Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 11

Tölvumál - 01.05.1996, Blaðsíða 11
Maí 1996 Viðbrögð athafnamanna I anda frjálsra viðskipta hefur það tækifæri sem þetta tilefni skapar ekki farið fram hjá at- hafnamönnum. Vestan hafs hefur verið brugð- ist við þörfinni með því að stofna ráðgjafafyrir- tæki og verktakafyrirtæki sérhæfð (að eigin sögn) í að skipuleggja og vinna heildarlausn á þessu verkefni. Hugbúnaðarfyrirtæki eru að byrja að setja á markað hjálparkerfi tölvumanna sem á að afgreiða í einni svipan heildarúttekt á áhrifum aldamótabreytinganna. Árið 2000 er sem sagt orðið „Big Business" í tölvuheiminum. IBM og álíka fyrirtæki eru farin að líta á árið 2000 sem bjargvætt! Ráðstefnur hafa verið haldnar um málefnið, komið hefur verið af stað umfjöllun í fjölmiðlum, ekki hvað síst í þeim tilgangi að skapa viðskipti. Málefnið er ekki bundið við eina tegund vél- búnaðar frekar en aðra. Þetta er alls ekki ein- angrað við stórar „móðurtölvur" (þar sem átt er við IBM og samhæfðar vélar). Þó mætti með sönnu segja að vandamálið komi fyrst og fremst í Ijós í kerfum viðskiptalegs eðlis, í þeim hefð- bundnu (og að öllum líkindum gömlu) tölvu- kerfum sem við höfum tilhneigingu til að taka sem sjálfsagða hluti - launakerfum, bankakerf- um, lánakerfum og þess háttar. Verkefnið hér á landi Enginn hefur enn sem komið er reynt að taka saman hversu umfangsmikið eða kostnaðar- samt þetta verkefni kemur til með að verða fyrir fyrirtæki í upplýsingatækniiðnaði hér á landi. í Bandaríkjunum eru menn farnir að nota við- miðunartölu í þessu sambandi og reikna með að verkefnið „Árið 2000“ komi til með að kosta fyrirtæki 500 fyrir hverja forritslínu í forritasafni. Meðalstór banki þar hefur áætlað að þetta verkefni komi til með að kosta bankann 25 milljónir dollara. Enginn smápeningur þar! Ekki veit ég hvort umfangið verður sambærilegt fyrir til dæmis Reiknistofu bankanna, en við sjáum strax að hér er á ferðinni stórt verkefni sem kemur til með að verða dýrt. Það sem enn verra er, árangurinn verður lítið áberandi, helst ósýnilegur. Hann felst einfaldlega í því að rekstur fyrirtækisins eða stofnunarinnar heldur áfram ótruflaður og með óbreyttum hætti eftir áramótin 1999/2000 eins og áður var. Það er vel þekkt vandamál að erfitt getur reynst að réttlæta svo mikil útlát þegar árangur/ framþróun er ekki meiri en hér um ræðir. Hins vegar ber alltaf að hafa í huga að hér er um að ræða sannkallað lífsspursmál. Við sem starfað höfum lengi við hugbúnaðar- framleiðslu vitum hvaða hlutfall af verkefnum klárast á tilætluðum tíma. En nú ber að hafa skýrt í huga að hér er á ferðinni verkefni þar sem framkvæmdaáætlun verður að ganga upp og undirbúningurinn verður að vera tilbúinn á tilsettum tíma, þar sem aldamótin koma hvort sem við erum tilbúin eða ekki. Hvað er hægt að gera? Ef þú ert ábyrg(ur) fyrir hugbúnaðarþróun, kerfisviðhaldi eða rekstri tölvukerfa er ráðlagt að skilgreina og koma af stað formlegu verkefni til að meta ástandið og hættuna fyrir kerfis- rekstur þegar í stað. Hafðu hættumat og við- bragðsáætlun tilbúna fyrir lok ársins 1996. Kláraðu undirbúning og allar kerfisbreytingar sem fyrst, í síðasta lagi fyrir árslok 1998, þannig að hægt verði að keyra öll kerfi í heilt ár áður en aldamótin skella á. Ég vona að Skýrslutæknifélagið muni á næstunni standa fyrir ráðstefnu þar sem því við- fangsefni sem hér hefur verið tæpt á verða gerð miklu betri og ítarlegri skil. Verður árið 2000 bjargvættur tölvuframleiðenda? Gartner Group skýrði frá því nýlega að undir- búningur á tölvukerfum fyrir árið 2000 gæti orðið stærsta einstaka atriði sem komi til með að hafa áhrif á sölu hefðbundinna stórtölva á næstu árum. Bæði IBM og fyrirtæki sem sérhæfa sig í framleiðslu diskakerfa fyrir IBM tölvuumhverfi hugsa sér gott til glóðarinnar þegar þeir horfa fram til aldamóta. Verkefni þetta virðist ef til vill óspennandi, það hefur ekkert með Internet að gera og ber þar af leiðandi stimpil sem gamaldags og púkó. En þetta mál er dauðans alvara, í fjármála- kerfum, bönkum, tryggingafélögum, verðbréfa- miðlunum, spítulum, skólum, flutningafyrir- tækjum og miklu víðar. Undirbúningur undir aldamótin er lífsspursmál fyrir fyrirtæki sem standa að tölvurekstri. Ef stór fyrirtæki undirbúa sig ekki vel og tímanlega geta þessi aldamót einfaldlega riðið þeim að fullu. Tölvumál - 11

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.