Morgunblaðið - 08.09.1988, Blaðsíða 22
Ö8tíí H381íaTcia8 .8 aUOAÖUTMMI'? .UIUAJHMUOHÖM
8S
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
Fjármálaráðherra um breytingar á starf smannahaldi ríkisins:
Laun umfram samn-
inga verði ekki greidd
„FJÖLGUN rikisstarfsmanna hef-
ur veríð Iangt um meirí en fjölgun
f ýmsum öðrum greinum. Hún
hefur veríð aðhaldslitil og í sum-
um tilvikum aðhaldslaus. Við
þessu verður að setja skorður og
í þvi felst að fagráðuneyti haldi
sigf innan þeirra ramma sem þeim
eru settir. Þetta yrði tryggt i
framkvæmd með samningum fag-
ráðuneyta og ríkisstofnana við
launadeild fjármálaráðuneytisins
um að laun verði ekki greidd
umfram þessa ramma," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson, fjármála-
ráðherra, aðspurður um hug-
myndir nm aðhald í starfmanna-
haldi ríkisins.
Upplýsingafulitrúi Qármálaráðu-
neytisins sagði í frétt í Morgunblað-
inu á laugardag að ný stefna í starfs-
mannahaldi ríkisins yrði væntanlega
boðuð um leið og flárlagafrumvarpið
yrði kynnt. Jón Baldvin vildi ekki tjá
sig nánar um í hveiju þessi stefna
væri fólgin, þar sem einstakar tillög-
ur væru nú til umfjöllunar hjá ráð-
herrum og ríkisstjóm. v
í skýrslu ríkisendurskoðunar um
framkvæmd flárlaga kemur fram að
launakostnaður ríkisins hafi aukist
sem svarar um 725 stöðugildum á
fyrra helmingi þessa árs miðað við
sama tíma í fyrra. Launakostnaður
umfrara heimildir flárlaga hafí aukist
um 200 milljónir króna. f skýrslunni
er lagt til að eftirlit verði hert til
muna með fjölgun starfa og aukn-
ingu yfirvinnu hjá ráðuneytum og
ríkisstofnunum.
„Núna viðgengst það að menn
ráða starfsmenn iangt umfram heim-
ildir til skamms tíma með bráða-
Athugasemd vegna frétta
um burðarþol húsa
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi vegna fréttatilkynn-
ingar i blaðinu frá Verkfræðistofnun Háskóla íslands þann 12.
ágúst og aftur þann 19. ágúst.
„Eins og menn eflaust muna
urðu hér miklar umræður um
burðarþol húsa fyrir rúmu ári í
kjölfar skýrslu sem Rannsókna-
stofiiun byggingariðnaðarins lét
gera.
Borgarverkfræðingur óg bygg-
ingarfulltrúinn í Reykjavík fengu
Verkfræðistofnun Háskóla íslands
til þess að gera úttekt á nokkrum
þeirra húsa sem skýrslan Qallaði
um og hefur stofnunin nú lokið
úttekt sinni og sent frá sér um-
ræddar fréttatilkynningar.
í fréttatilkynningu eins og hún
birtist í Morgunblaðinu 19. ágúst
sl. segir m.a.:
„Húsin standast gildandi reglur
varðandi burðarþol.
Húsin standast jarðskjálftaálag
samkvæmt íslenskum staðli ÍST
13.
Jarðskjálftaálag húsanna virðist
viðunandi.
Ennfremur. íslenskar hönnun-
arreglur eru ekki einhlítar og er
nauðsynlegt að endurskoða þær
og lagfæra.
Þrátt fyrir þetta er ýmislegt sem
betur mætti fara í hönnun húsanna
og hefur ábendingum þar að lú-
andi verið komið á framfæri."
Eitt þeirra húsa sem úttekt
Verkfræðistofnunar Háskóla ís-
lands náði til var Skipholt 50C en
verkfræðistofan Ferill hf. sá um
burðarþolshönnun þess á sínum
tíma.
í viðtali við Hákon ólafsson,
forstjóra Rannsóknastofnunar
byggingariðnaðarins, í Morgun-
blaðinu 3. júlí 1987 kom fram að
byggingin Skipholt 50C er hin
vandaðasta.
Til þess að taka af allan vafa
um það að aðfinnslur þær sem
fram koma í lok fréttatilkynningar
Verkfræðistofnunar Háskóla ís-
lands eiga alls ekki við um Skip-
holt 50C birtum við með leyfi
Verkfræðistofnunar Háskóla Is-
lands orðrétt lokaorð skýrslu
þeirra varðandi Skipholt 50C:
5. Lokaorð
Skipholt 50C stenst fullkomlega
ÍST 13, jafnvel þótt miðað sé við
grunngildi, sem eru hærri en leyfi-
leg gildi, sjá töflu 5.1.
Þegar gervihraðarófsaðferðinni
er beitt verða niðurstöðu á sama
veg. Óhætt er að a.m.k. 2.5 falda
og sennilega 4 falda 50 ára há-
markshröðunargildi, sem fundið
er út frá mældum gögnum og
hágildisdreifingu.
Þegar álag vex á bygginguna
má hins vegar gera ráð fyrir
plastískum formbreytingum og
einhverri sprungumyndun í sker-
veggjum. í stórum skjálfta mundu
slíkar formbreytingar auka mjög
deyfíngu í byggingunni. Það skal
hins vegar undirstrikað að súlur
einar sér ráða við íhaldssamt stað-
alálag (Z=0.75, K=1.0 og C=0.1)
og gott betur. Það má því segja
að hið tvöfalda viðnámskerfí gagn-
vart láréttum kröftum (þ.e. súlur
og skerveggir), sem er að fínna í
byggingunni, tryggi mjög vel
hæfiii hússins til að standast stór-
an skjálfta. Þegar hér er talað um
stóran skjáifta er átt við skjálfta
sem veldur meira álagi en íhalds-
samt staðalálag kveður á um.“
1) í kafla 3 hér að framan mið-
uðust reikningar við Z=0.50, en
einföld kvörðun á þversniðskröfum
og spennum með margföldunar-
stuðli 1.6 er greinilega $ lagi, sjá
nánar kafla 3 og töflur, sem þar
eru birtar.
F.h. verkfræðistofunnar Ferils hf.
Gunnar Sch. Thorsteinsson
Snæbjðrn Kristjánsson
Tafla 5.1 Grunngildi og leyfileg gildi
Grunn gildi Leyfílegt gildi Skýringar
Svæðis- stuðull Láréttur Z 0.75 1) 0.50 Reykjavík er á svæði 2
álags- stuðull Jarð- K 1.00 0.67 Súlur ráða einar sér við lárétta krafta
skjálfta- stuðuli C 0.10 0.08 Sjá töflu 3.3
birgðasamningum eðatil sérverkefna
og senda reikningana þegar þau eru
greidd með sjáifvirkum hætti. Þetta
verður að stöðva," sagði ijármálaráð-
herra.
Hann sagði að tvær B-hluta stofn-
anir, Póstur og sími og Ríkisútvarp-
ið, hefðu yfirdregið á ríkissjóð um
500 milljónir króna, einungis vegna
launa. Þetta yki yfirdrátt ríkisins hjá
Seðlabanka og yki vaxtakostnað.
Slíkir bakreikningar í skjóli sjálf-
virkra lagasamrýmdust ekki vinnu-
brögðum heilbrigðrar flármálastjóm-
ar. Nauðsynlegt væri að afnema
sjálfvirkni f ríkisútgjöldum og við
fjárlagagerðina nú reyndi á það hvort
þeir sem játuðu því markmiði þyrðu
að hrinda þvf f framkvæmd.
Jón Baldvin sagði að aðhald í
starfsmannahaldi rfkisins væri lfka
gert í þágu atvinnulífsins. Það væri
gríðarleg umffameftirspum eftir
vinnuafli á íslandi og jafnvel nefnt
að það vantaði 3-5.000 störf. Á með-
an slík þensla væri í gangi yrði verð-
bólga auðvitað ekki hamin, þannig
að aðhaldsaðgerðir f starfsmanna-
haldi rfkisins myndu draga úr verð-
bólgu.
Fjármáiaráðherra var spurður um
ágreining fjármálaráðuneytisins og
Rfkisendurskoðunar um hvert stefndi
varðandi hallarekstur ríkssjóðs.
Rfkisendurskoðun sagði í skýrslu
sinni að nú stefndi í 1,5-2 milijarða
krónu halla á rTkissjóði, en fjármála-
ráðuneytið sagði fyrr ? sumar að
hallinn stefndi í 700 milljónir króna.
Jón Baldvin sagði að ef sömu for-
sendur væru notaðar stefndi hallinn
f 1,3 milijarða samkvæmt skýrslu
Rikisendurskoðunar og reynslan
myndi skera úr hvor hefði réttara
fyrir sér.
Fréttajjósmynd ársins 1988.
Listasafn ASÍ:
Sýning á fréttaljósmynd-
um opnuð á laugardag
SÝNINGIN World Press Photo
’88 verður opnuð í Listasafni
ASÍ á laugardaginn. Hér er um
að ræða farandsýningu á 159
fréttajjósmyndum, sem hlotið
hafa verðlaun stofnunarínnar
World Press Photo Foundation.
Stofnunin á rætur sfnar að rekja
tii óformlegra samtaka, sem hol-
lenskir ljósmyndarar gerðu með sér
árið 1956, í þeim tilgangi að efna
til alþjóðlegrar samkeppni um
bestu blaðaijósmyndimar. Mark-
miðið með samkeppninni var meðal
annars, að vekja áhuga almennings
á fréttaljósmyndun og einnig var
þetta liður f baráttunni fyrir fijálsri
fréttamiðlun í heiminum, og þar
með auknum skilningi manna og
þjóða í milli.
í ár bárust í keppnina 9.202
myndir eftir 1.215 ijósmyndara frá
64 löndum. Veitt voru verðlaun í 9
efnisflokkum, en auk þess hlutu
allmargar ljósmyndir sérstök verð-
iaun, meðal annars var valin frétta-
ljósmynd ársins.
Að þessu sinni eru 159 ljósmynd-
ir á sýningunni. Hún verður opnuð
laugardaginn 10. september en lýk-
ur þann 25. sama mánaðar. Sýn-
ingin verður opin alia virka daga
frá kl. 16 til 20 og um helgar frá
kl. 14 til 20.
(Úr fréttatilkynningu)
Guðmundur Magnusson pianó- Sigrún Hjálmtýsdóttir óperu- Anthony Hose hljómsveitarstjóri
leikari.
söngkona.
Sínfóníuhljómsveitín
leikur á Austurlandi
Sinfóníuhljómsveit íslands
heldur í dag, fimmtudaginn 8.
september, f tónleikaferðalag
um Austurland.
Fyrstu tónleikamir verða á Eg-
ilsstöðum f kvöld og annað kvöld
á Seyðisfirði. Á laugardag verða
tónleikar á Vopnafírði, sunnudag
á Eskifírði og Neskaupstað og að
lokum á mánudagskvöid á Fá-
skrúðsfirði.
Stjómandi I ferðinni verður
breski hljómsveitarstjórinn Ant-
hony Hose, en hann er íslenskum
óperuunnendum að góðu kunnur
frá því hann stjómaði uppfærsl-
unni á II trovatore í íslensku ópe-
runni 1986.
Einleikari í ferðinni verður ung-
ur píanóleikari, Guðmundur
Magnússon. Hann lauk burtfarar-
prófí frá Tónlistarháskólanum í
Köln í Vestur-Þýskalandi 1983 og
starfar nú hér heima sem píanó-
kennari. Hann mun leika aftur
með Sinfóníuhljómsveitinni síðar f
vetur á áskriftartónleikum.
Einsöngvari í ferðinni verður
hin sívinsæla Diddú, Sigrún
Hjálmtýsdóttir, sem kemur nú
fram sem óperusöngvari. Hún hef-
ur nýlokið framhaldsnámi í söng
á Ítalíu.
Eins og venjulega í tónleika-
ferðalögum Sinfóníuhljómsveitar-
innar er efnisskrá ijölbreytt og við
allra hæfí. Hún verður þó nokkuð
breytiieg eftir stöðum, en eftirfar-
andi verk verða í farteski hljóm-
sveitarinnar:
Egmont-forleikur eftir Beethov-
en, Píanókonsert nr. 1 og Sinfónía
nr. 7, hvorttveggja eftir Beetho-
ven. Þá verður fluttur forleikurinn
Vald örlaganna eftir Verdi og
einnig aría úr óperunni Grímu-
dansleiknum, einnig eftir Verdi.
Þá verður flutt ballettmúsík úr
Faust eftir Gounod, aría úr ópe-
runni Lucia di Lammermoor eftir
Donizetti.