Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 25

Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 25
Maí 1996 Frá orðanefnd Eftir Stefán Briem @ Það atriði sem oftast er spurst fyrir um hjá orðanefnd er heiti á merkinu @ sem er stafur nr. 64 í ASCII-stafamenginu. Orðanefnd telur vera þörf á nokkrum heitum á þessu merki sem eigi að ráðast annars vegar af hlutverki þess og hins vegar af útliti þess. Hlutverk: Fyrir daga tölvunnar var @- merkið notað á vörureikningum til þess að tilgreina einingarverð vöni og er svo enn. Samkvæmt því hlut- verki leggur orðanefnd til heitið verðmerki. í tölvupóstfangi er ávallt eitt @-merki sem skilur að kenni not- anda og staðgreini fyrir tölvupóst- stöð hans. Samkvæmt því hlut- verki leggur orðanefnd til heitið vistmerki. Oft má vísa til þessara tveggja hlutverka @-merkisins með því að nota í stað þess forsetninguna á. Það er hliðstætt því sem ensku- mælandi menn gera þegar þeir lesa úr @-merkinu ensku forsetninguna at. Þriðji möguleikinn á heiti @- merkisins samkvæmt hlutverki þess er því að kalla það á-merki. Útlit: Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um heiti á @-merkinu eftir útliti þess og eru mörg þeirra leidd af erlendum fyrirmyndum. Nokkur þessara heita eru talin hér upp í stafrófsröð: a með rana, fílseyra, skott-a, snigill, snúð-a. Orðanefnd mælir einkum með heitinu snigill þegar talað er um @-merkið almennt. Þegar lesið er upphátt tölvu- póstfang manns getur hins vegar verið óheppilegt að nota eitthvert ofantalinna orða, svo sem snigill, því að hætt er við að áheyrandinn haldi að skrifa eigi það orð fullum fetum. Tillaga orðanefndar er sú að lesa @ í tölvupóstfangi sem á. Hvernig lesið er úr tölvupóst- fanginu að öðru leyti ræðst af ein- stökum stafarunum. Stundum er hægt að lesa stafarunur eins og orð en stundum þarf að stafa þær. Undimtaður les til dæmis tölvu- póstfang sitt stefan@ismal.hi.is þannig: stefan á ismal punktur há i punktur is Því er þó ekki að neita að stundum þarf að útskýra d-ið þegar menn heyra það í fyrsta sinn notað í þessu sambandi, til dæmis með því að segja á-merki. Reynsl- an ein sker úr um hvort menn geta vanistö-inu þannig að útskýringar verði óþarfar. Upplýsingar og fróð Tölvutækni er einkum beitt við vinnslu upplýsinga. I Tölvuorða- safni, 2. útg. 1986, eru upplýsingar kv. ft. (í gagnavinnslu) skilgreindai' Frh. á nœstu síðu Frh. affyrri síðu Kötturinn í sekknum Eftir að hafa keypt vöru eða þjónustu á netinu vakna nokki'ar spumingar: Hver er réttur neytand- ans ef eitthvað fer úrskeiðis? Hvernig er ábyrgð og viðhalds- þjónustu háttað? Er greiður að- gangur að upplýsinga- og kvört- unarþjónustu? Hvernig eru reglur um skilarétt og endurgreiðslu? Ef um svik er að ræða hver er þá skaðsemisábyrgð og hvernig er aðgangur að dómstólum? Þessar vangaveltur geta skapað enn frek- ari hindranir. Öryggið byrjar heima Það skiptir ekki máli hversu öruggt Internetið er ef öryggi er ábótavant hjá notandanum sjálf- um. Öll aðgangsorð og gögn sem verið er að senda þarf að varðveita á öruggan hátt. Þegar tölvusnápar geta ekki lengur þefað uppi greiðslukortanúmer og aðrar við- kvæmar upplýsingar á netinu sjálfu er eins víst að þeir leiti út fyrir netið. Öryggi er víða ábóta- vant á nærnetum og þar eru oft margir notendur um sömu tölvuna. Til er fjöldi forrita sem hlerar inn- slátt af lyklaborði og ritar í falda skrá. Starfsmenn fjármálafyrir- tækisins First Virtual Holdings í Bandaríkjunum hafa veitt þessum hlerunaiTÍtum athygli. Snemma á þessu ári sýndu þeir fram á að hler- unarforritin gátu auðveldalega náð í greiðslukortanúmer og aðrar upp- lýsingar úr netforritum sem fram- leidd eru af Netscape og Cyber- Cash og hafa verið talin örugg. Þetta hefur leitt umræðuna að því hvort kortalesari verði algengur aukabúnaður á tölvum í fram- tíðinni. Ágúst Ómar Ágústsson situr í stjórn Neytenda- samtakanna Tölvumál - 25

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.