Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.03.1987, Blaðsíða 4
4____________ Loðnuvertíðin MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. MARZ 1987 Milljón lesta niarkimi er náð Búið að frysta um 4.000 lestir af hrog-num Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson MILLJÓN lesta markið náðist á ioðnuvertíðinni á mánudags- morgun, en alls hafa um 1.007.000 lestir borizt á land. Veiðar ganga vel og er loðnan eingöngu veidd við Reykjanes nú. Bátar frá Homafirði hafa fengið mikið af þorski við Háls- ana, en þar er loðnutorfa á ferðinni. Frysting hrogna hefur gengið vel. I dag verður líklega búið að frysta um eða yfir 4.000 lestir af rúmlega 5.000, sem sam- ið hefur verið um. Því fer að koma að því að takmarka verður framleiðsluna, eigi hún ekki að verða umfram samninga. Áætlað útflutningsverðmæti loðnuafurða á þessari vertíð er um 4,3 milljarðar króna. Verðmæti lýs- is og mjöls, 265.000 lesta, er rúmlega 3,5 miljarðar króna. 5.000 lestir af frystum hrognum kosta 480 milljónir og 6.000 af heilfrystri loðnu seljast á um 270 milljónir króna. Auk þeirra skipa, sem áður er getið, tilkynntu eftirtalin um afla á föstudag. Höfrungur AK, 400, Sig- hvatur Bjarnason VE 600, Huginn VE 400, Guðmundur VE 550, og 500, Bergur VE 400, Erling KE 440, Sigurður RE 220 og Þórs- hamar GK 170. Á laugardag var Eldborg með 270 lestir og Víkurberg GK landaði tvívegis, 200 og 500 lestum. Á sunnudag tilkynntu eftirtalin skip um afla: Keflvíkingur KE 500, Jón Finnsson RE 750, Þórshamar GK 570, Höfrungur AK 700, Sig- urður RE 1.000, Júpíter RE 520, Harpa RE 450, Börkur NK 1.000, Guðrún Þorkelsdóttir SU 700, Er- ling KE 650, Bjami Ólafsson AK Á loðnumiðunum 700, Gígja VE 750, Öm KE 550, Magnús NK 420, Hilmir SU 1.300 og Víkingur AK 400 lestir. Á mánudag tilkynntu eftirtalin skip um afla: Sighvatur Bjamason VE 550, Kap II VE 550, Bergur VE 350, Dagfari ÞH 300, Huginn VE 500, Gullberg VE 600, Helga II RE 500, Eldborg HF 900, Júpí- ter RE 500, Beitir NK 1.050, Pétur Jónsson RE 780, Keflvíkingur KE 520, ísleifur VE 600, Víkurberg GK 500, Höfmngur ÁK 680 og Sigurður RE 650 lestir. Tveir á slysadeild eftir harð- anárekstur Tveir menn voru fluttir á slysa- deild eftir árekstur tveggja fólksbíla á mótum Snorrabrautar og Egilsgötu um miðjan dag i gær. Meiðsli mannanna voru ekki talin alvarleg en báðir bilarnir skemmdust mikið og voru fluttir brott með kranabíl. Talsverðar annir vom hjá lög- reglunni í Reykjavík í gær vegna umferðaróhappa. Var aðallega um að ræða árekstra og virtist svo sem sumir ökumenn hefðu gleymt því hvernig aka á í snjó eftir þá lang- vinnu góðvirðristíð sem verið hefur í vetur. Ekki var vitað um alvarleg slys á fólki, en talsvert tjón varð vegna skemmda á ökutækjum. Á mánudag urðu yfír 30 árekstr- ar í Reykjavík. VEÐURHORFUR í DAG: YFIRLIT á hádegi í gær: Milli Færeyja og Hjaltlands er 980 milli- bara djúp lægð sem þokast suðaustur og þaðan lægðardrag til vesturs skammt fyrir sunnan land. Austur af Jan Mayen er 992 millibara djúp lægðarmiðja. Yfir norðanverðu Grænlandí er 1035 millibara hæð. SPÁ: Víða um land verður allhvöss (7 vindstig) norðanátt. Él norðan- lands og nokkuð suður með austur- og vesturströndinni. Þurrt veður um sunnanvert landiö. Frost verður á bilinu 5 til 10 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FIMMTUDAGUR: Um austanvert landið verður norðanátt ríkjandi með éljum norðan- og noröaustanlands. Sunnan gola eða hæg- viðri og úrkomulítiö íöðrum landshlutum Frost á bilinu 6 til 10 stig. FÖSTUDAGUR: Norðaustanátt, sumsstaðar allhvöss, og él norð- an- og austanlands en að mestu úrkomulaust suðvestanlands. Frost á bilinu 7 til 12 stig. TÁKN: O Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * -| 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius \j Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld CX0 Mistur —|- Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐURVÍÐA UMHEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri -7 snjóél Reykjavik —6 skýjað Bergen -2 snjókoma Helsinki -3 heiðskírt Jan Mayen -15 snjóél Kaupmannah. 0 þokumóða Narssarssuaq -10 léttskýjað Nuuk -9 léttskýjað Osló -2 snjókoma Stokkhólmur 0 þokumóða Þórshöfn 0 snjókoma Algarve 17 heiðsklrt Amsterdam 5 súld Aþena 12 skýjað Barcelona 12 mistur Beriín 1 snjóél Chicago -1 léttskýjað Glasgow vantar Feneyjar 8 heiðskirt Frankfurt 0 snjókoma Hamborg 1 snjókoma Las Þalmas 21 skýjað London 11 skýjað Los Angeles 12 heiðskírt Lúxemborg 0 snjókoma Madríd 12 heiðskírt Malaga 17 léttskýjað Mallorca 15 skýjað Miami 18 skýjað Montreal -5 skýjað NewYork 0 léttskýjað París 8 skýjað Róm 10 heiðskírt Vln 2 léttskýjað Washington 1 heiðskírt Winnipeg 1 alskýjað * Jón Baldvin um orð Halldórs Asgrímssonar: „Skiptir litlu hvor flokkurinn leggur til sameiningartákmð“ „Gott á meðan framsóknarmenn treysta sjálfum sér,“ segir Þorsteinn Pálsson ÞEIR Þorsteinn Pálsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins og Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins virðast ekki hafa miklar áhyggjur af orðum Halldórs Ásgrímssonar, vara- formanns Framsóknarflokksins, sem hann lét falla á fundi með frambjóðendum á Sauðárkróki, þar sem hann sagðist telja höfuð- atriði að Framsóknarflokkurinn yrði forystuafl í næstu ríkis- stjórn. „Þessi yfirlýsing er nú varla til- efni blaðaviðtals að mínu mati,“ sagði Þorsteinn Pálsson er hann var sjjurður álits á ummælum Halldórs Ásgrímssonar, „en fyrsta skilyrðið fyrir menn í stjómmálum er það, að treysta sjálfum sér. Það er gott á meðan framsóknarmenn gera það.“ Jón Baldvin Hannibalsson sagði m.a.: „Þetta er eins og annað til- brigði við stef stjórnarflokkanna beggja. Þykjast þeir ekki vera á réttri leið og þykjast þeir ekki hafa náð árangri? Eru ekki yfirgnæfandi líkur á því, að ef kosningaúrslit yrðu í líkingu við niðurstöður ný- birtrar skoðanakönnunar Félagsvís- indastofnunar, að það sé ávísun á áframhaldandi Framsóknarvist?" Jón Baldvin sagði að ef það væri satt að dæma ætti stjómmálamenn og flokka af verkum þeirra, þá hefðu menn 16 ára reynslu af Fram- sóknarflokknum og 4 ára reynslu af því hvers konar ríkisstjórn þess- ara tveggja flokka væri, „og skiptir þá litlu hvor flokkurinn leggur til verkstjóra- eða sameiningartákn- ið,“ sagði Jón Baldvin. „Kjarni málsins er sá, ef þessir tveir flokkar ná saman, þá standa þeir sameiginlega vörð um þrönga sérhagsmuni og munu binda okkur áfram í viðjar úreltrar atvinnu- stefnu og koma í veg fyrir nauðsyn- legar breytingar á stjómkerfi, á hagstjórn, á atvinnustefnu og fé- lagslegum umbótum. Það væru hræðileg kosningaúrslit, sem væru ávísun á áframhaldandi Framsókn- arvist Sjálfstæðisflokksins,“ sagði Jón Baldvin. Bíræfnir 14 ára þjófar í Keflavík: Stalu mótorhjóli úr vörslu lögreglunnar TVEIR 14 ára piltar úr Keflavík urðu uppvísir að þvi um helgina að brjótast inn hjá lögreglunni og stela mótorhjóli og tveimur segulb.andstækjum. Þeir brutust inn í geymslu fyrir óskilamuni sem er í félagsheimili lögreglu- manna sem stendur við lögreglu- stöðina. Þar tóku þeir mótorhjólið og eitt segulbandstæki og bmtu sér síðan leið inn í félagsheimilið og komust þannig óséðir út um dyr sem sném frá lögreglustöðinni. í félagsheimil- inu tóku þeir með sér annað tæki sem var í eigu lögreglunnar. Urðu piltarnir að drösla hjólinu í gegnum baðaðstöðu til að koma því út. Lögreglan var fljót að hafa upp á kauðum þegar upp komst um þjófnaðinn, en þessir piltar hafa að undanfömu margsinnis komist í kast við lögin. „Þeir finna að við getum ekkert gert og gangast upp í að fremja verknað eins og þenn- an,“ sagði Óskar Þórmundsson lögreglufulltrúi sem sá um rann- sókn málsins. - BB
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.