Vísir - 22.06.1959, Síða 3

Vísir - 22.06.1959, Síða 3
Mánudaginn .22. júní 1959 VfSIR 3 Vitavörður í mesta Hefur verið nær 50 ár. — Var pabbi þinn fyrsti vita vörðurinn í Stórhöfða? — Ekki var það nú. Vitinn var reistur árið 1906 og hann hét Guðmundur Ögmundsson, sem var hér fyrst vitavörður. Faðir minn tók við starfinu ár- ið 1910 og ég við af honum 1935. Eg hef því átt hér heima í nær 50 ár og er öllum hnútum kunnugur orðinn. — Hvað hafa veðurathuganir verið starfræktar hér lengi? — Þær voru gerðar í Stór- höfða fyrst 1923 og óslitið upp frá því. — Er þeim eins háttað nú og: þá? — Nei. Það er alltaf verið að auka þær. Og nú er svo komið að maður þarf helzt að vera eitthvað að bauka við þær all- an sólarhringinn. Það virðist alls ekki ætlast til þess að mað- ur þurfi nokkurn tíma að sofa, því nú orðið þarf maður að lesa af mælunum á 3ja klukku- stunda fresti. Stundum er mað- ur í þann veginn að festa blund inn þegar maður verður að brölta á fætur til þess að lesa af mælunum á nýjan leik. Fyr- ir svefnstygga væri þetta ekki gott starf. lega 37 þúsund krónur í kaup og að auki um 11 þúsund krón- ur fyrir vitavörzluna. Þetta eru 4 þúsund krónur á mánuði, en að sjálfsögðu hef ég húsnæði, eldsneyti og ljós ókeypis. Samt verður að halda sparlega á til að kaupið gangi ekki til þurrð- ar. — Þú rekur einhvern búskap hér efra? — Enginn bóndi myndi kalla þetta búskap, en hér hef ég samt örfáar kindaskjátur til að hugsa um og eina kú, sem á- byggilega gefur af sér beztu mjólk í heimi. Grasið er kjarn- mikið og gott. Og úr því að það er til þess ætlazt að maður vaki allan sólarhringinn, þá munar mann ekki svo mikið um að bæta á sig þessari skepnuhirðingu. Nú er öllu ekið heim. — Aðdrættir eru nokkuð langir úr kaupstað? — Það eru 6 kílómetrar hing að úr kaupstaðnum, en síðan vegurinn kom eru aðdrættir miklu auðveldari en áður. Nú vald sitt, en þeim tókst það ekki. Yfirmennirnir þögguðu allan ofstopa jafnharðan niður í þeim. — Hvað voru þeir lengi á Stórhöfða? — Til haustsins 1943. Fyrst voru hér Kanadamenn í byrjun hernámsins, síðan brezkir sjc- liðar og loks Bandaríkjamenn. Þeir voru fjölmennastir og byggðu hér miklar bækistöðv- ar og fjölda bragga á höfðan- um. Þá mátti enginn maður heimsækja mig nema ég sækti hann niður að hliði og fylgdi honum þangað til baka. En mér sýndu þeir fullkomið traust. — Hefur þú ekki verið á- horfandi að válegum atburðum í Stórhöfða frá því að þú komst hingað? — Sitt af hverju hefur skeð, en sjaldnast að ég hafi bein- línis verið áhorfandi að því. Það heitir Vík, þar sem eiðið er mjóst milli Stórhöfða og að- aleyjarinnar. Þar háfa strand- að tveir brezkir togarar í mínu minni. Annar þeirra strandaði rétt eftir síðustu styrjöld, en Rabbað við Sigurð Jónatansson, vitavörð á Stórhöfða í Vestm.eyjum Hefir lifsð hálfa öld í vitanuan, þarf helzt að vaka allan sóEarhringinn. Vitinn og vitavarðarhúsið á Stórhöfða. Vitavarðarhjónin standa við vegginn. er hægt að aka bíl heim í hlað, en áður varð að bera alla að- drætti á bakinu upp höfðann og hann er 122 metra hár. Það var erfitt verk þegar um þung- ar byrðar var að ræða. Á þeim árum þegar faðir minn var vitavörður fór hann flesta daga gangandi alla leið niður í kaupstaðinn. Það var röskur klukkustundar gangur hvora leið. Þá hélt hann venju- lega á einhverju með sér til baka. Þannig dró hann að sér vistir í búið og annað til heim- ilisþarfa, Nú er öllu ekið heim, enda orðið svo mikið að gera við veðurathuganirnar að mað- ur má helzt ekki víkja sér frá. — Hvenær var vegurinn lagður? — Það er tiltölulega stutt síðan. Á meðan herinn sat hér á Stórhöfða var stöðugur met- ingur milii hans og íslendinga hvor ætti að leggja veginn. Báð ir þrjózkuðust, en seinna var vegurinn tekinn í þjóðvegatölu og síðan hefur honum verið haldið vel við. Hermenn frá ýmsum þjóðum. — Hvernig var sambýlið við herinn? -—- Ágætt. Það kom einstöku sinnum fyrir að hermenn ætl- uðu að beita frekju og sýna hinn allmörgum árum áður í dimmviðri og snjókomu. Mann- j björg varð í bæði skiptin en skipin eyðilögðust. Svo varð hérna válegt slys fyrir átta eða níu árum. Eg man að það skeði 1. maí. Tveir i ungir menn höfðu róið sinn á ( hvorum kajak vestur fyrir Stór höfða. Þeir hétu Grétar Sigurðs son og Sævar Benónýsson. Hjálpin barst of seint. Þeir þeir voru komnir hér ■ skammt undan hvolfdi kajak i . I Grétars. Sævar náði til hans og ætluðu þeir að rétta kajakinn ' við, en það tókst ekki. Sævar ' gat ekki tekið Grétar upp í i sinn bát, því hann var ekki ! nema fyrir einn mann. Hann gat ekki heldur komið Grétari á kjöl og varð að skilja þarna | við hann. Réri hann síðan líf- róður til lands, upp í svokallaða | Brimsurð. Þaðan hljóp hann á sokkaleistunum og allur holdvotur, allt hvað fætur tog- | uðu hingað upp á Stórhöfða til , þess að sækja hjálp. Héðan var j símað eftir aðstoð lögreglu, er kom í skyndi og mannaði bát til þess að fara á slystaðinn. Menn 1 irnir fundu Grétar á floti í sjón um, en hann var þá örendur, hefur sennilega dáið af kulda. En þegar Sævar sá bátinn með , lögreglumönnunum leggja frá í mesía veðrabæli á Islandi — já, sennilega í öll- um heiminum — því þar er iogn sem næst óþekkt fyrirbæri, en hinsvegar alitaf rok, búa roskin hjón sem gæta vitans og veðurathugunarstcðvar, sem þar hefur verið komið upp. Þeir sem hlustað hafa á veðurlýsingar Veðurstofunnar á undanförnum árum vita að mesta veðrabæli á íslandi er Stór- liöfði í Vestmannaeyjum. Það herma gamansamir menn að þar komi aðeins hálfur logndagur ár hvert að meðaltali. Hvort það satt læt eg ósagt. Fuglabjörgin í Vcstmannaeyjum eru undarlega fögur. Bergið sjálft er víðast móbrúnt að lit, en fuglinn gefur því líf og aukin litbrigði. Hvar sem silla er í berginu situr fuglinn unn- vörpum og þar er allt á eilífri hreyfingu. Hitt er svo annað mál, að oft býr dauði og glötun í þessari miklu og sérkennilegu fegurð, og beir eru ótaldir hinir vösku og liugdjörfu Vest- mannaeyingar, sem hrapað hafa í þessum björgum. Hitt er staðreynd að enginn flugvöllur landsins er jafn oft lokaður sökum storma sem Vestmannaeyjaflugvöllur og líka er það staðreynd að þegar ég heimsótti vitavarðarhjónin í Stórhöfða þá var þar nær ó- stætt veður af norðaustri og nísti inn í merg og bein. — Þetta er ekki mikið hjá því sem er hér stundum, sagði Sigurður Jónatansson vitavörð- ur. Þá er hér í raun og sann- leika óstætt og ekki viðlit að fara út fyrir hússins dyr. — Þú ættir að þekkja það, þú hefur verið hérna lengi. — Eg hef átt heima að mestu leyti í hálfa öld. Kom hingað tólf ára gamall snáði með föð- ur mínum. Áttum áður heima í Mýrdalnum, en pabbi minn var bróðir Eldeyjar-Hjalta. Hann les af 4 mælum. — Hvers konar mælar eru það, sem þú þarft að lesa af? — Það eru fjórir mælar utan- húss, þ. e. hámarksmælir, lág- marksmælir, hitamælir og svo- kallaður votur mælir. Vind- hraðinn er- hins vegar athugað- ur með hlustunartækjum og til þess þarf ekki að fara út. — Er þetta ekki vondur starfi í illviðrum? — Alveg sérstaklega. Oft er svo hvasst að það er illfært hér á Stórhöfða, og ef þar við bæt- ist náttmyrkur og hríð þá er enginn öfundsverður af starf- inu. Einstöku veður verða svo hörð hérna uppi, að lífshættu- legt er að fara út. Það eru næð- issömustu stundirnar því þá Sigurður Jónatansson, vitavörður. hætti ég mér ekki út og get hvílzt í næði. En þetta kemur ekki allt of oft fyrir. — Hvað hefurðu mælt mest- an vindhraða á Stórhöfða? — Sextán stig, eða 100 hnúta. Þá er betra að halda sig ekki utan dyra. — Þú hlýtur að hafa ofsa hátt kaup fyrir svona ónæðis- samt starf og illt, ekki sízt með tiíliti til þess að þú þarft helzt að vaka allan sólarhringinn. Auk þess er þetta tvöfalt starf, vitavarzla og veðurathuganir? Þarf ekki eyðslu til! — Eg veit ekki hvað ykkur finnst um það þarna í höfuð- borginni, en okkur hérna Stór- höfðabúum finnst við vel geta komið kaupinu okkar í lóg — og þurfa ekki sérlega eyðslu- semi til. Fyrir veðurathugan- irnar fékk ég árið sem leið rúm- *

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.