Morgunblaðið - 02.07.1999, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999 25
ÚR VERINU
Tveir voru sviptir
veiðileyfí tvívegis
Sex misstu veiðileyfið í júní
FISKISTOFA svipti sex skip og
báta veiðileyfi í júnímánuði, þar af
tvö, Stefni IS og Geir Goða GK, tví-
vegis. Flest voru svipt leyfí vegna
veiða umfram heimildir, en eitt fyr-
ir að gefa þorskafla upp sem löngu
og ufsa. Öll fá skipin leyfi á ný eftir
mislangan tíma eða þar til afla-
marksstaða þeirra hefur verið lag-
færð.
ítrekað brot
Hinn 3. júní svipti Fiskistofa
Stefni IS veiðileyfi vegna afla um-
fram heimildir. Togarinn, sem er
Sæeyrnaeldi
í Tailandi
TAÍLENDINGAR hafa byrjað
með sæeyrnaeldi en klak
heppnaðist í fyrsta sinn ekki
alls fyrir löngu. Sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur þjálfað 47 sjó-
menn til að sjá um eldið og er
tilbúið að leggja þeim til seiði
sem vilja fara út í þennan
rekstur og fjárfesta í nauðsyn-
legum búnaði.
Eldi á sæeyra, sem er af-
skaplega dýr sæsnigOl, er
stundað víða um heim, en veið-
ar á því eru einnig stundaðar í
nokkrum mæli. Einn aðila hér-
lendis er að vinna að eldi af
þessu tagi. Framvinda þess er
enn óljós, en meðal annars er
verið að kanna markaði fyrir
afurðina.
gerður út af íshúsfélagi ísfirðinga,
fékk leyfið að nýju þann 9. júní eftir
að aflamarksstaða hans hafði verið
lagfærð. Stefnir var sviptur veiði-
leyfinu á ný þann 24. júní vegna
afla umfram heimildir. Þar sem um
ítrekað brot var að ræða varir leyf-
issviptingin í tvær vikur eftir að
aflamarksstaða skipsins hefur verið
lagfærð.
Hrafnsey SF var svipt veiðileyf-
inu vegna afia umfram heimildir 18.
júní og sömu sögu er að segja af
Bylgju VE og Sóleyju Sigurjóns
GK 24. júní. I báðum tilfellum varir
sviptingin þar til aflamarksstaðan
hefur verið lagfærð.
Fór í sex róðra
án aflaheimilda
Geir Goði GK var sviptur leyfinu
18. júní, en fékk það að nýju nokkr-
um dögum seinna eftir að afla-
marksstaðan hafði verið lagfærð.
Sami bátur var svo sviptur veiði-
leyfi á ný þann 30. júní, þá til
þriggja vikna frá og með 9 júlí.
Hafði bátnum verið haldið í sex
veiðiferðir dagana 2. til 15. júní,
þrátt fyrir að ekki væru heimildir
fyrir aflann, sem fékkst í þessum
veiðiferðum.
Hinn 11. júní var Guðbjörg GK
svipt leyfi til veiða í tvær viku frá
og með 18. júní, þar sem hluti af
þorskafla bátsins í ákveðinni veiði-
ferð var ranglega gefinn upp sem
langa og ufsi við vigtun á hafnar-
vog. Stafaði það af því að afli báts-
ins hafi ekki verið nægjanlega
sundurgreindur eftir tegundum við
löndun.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
RÓLEGT hefur verið yfir karfaveiði á Reykjaneshryggnum en myndin var tekin um borð í Klakki SH.
Aðeins tonn á togtímann
meira en tonn á tímann og sömu
fréttir eru af svæðinu fyrir utan
landhelgi. Samt er mikið líf í sjónum
en ef til vill hefur aldrei verið eins
mikið til af karfa og menn héldu.“
Leyfílegur heildarafli af út-
hafskarfa á Reykjaneshrygg á þessu
ári er 153.000 tonn. Hlutur okkar Is-
lendinga er 45.000 tonn. Rannsóknir
á karfastofninum standa nú yfir og
verða þær lagðar til grundvallar til-
lögum um heildarafla á næsta ári, en
Alþjóða hafrannsóknaráðið telur nú
að miðað við fyrirliggjandi gögn sé
nauðsynlegt að minnka aflann veru-
lega.
NÍU frystitogarar eru á karfaveið-
um vel innan lögsögu íslands á
Reykjaneshrygg og hefur verið
frekar rólegt á miðunum undanfarn-
ar þrjár vikur eða síðan eftir sjó-
mannadag. „Þetta hefur gengið
treglega, verið dauf veiði, um tonn á
tímann," sagði Kristinn Pétursson,
skipstjóri á Þemey RE, við Morg-
unblaðið.
Grandi hf. er með þrjá togara á
miðunum, Þemey, Snorra Sturluson
og Örfirisey. Sigurbjöm Svavarsson
útgerðarstjóri sagði að skipin væm
komin með ríflega 400 tonn hvert
eftir þriggja vikna túr en ástandið
Róleg-t á karfa-
miðunum á
Reykjaneshryg-g
væri eðlilegt, veiðin dytti alltaf niður
í júní eftir að hafa verið mest í apríl,
maí og fram í júm'.
Togaramir vom á smábletti í
góðu veðri í gær. „Fyrstu tvö, þrjú
hölin hjá þeim sem komu fyrstir út
eftir sjómannadaginn vora góð en
síðan hefur þetta verið leiðindatíð
þar til í fyrradag, haustveður, átta
til níu vindstig og dauf veiði,“ sagði
Kristinn. „Maður heyrir lítið um
ástæður
^■fyrir því
■ að eiga
garðskúr
• öll garðáhöldin geymd á einum stað
• Sláttuvélin fær sitt eigið heimili
• Sólhúsgögnin á vísum stað
» Bíllinn kemst loksins í bílskúrinn
» Þægilegra að vinna í garðinum
j > Æ 1
'Æ
{ B W
n n K
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup