Morgunblaðið - 12.11.1994, Blaðsíða 1
80 SIÐUR LESBOK/C/D
259. TBL. 82. ÁRG. LAUGARDAGUR12. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Rolling-
amir á
Intemet
Los Angeles. Reuter.
BRESKA rokkhljómsveitin
The Rolling Stones ætlar að
verða fyrst til þess í næstu
viku að halda tónleika á
tölvuneti, þ.e.a.s. á alþjóð-
lega tölvunetinu Internet.
Hafa Rollingarnir, sem eru
á tónleikaferð um Banda-
ríkin, gefið margmiðlunar-
fyrirtæki í
New York
leyfi til að
senda út
fimm fyrstu
lögin á tón-
leikum í
Dallas í Tex-
as 18. þessa
mánaðar.
____________ Stephan
Mick Jaggcr Fitch, tals-
maður
margmiðlunarfyrirtækisins
„Thinking Pictures", segir,
að aðdáendur Rollinganna
muni geta náð útsending-
unni hafi þeir réttan búnað
til þess en myndgæðin verða
þó ekki jafn mikil og í venju-
legu sjónvarpi. Ted Mico,
talsmaður hýómsveitarinn-
ar, sagði, að hún biði spennt
eftir útkomunni.
Upplýsingafíkill
„Mick Jagger notar Inter-
net heilmikið enda er hann
frétta- og upplýsingafíkill
og finnst gaman að leita
fanga víða um heim. Þess
vegna er Internet svo sann-
arlega eitthvað fyrir hann.“
Tónleikarnir á Internet-
inu í næstu viku kosta ekk-
ert og hljómsveitin litur á
þá sem auglýsingu fyrir tón-
leika 25. nóvember, sem
verða sendir út á kapal-
kerfi.
Tónleikarnir 18. næst-
komandi munu hefjast
klukkan 8.30 að nóttu að
ísl. tíma og verða á netinu á
„http://www.stones.com“.
Bandar í kj astj órn hættir að framfylgja vopnasölubanni á Bosníustjórn
Mikil óánægja
með ákvörðun-
ina í Evrópu
Sarajevo, Washington, London, Moskvu. Reuter.
ÁKVÖRÐUN Bills Clintons, forseta Bandaríkjanna, um að standa ekki
lengur að vopnasölubanni á Bosníustjórn hefur verið illa tekið meðal banda-
manna Bandaríkjanna og einkum í þeim ríkjum, sem sent hafa gæsluliða
til Bosníu. Haris Siajdzic, forsætisráðherra Bosníu, fagnaði henni aftur á
móti og sagði augljóst, að Bandaríkin væru ekki í hópi þeirra ríkja, sem
teldu brýnast að refsa fórnarlambinu.
Líklegt þykir, að spenna milli
Bandaríkjastjórnar annars vegar og
breskra og franskra stjórnvalda hins
vegar muni aukast vegna þessa
máls þótt ekki sé búist við, að yfirlýs-
ing Clintons breyti miklu í raun fyr-
ir múslima í Bosníu. Ljóst er, að
vopnasölubannið hefur ekki haldið
nema að hluta en þessi ákvörðun
Bandaríkjastjórnar er þeim hins veg-
ar mikill, siðferðilegur stuðningur.
Reuter
Fallinna minnst
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, baðst fyrir í gær við gröf
ókunna hermannsins í Arlington-kirkjugarði í Washington en
þá voru liðin 76 ár frá vopnahlésdeginum 1918, lokum fyrri
heimsstyrjaldar. Síðar í gær hélt hann í 10 daga ferð til Asíu.
Clinton, sem er undir miklum
þrýstingi frá Bandaríkjaþingi þar
sem repúblikanar eru nú í meiri-
hluta, skipaði yfirmönnum í Banda-
ríkjaher að hætta að framfylgja
vopnasölubanninu á Bosníustjórn frá
og með deginum í dag. Hafa áhafn-
ir þriggja herskipa í Adríahafi feng-
ið skipanir um að sigla burt þaðan.
Hörð viðbrögð
Rússar brugðust mjög illa við
ákvörðun Clintons og átti að ræða
í dúmunni síðar í gær mjög harðorða
ályktun. Þar var skorað á Borís Jelts-
ín, forseta Rússlands, og Víktor
Tsjernomyrdín forsætisráðherra að
grípa til „viðeigandi ráðstafana til
að koma í veg fyrir alvarlegar afleið-
ingar af aðgerðum Bandaríkjastjórn-
ar“.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði í viðtali við breska
ríkisútvarpið í gær, að ákvörðun
Clintons ylli sér áhyggjum og undir
það tóku stjórnvöld á Spáni, Hol-
landi og Danmörku. Þýska stjórnin
hafði þó ekkert um hana að segja
að svo stöddu.
Franska stjórnin hefur beðið um
fund með fulltrúum stórveldanna,
sem stóðu að tillögunni um frið í
Bosníu, og Willy Claes, fram-
kvæmdastjóri Átlantshafsbanda-
lagsins, NATO, lagði á það áherslu
í gær, að bandalagið myndi áfram
framfylgja vopnasölubanninu.
Aukin spenna
Mistök lijá BBC
Drottning-
armóðirin
sögð látin
London. Reuter.
BBC-sjónvarpsstöðin sagði í
gær frá því fyrir mistök að
drottningarmóðirin væri látin.
Ekki er nema rétt ár síðan ástr-
ölsk sjónvarpsstöð flutti svip-
aða frétc.
Yfírmenn BBC voru skömm-
ustulegir þegar þeir báðust
nokkru síðar afsökunar á frétt-
inni, sem birt var í textavarpi.
Sögðu þeir að fyrir mistök
hefði æfingahandrit að fréttum
verið sent út. Voru mistökin
þegar leiðrétt og fyrir liggur
að málið verður rannsakað ofan
í kjölinn.
Talsmaður drottningarmóð-
urinnar hló þegar honum voru
sagðar fréttirnar og sagði að
sér þætti leitt þegar líf drottn-
ingarmóðurinnar væri háð
tölvumistökum.
Skoðanakannanir um Evrópusambandsaðild í Svíþjóð
Hnífjafnt fylgi
Stokkhólmi, Osló. Reuter.
TVÆR skoðanakannanir, sem birt-
ar voru í Svíþjóð í gær, sýndu stuðn-
ingsmenn og andstæðinga ESB-
aðildar hnífiafna en Svíar ganga til
þjóðaratkvæðis um aðild á morgun.
Samkvæmt skoðanakönnun er
gerð var fyrir blaðið Dagens Nyhet-
er ætla 40% Svía að greiða atkvæði
með en 40% á móti. 20% hafa enn
ekki gert upp hug sinn.
Göran Persson, fjármálaráðherra
Svíþjóðar, varaði Svía við því að
fella aðild í gær og sagði, að ef sú
yrði raunin myndi reynast nauðsyn-
legt að skera niður ríkisútgjöld
verulega.
Naumur mcirihluti í Noregi
Úrslitin í Svíþjóð eru talin eiga
eftir að hafa veruleg áhrif á gang
mála í Noregi. Tvær skoðankannan-
ir í gær sýndu að mjög naumt yrði
á mununum í Noregi ef Svíar segðu
já.
Samkvæmt könnun Opinion-
stofnunarinnar fyrir Aftenposten
ætla 46% Norðmanna að samþykkja
aðild ef Svíar gera það en 41% að
hafna henni þrátt fyrir það. 13%
voru óákveðin.
Þetta er í fyrsta skipti frá því í
apríl að stuðningsmenn aðildar eru
fleiri en andstæðingar í könnunum
stofnunarinnar.
Nokkuð önnur niðurstaða kom
út úr könnun ALTB-fréttastofunnar,
sem unnin var af Nielsen Norge.
Þar sagðist 41% vera fylgjandi, 41%
á móti en 18% óákveðin ef Svíar
samþykktu aðild.
■ Fréttir: Evrópa/18
Reuter
Fordæmir
sprengju-
tilræði
YASSER Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO),
fordæmdi í gær sprengjutilræði
palestínsks hryðjuverkamanns á
Gaza-svæðinu sem varð þremur
ísraelskum hermönnum að bana
og særði fjóra, þaraf tvo alvar-
lega. Hann lofaði að gera þegar
í stað nauðsynlegar ráðstafanir
vegna hryðjuverka á svæðinu og
boðaði öryggismálaráð samtak-
anna til fundar. Tilræðismaður-
inn, sem var á reiðhjóli, lét lífið
í árásinni en hér kanna ísraelsk-
ir lögreglumenn vegsummerki.