Lögberg - 11.10.1956, Blaðsíða 7

Lögberg - 11.10.1956, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN11. OKTÓBER 1956 7 Sólarsteinn, hinn eini sinnar tegundar, fannst á Grænlandi VÍKINGAR KUNNU SIGLINGARFRÆÐI Islendingar hafa löngum brotið heilann um hver hafi c-rðið endalok Islendinga- byggðarinnar á Grænlandi. Til skamms tíma hefir verið um að ræða getgátur einar og hafa ýmsar raddir verið uppi í því ssambandi. Síðasta sigl- ing, sem vitað er um frá Grænlandi, var árið 1410. Eftir það var sambandslaust við Grænland til ársins 1605 að þrem dönskum skipum iókst að ná þar landi. Þá voru þar eingöngu Eskimóar. Vitað er að Skrælingjar eyddu Vest- urbyggð árið 1379, en afdrif Austurbyggðarmanna h a f a verið mistri hulin. — Féllu þeir einnig fyrir Skrælingj- um, eða urðu farsóttir þeim að aldurtila? Eróðlegl erindi Síðastliðin 10 ár hafa Danir unnið að fornleifarannsókn- uni á Grænlandi. Einn helzti forgöngumaður þessara rann- sókna er cand. mag. C. L. Vebæk, safnvörður í Kaup- mannahöfn. Hann er nú staddur hér á víkingafundin- um og flytur fyrirlestur kl. 4 1 úag um helztu niðurstöður i'annsóknanna. öönsk víkingahíbýli — Við erum sex frá Dan- niörku, sagði C. L. Vebæk í samtali við tíðindamann Mbl., ~~ þrír fornleifafræðingar, tveir sagnfræðingar og einn niálfræðingur. Fornleifafræð- 'Ugurinn Thorkild Ramskou ^ytur erindi um byggingar- báttu víkingaaldar í Dan- mörku. I 'írelleborg á Sjá- landi hafa fundizt margar skálatóftir frá dögum víking- anna. í Álaborg hafa fundizt merkilegar grafir eins og skip í lögun. Létust úr bráSum sjúkdómi — Þér hafið unnið að rann- sóknum í Grænlandi? — Já, við höfum unnið að uppgreftri fornra húsatófta í Austurbyggð. Einnig höfum við grafið upp kirkjur og klaustur, m. a. stórt nunnu- klaustur frá 14. öld. Þá höfum við rannsakað kirkjugarða og fundið hópgrafir, þar sem ægði saman ungum og göml- um. Bendir allt til að fólkið, sem þarna er jarðað hafi látizt úr bráðum sjúkdómi, áþekk- um svartadauða. Ýmsa merki- lega hluti höfum við fundið á Grænlandi. Spónn úr rekaviði Einn þeirra er skeið, skorin úr rekaviði og rist rúnum. Stendur á tveim stöðum á skafti skeiðarinnar orðið „sbon“, á miðju skafti og á enda. Sólarsteinn Annar gagnmerkur hlutur, sem fundizt hefir er forn „sólarsteinn", eða hluti af ein- um slíkum, sem þó er úr reka- viði. Sólarsteina er getið í forn- um heimildum íslenzkum. í Flateyjarbók er minnzt á sól- arstein og talið að með honum sé hægt að finna sólarhæð þótt loft sé skýjað. I Biskupa- VINNUSOKKAR með margstyrktum tám og hælum NYLON Be7,iu kjöi'kaup vegna endingar — auka- þa'ginila — Ojí auka- sparnaðar. Kiulingar- Bóðir Penniuns vlnnu- sokkar, af stærð og Þykt, sem tilheyra tivaða vinnu sem er. EINNIG NÆRFÖT OG YTRI SKJÓLFÖT FRÆGT FIRMA SÍÐAN 18B8 WSll-4 sögum er einnig getið um sólarstein, en þar er hann tal- inn næsta líkur öðrum stein- um að útliti. í - bók eftir danskan skipstjóra, Carl V. Sölver, sem út kom 1954 og heitir „Vestervejen, om Vik- ingernes Sejlads“, er góð greinargerð um þessa sólar- steina og notkun þeirra. Leiðsagnarmenn Sölver sýnir fram á, að með þessum frumstæða útbúnaði hafi sjófarendur til forna getað mælt sólarhæðina og reiknað út áttir. Telur hann að sérstakir leiðsagnarmenn, sem svo eru nefndir, hafi kunnað til slíkra hluta. Þegar siglingum fækkaði og kunn- áttumennirnir féllu frá týnd- ist þessi þekking. Á ekki sinn líka Sölver álítur að sólarsteinar hafi, eins og nafnið bendir til, úpphaflega verið .tilhöggnir steinar, þar sem áttirnar voru markaðar á hring steinsins. Auðvitað var ekkert því til fyrirstöðu að þeir væru gerðir af öðru efni, eins og sá sem fannst á Grænlandi. Þessi hálfi sólarsteinn er hinn eini sinnar tegundar, sem fundizt hefir í veröldinni. Leiðarsteinar í Hauksbók er talað um leiðarsteina, sem siglt hafi verið eftir. Er sagt að Flóki hafi notað sér hrafnana vegna þess að þá þekktu menn ekki leiðarsteina. Pólstjarnan er einnig nefnd leiðarstjarna til forna. — Elzti rennilás heimsins C. L. Vebæk hefir til sýnis margt fleira fágætra muna úr Austurbyggð, eða öllu heldur myndir af fágætum munum. Ein þeirra er af elzta rennilás heimsins. Hefir hann verið þannig útbúinn, að í hvorn jaðar fats hafa verið festir vírhringir, en síðan dregið saman með þræði, unz hring- irnir lögðust hver yfir annan. Hafa konur í Austurbyggð krækt kjóla sína saman á hlið- inni með þessum „renni- lásum“. Forn vatnsleiðsla Önnur mynd sýnir vatns- leiðslu í íbúðarhús, sem er haglega hlaðin úr grjóti. Fyrsta vatnsleiðsla af þeirri gerð var grafin upp í Bröttu- hlíð. j, j'.j Kirkjan í Hvalsey Þá eru myndir af trésverð- um og spjótum úr hreindýrs- hornum, og loks mynd af hinni frægu kirkju í Hvalsey. Veggir hennar hafa verið hlaðnir úr grjóti, og standa enn. Kirkja þessi er vel þekkt úr gömlum íslenzkum annál- um. Eins og áður segir var siðasta sigling frá Grænlandi árið 1410. Þeir sem þá komu frá Grænlandi til íslands höfðu setið brúðkaup, sem fram fór í Hvalseyjarkirkju árið 1408. J. H. A. ölstofnrnar ern þogar starf ncktiii' Kjósið þér oukinn aðgang að ófengi í bygðarlagi yðar? Matsaia Drykkjustofur Drykkjustof ttr Cocktailstofur Cabaret öl og vín öl og vín öl, vín og öl, vín og öl, vín og sterklr drykkir sterkir drykkir sterkir drykkir Ef EKKI setjið X gegnt "Against" á seðli yðar Sala öls og léttra vína MEÐ í matstofum. MÓTI X Sala öls og léttra vína MEÐ í drykkjustofum. MÓTI X Sala sterkra drykkja MEÐ í borðstofum. MÓTI X Sala sterkra drykkja MEÐ í Cocktail stofum. MÓTI X Sala sterkra drykkja MEÐ við Cabarets. MÓTI X Stafurinn X gegnt "Against" þýðir • Færri þjóðvegaslys • Minna um glæpi • Færri sjúkdómstilfelli • Minni peningar í vasa ölbruggarans • Minni freisting fyrir æskuna • Þverrandi upplausn heimila MANITOBA-VÉR STÖNDUM VÖRÐ UM ÞIG (Birt aS tilhlutan SameinuSu kirkjunnar I Canada) (Manitoba Conference Local Option Committee) *-----------------------------

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.