Morgunblaðið - 22.02.1987, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 22.02.1987, Blaðsíða 64
^SrERKTKDRT tfgmtfrlafeife Feróaslysa 'trygging SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Krýsuvík: Goshola gerði ferða- mönnum bilt við GOSHOLAN f Seltúni í Krýsuvík, hola 14 eins og hún er einkennd, sem þagnaði síðastliðið sumar eftir að hafa gosið stöðugt frá því hún var boruð um 1950, gaus aftur nú seinnipart vikunnar. Ferða- menn á svæðinu urðu vitni að atburðinum. Samkvæmt upp- lýsingum sem fengust hjá Orkustofnun er líklegt að þetta hafi verið tilfallandi gos, til- komið vegna lágs loftþrýstings, en ekki að aðflutningsleiðir heits vatns til holunnar hafi opnast aftur. ^ var á ferð í Krýsuvík með þrjá Norðmenn á fimmtudaginn. Göngubrú liggur framhjá holunni og gufudynkir heyrðust frá henni," sagði Ólafur Einarsson, sem varð vitni að gosinu, í samtali við Morg- unblaðið. „Við skoðuðum ofan í holuna á uppeftir Ieiðinni og Norð- mennimir göntuðust með það að Kölski karlinn, sem þeir kalla „Gamle Erik“, léti frá sér heyra. A leiðinni til baka héldu þeir áfram að tala um Kölska og kvörtuðu yfir þvf að þó þeir hefðu heyrt til hans hefðu þeir ekki séð hann. Tveir Norðmannanna gengu á und- an mér og þegar þeir voru á ^ngubrúnni til hliðar við hverinn gaus hann skyndilega. Eg hef sjaldan séð mönnum bregða jafn mikið og horfði undir iljar þeim, þar sem þeir hlupu brott eins og þeir ættu lífið að leysa. Hverinn gaus myndarlegu gosi, sennilega eitthvað um tíu metra háu, en gosið stóð ekki lengi Norðmenn- imir nefndu það hins vegar ekki aftur að þeir hefðu ekki fengið að sjá til „Gamla Eiríks“,“ sagði Ólaf- ur ennfremur. HRA UNHITAVEITA VESTMANNEYINGA ORKUÖFLUN fjarhitunar Vestmanneyinga úr glóðum nýja hraunsins verður stöðugt erfiðari og fjárfrekari og þingskipuð nefnd situr á röskstólum um, hvað sé til ráða. Sjá bls. 4: Enn mikill hiti í hrauninu en vandamál, hvernig hann nýtist bezt. Þorsteinn Pálsson um hugsanlegt stj órnarsamstarf við Alþýðuflokkinn: Verður að falla frá hug- mynd um einn lífeyrissjóð Þorsteinn hefur ekki lesið tillögur okkar, segir Jón Baldvin Hannibalsson ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, setur það sem skilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn með Alþýðuflokknum, að þing- menn hans falli frá hugmyndum sínum um sameiningu lífeyrissjóð- anna. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins segir, að ummæli Þorsteins bendi til þess, að hann hafi ekki lesið tiilögur Alþýðuflokksins um lífeyrissjóðamálin. Þessi ummæli Þorsteins komu fram á fundi hjá honum á Egilsstöð- um á föstudagskvöldið. Morgun- blaðið bar þau undir Jón Baldvin Hannibalsson. „Mér er nær að halda að Þorsteinn hafi sagt þetta í ógáti, því að um tillögur okkar í lífeyris- sjóðamálum er þetta að segja,“ sagði Jón Baldvin. „Fyrst um máls- meðferð: Tillagan, sem liggur fyrir Alþingi og er nú nefnd, er um þá stóru spurningu, að leggja málið fyrir þjóðina í þjóðaratkvæða- greiðslu. Vill þjóðin óbreytt ástand með 100 lífeyrssjóðum og viðvar- andi misrétti í lífeyrisréttindum eða vill hún einn lífeyrissjóð fyrir alla landsmenn og samræmd lífeyris- réttindi? Við jafnaðarmenn munum hlíta þeim dómi þjóðarinnar og eng- um öðrum. Önnur ummæli Þorsteins um til- lögur okkar í lífeyrissjóðamálum benda til þess að hann hafi ekki lesið þær. Lífeyrissjóðurinn á að vera deildarskiptur eftir uppruna fjár, ákvörðunarvald um ráðstöfun fjárins verður í höndum heima- manna í hveiju héraði. Það er með öðrum orðum skröksögur, sem hann fer með á fundum, að tillögur okk- ar feli í sér að íjármagn lífeyrissjóð- anna verði allt „sogað suður“. Það kerfi þekkja landsbyggðarmenn hins vegar nú þegar. Bróðurpartur- inn af ráðstöfúnarfé lífeyrissjóð- anna fer, samkvæmt gildandi lögum, til Húsnæðisstofnunar og nýtist 80% til að byggja íbúðar- húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og er það í samræmi við annað; þá betlistafsbyggðastefnu, sem nú er rekin og merkir að íjármagnið af landsbyggðinni er almennt sogað í burtu en síðan veitt ölmusufé til baka í formi pólitískrar fyrir- greiðslu. Við jafnaðarmenn erum andstæðingar þessarar stefnu í lífeyrissjóðamálum jafnt sem öðr- um, sagði Jón Baldvin Hannibals- Son. Sjá frásögn af fimdi Þorsteins Pálssonar á Egilsstöðum á bls. 4. Akureyr- arfararnir sneru við Hátt hlutfall í frystingn Mikið framboð í Bretlandi dregur úr sölu okkar á ferskum fiski þangað MIKILL afli hefur borizt á land frá því að verkfalli sjómanna lauk upp úr miðjum janúar. Hátt hlutfall aflans hefur farið til vinnslu innan lands, bæði fyrir markaði í Bandaríkjunum og Bretlandi, og standa vonir til að sala fari að nálgast eðlilegt horf á næstu vikum. FuIItrúar fisksölufyrirtækjanna búast við mikilli sölu á næstu mánuðum og að verð haldist áfram hátt. Þó skygg- ir mikið framboð á fiski í Bretlandi lítillega á framvindu mála þar og hefur jafnframt þau áhrif að minna er um sölu á ferskum fiski þangað en oft áður. * Eysteinn Helgason, fram- kvæmdastjóri Iceland Seafood í Bandaríkjunum, segir í samtali við Morgunblaðið, að ástandið í sölu flaka sé mjög slæmt núna, nánast ekkert sé til en í næstu viku fari málið að lagast. Hann segist ennfremur búast við mikilli sölu næstu mánuðina og að verð haldist áfram hátt. Halldór Þorsteinsson, fram- leiðslustjóri Sjávarafurðadeildar Sambandsins, segir að framleiðsla í frystihúsum, sem Sambandið selur fyrir, hafi gengið mjög vel, bæði fyrir markað í Bandaríkjun- um og Bretlandi. Hann hafði hins vegar ekki tölur um hlutfall afla til frystingar, en taldi að það væri hærra en oft áður. Friðrik Pálsson, forstjóri Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna segir, að undanfamar þtjá vikur hafi framleiðsla í frystihúsum SH gengið vel og sé nokkuð nærri áætlun eftir verkfall sjómanna. Hins vegar hafi nokkuð dregizt að koma fiski vestur um haf, en afskipanir séu að komast í fullan gang. Mikill afli hafi borizt á land, en talsvert af honum hafi verið mjög smár þorskur, sem hafi ver- ið flakaður og flökin send til Bretlands. Mikið framboð hafi verið af slíkum fiski í Bretlandi, meðal annars frá Dönum og Norð- mönnum óg hafí verð á smæstu roðflökunum því verið lækkað um 3 til 4% til bregðast við lægra verði frá þeim. Mikið framboð í Bretlandi af ferskum fiski úr Norðursjó, Eystrasalti og Barentshafi heftir valdið lækkandi verði á fiskmörk- uðunum og því, að hlutfallslega minna er nú selt héðan af ferskum fiski en á sama tíma í fyrra. Enn- fremur hafa verðhækkanir á fiski frá áramótum og auknar yfirborg- anir fiskverkenda á það verð valdið því, að útgerð og sjómenn þurfa nú hærra verð fyrir fiskinn erlendis en áður. Sjá bls. 2: Búumst við háu verði og mjög mikilli sölu. Hríö og vond færö orsökin FÉLAGAR í klúbbnum 4x4, sem lögðu upp í ferð yfir hálendið til Akureyrar í fyrradag, hafa snúið við og vorú á leið til byggða sunnan fjalla í gær. Um 80 jeppar lögðu upp á föstu- dagsmorguninn og voru ferðalang- arnir um nóttina í skálanum í Nýja dal. í gærmorgun var ofan- koma, skyggni um 100 metrar og færð erfið. Var þá tekin ákvörðun um að snúa við og halda aftur til byggða sunnan fjalla. Nokkrir reyndu að halda áfram norður, en gáfust fljótlega upp vegna veðurs- ins. Þegar Morgunblaðið hafði fregnir af ferðalöngunum um há- degisbilið í gær, voru þeir lagðir af stað suður. Allt gott var af þeim að frétta, engin slys höfðu orðið á mönnum, en nokkrar smábilanir á bílum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.