Morgunblaðið - 27.09.2000, Page 6

Morgunblaðið - 27.09.2000, Page 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 B 7 KNATTSPYRNA Haraldur Ingólfsson og félagar í Elfsborg eru á góðu skriði Viðræður um nýjan samning framundan Skagamaðurinn Haraldur Ingólfsson og fé- lagar hans í IF Elfsborg eru skammt á eftir toppliðinu í efstu deild sænsku knattspyrn- _______unnar. Liðið er í fjórða sæti,_ 5 stigum á eftir efsta liðinu, Halmstad, og á ágæta möguleika á Evrópusæti. Pétur Gunnarsson heimsótti Harald í Borás í Svíþjóð. Haraldur fór til Elfsborg 1998 eft- ir að hafa orðið íslandsmeistari með Skagamönnum fimm ár í röð, spilað 20 landsleiki fyrir Islands hönd og leikið einn vetur með skoska úrvalsdeildarliðinu Aberdeen. Hann lék mikilvægt hlutverk í liði Elfsborg á seinnihluta síðasta keppnistímabils en var meiddur í upphafi keppnis- tímabilsins sem nú stendur yfir og hefur ekki átt fast sæti í byrjunarlið- inu. Hann hefur alls komið við sögu í 15 leikjum af 21, þar af byrjað inn á átta sinnum, og lagði upp mark í 3:1 sigri á Frölunda í fyrrakvöld eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Þótt hann hafi ekki enn skorað mark á tímabilinu er Haraldur með næstflestar stoðsendingar af öllum leikmönnum liðsins; aðeins stjörnu liðsins, landsliðsmanninum Anders Svensson, hefur tekist betur að finna samherja í opnum færum. Haraldur var einn besti leikmaður íslensku knattspyrnunnar fyrir nokkrum árum en lítið hefur frést af honum eftir að hann hélt utan í at- vinnumennskuna. Morgunblaðið heimsótti hann á dögunum í Borás, heimaborg Elfs- borgarliðsins, þar sem hann býr ásamt fjölskyldu sinni. Góðir möguleikar á Evrópusæti Hvernig leggst lokasprettur keppnistímabilsins í þig? „Mjög vel. Liðinu hefur gengið vel, við fórum hægt af stað en höfum svo verið nánast óstöðvandi. Deildin hef- ur verið mjög jöfn og eiginlega ekki nema 2-3 lið sem ekki hafa náð að hanga með í baráttunni. Við eigum góðan möguleika á Evrópusæti ef við höldum áfram að spila eins og við höf- um spilað í sumar. Með smáheppni er ekki langt í toppinn en það getur allt gerst og það eru næg stig í pottinum. I fjórum síðustu umferðunum mæt- um við þessum svokölluðu toppliðum hér, Halmstad, Helsingborg og eig- um svo útileik við AIK í í síðustu um- ferð. Halmstad og AIK eru efst í deildinni. Halmstad hefur tapað mörgum stigum á heimavelli en gengið mjög vel á útivelli, sem er óvanalegt hér í Svíþjóð, þar sem heimavöllurinn gefur mönnum mik- ið.“ Hvemig eru liðin í Allsvenskan í samanburði við aðrar efstu deildir í Evrópu annars vegar og hins vegar efstu deildina á íslandi? „Það er töluverður munur, miðað við bestu deildir í Evrópu. Bestu liðin hér, eins og AIK og Helsingborg, geta staðið í öllum liðum þótt þau séu ekki nógu sterk til að teljast til al- bestu liða Evrópu. Helsingborg sló út Inter Milano í Evrópukeppninni og náði sæti í meistaradeildinni. Þeir spiluðu mjög vel bæði heima og í Míl- anó og það er frábært fyrir sænskan fótbolta að fá sæti í meistaradeildinni og gefur öllum liðunum í deildinni hér svolitla innspýtingu. Miðað við fótboltann heima á ís- landi er sænski boltinn hraðari, „teknískari" og skipulagðari. Liðin hafa stóra og góða leikmannahópa. I Elfsborg erum við með 18 menn sem geta allir spilað í liðinu, þetta eru hörku leikmenn þannig að það er mikil samkeppni um sæti í byrjunar- liðinu. Það er mjög góð stemmning í kringum liðið og sjö þúsund áhorf- endur að meðaltali á heimaleikjum. Það er alltaf gaman að spila fyrir svona marga áhorfendur, það gefur manni aukakraft.“ Líkar sænski boltinn vel Haraldur segir að sér falli sænski fótboltinn mjög vel. Hann spilar í sinni venjulegu stöðu á vinstri kanti og liðið spilar 4-4-2. „Elfsborg hefur alltaf verið þekkt fyrir Iéttan og „teknískan" fótbolta. Boltanum er haldið vel innan liðsins og það hefur hentað mér mjög vel að spila héma,“ segir hann. „Eg er búinn að vera á bekknum í síðustu leikjunum. Ég var ekki með í byrjun þegar keppnistímabilið byrj- aði, ég varð fyrir meiðslum í nára, átti í því í næstum þrjá mánuði og var ekki kominn í toppæfingu fyrr en í lok maí. Liðinu hafði þá gengið vel og þjálfarinn hefur ákveðið að nota þá leikmenn áfram sem voru í byrjun. Svona er að lenda í meiðslum en það er bara að taka því. Ég hef þurft að bíta í það súra epli að vera á bekkn- um og reyna að standa mig. Það er hægara sagt en gert, það eru svo margir góðir leikmenn í liðinu og mikil samkeppni um mína stöðu á vinstri vængnum. Ég hef spilað átta leiki frá byrjun á þessu tímabili en oftast komið inn á,“ segir Haraldur. I seinni hluta mótsins í fyrra spil- aði hann hins vegar alla leikina, gerði fimm mörk og átti sex stoðsendingar og var þá einn þeirra leikmanna sem áttu flestar stoðsendingar í allri deildinni. Eins og hjá Skagaliðinu á sínum tíma tekur Haraldur yfirleitt horn- og aukaspyrnur fyrir Elfsborg þegar hann er í liðinu og föst leik- atriði og fyrirgjafir eru hans aðals- merki nú eins og áður. Umskipti til hins betra með nýjum þjálfara Það hafa orðið mikil umskipti í gengi Elfsborg-liðsins frá því í fyrra. „Okkur gekk alveg ömurlega fram- an af tímabilinu í fyrra en það snerist við þegar þjálfarinn var rekinn og B-A Strömberg tók við. Hann fór að leyfa mönnum að spila þennan venju- lega Elfsborg-fótbolta og láta bolt- ann rúlla. Það fengum við ekki að gera áður, það gekk allt út á kýlingar fram og enginn skildi neitt í neinu. Þannig að þjálfaraskiptin hafa borið mikinn árangur. Leikmannahópur- inn breyttist ekki en það að fá frjáls- ari hendur hefur gefið af sér fleiri mörk, skemmtilegri fótbolta og sjálfstraust í liðinu." Haraldur kom til Elfsborgar frá Skagamönnum 1998 og gerði þriggja ára samning sem rennur út um ára- mót. Þegar spurt er um hvað taki við um áramót fer hann varlega í yfirlýsing- ar, segist vera farinn að velta hlutun- um fyrir sér og væntanlega fari hann að ræða við stjórnendur Elfsborg fljótlega. „Málin skýrast væntanlega í október. Það er ekkert ákveðið enn- þá, þetta verður bara að koma í ljós,“ segir hann. „Það er ekki útilokað að við komum heim en það væri gaman að vera úti í nokkur ár í viðbót." Hann segir að sér og fjölskyldunni líki vel lífið í Svíþjóð. „Þetta er eitt- hvað sem allir boltastrákar vilja prófa og breytingin er mikil frá því að vera heima á Islandi, þar sem maður var að vinna allan daginn og æfa eftir það. Svíþjóð og ísland eru mjög lík samfélög en það er ekki sama ferðin á öllu hér og heima á íslandi; hér er ró- legra yfir öllu. Svíarnir eru aðeins jarðbundnari, rólegri og yfirvegaðri. Hérna safnarðu fyrir hlutunum áður en þú kaupir þá en heima kaupir þú fyrst og hugsar svo um að borga. Okkur líður mjög vel hérna. Svo er veðráttan náttúrlega miklu betri, hér fær maður gott sumar, yfir 20 stiga hiti frá því í apríl.“ Eins og næm má geta fylgist Haraldur vel með því sem er að ger- ast í íslensku knattspyrnunni í gegn- um Netið og fær sendar út myndbandsspólur með leikjum frá vinum og kunningjum. Það kemur ekki á óvart að hann segist fylgjast best með Skagamönnum, í liði þeirra var hann jú burðarás og vann fimm Islandsmeistaratitla með liðinu í röð á árunum 1993-1997. Blaðamaður hefur á orði að mikið sé talað um að knattspyrnan á Islandi hafi verið í lægð í sumar og útflutn- ingur knattspyrnumanna sé farinn að bitna á efstu deildinni. Haraldur segir að sú þróun þurfi ekki að lcoma á óvart. „1998 fóru ótrúlega margir leikmenn úr deild- inni heima út og hafa staðið sig vel á Norðurlöndunum og annars staðar í Evrópu, þannig að það er ekki skrýt- ið að það hafi komið lægð í knatt- spyrnuna en á móti kemur að þá fá ungir leikmenn tækifæri sem þeir hefðu ekki annars fengið strax; að sýna sig og sanna. Annars get ég ekki dæmt um hvernig deildin var í sumar en það er jákvætt að spennan var mikil. Það hefur komið mér mest á óvart hvað Skagamenn gerðu lítið af mörkum. Það hefur alltaf verið ein- kenni Skagamanna að skora mikið.“ Haraldur á að baki 20 A-landsleiki og 2 mörk og 25 leiki með yngri landsliðum en hefur ekki verið í landsliðshópnum frá 1995 þegar hann spilaði í Skagaliði Guðjóns Þórðar- sonar og landsliðinu undir stjórn Ás- geirs Elíassonar. Hann segist sáttur við að vera ekki í landsliðshópnum lengur. „Það er ekki einkennilegt að ég sé ekki í hópnum. Mér finnst sjálf- sagt mál að menn þurfi að vera að Morgunblaðið/PG Knattspyrnufjölskylda. Jónína Víglundsdóttir og Haraldur Ingólfsson ásamt Unni Ýr, 6 ára, og Tryggva, 4 ára, heima í Borás. Pressens bild Haraldur Ingólfsson, fyrrverandi leikmaður ÍA (t.h.J, í leik með Elfsborg. spila alla leiki með sínu liði til að vera í landsliði. En þótt ég sé ekki í hópn- um er gaman fyrir mig að finna hvað liðinu hefur gengið vel bæði undir stjórn Guðjóns og Atla, því byrjunin hjá honum lofar góðu. Það sem háði landsliðinu, þegar ég var í hópnum hjá Ásgeiri, var að hluta til það að þetta var blanda af leikmönnum sem spiluðu á íslandi og erlendis. Eftir að hafa kynnst því að vera atvinnumaður erlendis og leik- maður heima þá tel ég að landsliðið verði í rauninni að vera samansett af leikmönnum sem spila erlendis. Mönnum sem eru að spila í toppdeild- um í Evrópu allt árið, eru í góðu líkamlegu formi og hafa meira „ternpó" í kroppnum en menn ná upp heima. Það er bara svona. Það er fullt af leikmönnum heima, sem eru góðir og geta spjarað sig erlendis sem leik- menn en það tekur smá tíma að fara upp á næsta stig. Enda kemur það í ljós núna, þegar nær eingöngu at- vinnumenn eru í hópnum, að landslið- ið nær toppárangri. Ég hafði gaman af því að landsliðið skyldi vinna Svía. Ég bjóst við að þeir myndu ná jafnfefli en átti varla von á að þeir myndu vinna. Svíarnir spiluðu illa en Islendingarnir spiluðu vel, og það spilar enginn betur en andstæð- ingurinn leyfir. Það var kominn tími til að vinna Svíana og það var mjög gaman að mæta í landsliðstreyjunni á æfingu daginn eftir leikinn.“ Sænska landsliðið fékk miklar skammir í dagblöðum eftir tapið gegn Islandi, bæði leikmenn og þjálf- ari. Sænsku blöðin voru ekki heldur ánægð með fyrsta leik liðsins í HM- undankeppninni en þá vannst naum- ur 1-0 sigur á Aserbaídsjan, með marki sem Anders Svensson, félagi Haralds í Elfsborg, skoraði. Svensson er stjarna Elfsborgar, spilaði seinni hálfleikinn gegn íslend- ingum og Haraldur segir að hann sé frábær leikmaður. „Ég mundi segja að hann sé besti miðjumaður sem ég hef nokkurn tímann spilað með og það eru hreinar línur að hann er næsti maður sem fer frá Elfsborg til toppliðs í Evrópu. Hann hefur allt sem miðjumaður þarf, er fljótur og sterkur, góður skallamaður og skot- maður, með gott auga fyrir öllu spili og er ótrulega góður að komast fram hjá mönnum. Hann hefur spilað mjög vel fyrir okkur í sumar,“ segir Har- aldur. Svensson er eini A-lands- liðsmaður Elfsborgar en liðið á 4 leik- menn í 21 árs landsliðinu, en þar er Elfsborgarþjálfarinn B-A Strömberg við stjórnvölinn. Elfsborg er gamalt félag með mikla sögu og í hópi þeirra liða sem hafa unnið sér inn flest stig í efstu deild frá upphafi. Liðið hefur hins vegar ekki orðið Svíþjóðarmeist- ari síðan 1961. Hvernig hefur þú þróast sem leik- maður eftir að þú fórst út í atvinnu- mennsku? „Það er erfitt fyrir mig að dæma um það, en leikstíllinn minn hefur lít- ið breyst. Ég hef alltaf verið kant- maður og hef haldið áfram að spila þá stöðu hér. En ég er mun „teknískari" en þegar ég var heima enda er hér mikið byggt upp á hraða og tækni. Maður er líka kominn með meira „tempó“ í kroppinn og í sitt spil en áður og ég getgert hluti á meiri hraða en þegar ég var heima á íslandi enda fær maður ekki eins mikinn tíma með boltann hér og þarf að hreyfa sig enn meira til að skapa sér svæði.“ Guðjón bestur, Björklund verstur Hvernig finnst þér vinnubrögð þjálfara hér í samanburði viðþað sem þú kynntist á íslandi? „Eg hef haft marga þjálfara og þeir eru eins misjafnir og þeir eru margir enda hafa þeir ólíkar aðferðir. Sumir eru lélegir aðrir góðir. Guðjón Þórðarson er besti þjálfari sem ég hef nokkurn tímann haft, ég held að það sé ekki nokkur spurning. Hann veit alltaf nákvæmlega hvað hann vill inni á vellinum, er góður í að kenna leikmönnum þær stöður, sem þeir eiga að spila inni á vellinum, og ná fram því besta í hverjum leikmanni. Hjá Elfsborg hef ég haft tvo þjálf- ara. Fyrst Kalle Björklund og hann er lélegasti þjálfari sem ég hef haft. Þú gætir spurt alla aðra í liðinu og fengir sama svar, menn skildu ekki hans hugsun í sambandi við fótbolta. B-A Strömberg var aðstoðarþjálf- ari þegar ég kom en tók við liðinu um mitt sumar í fyrra og hann er mjög góður þjálfari. Hann er góður í sál- fræðihliðinni, sem er mjög mikil- vægt. Hann talar mikið við leikmenn og gefur mönnum spark í rassinn þegar þarf og kemur með góð „komment" þegar við á. Hér eru þjálfararnir vel menntað- ir, sækja mikið af námskeiðum og hittast reglulega til að ræða saman og læra hver af öðrum. Ég held að þjálfarar á íslandi séu líka yfirhöfuð vel menntaðir og sinni sínu starf eftir bestu getu. Þjálfunaraðferðirnar eru líkar en það háir boltanum heima að aðstæður eru þannig að leikmenn hafa ekki getað æft fótbolta allt árið, þangað til núna að Reykjaneshöllin er komin. Hérna getum við æft úti á möl allt árið og erum komnir með nýtt innanhússgervigras þannig að aðstæðurnar era alltaf að batna.“ Hættir eftir 3-4 ár Haraldur segist ekki hafa hugsað sér að leggja fyrir sig þjálfun þegar hann leggur skóna á hilluna, sem hann stefnir að eftir 3-4 ár, ef allt gengur upp. „Þá verð ég á fínum aldri til að hætta, 33-34 ára. Ég er við- skiptafræðingur og hef hugsað mér að starfa á þeim vettvangi þegar knattspyrnuferlinum lýkur,“ segir hann og kveðst ætla að njóta þess að spila fótbolta meðan heilsa og að- stæður leyfa og kveðst aðspurður alls ekki sjá sig fyrir sér í sporum Arnórs Guðjohnsens, sem enn er á fullu á fertugasta ári. Ef þú horfír yfíir ferilinn hingað til hvaða leikur eða atvik stendur upp úr? „Ég er ekki lengi að kalla það fram í huganum, það er sólarhringurinn 29. og 30. september 1996,“ segir Haraldur. „Þeim sólarhring í lífi mínu gleymi ég aldrei. Á sunnudegin- um 29. spiluðum við Skagamenn úr- slitaleik við KR í deildinni. Við þurft- um að vinna leikinn, unnum hann 4-1 og urðum íslandsmeistarar. Það voru um sex þúsund manns á vellinum og einstök stemmning. Daginn eftir, 30. september, fæddist svo Tryggvi son- ur minn. Það verður erfitt að slá út þennan sólarhring og það er ekkert á ferlinum sem kemst nálægt því,“ seg- ir Haraldur. Betur búið að kvennaknatt- spymu í Svíþjóð HARALDUR Ingólfsson og eigin- kona hans, Jóni'na Víglundsdóttir, eru eitt þekktasta knattspymup- ar Islands síðustu ár. I lok keppn- istímabilsins 1995 vildi svo skemmtilega til að bæði hlutu verðlaun fyrir háttvísi á leikvelli á uppskeruhátíð KSÍ og voru val- in prúðasti knattspymukarl og -kona á landinu það árið. Jóm'na jék 134 leiki með sigur- sælu liði ÍA í efstu deild í'slensku kvennaknattspyrnunnar og skor- aði 40 mörk. Auk þess lék hún 22 landsleiki. í lok keppnistímabils- ins. Eftir að hún fluttist til Svíþjóð- ar með Haraldi og bömum þeirra, Unni Ýr og Tryggva, spilaði Jón- ína tvö keppnisti'mabil í sænsku 3. deildinni sem er svæðisskipt og h'tið um löng ferðalög. Jóm'na segir mikinn mun á að- stæðum knattspymukvenna á ís- Iandi og í Svíþjóð. „Á íslandi gef- ast margar stelpur upp á unglingsárum þegar álagið er mest, 6 æfingar í viku fyrir utan skólann. Hér er álagið minna og allar aðstæður mun betri,“ segir Jónína. í liðinu sem ég spilaði með vor- um við á svipuðum aldri og æfð- um bara eins vel og við gátum. Það er mjög vel staðið að öllu í kringum kvennaknattspymuna hér, liðin hafa liðstjóra og ein- hvem tii að sjá um búningana og slfkt. Aðstaðan er líka miklu jafn- ari héraa milli karla og kvenna og ég held að það sé að hluta til út af því að félögin fá frá bænum pening sem miðast við íjölda iðk- enda þannig að ef jafnmargar konur og karlar spila fótbolta eiga peningamir að skiptast jafnt.“ Jónfna lagði skóna á hill- una fyrir þetta keppnistímabil. „Mér fannst kominn tími til að- hætta,“ sagði hún. „Ég hafði rosa- lega gaman af þessu en það var mikið að gera í skólanum þar sem ég er á si'ðasta ári í hjúkmnar- fræði,“ segir hún. Atti mikinn þátt í að forða okkur frá falli Haraldur Ingólfsson átti stóran þátt í því að Elfsborg féll ekki úr efstu deild á síðasta tímabili, að sögn B-A Strömberg, þjálfara liðsins. „Haraldur hefur átt frekar sveiflu- kenndan feril hjá okkur,“ sagði Strömberg í samtali við Morgunblað- ið. „Hann hefur lítið verið í byrjunar- liðinu á þessu keppnistímabili en er alltaf í hópnum. I fyrrahaust, þegar ég tók við, spilaði hann mikið, átti mjög góða leiki og stóran þátt í því að við héldum okkur í deildinni, skoraði fimm mörk og átti sjö stoðsendingar í síðustu 10 leikjunum. Það er mjög góður árangur.“ „Haraldur er góður sóknarmaður, með marga góða eiginleika, t.d. góða boltatækni, skot og sendingar og við notum hann mikið í aukaspymum og öðrum föstum leikatriðum. Það má segja að hann sé dæmigerður kant- rnaður," segir Strömberg. „En jafngóður og hann er í sóknar- leik þá eru gallar í varnarleik hans. Að vísu er hann vinnusamur og getur hlaupið mikið en það vantar talsvert á tæklingarnar hjá honum og hann á erfitt með að vinna boltann af and- stæðingi.11 Hvernig sérðu fyrir þér framtíð Haralds hjá Elfsborg? „Samningurinn hans rennur út í haust og á næstunni hefjast viðræður millli hans og stjórnarinnar. Niður- stöður þeirra viðræðna munu ráðast af peningamálunum. Það er verkefni stjórnarinnar er að sjá okkur fyrir leikmannahóp innan ákveðins fjár- hagsramma. Ef ég réði þessu hins vegar einn hefur Haraldur það marga góða eiginleika sem leikmaður að ég vil gjarnan hafa hann í þessum hópi.“ Nú eruð þið skammt á eftir topplið- unum í deildinni og eigið góðar líkur á Evrópusæti. Hvernig líst þér á fram- haldið? „Ég held ekki að við eigum mjög mikla möguleika á Evrópusæti,“ segir Strömberg. „Við höfum verið of veikir Morgunblaðið/PG Haraldur Ingólfsson ásamt B-A Strömberg, þjálfara Elfsborg. vamarlega og fengið á okkur of mikið _ af mörkum. Við þurfum að bæta úr því ~ til þess að vera trúverðugir í toppbar- áttunni og í Evrópukeppni. Síðustu umferðirnar í deildinni verða erfiðar, þá mætum við sterkustu liðunum. Nei, ég á ekki von á að við kaupum leikmenn til að styrkja okkur vamar- lega heldur leggjum áherslu á að vinna með þá leikmenn sem við höf- um.“ Strömberg kom til íslands í sumar sem einn af þjálfumm sænska ungl- ingalandsliðsins. „Það gekk ekki nógu vel því við töp- uðum 1-0. íslandi hefur farið mikiá* fram sem knattspyrnuþjóð. Það er í raun ótrúlegt og frábært að svo lítil þjóð hafi komið fram svo margir góðir knattspymumenn. Vitaskuld sá ég í íslenska unglingaliðinu menn sem við vildum gjarnan nota í Elfsborg en þeir eru flestir þegar samningsbundnir er- lendum liðum þannig að ekkert slíkt er til skoðunar," segir Strömberg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.