Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
Belgía:
IRA-maður
sækirumhælí
Brussel. Reuter.
PATRICK Ryan, sem er í varð-
haldi í Belgíu, grunaður um aðild
að hryðjuverkasamtökum írskra
lýðveldissinna, IRA, hefur sótt
um pólitískt hæli í Belgíu, að
sögn talsmanns belgiska dóms-
málaráðuneytisins.
Ryan er 58 ára gamall og var
handtekinn í Brussel í júní síðast-
liðnum þar sem vegabréf hans
rejmdist falsað og auk þess fundust
á honum lýsingar á ýmsum
sprengjugerðum. Bretar hafa farið
fram á það við Belga að þeir fram-
selji Ryan sem er fyrrverandi prest-
ur og talinn einn af helstu leiðtogum
IRA. Belgíski talsmaðurinn taldi
ólíklegt að orðið yrði við beiðni
Ryans um pólitískt hæli þar sem
Bretland væri lýðræðisríki á borð
við Belgíu.
Ploslkassar
ogskúffur
Fyrir skrúfur, rærogaðra
smáhluti. Einnig vagnarog
verkfærastatíf. Hentugt á
verkstæðum og vörugeymslum.
Ávallt fyrirliggjandi.
LeitiS upplýsinga.
UMBODS OG HEILDVERSLUN
SSvaumsgr
BILDSHÖFDA 16 SIMI 672444
SKÓLAFÓLK
VASATÖLVUR
í úrvali frá:
CASIO
SHARP
IBICO
Texas instruments
Trump-adler
Daniel Hechter
Pira comp
wnaM
Sendum í póstkr.
/ jTÖwuLMmj - b Bnaca
L-J LAUGAVEG1116-1 >8 V/HLEMM S 621122
Reuter
Leiðtoginn
Mikil hátíðahöld standa nú yfir
í Pyongyang, höfuðborg Norð-
ur-Kóreu, i um í tilefni þess að
hinn 9. september sl. voru 40
ár liðin frá því kommúnistar
komust til valda þar í landi.
Stjórnarerindrekar sögðu að á
aðra milljón manna hefðu tekið
þátt í útifundi þeim, sem mynd-
in er frá. Risastórt málverk af
Kim B Sung, leiðtoga Norður-
Kóreu, gnæfði yfir viðstadda,
sem hrópuðu „lengi lifi hinn
mikli foringi" í kór.
Vísindamenn við kanadískan háskóla:
Helmut Kohl kanslari sagði í
yfirlýsingu sinni: „Stjómin hefur
haft náið samstarf við §ölmarga.
Tilraunir okkar [til að fá Cordes
leystan úr haldi] fólust fyrst og
fremst í því að halda sambandi
við írana og Sýrlendinga, sem við
vissum að gætu haft áhrif á mann-
ræningjana."
Sameinuðu þjóðirnar og Rauði krossinn:
Engar sannanír fyrir
efnaárásum á Kúrda
Heilabólga veldur
Alzheimer-veiki
ing Alzheimer-sjúkdómsins væri
innan seilingar. Hann sagðist þó
ekki vilja geta sér til um hversu
löng biðin eftir henni gæti orðið.
McGeer sagði að engin meðferð
væri til við Alzheimer-sjúkdómi
og gagnlaust væri að gefa sjúkl-
ingunum lyf sem ekki hefðu bólgu-
eyðandi áhrif. Ásamt honum unnu
að rannsókninni tveir japanskir
læknar, Shigeru Itagaki og Haru
Akiyama.
Neil Kinnock um
EB-markaðinn:
Auknarfé-
lagslegar
áherslur
nauðsyn-
legar
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins í Belgiu.
NEIL Kinnock, formaður
breska Verkamannaflokksins,
sagði í ávarpi á fundi sósíalista
á Evrópuþinginu, sem haldinn
var í Glasgow fyrir helgina, að
þótt flokkur hans styddi ekki
allar þær þrjú hundruð tillögur,
sem lagðar hafa verið fram til
undirbúnings innri markaði
Evrópubandalagsins, væri
ástæðulaust að hafna þeim.
Vinna yrði að því að EB-mark-
aðurinn yrði annað og meira en
fjjáls markaður fjármagns og
fyrirtækja.
Kinnock sagði að takmarkaðist
undirbúningur markaðarins við
vörur, vinnuafl og fjármagn, þá
yrði hann markaður fátæktar, at-
vinnuleysis og kreppu. EB-mark-
aðurinn ætti að vera sósíalistum
hvatúing til að vinna að auknu
félagslegu réttlæti innan Evrópu.
Ræða Kinnocks kemur í kjölfar
stuðningsyfirlýsinga forystu-
manna breskra verkalýðsfélaga á
ársfundi þeirra nýlega við Evrópu-
bandalagið og þó sérstaklega fyr-
irhugaðan innri markað þess sem
á að vera kominn á fyrir árslok
1992. Með þessu hafa breskir só-
síalistar ekki einungis látið af and-
stöðu sinni við aðild Breta að EB
heldur hafa þeir gerst talsmenn
þess að þátttaka í bandalaginu
verði sem víðtækust.
Vancouver. Reuter.
ÞRÍR læknar við British Col-
umbia-háskólann í Vancouver í
Kanada halda þvi fram í grein
í nýjasta hefti evrópska vísinda-
ritsins Neuroscience Letters, að
Alzheimer-sjúkdómurinn sé
ekki hrörnunarsjúkdómur held-
ur stafi hann af krónískri heila-
bólgu. Segja þeir að lykilinn að
hugsanlegri meðferð eða iækn-
ingu sé að finna í ónæmiskerfi
líkamans.
Læknamir byggja skoðanir
sínar á niðurstöðum rannsókna,
sem þeir hafa gert á heilum tíu
Alzheimer-sjúklinga. í heilunum
fundu þeir mótefnafrumur, svo-
kallaðar T-eitilfrumur, en svo kall-
ast smáir einkjarnar hvítra blóð-
koma í blóði og sogæðavökva er
mynda mótefni og fmmubundna
vamarsvörun í ónæmiskerfinu.
„í ósködduðum heila, ungum
eða öldnum, er aldrei að finna
frumur af þessu tagi. Við vísum
á bug kenningunni um að sjúk-
dómurinn stafi af hrömun og verð-
um að beina athyglinni að ónæmi-
skerfi viðkomandi," segja lækn-
amir, sem eru taugasjúkdóma-
fræðingar, í greininni.
Einn læknanna, Kanadamaður-
inn Pat McGeer, sagði að upp-
götvunin gæfi vonir um að lækn-
Vestur-þýskur gísl leystur úr haldi:
írönum og Sýrlending-
um þökkuð laiisn Cordes
Bonn. Reuter.
Vestur-þýska stjórnin þakk-
aði írönum og Sýrlendingum í
gær fyrir að tryggja lausn Vest-
ur-Þjóðveijans Rudolfs Cordes
úr haldi, en skæruliðahópur
sem hlynntur er írönum hafði
haldið honum í gíslingu í Líban-
on í hartnær 20 mánuði. Þau
vísuðu þvi á bug að samningar
hefðu verið gerðir til að fá
Cordes leystan úr haldi.
„Ég tel að sú stefna okkar að
viðhalda stjómmálasambandi við
Irana hafí borgað sig,“ sagði
Hans-Dietrich Genscher, utanrík-
isráðherra Vestur-Þýskalands, í
útvarpsviðtali. Talsmaður utanrík-
isráðuneytisins sagði áð Genscher
hefði sent fulltrúa til að færa írön-
um þakkir vestur-þýsku stjómar-
innar. Ráðuneytið tilkynnti einnig
að fyrirhugað væri að Genscher
færi í opinbera heimsókn til írans
á þessu ári.
Rudolf Cordes yfirgefur sýrlenska utanríkisráðuneytið ásamt eigin-
konu sinni, Marlene, í gær.
Cordes kom til Vestur-Þýska-
lands í gærkvöldi, degi eftir að
hann var leystur úr haldi. Vestur-
þýsk flugvél fór frá Bonn til að
sækja Cordes og í henni var kona
Cordes, auk nokkurra embættis-
manna, þar á meðal Wolfgang
Schauble, aðstoðarmaður kansl-
ara. Kohl bað Schauble að færa
forseta Sýrlands, Hafez al-Assad,
þakkir sínar.
Genf. Reuter.
FULLTRÚAR Sameinuðu þjóð-
anna og Rauða krossins fundu
engin merki þess að efnavopnum
hefði verið beitt gegn þeim Kúrd-
um sem þeir sáu í norðvestur-
hluta írans í síðustu viku.
Embættismenn frá Flóttamanna-
stofnun Sameinuðu þjóðanna og
Alþjóðaráði Rauða krossins heim-
sóttu búðir 7.000 til 8.000 Kúrda
sem flúðu nýlega til írans. „Flótta-
mennimir sögðu að efnavopnum
hefði verið beitt, en fulltrúarnir sáu
engar sannanir fyrir því,“ sagði
talsmaður Flóttamannastofnunar-
innar í Genf.
Talsmaðurinn sagði ennfremur
að stofnunin hefði hafið viðræður
við írönsk stjómvöld um aðbúnað
og aðhlynningu flóttamannanna, en
talið er að þeim muni fjölga um
20.000 á næstunni. Stofnunin að-
stoðar nú þegar um 70.000 Kúrda
sem flúið hafa frá írak til írans
síðan í fyrra.
Þriggja manna sendinefnd frá
Flóttamannastofnuninni fór frá
Ankara, höfuðborg Tyrklands, til
að safna upplýsingum um kúrdíska
flóttamenn í Tyrklandi. Talið er að
þeir séu alls 60-120.000, að sögn
talsmannsins. Fyrirhugað er að
nefndin komi aftur til Ankara á
föstudag.