Lögberg-Heimskringla - 07.12.1972, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 07.12.1972, Blaðsíða 1
Bergsteinn Jonsson, Box 213 REYKJAVIK, Iceland Jan. 73 Þjóðræknisþingið Sökum þess að nokkrir aí stjórnarnefndarmönnum geta ekki sótt þing Þjóðræknisfélagsins á venjulegum þingtíma í febrúar hefir verið ákveðið að halda þingið í ár seint í janúar, á föstudag og laugardag, janúar 26, og 27, 1973. Fólk er beðið að iaka eftir þessari breytingu á þingtímanum. Hö gberg - ?|ciméfer tnsla Stofnað 14. jan. 1888 Stofnað 9. sept. 1886 86. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 7. DESEMBER 1972 NÚMER 37 Úfgefendasfjórn Lögberg-Heimskringlu Aleck Thorarinson íormaður K. Wilhelm Johannson varaformaour og gjaldkeri Vestur íslendingar vilja eiga íslenzkt blað og sýna viljann í verkinu Á ársfundi Lögberg-Heims- kringlu 25. nóvember s.l. kom það skýrt fram í skýrslum og umræðum að Vestur íslend- ingar vilja eiga íslenzkt blað. Enda sýna það ummæli, sem oft fylgja gjöfum í styrktar- sjóð blaðsins að þeir eru margir, sem unna íslenzkri tungu og vilja allt til þess vinna að halda henni við í Vesturheimi, svo hún endist sem traust tengitaug milli þjóðbrotanna í Vesturálfu og þjóðarinnar á íslandi. Drengilegur stuðningur vel- vildarmanna blaðsins gerði því mögulegt að halda velli síðastliðið ár og koma út eftir settri áætlun, "g bendir allt til að áhugi manna fyrir fram- tíð blaðsins haldist. Ársreikn- ingar frá ágúst byrjun 1971 að ágúst byrjun 1972 sýna að á því tímabili námu gjafir er einstaklingar lögðu í styrkt- arsjóð Lögberg-Heimskringlu $5,338.00. Margir hafa nú þeg- ar lagt í þessa árs sjóð og birtast nöfn þeirra jafnótt í blaðinu. Fjárhagsskýrslur lagðar fyr- ir fundinn sýna vaxandi fjár- hagshalla við rekstur blaðs- ins. Hallinn nam $12,095.07 frá ágúst byrjun 1971 að ágúst byrjun 1972, en árið áður nam hann $10,309.07. Forseti stjórnarnefndarinnar, herra S. Aleck Thorarineon mun skrifa ítarlega um fjárhag blaðsins áðurenn langt líður. Dr. L. Sigurdson ritari Góðir gestir Séra Valdimar J. Eylands, D.D., frú Lilja kona hans og Barbara tengdadóttir þeirra, v o r u við kvöldmessuna í Fyrstu lútersku kirkju 26. nóvember. Var séra Ingþór I s f e 1 d sóknarprestur Gimli safnaðar í stólnum, og hafði séra Eylands orð á því, í góð- látlegu spaugi, að þeir væru víst færri sem legðu upp í ferð frá Rugby, N. D., til Winnipeg til að fá að njóta íslenzkrar messu. En þær voru nokkuð margar talsins messurnar sem séra Valdimar fltitti sjálfur á íslenzku, árin sem hann þjónaði söfhuði Fyrstu 'lútersku kirkju. í»au héldu heim á miðvikudag 29. nóvember. Kynnir sér tónlist í skólum Winnipegborgar Guðmundi Nordahl leizt svo á við fyrstu kynni af Winni- peg að ekki yrði tónlistarlífið þar kannað að ráði á fárra daga slitróttri viðstöðu í borg- inni. Guðmundur er klarin- ettuleikari í Lúðrasveit Reykjavíkur, og var með í hinni happasælu reisu hennar um byggðir íslendinga í Vest- urálfu síðastliðið sumar. Guðmundur hefir ekki tón- listina aðeins í hjáverkum. Hann er skólastjóri tónlistar- skóla Garðahrepps, nálægt Reykjavík, og kennir tónlist í barnaskólum þar. Honum lék því hugur á að kynnast músík í barnaskólum Winni- pegborgar og gerði sér aftur ferð þangað snemma í nóvem- ber með konu sinni, Þórdísi Ólafsdóttur. Hann leit inn hjá Lögberg-Heimskringlu, Sagði að þau hjón mundu ferðast lengra vestur í land og halda heim á leið eftir þriggja vikna dvöl í Kanada. Guðmundur hafði þá heim- sótt nokkra skóla í Winnipeg og talað við yfirmann tónlist- arkennzlu í skólakerfinu. Var honum hvarvetna vel tekið, honum sýnt allt, sem að mál- inu lýtur og allt skýrt fyrir honum. Þótti honum mikið koma til þeirrar áherzlu sem lögð er á músíkkennzlu í skól- unum í Winnipeg og allan að- búnaðar til þróunar þessarar menntar hjá æskunni. Fannst honum einnig mikill glæsi- bragur á tónlistarlífi borgar- innar yfirleitt. Hann frétti að frú Elma Gíslason væri að æfa söng- flokk sinn, Festival Opera Framhald á bls. 5. Víðtækt- verksvið ó sjó og landi Dave Einarsson, sem fullu nafni heitir Theodore David, hefir verið kosinn varaforseti Geophysical Service Incorpor- ated, petroleum subsidiary of Texas Incorporated in Can- ada. Er það langt nafn og flókið, en bendir til þess að starfssvið Dave Einarssons sé að kanna Kanada á sjó og landi í olíuleit. Áður var hann framkvæmdarstjóri þessarar álmu fyrirtækisins, og hefir verksvið hans legið víða út um heim síðan hann útskrif- aðist í jarðfræði frá Manitoba háskólanum árið 1956. Um árabil starfaði hann í Summatra og víðar í austur- löndum, en í Kairo kvæntist smíðað í Edmonton, Alta., sent hann Ginu konu sinni, sem er af egypskum og ítölskum ættum. Þau eiga tvo syni Paul Harold og Russell. Félagið gerir út skip með vísindalegum útbúnaði til neðansjávar könnuniar á At- lantshafinu við strendur Kan- ada, og leggja þau leið sína frá Nýfundhalandi til Græn- lands. Síðastliðið ár lét Geophysi- cal S e r v i c e Incorporated smíða skip til neðansjávar rannsókna, sem er hið full- kom nasta sem enn hefir verið gert út í slíka könnun. Það heitir G.S.r. Marirrer, var í þrem stykkjum til Hay Riv- er, N.W.T., sett þar saman og steypt þar af stokkunum. Dave er fæddur í Árborg, Man., sonur Guðmundar Ósk- ars Einarssonar og Guðrúnar Elínar Schram Einarsson. H e r r a Grettir Johannson, gjaldkeri Þjóðræknisfélags ís- lendinga í Vesturheimi, af- henti fundinum bankaávísun upp á $1000.00 að gjöf frá fé- laginu í styrktarsjóð Lögberg- Heimskringlu. Höfðinglegur styrkur frá fé- lögum og einstaklingum hefir gert blaðinu fært að gegna hlutskipti sínu mörg undan- farin ár. En örðugleikar við rekstur þess aukast árlega, með sívaxandi útgáfukostnaði, sem öll blöð hafa átt við að stríða, og rýrnandi tekjulind- um, meðal annars vegna þess hve mjög kanadísk blöð og tímarit hafa orðið útundan í keppni um auglýsingar síðast- liðin ár. Kom til orða að reynt yrði að afla blaðinu auglýsinga á íslandi vegna vaxandi ferða- mannastraums milh landa, og tveggja stórhátíða, er nú eru í aðsígi á Islandi og í Mani- toba, sem hlyti að gera flug- félögum og Eimskipafélaginu æskilegt að upplýsa almenn- ing um þá þjónustu er þau hafa upp á að bjóða. Einnig gæti komið til greina kynning á vörum er ferðamenn til Is- lands eiga kost á, og innflutt- um íslenzkum vörum í Kan- ada, og kemur þar til greina áætlun Eaton’s verzlunarinn- ar í Winnipeg að hafa íslenzk- ar vörur á boðstólum næsta sumar. Verður þar um yfir- gripsmikla kynningu að ræða. Létu fundarmenn uppi það álit að æskilegt mundi að biðja velunnara blaðsins á ía- landi að hafa það í huga þeg- ar auglýsingum er ráðstafað. Úr blöðunum fró íslandi Tveir arkitektar vinna nú að því að skipuleggja 1000 íbúða hverfi í vesturbænum í Reykjavík. Þegar arkitektarn- ir hafa skilað tillögum sínum að skipulagi, mun það lagt fyrir borgarráð til endanlegr- ar ákvörðunar. Ríkisstjórn Islands hefir mælst til þess við ha&ar- stjórnir landsirts að landhelg- isbrjótar og aðstoðarskip þeirra verði ekki afgreidd, og hafa hafnarstjórnir tekið vel í málið.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.