Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.04.1992, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 83. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 8. APRIL 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Algert hrun í alb- önsku efnahag'slífi Vínarborg. Reuter. ALGJÖRT efnahagshrun blasir við í Albaníu en þar ríkir nú ofurverð- bólga og gífurlegt atvinnuleysi, að sögn aðila sem rannsakað hafa efna- hagsástandið í landinu. í 50%. í fyrra dróst landbúnaðar- framleiðsla í Albaníu saman um 80% og fyrirsjáanlegt er, að varanlegur skortur á matvælum, lyfjum og elds- neyti til húshitunar muni kynda und- ir vonleysi og örvæntingu. Verðbólga mældist 400% í Albaníu í fyrra og er talið að sú tala verði smáræði í samanburði við það sem í vændum sé á þessu ári að öllu óbreyttu. „Astandið á eftir að versna til muna eftir því sem fleiri fyrirtæki ioka,“ sagði í niðurstöðum sérfræð- inganna en erlendar skuldir Albana eru um 500 miiljónir doliara og allar í vanskilum. Vegna þess eru erlendir ijármagnsmarkaðir lokaðir Albaníu- stjórn en nýju vaidhafarnir vonast til, að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn rétti landsmönnum hjálparhönd. Sjá „Bandaríkin ... “ á bls. 23. Að sögn sérfræðinganna kann það að ráða úrslitum fyrir lýðræðisþróun- ina í Albaníu að landsmönnum verði veitt dágóð efnahagsaðstoð en niður- stöður úttektarinnar á efnahags- ástahdinu, sem birtar voru í gær, eru á þá ieið að búast megi við því að iðnaðarframleiðsla skreppi saman um 60% á þessu ári en samdrátturinn milli ára nam 40% í fyrra. Talið er, að atvinnuleysi muni aukast og fara upp fyrir 70% um næstu áramót en í fyrra komst það Irar spurðir um fóstur- eyðingar Dyflinni. Reuter. ÍRSKA stjórnin kemst ekki hjá því að efna til annarrar þjóðar- atkvæðagreiðslu í írlandi um rétt kvenna til fóstureyðingar. Varð þetta Ijóst á mánudag þegar fulltrúar annarra aðild- arríkja Evrópubandalagsins neituðu að breyta Maastricht- samkomulaginu með tilliti til óska Ira. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun snúast um rétt írskra kvenna til að gangast undir fóstureyðingu erlendis og einnig um rétt þeirra til að afla sér upplýsinga og ráð- gjafar um þessi mál í Irlandi þar sem fóstureyðing eru bönnuð. Niðurstaða þjóðaratkvæða- greiðslu í írlandi' um fóstureyð- ingar árið 1983 varð sú, að bann við þeim var sett inn í stjórnar- skrána en í síðasta mánuði urðu miklar deilur í landinu vegna unglingsstúlku, sem var ófrísk eftir nauðgun, en dómstóll í Dyflinni bannaði henni að fara til Bretlands þar sem átti að eyða fóstrinu. Barist í Bosníu Reuter Ungir, vopnaðir menn á verði við þinghúsið í Sarajevo í Bosníu-Herzegovínu. Þar hafa staðið yfir bardag- ar síðustu tvo daga og í gær gerðu herþotur júgóslavneska sambandshersins árásir á tvo bæi í landinu. * Sjá „Bandaríkin ..." á bls. 23. Deilur Ukraínumanna og Rússa: Jeltsín skipar fyrir um yfir- töku á S vartahafsflotanum Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rúss- lands, undirritaði í gær tilskip- un um yfirtöku Rússa á Svarta- hafsflotanum. í tilskipuninni segir hins vegar einnig að hefja beri viðræður um hvernig af- henda megi Ukraínumönnum hluta flotans. Rússnesk yfirvöld höfðu fyrr um daginn mótmælt harðlega þeirri ákvörðun Úkra- ínumanna að allur sá herafli sem væri á þeirra landsvæði, þar með talinn Svartahafsflot- inn, félli undir úkraínska lög- sögu. Undirritaði Leoníd Kravt- sjúk, forseti Úkraínu, tilskipun þess efnis á mánudag. Vladímír Volkogonov, helsti ráðgjafi Bor- is Jeltsíns á sviði hermála, sagði í gær að þetta væri „fljótfærnis- leg og ólögleg" ákvörðun hjá Úkraínumönnum. Eru þessi ummæli Volkogonovs, sem hefur yfirumsjón með endur- Upplausnarástand í ítölskum stjórnmálum í kjölfar kosninga Vaxandi krafa um umbætur á kosningalöggjöf og nýjar kosningar Róm. Reuter. ÖNGÞVEITI ríkir í ítölskum stjórnmálum að ioknum kosningunum á sunnudag og kröfur um tafarlausar umbætur á kosningalöggjöf- inni og nýjar kosningar verða æ háværari. Ríkisstjórnin hélt að vísu meirihluta sínum en með svo litlum mun að hún er í raun óstarfhæf og í stjórnarandstöðunni, sem spannar allt sviðið frá kommúnistum til nýfasista, er enginn samstarfsgrundvöllur. Ríkisstjórnarflokkarnir fjórir, kristilegir demókratar, jafnaðar- menn, frjálslyndir og sósíaldemó- kratar, hafa nú 15 sæta meirihluta í neðri deild ítalska þingsins en þar eru þingmenn alls 630. Svo lítill meirihluti er óviðunandi fyrir stjórnina og sérstaklega stærsta flokkinn, Kristilega demókrata- flokkinn, sem yrði þá kominn upp á náð og miskunn litlu samstarfs- flokkanna. „Þetta klúður væri ekki hefði þingið samþykkt umbætur á kosningalöggjöfinni," sagði Giulio Andreotti forsætisráðherra þegar hann var inntur álits á úrslitum kosninganna en á Ítalíu eru hrein- ar hlutfallskosningar. Stjórnmálaskýrendur telja óhjá- kvæmilegt að fljótlega verði efnt til nýrra kosninga en margir vara við kosningum fyrr en kosninga: löggjöfinni hefur verið breytt. í Mílanóblaðinu II Giornale sagði til dæmis að þótt kosið yrði 10 sinnum yrði útkoman ávallt sami Babels- turninn. Þannig hefði það gengið fyrir sig í Weimarlýðveldinu og endað með Hitler. Óttast er að langan tíma muni taka að koma saman nýrri stjórn og á meðan verða efnahagsmálin látin reka á reiðanum. Eru þau í miklum ólestri á Ítalíu og tiltölu- lega mikiL verðbólga, gífurlegar erlendar skuldir og mikill fjárlaga- halli koma í veg fyrir að unnt sé að lækka vextina. Hjá því verður þó ekki komist ef ítalir ætla að tengjast evrópska myntbandalag- inu síðar á þessum áratug. Talið er líklegast, að ríkisstjórn- arflokkarnir fjórir reyna að mynda nýja stjórn og annaðhvort með stuðningi Lýðveldisflokksins eða Lýðræðisflokksins, arftaka gamla kommúnistaflokksins. skipulagningu rússneska hersins og flotans, talin vera til marks um að deila Rússa og Úkraínumanna um þessi mál sé að magnast. „Við verð- um að halda viðræður, viðræður og aftur viðræður innan Samveldis- ins . . . Það er ekki hægt að'fall- ast á neinar einhliða aðgerðir, hvorki af hálfu Rússa né Úkraínu- manna,“ sagði hann við blaðamenn á rússneska fulltrúaþinginu í gær. Rússar gera kröfu til þess að Svartahafsflotinn, sem er með heimahöfn í Sevastopol í Úkraínu, verði áfram undir sameiginlegri herstjórn _ Samveldis sjálfstæðra ríkja en Úkraínumenn krefjast að fá allt að þriðjung hans til að geta myndað sinn eigin flota. Alls telur flotinn um 300 skip. Deila lýðveld- anna hefur farið síharðnandi að undanförnu og er hún, ásamt ágreiningi um efnahagsmál, talin geta valdið því að samveldið splundrist, en það var stofnað fyrir einungis fjórum mánuðum síðan. Jevgení Shaposnikov, æðsti yfir- maður herafla Samveldis sjálf- stæðra ríkja, las upp tilskipun Jelts- íns um Svartahafsflotann í fulltrúa- þinginu í gær. Samkvæmt henni fellur flotinn undir rússneska lög- sögu en verður áfram undir stjórn sameiginlegs herráðs Samveldisins. Kostnaður vegna flotans verður greiddur af Rússum en einnig segir í tilskipuninni að viðræður milli Rússa og Úkraínumanna skuli hefj- ast þegar í stað, sem hafi það að markmiði, að finna_ einhvern flöt á því, að afhenda Úkraínumönnum liluta flotans. Leoníd Kravtsjúk, forseti Úkraínu, brást við tilskipun Jeltsíns í gær með því að saka Rússa um að koma fram við Úkra- ínumenn eins og óvini. Er það einn- ig haft eftir heimildum á úkraínska þinginu, að tvær sendinefndir séu komnar til Krímar til að reyna að tryggja yfirráð Úkraínu yfir flotan- um. Flug’vélar með Ara- fat saknað Kairó. Reuter. FLUGVÉLAR með Yasser Ara- fat, leiðtoga PLO, Frelsissam- taka Palestínumanna, innan- borðs var saknað yfir líbýsku eyðimörkinni í gærkvöld. Skýrði líbýska fréttastofan JANA frá þessu en talsmaður PLO í Kairó staðfesti, að Arafat hefði verið í Súdan og ætlað til búða palestín- skra skæruliða í Sarra í Líbýu. Að sögn JANA rofnaði samband við flugvélina þegar hún var komin inn í líbýska lofthelgi og hvarf hún þá af ratsjárskermum. Sagði frétta- stofan, að það hefði verið klukkan 20.45 að staðartíma en 18.45 að Greenwich-meðaltíma.’ Var veður mjög slæmt á þessum slóðum í gær og sagði fréttastofan, að líbýska loftferðaeftirlitið hefði farið fram á aðstoð flugmálayfirvalda ýmissa ríkja við að staðsetja flugvélina. Talsmenn PLO í Túnis þar sem höfuðstöðvar samtakanna hafa ver- ið síðan þau voru rekin frá Líbanon kváðust ekki hafa neinar upplýs- ingar um afdrif flugvélarinnar en staðfestu, að Arafat hefði verið á leið til Líbýu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.