Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1912, Blaðsíða 74
74
6223.
6224.
6225.
6226.
as/n G-leraugnahús úr messing, fiöt; 1. 13 sm., br. 3,2 sm.,
þ. 0,8 sm. Litil plata er kveikt á með gröfnum stöf-
unum P í á, upphafsstöfum Páls Ingimundarsonar föður
Gests skálds.
2/12 Matskeið úr silfri, með gamallegu lagi, blaðið breiðast
framan til en mjóst við skaftið, sem er grant og beyg-
ist mjög upp frá blaðinu og er, með laglegu verki i
endurlifnunarstíl. L. 17,2 sm., br. blaðsins mest 5,2 sm.,
5 stimplar, m. a. ráðstofust. með árt. 66 (þ. e. 1866),
eru aftan á blaðinu og ennfremur Gr., skammstöfun
nafns fyrverandi eiganda dr. Gríms Thomsens á Bessa-
stöðum.
14/i2 ísaumsklútur úr grófu hörlérefti, st. 65 X 23 sm.; í hann
eru saumuð 3 latínuletursupphafsstafa stafrof, með kross-
saum, fléttusaum og borusaum, tölustafir, 19 smámyndir,
upphafsstafir þeirrar konu, er klútinn saumaði: A M D,
þ. e. Ástríður Magnúsdóttir á Hríshóli, og ártalinu 1838.
17/i2 Árni Árnason frá Höfðahólum: Lyklasylgja úr kopar,
ekki heil, kraginn tekinn af, kringlótt, þverm. 6,5 sm.,
gagnskorið verk, 3 bönd og milli þeirra upphafsstafir
konu þeirrar, er sylgjan var gerð handa: A H D, þ. e.
Aðalbjörg Halldórsdóttir, amma konu gefandans, — og
ártalið 1818.
Vidalinssafn.
Frú Helga Matzen hefir eftir ósk forstöðumanns Þjóðmenjasafns-
ins afhent Vídalínssafni að gjöf tvær mjög góðar ljósmyndir af fyr-
verandi manni sínum Jóni konsúl Vídalín og sér; eru myndir þessar
í prýðisfögrum umgjörðum, útskornum úr tré og algyltum. Þær
komu til safnsins 27. jan. 1911.
Ennfremur hefir sama frú afhent Vídalínssafni gamlan silfur-
spón, er því safni tilheyrði, en hún hafði áskilið sér rétt til að hafa
undir höndum til æviloka. Spónninn er með engilshöfði á skafts-
endanum og mannsmynd á skaftinu næst blaðinu, báðar myndirnar
hafa verið gyltar. Aftan á blaðið eru grafnar 2 greinar, er mynda kranz.
Aftan á skaftið er stimplað S M og 18 fyrir framan en 35 fyrir aftan
og er það ártalið, er spónninn var gerður, en lagið er miklu eldra.
— Mjög líkur öðrum silfurspæni í Vídalinssafni, sem getið er um í
Árb. 1908, bls. 58.