingi sagði að stjóri sagði í viðtali við Morgun- kjöt þetta hefði verið pantað í blaðið á laugardaginn, að kjötið hefði verið gert upptækt á grund- velli gin- og klaufaveikilaganna frá 1928 og að Páll A. Pálsson yfirdýralæknir hefði komist að þeirri niðurstöðu, að kjötið frá Danmörku mætti ekki flytja inn á grundvelli þeirra laga. Taldi Kristinn, aðkjötinu yrði brennt. góðri trú frá Danmörku um mán- aðamótin maí-júní í gegnum heildverslun Karls K. Karlssonar í Reykjavík. „Kjötið barst okkur aldrei og það er því okkur óvið- komandi," sagði hún. „Af hálfu varnarliðsins hefur ekki verið kvartað yfir því að það hafi verið gert upptækt enda er þessi vara okkur óviðkomandi. Liðsfor- ingjaklúbburinn mun því ekki greiða fyrir þetta kjöt - það er eign íslenska umboðsfyrirtækis- Magnús Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri K.K. Karlssonar, sagði fyrirtækið aðeins hafa pantað umrætt kjöt ásamt tals- verðu af frystu grænmeti fyrir varnarliðið frá matvæladreifing- arfyrirtækinu Emborg í Álaborg í Danmörku. „Það er að sjálf- sögðu ekki okkar að greiða það enda eru reikningar frá Emborg stílaðir á varnarliðið. Það var pantað fyrir herinn og því hlýtur hann að borga. Hvort herinn gerir svo endurkröfu á íslenska ríkið veit ég ekkert um,“ sagði Magnús. „Það hefur ekkert sam- band verið haft við okkur út af þessu máli enda gerðum við ekki annað en að panta umbeðna vöru frá fyrirtæki, sem við höfum umboð fyrir hér.“ Hann sagði að fyrirtæki sitt gæti að sjálfsögðu ekki setið undir því, að flutningsleiðin skipti máli um lögmæti innflutn- ings. „Það getur augljóslega ekki gengið, að leyfilegt sé að flytja vöru inn flugleiðis en ekki sjó- leiðis," sagði hann. „Það verður að krefjast þess af ríkisstjórn eða alþingi að það liggi ljóst fyrir hvað sé löglegt og h /að ólöglegt í þessum efnum. Og svo má ekki gleyma kjarna málsins í þessu, sem er að þetta kjöt var allt stimplað í bak og fyrir og viður- kennt sem ósýkt vara af dönskum heilbrigðisyfirvöldum." tryggingarnar út. Lögum sam- kvæmt ber að segja slíkum samn- ingum upp með 6 mánaða fyrirvara, en uppsagnarbréf stjórnarinnar barst Brunabót einum degi of seint og dæmdi gerðardómur því upp- sögnina ógilda „Við vildum ekki una við þau málalok, ekki síst vegna þess að við höfðum áður tilkynnt uppsögnina munnlega, og hófum því viðræður við Brunabótafélagið um lækkun iðgjalda eftir að gerðardómur féll. Samningar tókust með ágætum og það má segja að samkeppni trygg- ingarfélaganna hefur sannað ágæti sitt,“ sagði Sigurður Sigurjónsson. Jóakim Danaprins heimsækir ísland Kaupmannahöfn. 1. oktAber. Frá Ib Bjttrmbuk, fréturiura MorgunblaMam_ YNGSTI sonur Margrétar Dana- drottningar, Jóak- im, kemur f bekkjarferð til íslands í skóla- leyfi 14. til 19. október, og segir í dagblaðinu Berl- ingske Tidende í ———- —-— dag, að prinsinn Jé*k,,n D*“*Pnns muni búa hjá Vigdísi Finnbogadóttur ásamt tveimur öryggisvörðum. Jóakim prins er í þriðja bekk i menntaskóla. Bekkjarfélagar hans munu búa hjá menntaskólanemum í Reykja- vík, en í blaðinu segir, að Vigdís hafi boðið prinsinum að búa hjá sér og öllum bekknum f heimsókn, þegar hún frétti að hann væri væntanlegur til landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.