Morgunblaðið - 31.05.1987, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1987
Brautskráðir nemendur frá Fjölbrautarskóla Suðurnesja.
Morgunblaðið/Halldór Rósmundur Guójónsson
Hjálmar Árnason skólameistari afhendir Einari Fal Ingólfssyni verð-
laun fyrir g-óðan árangur í íslensku.
Fjölbrautarskóli Suðurnesja:
Fleiri nemendur braut-
skráðir en nokkru sinni
Stúdentar, sem verðlaun hlutu.
Sandgerði
ELLEFTA skólaári Fjölbrautar-
skóla Suðumesja lauk með
skólaslitum laugardaginn 23. maí
síðastliðinn. Sú venja hefur skap-
ast að láta athöfn þessa fara
fram í þeim sveitarfélögum, sem
að skólanum standa. Að þessu
sinni fór brautskráningin fram í
íþróttahúsinu í Sandgerði að við-
stöddu fjölmenni.
Dagskrá var með hefðbundnum
hætti, en var um annað nokkuð
óvenjuleg. Þannig var brautskrán-
ingarhópurinn stærri nú en nokkru
sinni áður eða samtals 92 nemend-
ur. Einnig var afhent þúsundasta
brautskráningarskírteinið frá skól-
anum. Féll það í hlut Sigurbjargar
Jóhannesdóttur.
Hópurinn skiptist þannig eftir
brautum: Af fiskvinnslubraut I einn
nemandi, vélaverðir voru 14, af
tæknisviði 28 nemendur (þar af
tveir úr meistaraskóla), tækniteikn-
un einn, af tveggja ára brautum 8
nemendur og stúdentsprófi luku 40
nemendur.
Margir stúdentar hlutu braut-
skráningu af fleiri en einni braut,
þó sló Viktor Kjartansson öll met
en hann tók við skírteini af átta
námsbrautum.
Hjálmar Árnason skólameistari
Fjölbrautarskóla Suðumesja sagði
í samtali við Morgunblaðið, að hann
byggist við að á næsta skólaári
myndu 660 nemendur stunda nám
við skólann og yrði það nýtt met.
Þá yrði hafin kennsla á fjórum nýj-
um brautum, sjúkraliðabraut,
skipstjóra-, rennismíði- og vél-
virkjabraut. Nú er verið að byggja
7 nýjar kennslustofur við skólann
og eiga þær að vera tilbúnar í
haust. Hjálmar sagði, að á síðast-
liðnum vetri hefði verið kennt á 8
stöðum í Keflavík, en með tilkomu
nýju kennslustofanna væri fyrirsjá-
anlegt að öll kennsla gæti farið
fram innan veggja skólans.
Óvenju mörg verðlaun voru veitt
að þessu sinni, enda námsárangur
með besta móti. Flest verðlaun
hlutu: Guðmundur Jón Bjamason,
Halla J. Guðmundsdóttir og Jón
Már Bjömsson. Halla hóf nám sitt
í öldungadeild.
Þá voru afhent fimm verðlaun
frá Sparisjóðnum í Keflavík, en sú
stofnun ákvað fyrir ári að veita
myndarleg verðlaunnæstu fímm
árin. Sparisjóðsverðlaunin í ár
hlutu: Bókfærslubikarinn Ómar Ell-
ertsson, vélritunarbikarinn Guð-
björg Jónsdóttir, íslenskubikarinn
Halla J. Guðmundsdóttir, hagfræði-
bikarinn Guðbjöm Jóhannesson og
bókaverðlaun í íslensku hlaut Guð-
laug Sveinsdóttir.
Skólanum voru færðar að gjöf
kr. 40.000 frá Vélstjórafélagi Suð-
umesja til uppbyggingar á vél-
stjórabraut.
Skólameistari er Hjálmar Áma-
son og aðstoðarskólameistari
Ingólfur Halldórsson.
Kvennaskólmn:
Ný skólanefnd skipuð
KVENNASKÓLANUM í
Reykjavík, einum elsta skóla
landsins en einum yngsta
menntaskólanum var slitið laug-
ardaginn 23. maí. Útskrifaðir
voru 47 stúdentar; þar af fjórir
piltar.
Stúdentamir, sem útskrifuðust,
brautskráðust allir frá sömu braut;
uppeldissviði. Verðlaun úr Minning-
arsjóði Þómnnar Melsteð, stofn-
anda og fyrsta skólastjóra
Ragnheiður Elín Arna-
dóttir tekur við verðlaun-
um fyrir bestan
námsárangur.
Kvennaskólans, fyrir bestan heild-
arárangur, hlaut Ragnheiður Elín
Ámadóttir úr Keflavík.
Skólanefnd sú, sem stýrt hefur
skólanum frá upphafi, nú síðast
undir stjóm Halldóru Einarsdóttur
lét af störfum, en tilkynnt var um
skipan nýrrar skólanefndar eftir
hinni nýju reglugerð um skólann.
Hana skipa Bessí Jóhannesdóttir
formaður, Ragnar Júlíusson og
Ragnheiður Heiðreksdóttir.
Lögfræði eða fjölmiðla-
fræði
í stuttu samtali við Morgunblaðið
sagði Ragnheiður Elín Ámadóttir,
dúx skólans, að hún stefndi á nám
við Háskóla íslands í haust. „Aðra
stundina spái ég í lögfræði, en ég
er mjög opin gagnvart öllu og lang-
ar eiginlega í allt.“
Ragnheiður gerði hlé á námi sínu
í eitt ár og var skiptinemi í Banda-
ríkjunum. „Ég vildi útskrifast með
mínum bekkjarfélögum og þess
vegna ákvað ég að taka skólann á
þremur árum. Kvennaskólinn er
mjög skemmtilegur skóli, þar sem
maður getur lært sitt lítið af hverju
og er það gott fyrir óákveðna."
WÆk y - flj m'm
■mmm : 1 iife f 1 UíÆM
BSf' 1 «Wfl
Nýstúdentar frá Kvennaskólanum
Siglufjörður:
940 tonn af
rækju kom-
in á land
Siglufirði.
RÆKJUBÁTAR hafa landað 940
tonnum af rækju á Siglufirði það
sem af er þessari vertíð og þrátt
fyrir sjómannaverkfall í janúar
er þetta meiri afli en kominn var
á land á sama tíma i fyrra.
Það gengur frekar treglega að
selja smárækjuna en ágætlega að
selja stórrækjuna. Bátarnir hafa
verið að koma með upp í 30 tonn og
í gær lönduðu þrír bátar. Miðin eru
á Rifsbanka og einnig hafa minni
bátamir verið að veiða við Grímsey.
Matthías