Alþýðublaðið - 27.08.1963, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.08.1963, Blaðsíða 1
44. ágr. — Sunnudagur 25: ágúst 1983 — 181. tbl. Undanfarnar vikur hefur Þjóð- minjaií.fnið verið að láta {rera rannsókn á fornri byggð skammt frá Hvítárholti í Iírunamanna- hreppi. Tildrög eru þau, að á síð- asta vori urðu þeir Guðmundur Jónsson stúdent á Kópsvatni og Sigurður Sigmundsson í Hvítár- holti þess varir, að fornminjar voru í jörðu í holtinu suður frá baVnian í HvítúrhcJ^i, og vissu menn ekki áður til, að þar hefði verið byggð. Þór Magnússon fornleifafræð- ingur hefur staðið fyrir rannsókn þarna í sumar, en með honum hef- ur allan tímann verið Guðmund- yr Jónsson á Kópsvatni, en starfs menn safnsins hafa einnig verið á staðnum tíma og tíma, og einnig hefur dr. Sigurður Þórarinsson Myndin sýnir grunn baðhúss- ins, sem grafið var upp í Hvítárholti. Til haegri er ofninn, er hann gerður af hellum á þrjá vegu og hell- ur lagðar yfir. Þar var eld- ur kveiktur undir og síðan hellt vatni á hellurnar og myndaðist þá gufa. Myndina tók Þór Magn. gert þar aldursrannsóknir á grundvelli öskulaga. Rannsókninni er nú lokið í bili, en verður vænt- anlega haldið áfram næsta sum- ar. Minjarnar eru á fleiri en ein- um stað í holtinu. Lokið er við að rannsaka sérstakt lítið hús, sena verið hefur baðhús með ofni í einu horninu, en bekk við hitt gaflhlaðið og lokræsi undir hlið- arvegginn hjá bekknum. Þessi húsgrunnur er um 3,80x2,60 m. að stærð, og er ákaflega skýr, og það sem einna eftirtektarverðast er, hve geysimikið þetta hús nef- ur verið niðurgrafið, eða um 90 sm. Það liefur verið sannkallað jarðlms og kemur það vel heim við baðhús það, sem gert er ráð fyrir í Eyrbyggju, þar sem sagt er frá drápi berserkjanna í baðinu. Þetta er eina baðhúsið, sem fund izt hefur hér á landi sem stendur sérstakt. Önnur baðhús, sem fund izt hafa eru sambyggð bænum. Mikill tími hefur farið í að rannsaka annan húsgrunn, sem Framh. á 5. síðu STÆRSTA ÚTBOÐ REYKJAVÍKUR: TILBOÐ í hið mikla holræsi,. sem fyrirhugaS er í Fossvogi, voru opn- u3 sl. laugardag í skrifstofu Inn- kaupastofnunar Revkjavfkur. Lægsta ti!bo3 var frá Véltækni h. f., 37 millj. En hæsta tilboðið var 56 milljónir. Útboðið á grerð holræsisins í Fossvogi er stærsta útboð, sem Innkaupastofnun Reykjavíkur hefi|r staðið fýrir. Er hér um Sigurpáll með 21 þús. tunnur Aflahæsta skipið á sumar- síldveiðunum er samkvæmt nýjustu skýrslu frá Fiskifé- Iaginu, Sigurpáll, Garði, með 21.147 mál og tunnur. Næst- ur er Sigurður Bjarnason Akurcyri, með 18.643 opr 3. er Guðmundur Þórðarson, Reykjavík, með 18.104. geysimikið verk að ræða, sem verö ur ein aðalframkvæmd Reykjavík- urborgar næstu tvö árin. Verkið verður unnið í samvinnu við Kópa vogskaupstað, sem að nokkru mun nota holræsið. Sem dæmi má nefna, að pípurnar í holræsið verða upp á yfir 10 millj. kr. Ein- um verktaká verður falið að ann- ast verkið, en síðan mun sá verk- taki verða að fela öðrum undir- verktökum ýmis verkefni. Fossvogsþoljræsið á að liggja eftir Fossvogsdal út í Skerja- fjörð. Þykir nauðsynlegt að leiða skolpið út í Skerjafjörð í stað þess að leiða það í Fossvoginn, þar eð sjórinn í Fossvogi mundi ella óhreinkast svo mjög. Hið nýja holræsi á að vera fyrir alla hina nýju byggð, sem koma mun í Framtíðinni í Fossvogi. Á vatnasvæði Fossvogsdals hafa áð- ur verið byggð tvö hverfi, Bú- staðahverfi og raðhúsahverfi. Frá Bústaðahverfi fer frárennslið nú í holræsi sem liggur í Réttarholts vegi og nær niður undir Fossvogs læk. Fer skolpið í lækinn og með honum til sjávar. Frá raðhúsa- hverfi fer frárennslið í bráða- birgðaholræsi í framhaldi Tungu- vegar nokkuð niður fyrir Bústaða- veg, síðan í opnum skurði niður í Fossvogslæk. í skýrslu borgarverkfræðings frá 1960 segir svo um vatnasvæði Fossvogsdals: 1. Vatnasvæði sjálfs Fossvogs- dalsins. Takmörk þess að norðan er hæðarhryggurinn milli Öskju- hlíðar og Bústaðahæðarinnar (hér um bil þar sem hitaveitustokkur- inn er) að austan útvarpsstöðvar- vegur, að sunnan Digranes- og Kópavogsháls en að vestan Reykja nesbraut. Vatnasvæði þetta er um 400 ha, og tilbeyrir helmingur eða 200 ha. hvoru bæjarfélagi, Reykjavík og Kópavogi. 2. Vatnasvæði er takmarkast af strandlengju Fossvogs að sunn an, flugvallarsvæðinu að vestan, háhrygg Öskjuhlíðar að norðan og Reykjanesbraut að austan. Stærð svæðis þess er um 114 ha. og tilheyrir Reykjavík. 3. Vatnasvæði er takmarkast af strandlengju Fossvogs að norðan og vestan, háhrygg Kársness að sunnan og Reykjanesbraut að austan. Stærð þessa svæðis er um 74 ha og tilheyrir Kópavogskaup- stað. Viðskiptasamn- ingur við Tékka Undanfarið hefur dvalið hér á landi viðskiptanefnd frá Tékkó- slóvakiu til að scmja um viðskipti landanna fyrir tímabilið 1. sept- ember 1963 til 30 september 1966. Samkvæmt vörulistum sem nú hefur verið samið um, er gert ráð fyrir að ísland selji eins og áður: Fryst flök frysta síld, saltsíld fiskimjöl, lýsi, fiskniðursuðu auk fleiri vara. Frá Tékkóslóvakíu er m.a. gert ráð fyrir kaupum á vefnaðarvöru, skófatnaði, búsá- Framh. á 5. síðu h- :

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.