Morgunblaðið - 13.03.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1999 37
LISTIR
Opnar danshátíð
í Vilnius í Litháen
Islenski dansflokkurinn
Morgunblaðið/Þorkell
PÉTUR Gunnarsson rithöfundur hlaut Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar í gær.
Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar afhent Pétri Gunnarssyni
„Hverju orði velt við“
PÉTUR Gunnarsson rithöfundur
hlaut í gær Stílverðlaun Þórbergs
Þórðarsonar. Þann dag, fóstudaginn
12. mars 1999, voru 110 ár liðin frá
fæðingu Þórbergs og af því tilefni
voru stílverðlaunin afhent í fjórða
sinn.
„I verki sínu mun hann kenna og
benda yfir ókomnar aldir Islands,
sem vonandi verða margar," sagði
Pétur m.a. um Þórberg í ávarpi sínu
eftir að hann hafði tekið við verð-
laununum úr hendi Bjöms Bjarna-
sonar menntamálaráðherra.
Til stílverðlaunanna var stofnað
1989 og hafa Gyrðir Elíasson, Þor-
steinn frá Hamri og Þorsteinn Gylfa-
son áður hlotið verðlaunin. Að stíl-
verðlaununum standa Styrktarsjóð-
ur Þórbergs Þórðarsonar og Mar-
grétar Jónsdóttur, sem er í vörslu
Háskóia Islands, Mál og menning og
menntamálaráðuneytið. Verðlauna-
féð er nú 300.000 krónur.
í reglum um verðlaunin segir að
þau séu veitt fyrir „óvenjulega stíl-
gáfu og frumleik í meðferð íslensks
máls. Þau geta hlotnast hverjum
þeim sem vekur athygli fyrir góðan
stfl, hvort sem viðkomandi er skáld,
blaðamaður, stjórnmálamaður eða
fæst af öðrum ástæðum við ritstörf.“
I dómnefnd sitja að þessu sinni Þor-
leifur Hauksson f.h. Styrktarsjóðs
Þórbergs og Margrétar, Páll Vals-
son f.h. Máls og menningar og Gunn-
ar Agúst Harðarson f.h. mennta-
málaráðherra.
í rökstuðningi dómnefndar segir
m.a.: „Pétur Gunnarsson hefur frá
upphafi rithöfundarferils síns lagt
sérstaka rækt við stíl verka sinna,
enda bera þau þess vitni, líkt og verk
Þórbergs sjálfs, að hverju orði hefur
verið velt við og merking þess og
staða í hverri setningu verið gaum-
gæfð til hins ítrasta. Pétur hefur
fengist við fjölmargar tegundir bók-
mennta og alls staðar komið fram
með nýjungar, bæði í efnisvali og stfl,
og haft mikil áhrif í þeim efnum. Það
gfldir ekki einungis um skáldsögur
hans, heldur einnig ljóð, ritgerðir
hans og vasabækur sem geyma
frumlegar athuganir á töfrum hins
daglega lífs.“ Einnig er bent á nýlega
útvarpsþætti Péturs um íslenska 17.
og 18. öld. „Nú síðast hafa þýðingar
hans á nokkrum stórvirkjum heims-
bókmenntanna, m.a. Frú Bovary eft-
ir Gustave Flaubert og í leit að liðn-
um tíma eftir Marcel Proust vakið
sérstaka athygli bókmenntaunnenda,
ekki síst hinn vandaði íslenski bún-
ingur.“ Dómnefndin vitnar einnig til
orða Þórbergs sjálfs, sem sagðist eitt
sinn hafa innleitt í íslenskan bók-
menntastfl „meiri hraða, fjör, hittni
og tilbrigði í stíl“. „Svo vel vill tU að
þessa lýsingu má sem hægast heim-
færa upp á stfl Péturs Gunnarsson-
ar,“ segir í rökstuðningnum.
ÍSLENSKI dansflokkurinn opnar
danshátíð í Vilnius í Litháen mánu-
daginn 15. mars. A efnisskrá verða
fjögur verk, Diving og Flat Space
Moving eftii- Ruis Horta sem dans-
flokkurinn hefur sýnt í Borgarleik-
húsinu að undanförnu, Minha
Maria Bonita eftir Láru Stefáns-
dóttur og Maðurinn er alltaf einn
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Verk
Láru og Ólafar komu fram í Dans-
höfundasamkeppni Islenska dans-
flokksins sem haldin var í fyrsta
skipti í október 1998.
Þetta er í annað skipti sem ís-
lenski dansflokkurinn tekur þátt í
þessari hátíð í Vilnius; í fyrra sýndi
hann þar verkin Kate’s Gallery og
Wliite Streams eftir Ed Wubbe og
Curver eftir Richard Wherlock. Áð-
ur hafði Lára Stefánsdóttir sýnt
sólóverkið Hræringar í Vilnius árið
1997.
Meðal annarra dansflokka sem
koma fram á hátíðinni eru Per Jon-
son Dance Company frá Svíþjóð,
Granhöj Dans frá Danmörku, Yol-
ande Snaith Theatredance frá
Bretlandi og Ariadone frá Frakk-
landi.
Auk sýningarinnar í Vilnius verð-
ur sýning í hafnarborginni Klapeda
17. mars.
Ferðin er styrkt af Teater og
dans i norden og menntamálaráðu-
neytinu. Landsbanki íslands er að-
alsamstarfsaðili Islenska dans-
flokksins.
íþróttahúsinu,
Strandgötu,
Hafnarfirði
sunnudaginn 14. mars.
Mótið hefst kl. 14.00
Úrslit kl. 16.00
Karatesamband íslands
I00 ára afmæli
KFUM & KFUK
I Perlunni um helgina
13. og 14. mars
Sumarbúðir Gunni og Fellx
KFUM og KFUK troða upp á laugardeginum.
kynna starfsemi sína.
Karlakórinn Fóstbræður Sýning
leggur sitt af mörkum í fjölskylduguðs- á munum úr eigu
þjónustunni á sunnudeginum. sr. Friðriks Friðrikssonar.
600 börn
og unglingar
leggja sitt af mörkum
á hátíðinni.
Snjall og Snjöll
verða á staðnum.
5TEINAR WAAGE
nota bene
INGA 5544466 íöaSMi
f dag, laugardag Á morgun, sunnudag
Fjölbreytt æskulýðsdagskrá frá 14.00 Fjölskylduguðsþjónusta.
kl. 13.30 til kl. 17.30. Guðsþjónusta fyrir alla aldurshópa. Karlakórinn Fóstbræður.
Margvísleg framlög fjölhæfra krakka í Kanga kvartettinn.
KFUM og KFUK ásamt fjölda annarra Leikþáttur
atriða. 15.30 Léttir tónleikar i anda KFUM og KFUK.
(Sjá bls. 11 í Morgunblaöinu í gær). Þorvaldur Halldórsson. Kanga kvartettinn. Erla og Rannveig Káradætur.
Allir
velkomnir!
Ókeypis
aðgangur
KFUM og KFUK
Holtavegi 28
Reykjavík
Sími 588 8899