Morgunblaðið - 10.08.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.08.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1999 B 5 BANKÍ. Morgunblaðið/Jim Smart STURLAUGUR Haraldsson hleypur fagnandi frá marki Keflvíkinga eftir að hann hafði skorað úr víta- spyrnu, 1:0. Kenneth Matihane og Jóhannes Harðarson fagna honum. Þrenna hja Cekic ekki erindi sem erfiði í fremstu víg- línu. Unnari varamanni Valgeirssyni var greinilega brugðið innan teigs undir lokin, en Eyjólfur sá ekki ástæðu til að dæma neitt, flautaði þess í stað til leiksloka skömmu síð- ar og innsiglaði þannig fjörugan leik sem lýsa má með þeim orðum að hann hafi verið eins og svart og hvítt - í fyrri og seinni hálfleik! Jafntefli gefur aðeins eitt stig og í sem skemmstu máli þýðir það í raun tvö stig töpuð fyrir bæði lið. í tilfelli Keflvíkinga mega menn þó vel við una, bæði hefur löngum þótt fram- bærilegt að ná stigi á Skipaskaga og eins var staða þeirra ekki beinlínis beysin framan af. En þeir nýttu sér ótímabær fagnaðarlæti heima- manna, gengu á lagið og uppskáru eftir því. Að sama skapi hljóta Skagamenn að naga sig í handarbökin fyrir frammistöðuna í seinni hálfleik. í sumar hefur liðinu gengið bölvan- lega að skora mörkin, en raunar fengið á sig fremur fá. Nú snérist dæmið við, en heilladísirnar fluttu sig sömuleiðis um set og loksins þeg- ar mörkin komu brást vörnin. Það er gamalkunn klisja að kenna um óheppni og álagi, en nú er svo komið að Skagamenn geta engum um kennt nema sér sjálfum. Og annað kvöld, í stórleik gegn Eyjamönnum, fá þeir tækifæri til að snúa við blað- inu og gefa áhangendum sínum um leið ástæðu til að brosa. Leikmenn KVA komu ákveðnir til leiks á heimavelli gegn Víði og voru staðráðnir í að sanna til- ■■■■■■ verurétt sinn í 1. Benedikt deild. Heimamenn Jáhannsson slökuðu hvergi á klónni allan leikinn og náðu að brjóta Víðismenn á bak aftur og tryggja sér þriggja marka sigur, 4:1. Lið KVA var betra fyrsta stundar- fjórðung leiksins en tókst ekki að skora og missti öriítið móðinn við það og gestirnir gengu á lagið um stund og skoruðu fyrsta mark leiksins á 25. mínútu. Var þar að verki Kári Jónsson með viðstöðu- lausu skoti rétt innan vítateigs eft- ir að hann hafði fengið sendingu inn fyrir vörn KVA. Aðeins fimm mínútum síðar jafn- aði Marijan Cekic metin fyrir KVA með snotru skallamarki eftir fyrir- gjöf frá Aroni Haraldssyni sem kom inn í lið KVA á nýjan leik og stóð sig vel. Skömmu síðar skall hurð nærri hælum hinum megin vallarins er Kári átti skalla að marki KVA sem Kristján Svavars- son bjargaði naumlega á marklínu. Þremur mínútum fyrir leikhlé kom Cekic heimamönnum yfii- með öðru marki sínu í leiknum. Síðari hálfleikur var daufari en sá fyrri. Víðismenn byrjuðu þó bet- ur og voru staðráðnir í að jafna. Á 62. mínútu vann Atli Sigurjónsson vítaspyrnu fyi’ir gestina. Félagi hans Hlynur Jóhannsson tók spyrnuna en Zoran Stojaniovic, markvörður KVA varði með tilþrif- um en hélt ekki boltanum og sókn- armenn Víðis náði frákastinu en Stojaniovic vai’ði þeim veginn að nýju. Þetta var vendipunktur því Víðismenn voru sem slegnir út af laginu það sem eftir lifði leik. Cekic innsiglaði þrennu sína með marki á 75. mínútu og þar með voru úrlsitin ráðin en það kom í hlut Sigurjóns Gísla Rúnarssonar að innsigla sigur KVA tveimur mínútum fyrir leikslok. Leikmenn KVA börðust vel fyrir sigrinum auk þess sem heilladís- irnar voru einnig á þeirra bandi. Kristján Svavarsson stóð sig mjög vel, var sívinnandi. Maður leiksins: Marijan Cekic, KVA. Kára Steini skipt út af KÁRI Steinn Reynisson átti prýðilegan leik í liði Skagamanna, var frískur og ógnandi á vinstri kantinum. Hann fiskaði vítið í upphafi leiks, lagði knöttinn skömmu síðar fyrir Kenneth Matija- ne í upplagðri stöðu og komst í seinni hálfieik nálægt því að skora sjálfur, en bylmingsskot hans small á þverslánni. Það mátti því heyra óánægjuraddir fremur háværar er Logi Ólafsson, þjálfari ÍA, skipti Kára Steini af velli í seinni hálfleik fyrir Unnar Valgeirsson. Unnar átti raunar prýðilegar rispur, en margir stuðningsmenn Skagamanna vildu meina að þetta væri alls ekki í fyrsta sinn sem þjálfarinn skipti Kára Steini of snemma af velli. Krafturinn fjaraði út „ÞETTA var skelfilegt," sagði Þórður Lárusson landsliðs- þjálfari þegar hann gekk nið- urlútur ásamt leikmönnum sínum til búningsherbergja að loknu tapinu fyrir Danmörku. „Það eru margar stelpur að spila sinn sjöunda leik á innan við tuttugu dögum - í bikarn- um, deildinni og á Norður- landamótinu - og það var þvf komin mikil þreyta í liðið. Það var kraftur í stelpunum allt fram á sfðasta stundarfjórð- ung en þá fjaraði hann út. Þær stóðu sig samt frábærlega, okkar markverðir þurftu lítið að verja skot en gripu vel inn í þegar þess þurfti á meðan við áttum fullt af góðum skotum," bætti Þórður við. „I heild er ég ny'ög ánægður með liðið þó að ég sé ósáttur við úrslitin; við áttum að vinna bæði Sví- ana og Danina svo að það var alveg raunhæft að ætla sér þriðja sætið á mótinu enda sá ég afar lftinn mun á okkur og hinum liðunum. Hinsvegar er vandamál að þetta lið fær ekki verkefni fyrr en á næsta Norð- urlandamóti að ári.“ íslensku stúlkurnar töpuðu fyrir Dönum A ekki að vera hægt „ÞETTA á bara ekki að vera hægt - þær dönsku skora öll sín mörk úr föstum leikkerfum, horni og aukaspyrnum,“ sagði Ingibjörg H. Ólafsdóttir eftir 4:3 tap fyrir Danmörku í leik um 5. sætið á Norðurlandamóti landsliða 21 árs og yngri, sem fram fór í Kaplakrika að morgni sunnudags. Þegar haft er í huga að íslenska liðið hafði yfirhöndina lengst af og náði 3:0 forystu en fékk tvö síðustu mörk Dana á sig á 83. og 84. mín útu eru ummæli hennar skiljanleg. Ahorfendur voru margir enn með stírurnar í augunum þeg- ar fyrsta færið kom eftir 10 sek- nndna og mis- Stefán heppnað spark frá ís- Stefánsson lenska markinu en skrífar skot Dana fór í höfuð Ragnheiður Á. Jóns- dóttur markvarðar. Aðeins leið ein og hálf mínúta þar til Rakel Loga- dóttir vippaði boltanum yfír mark- vörð Dana og kom íslandi í 1:0. Enn fengu Danir boltann eftir mis- heppnað útspark en nú varði Ragn- heiður í horn. Eftir aukaspyrnu Eddu Garðarsdóttur út við vinstri kant hélt danski markvörðurinn ekki boltanum og Ingibjörg fylgdi vel á eftir og kom Islandi í 2:0 en tíu mínútum síðar skoraði Ásgerð- ur H. Ingibergsdóttir þriðja mark- ið. Ásgerður, sem hafði haldið varnarmönnum Dana vel við efnið, varð að yfirgefa völlin vegna meiðsla á 35. mínútu og við það efldust dönsku stúlkurnar og á 42. mínútu minnkaði Linda Nissen muninn í 3:1. Danir mættu mjög ákveðnir til síðari hálfleiks og minnkuðu mun- inn í 3:2 eftir fimm mínútur en það dugði til að íslensku stúlkurnar tækju við sér og sköpuðu sér mörg færi. Það skilaði þó ekki marki en tók sinn toll af þrekinu og þar kom að varnir brystu og á 83. mínútu jafnaði Janne Madsen og aðeins mínútu síðar kom Mette Jokumsen Danmörku yfir, 4:3. Þrátt fyrir mikinn ákafa tókst þeim íslensku enn að jafna metin. „Ég tel að við höfum náð betur og betur saman eftir því sem liðið hefur á mótið því það var frekar lít- ill tími fyrir undirbúning. Við hefð- um þurft einn æfingaleik til viðbót- ar fyrir mótið en það var mjög erfitt að koma því við,“ bætti Ingi- björg við. „Mér fannst við yfirspila þær í fyrri hálfleik en í þeim seinni gáfum við eftir án þess að ég hafi skýringu á því - það munaði að vísu um að fyrirliðinn fór útaf meiddur en við eigum ekki að missa leikinn niður. Það er auðvit- að mikil reynsla að spila í svona móti, margar voru að spila sína fyrstu leiki en þetta er framtíðin og ef vel er haldið á málum verður þetta gott lið því það er ekki svo mikill munur á okkur og hinum lið- unum. Helst liggur hann í því að hinar hafa meiri hraða og tækni auk þess sem mikið munar um að hraðinn í þessum leikjum er meiri en við eigum að venjast úr deild- inni hér heima.“ Ásgerður fékk þungt högg ÁSGERÐUR H. Ingibergs- dóttir, sem bar fyrirliðaband- ið í leik Islands við Dan- mörku á Norðurlandamóti kvennalandsliða 21 árs og yngri, fékk mikið högg þegar danskur varnarmaður slæmdi til hennar hendi. Ás- gerður fékk skurð í augn- krókinn við vinstri auga. Læknir sænska landsliðsins, sem staddur var á leiknum, saumaði skurðinn ineð tveim- ur sporum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.