Morgunblaðið - 13.03.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 45
MARGMIÐLUN
LEIKIR
Knights And Merchants, leikur frá
Interactive Magic fyrir Windows
95/98. Leikurinn gerir kröfu um 133
MHz pentium með 50 Mb laus á
hörðum diski, DirectX þarf til og 16
Mb minni.
LEIKJAFYRIRTÆKIÐ Inter-
active Magic gaf nýlega út einn af
þeim fáu leikjum sem blanda vel
saman rauntíma stn'ðsleikjum (Red
Alert) og byggingar- og við-
haldsleikjum (Civ). Leikurinn ber
nafnið Knights And Merchants, hér
kallaður KAM.
Mikið var beðið eftir KAM á
síðasta ári og bjuggust menn við leik
sem myndi jafnvel valda byltingu á
leikjamarkaðnum. Sú varð ekki
raunin þrátt fyrh- afar góðan leik sem
til að trén væru ekki bara vel gerð
heldur líka á stöðum þar sem líklegt
væri að tré væru í raun og veru. Þetta
á einnig við um litla dali, grjót, snjó
og reyndar allt annað umhverfi.
Alla þarf að þjálfa, án þjálfunar eru
mennirnir ekki neitt. Það þarf að
þjálfa bændur svo allir hafi nóg að
borða, námumenn til að ná í grjót,
hermenn til að verja fólkið, veiðimenn
til að veiða mat og húsasmiði auk
margra fleiri. Ekki er hægt að byrja
strax að framleiða hermenn og fara í
stríð, það þarf að vinna sig upp með
því að láta fólki fjölga og byggja
ýmsar byggingar sem nauðsynlegar
eni í samfélaginu.
Allii’ sem hafa gaman af nokkuð
miklu fjöri og einnig af því að hugsa
ættu að hafa gaman af þessum leik.
Ingvi M. Árnason
Konungur
í umsátri
ekki á að ganga fram hjá í verslunum
án þess að skoða.
Eftir marga bardaga hefur hinu
stórra konungsríki (leikandinn
ákveður nafnið) verið skipt í marga
litla hluta sem berjast innbyrðis,
hermönnum konungs hefur verið
þröngvað inn í síðasta héraðið, undir
konunglegri stjóm, sem er umsetið af
nokkrum hópum uppreisnarmanna.
Það er svo verk þess sem leikur,
konungsins, að ná aftur stjóm yfir
landinu og brjóta uppreisnina á bak
aftur.
í leiknum er hægt að gera mikið af
mismunandi hlutum og alltaf nóg að
gera; það þarf að framleiða
mismunandi vopn fyrir mismunandi
hermenn, sem þjálfa þarf á mis-
munandi vegu. Sem dæmi má nefna
að venjulegan mann þarf að þjálfa
sem bogmann, síðan þarf að finna
stað handa honum að búa á og smíða
handa honum boga og gefa honum
reglulega að borða á sérstökum
ki’ám. Leikurinn gefur spilanda
sjaldan tíma til að slaka á, því oft þarf
að gera allt þetta í miðjum bardaga.
Umhverfi leiksins er afai’ flott og
vel gert og hönnuðir lögðu mikið á sig
Hraðar,
hraðar..
HRAÐI í örgjörvum eykst sífellt,
PowerPC örgjörvar í Macintosh-
tölvum stefna yfir 400 MHz á
næstu vikum og kominn er á mark-
að 500 MHz Pentium III örgjörvi
frá Intel. Enn á hraðinn eftir að
aukast þegar líður á árið og
skammt í að Ghz örgjörvar, þ.e.
1.000 MHz, komi á markað.
Hraði eða tiftíðni örgjörvans
skiptir eðlilega miklu máli f einka-
tölvum, þó ekki skipti hann alltaf
höfuðmáli. Þegar vél er inetin
skiptir litlu minna máli hvernig
innvols vélarinnar er að öðru leyti,
hraði á móðurborði og minni, sam-
setning vélarinnar og stýrikerfi.
Ágætt dæmi er PowerPC-ör-
gjörvinn sem var í fyrstu iMac-
tölvunum, 233 MHz G3, sem var
talsvert öflugri en 300 MHz Penti-
um II örgjörvi á pappírnum; því
annar vélbúnaður tölvunnar hélt
aftur af honum og gamaldags
stýrikerfið dró einnig verulega úr
hraðanum.
Stærð smáranna f örgjörvanum
skipta meginmáli þegar hraði hans
er metinn. Hver smári er einskonar
hlið sem hleypir í gegnum sig
straumi eftir því hvort kveikt er á
því eða ekki. Þar sem rafmagn
þarf að fara um hliðið skiptir máli
hversu stórt það er, þ.e. hversu
langt rafmagnið þarf að fara.
Smám saman hafa menn og minnk-
að hliðin, meðal ánnars með því að
nota útQólublátt ljós til að
„brenna" á örgjörvann rásirnar og
fer stærð þeirra þá ineðal annars
eftir bylgjulengd ljóssins. Ör-
gjörvasmiðir eru nú komnir að
vissum endimörkum í notkun á út-
fjólubláu ljósi, því bylgjulend þess
er nánast orðin of lítil til að hægt
sé að minnka örgjörvana mun
meira, aukinheldur sem kvar-
slinsur, sem notaðar eru til að
smækka rökrásamyndina sem síð-
an er brennd á sílíkonflög-
una, ráða ekki við miklu
minni bylgjulengd; ef
bylgjulendin minnkar of
mikið kemst ljósið ekki í
gegnum linsurnar.
Til að bregaðst við
þessu hafa menn gripið
til þess ráðs að nota
aðrar gerðir ljóss, rönt-
gengeisla eða einfaldlega rafeinda-
geisla, til að brenna á sílíkonið.
Ekki er björninn unninn með því;
eftir því sem hliðin minnka þurfa
vírar í sílfkoninu eðlilega líka að
minnka, en eftir því sem þeir
minnka eykst mótstaða í þeim og
hiti hækkar. Þetta er þegar þekkt
vandamál, til að mynda í Pentium-
örgjörvum Intel, enda verður kæli-
búnaður fyrir þá mun umfangs-
meiri eftir því sem örgjrövarnir
sjálfir minnka og verða hraðvirk-
ari. Þeta er minna vandamál með
PowerPC örgjörvana, því þeir eru
af einfaldari gerð, en eftir því sem
þeir verða hraðvirkari á sama
vandamál eftir að koma þar upp
líka.
Leið til að ininnka hitann er að
auka leiðni víranna og það tókst
tæknimönnum IBM að gera fyrir
skemmstu þegar þeir komu kopar-
vír fyrir á sílíkonflögu. Þannig
tækni er til að mynda notuð í 400
MHz PowerPC G3 örgjörvunum
nýju með góðum árangri, en Penti-
um III er aftur á móti enn með ál-
þræði.
Fyrir fiinmtáu árum setti einn
stofnenda Intel, Gordon Moore,
fram lögmál, sem kennt er við
hann, uni að smárafjöldi á flatar-
málseiningu í örgjörva myndi tvö-
faldast á hálfs annars árs fresti og
reikniafl aukast að sama skapi.
Þetta lögmál hefur haldið alla tíð
siðan og gott betur því þróunin
hefur verið heldur hraðari en
^°Parörtrin,. • „-------
Moore spáði.
Fyrir nokkrum árum gerðu
menn því skóna að örgjörvasmiðir
myndu fljótlega lenda í ógöngum
því þeir væru í þá mund að rekast
á eðlisfræðileg lögmál sem hindra
myndu frekari þróun. Allt hefur þó
farið á annan veg og í haust lofar
Intel 800 MHz örgjörvum og Ghz á
næsta ári, sem gefur 5-6 GHz ör-
gjörva innan fárra ára ef marka
má lögmálið. Intel og fleiri fram-
leiðendur ætla að auka hraðann
meðal annars með því að skipta úr
0,25 míkróna flögum í 0,18
míkróna, en vísindamenn IBM hafa
sýnt fram á að hægt sé að fram-
leiða 0,06 míkróna örgjörva, svo
enn getur hraðinn aukist talsvert.
Spurt og
svarað
MORGUNBLAÐIÐ gefur les-
endum sínum kost á að leita til
blaðsins með spurningar um
tölvutengd efni, jaðartæki,
margmiðlun og leiki. Vinsam-
legast sendið spurningar á net-
fangið spurt@mbl.is. Með fylgi
fullt nafn og heimilisfang send-
anda. Spurningunum verður
svarað á mai’gmiðlunarsíðum
Morgunblaðsins eftir því sem
verkast vill.
Orkaa
jókst til
mu.ua!
Stefán Rögnvaldsoti
Bi/ggingameistari
„Ég hef tekið Nateti samfleytt í
2 ár. Ég varð fljótt þróttmeiri,
orkan jókst til mutia, og svefn
varð betri. Naten hefur einnig
góð áhrif á kynorkuna og kemur
jafnvægi á líkama og sál"
NATEN
- er nóg!
Úfsölustaðir:
Hagkaup, Nykaup, Blómaval Akurei/ri og
Rei/kjavík, Apótekiti, Li/fja, verslanir KÁ,
Kaupfélögin, Urð Raufarhöfn, Homabaer
Hornafirði, Lónið Þórshöfn, Heilsulindin
Keflavík, Melabúðin Neskaupsstað.
Dreifing: NIKO ehf - sími 568 0945
Veffang: www.naten.is
sícilikl
1i FJÖLSKYLDU- OC
HUSDÝRAÚARÐURINN
ÁRANGUR
fyrir
■ 'eL¥' ';:'í
.•V'-.- *■ *
: 1
&
l:,
■ ....t
**