Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 B 9 Þorbjörn Jensson telur að íslandsmeistarabaráttan verði harðari en áður Á ÁRSÞINGI Hand- , knattleikssambands fs- lands í vor var ákveðið að feila út jafntefli í deildarkeppni karia og kvenna. Endi leikur með jafntefli skal fram- lengja leikinn í 2x5 mínútur. Verði enn jafnt skal framlengja aftur í 2x5 mínútur og fáist ckki úrslit þá verður svokallað gullmark látið ráða úr- slitum. Haukar og Afturelding eiga titla að verja. Haukar hömpuðu ís- landsmeistaratitlinum á síðustu leik- tíð eftir sigur á Fram Guðmundur en Afturelding varð Hilmarsson deildarmeistari. skrifar Báðum þessum lið- um er spáð í topp- baráttu í vetur en Ijóst má vera að fleiri lið koma til með að blanda sér í þá baráttu. Morgunblaðið fékk Þorbjörn Jens- son landsliðsþjálfara til að meta liðin tólf í deildinni og með fylgir spá hans um stöðu liðanna eftir deildarkeppn- ina. Breiðablik 12. sæti „Breiðablik er það lið sem ég hef séð minnst til á undirbúningstímabil- inu en hef samt heyrt mest af. Mér sýnist á öllu að veturinn verði Blik- unum þungur. Þeir gætu að vísu nartað eitthvað í liðin þegar líða fer á mótið en það verður einfaldlega of seint. Breiðablik var ekki með á Reykjavík Open og ég hefði haldið að þeir hefðu þurft að vera með þar.“ HK 11. sæti „Eg byggi þessa spá mína um HK á að liðið hefur misst sterka leik- menn. Sigurður Sveinsson er hættur og hann var náttúrlega betri en eng- inn í þessu liði. Þá eru Hjálmar Vil- hjálmsson og Atli Samúelsson farnir í önnur lið og mér sýnist að það sé búið að höggva allt of mikil skörð í liðið. Kúbumaðurinn sem HK fékk hefur ekki sýnt hingað til að hann sé af þeim styi-kleika sem HK-menn hefðu þurft á að halda.“ ÍR 10. sæti „IR-ingar hafa orðið fyrir blóðtöku þar sem leikstjórnandinn og þeirra besti maður undanfarin ár, Ragnar Oskarsson, er horfinn á braut. ÍR- ingar eiga marga unga og efnilega stráka sem koma inn í staðinn en ég held samt að missir þeirra sé of mik- ill og þeii- verði á þessum slóðum.“ Stjarnan 9. sæti „Ef Stjörnuliðið smellur vel saman getur það vel orðið ofar en í níunda sætinu en það er samt eitthvað sem segir mér að Stjarnan eigi erfitt upp- dráttar. Magnús Sigurðsson, sem kom heim frá Þýskalandi, er búinn að vera mikið meiddur í undirbúningn- um og Hilmar Þórlindsson er farinn frá liðinu. Mér sýnist að Arnar Pét- ursson eigi að vera í skyttustöðunni og Sigurður Viðarsson leikstjórnandi þannig að Stjörnumennirnir eru ekki eins öflugt skyttulið og þeir hafa ver- ið.“ Valur 8. sæti „Mér sýnst að Valsmenn eigi í vandræðum með markvarðarstöð- una. Petkevicius sem kom frá FH er meiddur og þeir eru komnii- með Georgíumann í staðinn. Hann er að koma inn á síðustu stundu og þarf að- lögunartíma. Hægri vængurinn hef- ur tekið breytingum. Valdimar Grímsson og Valgarð Thoroddsen eru komnir heim HANDKNATTLEIKSMENN hefja leiktíð sína af alvöru í kvöld en þá verður flautað til leiks í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknattleik. Eins og ávallt ríkir mikil spenna og eftir- vænting hjá handknattieiks- áhugamönnum fyrir veturinn og sú spenna kemur til með að magnast þegar á íslandsmótið líður því fyrirfram reikna menn almennt með jöfnu og spenn- andi móti. Morgunblaðið/Jim Smart Stuðningsmenn Hauka fögnuðu meistaratitli sl. keppnistímabil. Hvað gera þeir í nýju glæsilegu húsi Hauka á Ásvöllum í vetur? eru komnir til baka og það kemur til með að styrkja liðið. Valsmenn ollu vonbrigðum í fyrra. Þeir komust ekki í úrslitakeppnina og í ár þurfa þeir að glíma við þann draug.“ Grótta/KR 7. sæti „Grótta/KR hefur fengið mikið af mannskap og ég verð að segja það að lið þeirra lofar mjög góðu miðað við það sem ég hef séð til þeirra. Þetta eru sterkir leikmenn sem Grótta/KR hefur fengið og mér sýnist liðið vel mannað í öllum stöðum. Lettinn sem hefur leikið með liðinu hefur tekið framförum og það kæmi mér ekki á óvart ef Grótta/KR yrði spútniklið ársins." ÍBV 6. sæti „ÍBV hefur misst Barisic frá síð- asta ári en hefur fengið annan út- lending sem er kannski ekki eins öfl- ugur. Jón Andri Finnsson og Eymar Kiniger hafa bæst í hópinn og ef eitt- hvað er þá eru Eyjamenn með sterk- ari hóp en í fyrra því margir ungir strákar eru að koma. Spáin mín með ÍBV byggist á því að liðið er geysi- sterkt á heimavelli og hann fleytir Eyjamönnum langt í vetur.“ FH 5. sæti „FH-ingarnir hafa styrkt sig nokkuð. Þeir hafa fengið Bergsvein Bergsveinsson í markið og Héðin Gilsson og allir vita að þessir leik- menn geta breytt heilmiklu. Þá er vinstrihandarskyttta frá Ki'óatíu á leiðinni til liðsins og ef hann fellur vel inn í leik liðsins gæti FH-liðið orðið sterkt í vetur. Þá má ekki gleyma því að Guðmundur Karlsson er tekinn við þjálfun FH og menn vita að hann kann ýmislegt fyrir sér.“ Fram 4. sæti „Framararnir eru reyndai' búnir að missa sterka pósta úr liði sínu. Tit- ov er hættur og Pauzolis farinn á Sel- foss. Rússinn Fedukin er hins vegar ótnílega seigur að búa til nýtt lið og nú þarf hann að spila annað varnar- afbrigði út af breyttum mannskap. Spáin FORRÁÐAMENN liðanna í 1. deild karla í handknattleik, þjálfarar, fyrirliðar og lands- liðsþjálfarinn Þorbjörn Jens- son spá því að deildarmeistara- titillinn í handknattleik falli Aftureldingu í skaut. Spáin var kunngerð á árlegum kynning- arfundi HSI í fyrradag. 1. Afturelding.........284 2. Fram................279 3. Haukar..............256 4. FH..................246 5. KA..................231 6. Valur...............202 7. Stjarnan............201 8. Grótta/KR...........151 9. ÍBV.................142 10. ÍR.................133 11. HK..................99 12. Breiðablik..........38 Þorbjörn Jensson landsliðs- þjálfari birti sína spá og hún er þannig: 1. Afturelding, 2. Haukar, 3. KA, 4. Fram, 5. FH, 6. ÍBV, 7. Grótta/KR, 8. Valur, 9. Stjarnan, 10. ÍR, 11. HK, 12. Breiðablik. Það hafa verið hnökrar á leik Fram á undirbúningstímanum en þeir voru nokkuð sannfærandi á móti Haukun- um í meistaraleiknum. Mín tilfmning er sú að Fedukin búi til nokkuð gott lið hjá Fram eins og í fyrra.“ KA 3. sæti „KA-menn hafa verið að gera einna best í þessum leikjum sem ég hef séð. KA-liðið vinnur óhemjuvel sem lið, leikmenn liðsins eru baráttu- glaðir og gefast aldrei upp. Það sem háir því mest er að það er lágvaxið og verður þar af leiðandi að spila mjög framarlega vörn og þá er hópurinn ekki mjög stór. Ungu strákarnir í KA fengu margir hverjir mikla eldskírn í fyrra og það kemur þeim til góða í vetur og ekki síður að heimavöllur- inn, sem er einn sá besti á landinu.“ Haukar 2. sæti „Ástæðan fyrir því að ég set Haukana þetta ofarlega er einfald- lega sú að þeir urðu íslandsmeistar- ar í fyrra. Það hafa ekki orðið miklar breytingar á þeirra mannskap en það er nýr þjálfari kominn sem hefur mikla reynslu og hann ætti að geta spilað vel úr þeim mannskap sem er fyrir. Það verður örugglega pressa á Viggó því hann er ekki með síðra lið í höndunum en Guðmundur Karlsson, sem gerði þá að meisturum á síðasta tímabili. Ég er viss um að þátttaka Haukanna í Evrópukeppninni á eftir að reynast þeim vei í upphafí móts- ins.“ Afturelding 1. sæti „Ég set Aftureldingu í fyrsta sæt- ið af því að mér finnst að liðið sé með mannskapinn sem er búinn að vera mest saman. Það breytir ekki neinu þó svo að nýr þjálfari sé tekinn við liðinu því Mosfellingar eru með „íút- inerað" lið. Bjarki Sigurðsson þjálf- ari þekkii' hvern einasta leikmann og það ætti að vera auðvelt fyrir hann að skálda sínu til viðbótar. Það eru ekki miklar breytingar í Mosfells- bænum. Reynir Reynisson ætti að fylla skarð Bergsveins í markinu og Páll Þórólfsson kemur í stað Jóns Andra.“ Stöngin út eða stöngin inn „Ég mundi segja að á þessum leikjum sem ég er búinn að sjá núna með haustinu þá eru liðin mjög jöfn og þetta er oft spurningin hvort þau eru að skjóta stöngina inn eða stöng- ina út. Leikir liðanna í haust hafa verið ákaflega jafnir og það gefur fyrirheit um skemmtilegt íslands- mót. Nú er þetta þannig í vetur að engin jafntefli verða látin gilda og það ætti að færa enn meiri spennu í leikina,“ segir Þorbjörn. Hvernig myndir þú meta styrk- leika deildarinnar miðað við á síðasta tímabili? „Ég myndi halda að deildin ætti að vera ívið sterkari í ár. Bæði er það að sterkir leikmenn eru komnir heim eftir dvöl erlendis og eins eru ungu strákarnir sem fengu eldskírn í fyrra orðnir betri og reyndari. Það sem mér finnst jákvæðast landsliðsins vegna er að mörg lið eru að spila fjöl- breyttan vamarleik. Meirihlutinn er að spila framliggjandi varnir, sem er komið mikið i alþjóðlegan hand- bolta,“ sagði Þorbjörn. Sjö nýir til Gróttu/KR Helstu félagaskipti í 1. deild karla í hand- knattleik fyrir þetta tímabil eru þessi: Andrei Lazarev, Breiðablik/Gosenroth Andreus Stelmokas, Þðr/KA Atli Samúelsson, HK/Grótta KR Axel Stefánsson, Valur/Stabæk Bergsveinn Bergsveinss, Afturelding/FH Dalibor Valencic, Maccaby/FH Davíð Ólafsson, Valur/Grótta KR Egidijus Petkevicius, FH/Valur Einar Jónsson, Valur/Haukar _ Eymar Kruger, Fylkir/ÍBV Gunnar Beinteinsson, FH/Ajax Gylfi Gylfson, Haukar/Dússeldorf HjálmarVilhjálmsson, HK/Fram Héðinn Gilsson, Dormagen/FH Hilmar Þórlindsson, Stjarnan/Grótta KR Hlynur Mortens, Víkingur/Grótta KR Jahesky Garcia, Rio Grande/HK Jón A. Finnsson, Afturelding/IBV Kári Guðmundsson, Valur/IR Kjetil Ellertsen, Haukar/hættur Kristján G. Þorsteinsson, Fram/Grótta KR Lars Walter, KA/HSV Emden Magnús A. Magnússon, KA/Grótta KR Magnús Sigurðsson, Willstatt/Stjarnan Mindiaugas Andriuska, Kaunas/IBV Miro Barisic, ÍBV/Post Bregens *■ Páll Beck, Fram/Grótta KR Páll Þórólfsson, Essen/Afturelding Ragnar Óskarsson, ÍR/Dunkerque Reynir Reynisson, KA/Afturelding Rúnar Sigtryggsson, Göppingen/Haukar Robertaz Pauzolis, Fram/Selfoss Valdimar Grímsson, Wuppertal/Valur Valdimar Þórsson, Afturelding/Selfoss Valgarð Thoroddsen, Víkingur/Valur Sterkir leikmenn Engin jafntefli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.