Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
23
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Stikuhópurínn miðja vegu milli Vesturbjalla og Frostastaðavatns. Pétur Þorleifsson, Torfi Agústsson,
Bjarkar Ólason, Valdimar Valdimarsson, Steingrimur Ingólfsson, Bragi Hannibalsson, Jón Ragnar Guð-
mundsson, Tómas Einarsson, Kristján Sigfússon, Hörður Bragason og Björgvin Björgvinsson. Sitjandi
eru Margrét Valdimarsdóttir og Þrúður A. Svavarsdóttir.
Vetrarstikur settar upp á göngu-
leiðinni í Landmannalau&rar
NOKKRIR félagar í Ferðafélagi
íslands hafa sett upp leiðarstikur
á átta og hálfs kílómetra kafla,
frá Vesturbjöllum að Frosta-
staðavatni, á hinni fjölförnu vetr-
arleið milli Sigöldu og Land-
mannalauga. Stikurnar, sem eru
tveir metrar á lengd og með glit-
merkjum, eru settar upp til að
auka öryggi ferðalanga á þessari
leið.
Leiðin frá Sigöldu til Land-
mannalauga er mjög fjölfarin á
vetrum. Þegar færð leyfir er ekið
að Sigöldu og farið þaðan ýmist á
gönguskíðum eða vélsleðum inn í
Laugar. A síðustu árum hefur það
farið vaxandi að menn fari þessa
leið á jeppum eins og svo margar
aðrar á hálendinu.
Þegar farið er frá Sigöldu er
venjulega fylgt raflínu í áttina að
Landmannalaugum. Við Vestur-
bjalla er venjan að fara beina leið
að Frostastaðavatni og þaðan inn
í Laugar.
„Þessar stikur eru liður í að auka
öryggið á þessari leið,“ sagði Tóm-
as Einarsson einn forsvarsmanna
Ferðafélagsins við verkið. Hann og
aðrir vanir fjallaferðum kunnu
margar frásögur af fólki sem lent
hafði í hrakningum á þessari leið
til Landmannalauga þegar veður
breyttist skyndilega til hins verra.
Þeir félagamir sögðu þetta fyrst
og fremst öryggisatriði fyrir þá sem
ekki væm þaulkunnugir svæðinu.
Þegar allt væri hvítt þarna á vetrum
væri erfitt að átta sig á kennileit-
um. Þá kæmi sér vel að hafa merkta
leið að fara eftir.
„Það hefur alltaf verið áhugi hjá
félagsmönnum fyrir svona vinnu,
að greiða fyrir umferð um hálend-
ið,“ sagði Tómas Einarsson. Ferða-
félagsfólk hefur áður merkt leiðir
með stikum og byggt göngubrýr.
Allar þessar aðgerðir miða að því
að auðvelda fólki ferðalög um há-
lendið, en eins og þeir félagar við
stikunina sögðu, þá stendur það
alltaf eftir að ferðalangurinn sjálfur
verður að hugsa sinn gang og vera
viðbúinn að mæta óvæntum að-
stæðum á fjöllum.
— Sig. Jóns.
NÁMSKEIÐ í
REYKBINDINDI
Innritun er hafin á vetrar-
námskeið Krabbameinsfélagsins í
reykbindindi.
Námskeiðin eru byggð upp á eftir-
farandi hátt:
★ Undirbúningstími
★ Könnun á reykingavenjum
þátttakenda
★ Fræðslufyrirlestrar
★ Fræðslu- og gamanmyndir um
reykingar
★ Streita og reykingar
★ Persónuleikakönnun
★ Kynnt notkun nikótíntyggigúmmís
★ Ráð til að hamla gegn offitu
★ Ráðtilaðdraga úrlöngunum
Fyrirlesararog leiðbeinendureru m.a.:
Ásgeir R. Helgason upplýsingafulltrúi, Dr. Eirík-
ur Örn Arnarson yfirsálfræðingur og Sigurður
Árnason krabbameinslæknir.
Allir fundir eru á kvöldin og hefjast
kl. 20.30. Upplýsingarog skráning
ísíma 621414 á
skrifstofutíma (8.30-16.30).
Krabbameinsfélagið
IKEA INNRÉTTING í ELDHÚSIÐ
Þegar þú kaupir eldhúsinnréttingu frá Ikea geturðu verið viss
um að þú ert að kaupa fallega innréttingu sem hæfir eldhúsinu
þínu. Ikea gerir sér far um að gæðin, stærðin og verðin séu eins
og þú hafðir hugsað þér.
STANDARD ELDHÚSINNRÉTTING
FRÁ IKEA KOSTAR AÐEINS
62.795,-
Opnunartími í vetur:
Mánudaga - föstudaga 10-18.30
I Laugardaga 10—16
1
Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 108 Reykjavík. Sími 686650