Morgunblaðið - 27.08.1999, Blaðsíða 1
192. TBL. 87. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Vinnuvélar leysa leitarhunda af hólmi á skjálftasvæðunum í Tyrklandi
V eikar vonir um
að finna fólk á lífí
Istanbúl, Yalova, Ankara. Reuters, AP, AFP.
HJALPARSTARFSMENN á jarðskjálftasvæð-
unum í Norðvestur-Tyrklandi hafa nú gefið upp
nær alla von um að finna megi fólk á lífi í húsa-
rústunum og hafa nú stórvirkar vinnuvélar tekið
við af leitarhundum og háþróuðum leitarbúnaði.
Tyrknesk stjórnvöld segja að alls hafi rétt rúm-
lega 13.000 lík fundist i húsarústum og að 26.630
manns séu slasaðir.
Síðdegis var hætt við leit að fjórum bömum sem
talin voru á lífi í húsarústum í bænum Yalova.
Tóku þýskar, búlgarskar og tyrkneskar björgun-
arsveitir þátt í leitaraðgerðum en þýskir hjálpar-
starfsmenn höfðu, deginum áður, numið lífsmark í
rústunum og miklar vonir því bundnar við að finna
bömin á lífi. Þótti leitin og lyktir hennar til marks
um dvínandi vonir um að finna fólk á lífi.
í gær braust sólin út undan skýjaþykkni sem
hulið hefur skjálftasvæðin með tilheyrandi stór-
rigningum. Komst hjálparstarf því á fullan skrið
á ný eftir tafir undanfarinna þriggja daga en að
sama skapi jókst óþefurinn sem leggur af húsa-
rústunum og hefur hættan á smitsjúkdómum
aukist.
Borið hefur á vatnsskorti á hörmungasvæðun-
um en í gær sendi bandaríski flotinn þrjú her-
skip áleiðis til Tyrklands en þau hafa að geyma
búnað er framleitt getur um 450.000 lítra af
drykkjarvatni á degi hverjum.
„Pólitískir eftirskjálftar"
Tyrkneska stjórnin lýsti því yfir í gær að hún
hygðist leggja nýja skatta á landsmenn til að
mæta hinum gríðarlega kostnaði sem uppbygg-
ingarstarfi mun fylgja. Hefur stjórnarandstaðan
bmgðist illa við og hafa fjölmiðlar kallað deiiurn-
ar „pólitíska eftirskjálfta". Samkvæmt tillögu
stjómarinnar munu skattar á atvinnustarfsemi,
sjálfstæða atvinnurekendur og efnað fólk hækka
um 5%. Þá munu farsímanotendur þurfa að
greiða 25% aukagjald sem rennur í sjóði til upp-
byggingarstarfs. Tillaga stjórnarinnar hefur
þegar verið samþykkt í þingnefnd og er fastlega
gert ráð fyrir að meirihluti tyrkneskra þing-
manna muni samþykkja hana.
Tansu Ciller, fyrrverandi forsætisráðherra
landsins, sagði að stjórnin hefði ráðist of
snemma í að koma á hinum nýju sköttum. Fyrst
ættu menn að sjá hve miklu verði safnað í fjár-
öflunarstarfsemi vegna skjálftanna sem hófst í
gær. Formaður samtaka atvinnuveitenda tók í
sama streng og sagði að skattarnir myndu lík-
lega vekja andúð meðal almennings.
Reuters
Tyrkneskur hjálparstarfsmaður djúpt hugsi
þar sem hann situr í húsarústum í Cinarik.
Rússneskt peninga-
þvættishneyksli
Dóttir Jelts-
íns meðal
grunaðra
YFIRSAKSÓKNARI Rússlands
fyrirskipaði í gær rannsókn á ásök-
unum þess efnis að milljarðar
bandaríkjadala frá rússnesku mafí-
unni, og hugsanlega frá nánum sam-
starfsmönnum Borís Jeltsíns for-
seta, hafi verið „þvegnir" í gegnum
banka í New York.
Vaxandi orðrómur hefur verið um
peningaþvættið frá því New York
Times birti fyrir skömmu frétt um
meint stórfellt peningaþvætti frá
Rússlandi í gegnum New York-
banka. Dagblaðið USA Today
greindi frá því í gær að Tatjana
Djatsjenkóva, dóttir Jeltsíns og ná-
inn ráðgjafi forsetans, hafi ásamt
öðrum komið allt að 20 milljónum
dala á bankareikninga í New York.
Djatsjenkóva og að minnsta kosti
fjórir aðrir embættismenn stjórnar-
innar höfðu aðgang að um 20 millj-
örðum dala sem Alþjóða gjaldeyris-
sjóðurinn hefur lánað Rússlandi frá
því árið 1992. Er því haldið fram í
blaðinu, að allt að helmingi þessa
fjár gæti hafa verið komið undan.
■ Stórfelldur stuldur/28
Nýleg fjöldagröf fínnst í Kosovo
Fórnarlömb virð
ast vera Serbar
Pristina. Reuters.
Átök andstæðinga og stuðningsmanna sjálfstæðis A-Tímor
Andstæðingar hóta
blóðugri baráttu
Dili, Austur-Tímor, Lissabon, SÞ. Reuters, AP.
Reutere
Herskáir andstæðingar sjálfstæðis á A-Tímor hlaupa vel vopnaðir um
götur Dili í gær. Hafa þeir hótað stríði kjósi A-Tímorbúar sjálfstæði.
FRIÐARGÆSLULIÐAR KFOR í
Kosovo-héraði fundu í gær fimm-
tán lík í fjöldagröf nærri bænum
Ugljare í austurhluta héraðsins og
virtust sumir þeirra er í gröfinni
hvíldu vera af serbnesku bergi
brotnir.
Talsmenn friðargæslusveitanna
sögðu að vitað hefði verið um
fjöldagröfina síðan í síðasta mánuði
og líklegt sé að fólkið sem í gröf-
inni hvíldi hafi verið myrt eftir að
friðargæsluliðið, sem er undir
stjórn Atlantshafsbandalagsins
(NATO), hélt innreið sína til
Kosovo um miðjan júní sl.
Ekkert bendir til fjöldamorðs
Sérfræðingar hafa enn ekki bor-
ið kennsl á líkin en háttsettur vest-
rænn embættismaður, er ekki vildi
láta nafns síns getið, sagði í samtali
við Reuters að nokkrir hinna látnu
virtust Serbar. Þá hafa talsmenn
friðargæslusveitanna lýst því yfir
að ekkert bendi til þess að um
fjöldamorð hafi verið að ræða.
Tanj ug-fréttastofan júgóslav-
neska sagði í gær að Zividan
Jovanovic, utanríkisráðherra Jú-
góslavíu, hafi farið fram á að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna
kæmi þegar saman og ræddi fregn-
imar. Þá hafi hann sakað friðar-
gæsluliðið um að reyna að hylma
yfir stríðsglæpi og að í gröfinni
hvíldu fórnarlömb fjöldamorðs.
Fólk af serbnesku bergi brotið
sem býr í nágrenni við fjöldagröf-
ina sem fannst sagði í samtölum við
AFP í gær að þeir sem í gröfinni
fundust hafi verið einstaklingar er
hurfu sporlaust um miðjan síðasta
mánuð.
AÐ MINNSTA KOSTI þrír létu
lífið og sex særðust í átökum milli
stuðningsmanna og andstæðinga
sjálfstæðis Austur-Tímor frá
Indónesíu, í Dili í gær, á næstsíð-
asta degi kosningabaráttunnar en
á mánudag er ráðgert að kosið
verði um framtíð stjómarskipulags
á eynni. Talsmaður herskárra and-
stæðinga sjálfstæðis, sem taldir
em njóta stuðnings stjórnvalda í
Jakarta, sagði í gær að ef Austur-
Tímorbúar kysu sjálfstæði, myndu
þeir breyta landinu í vígvöll. Kofi
Annan, framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna, krafðist þess í gær
að indónesísk stjórnvöld kæmu á
lögum og reglu í landinu og tækju
þá höndum er efnt hafi til ofbeldis-
verkanna.
Óeirðimar bmtust út eftir að
rúmlega fimmtán þúsund andstæð-
ingar sjálfstæðis fylktu liði á göt-
um Dili til að mótmæla fyrirhuguð-
um kosningum. Vitni segir meðlimi
þeirra hafa hent steinum í myndir
af Xanana Gusomo, leiðtoga sjálf-
stæðishreyfingar Austur-Tímor.
Stuttu seinna skutu andstæðingar
sjálfstæðis, vopnaðir hríðskota-
byssum, inn í hóp stuðningsmanna
með þeim afleiðingum að tveir lét-
ust samstundis. Vitni segja lög-
reglu Indónesa hafa staðið að-
gerðalausa skammt frá og ekki
einu sinni hafa gripið inn í þegar
ráðist var inn í byggingar sjálf-
stæðishreyfingarinnar og þær
eyðilagðar.
Óttast upplausn í landinu
í kosningunum á mánudaginn
munu Austur-Tímorbúar geta valið
eða hafnað því hvort landið verði
sjálfsstjórnarríki innan lögsögu
Indónesíu. Hafni þeir þeim kosti er
stjómvöldum í Jakarta skylt að
veita landinu sjálfstæði. Kosning-
unum, er haldnar eru í umboði SÞ,
hefur í tvigang verið frestað vegna
óeirða í landinu, en í maí náðist
samkomulag milli stríðandi fylk-
inga um að undirbúningur yrði haf-
inn að nýju undir eftirliti SÞ. Eftir-
litsmenn segjast nú óttast upp-
lausn í landinu fyrir og eftir kosn-
ingar, enda hafi uppreisnarmenn
úr hópi andstæðinga sjálfstæðis
hótað stríði kjósi Austur-Tímor-
búar sjálfstæði landsins.
Páfi til íraks
Bagdad. AFP.
JOHANNES Páll páfi II mun
fara til íraks í desemberbyrjun
þar sem hann mun meðal annars
hitta Saddam Hussein, forseta
landsins, að máli. Var þetta haft
eftir kaþólska patríarkanum í
Bagdad, Raphael Bidawid, í gær.
Bidawid sagði, að komudag-
urinn væri ekki alveg ákveðinn
en yrði einhvern tíma frá 2. til 5.
desember. Sagði hann, að áætl-
að væri að lenda í Bagdad en
fara síðan með þyrlu til Úr,
hinnar gömlu borgar í Kaldeu,
en samkvæmt Biblíunni fæddist
Abraham þar.
Bidawid sagði, að Bandaríkja-
menn og ísraelar hefðu reynt
allt hvað þeir gátu til að fá páfa
ofan af því að fara til íraks en
páfi hefði fullvissað þá um, að
aðeins væri um að ræða píla-
grímsferð án nokkurra póli-
tískra skuldbindinga. Um ein
milljón kristinna manna býr í
írak og þar af 80% í Kaldeu.